Morgunblaðið - 11.12.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
Áframhaldandi rekstur
Arnarflugs tryggður
með nokkurri vissu
— segir Agnar Friðriksson,
framkvæmdastjóri
SAMGÖNGURÁÐHERRA kynnti á Alþingi í gær bréf frá framkvæmda-
stjóra Arnarflugs, þar sem því var lýst yfir ad rekstrarstaða félagsins væri
mjög erfið og gæti starfsemi þess stöövazt innan fárra daga, yrði ekkert
að gert. Agnar Friðriksson, framkvæmdastjóri Arnarflugs, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að í bréfinu hefði stöðu fyrirtækisins verið lýst og hvað
gera þyrfti. Staðan iiti nú miklu betur út, enda hefðu ýmsar ráðstafanir
verið gerðar á síðustu dögum og væru í bígerð, sem skiluðu mjög góðum
árangri og ættu að geta tryggt áframhaldandi rekstur.
Agnar sagðist ekki sjá ástæðu
til annars en að þessar aðgerðir
löguðu stöðu félagsins verulega.
Þessi árstími væri alltaf erfiður í
rekstri flugfélaga, en hann tryði
því, að með þessu yrði áframhald-
andi rekstur félagsins tryggður
með nokkurri vissu. Þar vægi lang-
þyngst að innheimta útistandandi
skulda skilaði sér fljótt og vel.
Hann væri þeirrar skoðunar, að
staðan um áramót yrði svipuð og
í lok september. Tap yrði nánast
jafnmikið og afskriftir félagsins,
eða um 17 milljónir króna. Hann
ætti von á því, að aðgerðir þær,
sem nú væri unnið að, skiluðu
meiru, en næmi tapi á sama tíma.
Hins vegar væri erfitt að fullyrða
eitthvað um afkomuna, þar sem
hún væri háð gengisskráningu
vegna erlendra skulda og ekki
væri hægt að segja til um hver
hún yrði um áramót.
„Það er verið að endursemja um
greiðslu erlendra skulda, þannig
að þær mæti áætlaðri greiðslu úti-
standandi skulda okkar erlendis.
Einnig er verið að vinna að sölu
einnar af flugvélum Arnarflugs,
sem bæði losar um veðbönd á
öðrum eignum og losar um fé, auk
þess sem söluverð verður langt
umfram bókfært verð. Söluverð á
vélinni, sem er Boeing 707 og er í
leiguverkefni í Líbýu, gæti verið
um 1,5 milljónir dala, rúmar 60
milljónir, en bókfært verð er að-
eins 400.000 dalir, um 16 milljónir
króna. Þetta er komið mjög langt
og verður hugsanlega frágengið í
þessari viku. Við munum hins
vegar þurfa að leigja vélina eitt-
hvað áfram til að ljúka samningi
okkar í Líbýu, sem lýkur í febrúar,
nema um framlengingu verði að
ræða,“ sagði Agnar. Hann sagði
ennfremur, að búið væri að ganga
frá tryggingum á flugvélum fé-
lagsins til eins árs og allt tal um
annað væri rangt.
Tvær vélar af þremur til innan-
landsflugs Arnarflugs hafa verið
í notkun, en þriðja vélin hefur
ekki verið í notkun vegna hreyfi-
bilunar. „Við misstum út tvo
hreyfla og sá þriðji er í kostnaðar-
samri viðgerð," sagði Agnar. Hann
vildi ekki svara þeirri spurningu
hvort fjárskortur félagsins ógnaði
áframhaldandi rekstri innan-
landsflugs þess.
Sjónvarpið og Amarflug:
Útvarpsstjóri óskar um-
sagnar Siðanefndar BÍ
ÚTVARPS8TJÓRI, Markús Örn
Antonsson, hefur nú óskað um-
sagnar _ Siðanefndar Blaðamanna
félags Islands um frétt sjónvarps-
ins fyrir nokkru um afkomu Arn-
arflugs og viðtal við framkvæmda-
stjóra félagsins Agnar Friðriksson.
Útvarpsráð hefur komizt að þeirri
niðurstöðu, að biðjasl beri afsök-
unar á umræddri frétt, en frétta-
stjóri sjónvarpsins, Ingvi Hrafn
Jónsson, telur ekki ástæðu tii
þeas.
Markús Örn Antonsson, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að
hann vildi ekki tjá sig um rnálið,
fyrr en umsögn Siðanefndar BI
lægi fyrir. Þegar upp kæmi slíkur
Morgunbíaðinu/Árni Sæberg
Athafnasvæði Hafskips við Austurbakkann. Þar var allt með kyrrum kjörum í gær. Þarna hafði Eimskip áður
aðstöðu en Hafskip fékk hana þegar Eimskip flutti alia sína starfsemi inn í Sundahöfn. Nú telur Eimskip sig
þurfa að fá þetta athafnasvæði aftur vegna aukinnar starfsemi.
Samningur um sölu á eignum Hafskips enn ófrágenginn:
Þurfum Austurhöfnina
vegna aukinna flutninga
— segir Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips
ágreiningur, eins og fram hefði
komið milli útvarpsráðs og
fréttastjóra, fyndist honum eðli-
legt að fengið væri álit þessarar
nefndar. í reynd væru í gildi sér-
stakar fréttareglur ríkisútvarps-
ins, en vegna ályktunar útvarps-
ráðs um að fréttastjóri biðjist
afsökunar á aðurgreindum
fréttaflutningi, væri sér kunnugt
um það, að siðanefndin fjallaði
meðal annars um mál sem þessi
og hægt væri að fara fram á
birtingu niðurstöðu hennar. Þess
vegna teldi hann mjög mikilvægt
að fara þess á leit við nefndina,
að hún fjallaði um þetta mál.
Sjá ennfremur frétt á bls. 37.
MEÐ auknum flutningum í kjölfar
kaupa á eignum Hafskips mun
Eimskipafélagið þurfa að nota hafn-
araðstööu Hafskips í Austurhöfn-
inni, að sögn Haröar Sigurgestsson-
ar forstjóra Eimskips. I samkomu-
lagi Eimskips og Útvegsbankans um
sölu á eignum Hafskips er heimild
til handa Eimskip að ganga inn í
leigusamninga Hafskips.
Samningur Hafskips við hafnar-
stjórn um leigu á Faxaskála og
A-skála og aðra aðstöðu Hafskips
í Austurhöfninni gildir til árið
2001. Samkvæmt ákvæðum í lögum
um húsaleigusamninga hefur
skiptaráðandi heimild til að selja
slíka samn' ». Tólf fyrirtæki í
Reykjavík . skrifað hafnar-
stjórn bréf þar sem þess er farið
á leit að aðstaðan í Austurhöfninni
fylgi ekki eigum Hafskips til
Eimskips, eins og fram hefur
komið í blaðinu. Erindið verður
væntanlega tekið fyrir í hafnar-
stjórn á næstu dögum. Þess ber
að geta hér að samkvæmt skipu-
lagstillögum að Kvosinni er gert
ráð fyrir að hluti af Austurhöfn-
inni fari undir aðra hluti, og áttu
forráðamenn Eimskips viðræður
við borgaryfirvöld um það mál í
gær.
í gær var ekki gengið frá samn-
ingum á milli skiptaráðanda og
Eimskips um sölu á eignum Haf-
skips. Markús Sigurbjörnsson
skiptaráðandi sagði í gær að verið
væri að ganga frá ýmsum hlutum,
svo sem varðandi afhendingu
eigna og ástand þeirra. Væru nú
flest atriði orðin ljós en sagði ekki
endanlega vitað hvenær skrifað
yrði undir samninginn. Hann sagði
að samkomulag Útvegsbankans og
Eimskips stæði enn óhaggað og
hefði engin breyting verið gerð á
samningsupphæð.
í gær lýsti Stefán Árnason, sem
búsettur er í Svíþjóð, yfir áhuga á
kaupum á eignum Hafskips. Mark-
ús sagði að mönnum væri auðvitað
velkomið að gera tilboð í eignirnar
en á það bæri að líta að umræddar
eignir væru yfirveðsettar til Út-
vegsbankans og væri því ekki hægt
að ráðstafa þeim nema með sam-
þykki bankans. Útvegsbankinn
hefði nú um alllangt skeið reynt
að selja eignirnar fyrir sem best
verð og teldi sig ekki getað náð
lengra en fælist í samkomulaginu
við Eimskip.
Sjá bréf fyrirtækjanna 12 til
hafnarnefndar í heild á bls. 27.
Lögregluþjónn leystur frá störfum:
Sló fanga, sem hafði
veitt honum áverka
LÖGREGLUÞJÓNN í Reykjavík hef
ur verið leystur frá störfum meöan
rannsókn fer fram á atviki, sem átti
sér stað í fangageymslum lögreglunn-
ar við Hverfisgötu þann 24. nóvem-
ber síðastliðinn. í fangageymslu sló
lögregluþjónninn fanga, sem hafði
veitt honum töluverða áverka. Við
læknisrannsókn daginn eftir reyndist
fanginn kjálkabrotinn. Skömmu áður
hafði fanginn verið rotaður og spark-
að í andlit hans á veitingastaö, þann-
ig að ekki er upplýst hver kjálkabraut
hann.
Hugmyndir starfshóps um einföldun bankakerfísins:
Annars vegar öflugan einkabanka
— hins vegar sterkan ríkisbanka
MATTHÍAS Bjarnason viðskiptaráð-
herra gerði á þingi í gær grein fyrir
tillögum starfshóps undir forystu dr.
Gyifa Þ. Gíslasonar um hagræðingu í
rekstri og skipulagi viðskiptabanka
með sameiningu þeirra. Niðurstaða
starfshópsins var sú að mikilli hag-
ræðingu mætti ná með tvennum
hætti. Annars vegar með þvi að sam-
eina Útvegsbanka og Búnaðarbanka,
en gera ráð fyrir óbreyttri starfsemi
Landsbankans. Hins vegar með
stofnun nýs hlutafélagsbanka, sem
Útvegsbankinn tæki þátt í ásarat
Iðnaðar- og Verzlunarbanka og hugs-
anlega fleiri bönkum og sparisjóðum,
samhliða því sem efnt verði til aukins
samstarfs Landsbankans og Búnaðar-
bankans undir sameiginlegu banka-
ráði. í fullkom'ega útfærðri mynd
gerir þessi seinni tillaga ráð fyrir að
á landinu væru aðeins tveir öflugir
bankar, annar ríkisrekinn og hinn í
eigu einkaaðila.
Tillögurnar eru unnar af þremur
mönnum, dr. Gylfa Þ. Gíslasyni
háskólaprófessor, Sigurgeiri Jóns-
syni aðstoðarbankastjóra í Seðla-
bankanum og Birni Líndal, deildar-
stjóra í viðskiptaráðuneytinu. Matt-
hías Á. Mathíesen , þáverandi við-
skiptaráðherra, skipaði þremenn-
inga til starfans í agúst í fyrra og
skiluðu þeir lokaáliti í fyrradag. I
greinargerð þremenninganna segir
að kostir þess að rugla saman reit-
um Búnaðarbankans og Útvegs-
bankans felist fyrst og fremst í því,
að með því móti sé unnt að sameina
afgreiðslustaði bankanna í Austur-
stræti og ýmis útibú. Þannig mætti
fækka starfsfólki og sameina stoð-
deildir. Þremenningarnir telja hins
vegar ekki unnt að leggja tölulegt
mat á eiginfjárstöðu slíks nýs ríkis-
banka vegna óvissu um stöðu Út-
vegsbankans, en telja líklegt að
hann myndi fullnægja kröfum
hinna nýju bankalaga um eiginfjár-
hlutfall.
Þremenningarnir segja að með
því að hrinda seinni tillögunni í
framkvæmd mætti ná fram mikilli
hagræðingu. Þeir benda á að mikil
útþensla hafi átt sér stað í sérfræði-
og stoðdeildum banka og horfur séu
á áframhaldi þeirrar þróunar. Segja
þeir óhagkvæmt að halda uppi full-
komnum kerfum á þessu sviði bæði
hjá Landsbankanum og Búnaðar-
bankanum og mætti auðveldlega
sameina þau í eitt. Þá mætti sam-
eina afgreiðslur bankanna í Austur-
stræti. Á sama hátt myndi stofnun
nýs og öflugs einkabanka hafa í för
með sér hagræðingu og veita jafn-
framt ríkisbönkunum aðhald og
samkeppni.
„Eftir að hafa skoðað gögn frá
Rannsóknarlögreglu ríkisins á
föstudag, ákvað ég að leysa lög-
regluþjóninn frá störfum meðan
rannsókn stendur yfir í samræmi
við lög um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna," sagði Böðvar
Bragason, lögreglustjóri í Reykja-
vík, í samtali við Morgunblaðið.
Tildrög þessa máls eru, að þann
24. nóvember sfðastliðinn var lög-
reglan í Reykjavík kvödd að veit-
ingastaðnum Uppi og niðri við
Laugaveg. Þegar lögreglumenn
komu á staðinn, lá þar maður með-
vitundarlaus og veitti læknir honum
aðhlynningu. Hann hafði lent I
átökum á veitingastaðnum, verið
sleginn í andlitið og síðan sparkað
framan í hann. Maðurinn kom
skömmu síðar til sjálfs sín.
Læknir taldi ekki ástæðu til þess
að fara með hann á sjúkrahús. 1
þess stað fór maðurinn með lög-
reglumönnum á lögreglustöðina.
Þar sem maðurinn var ofurölvi var
ákveðið að setja hann í fanga-
geymslu til morguns. Lögreglu-
þjónninn, sem leystur hefur verið
frá störfum, var ásamt öðrum beð-
inn að fara með manninn í fanga-
geymslu. Þegar þangað kom veitti
fanginn honum högg í andlitið svo
hann skarst í andliti og bólgnaði á
auga. Lögregluþjónninn reiddist og
sló fangann. Fanginn var settur í
geymslu, en lögregluþjónninn flutt-
ur í slysadeild Borgarspítalans til
aðgerðar. Daginn eftir var farið með
fangann í slysadeild, I ljós kom, að
hann var kjálkabrotinn.
Þórir Oddsson, vararannsóknar-
lögreglustjóri ríkisins, vildi ekki tjá
sig um málið, en sagði að beðið
væri læknisvottorða.