Morgunblaðið - 11.12.1985, Side 16

Morgunblaðið - 11.12.1985, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985 Hús hafa líka sál Bókmenntír Jenna Jensdóttir Maria Gripe Sesselja Agnes - undarleg saga - Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi Kápumynd: Harald Gripe Sænski rithöfundurinn Maria Gripe sem fædd er 1923 á langan og glæstan rithöfundarferil að baki. Fyrsta barnabók hennar kom út 1954. Skipta bækur hennar nú tugum og hefur hún hlotið verð- laun og viðurkenningar fyrir rit- verk sín. Á þessu ári hlaut hún bókmenntaverðlaun þau er nor- rænir skólasafnaverðir veittu i fyrsta sinn. Sesselja Agnes er „undarleg saga“ eins og segir í undirtitli bók- arinnar. Aðalpersóna sögunnar er Elinóra Hed, eða Nóra eins og hún er kölluð. Frá bernsku hefur hún verið í fóstri hjá afasystur sinni, Karin bókaverði og manni hennar Andr- ési, sem er kennari. Hjónin, sem eru á besta aldri, eiga einn son, Dag, sem er fimmtán ára (aðeins eldri en Nóra). Dagur er Nóru nákomnastur allra. Þau skilja hvort annað og reyna að hjálpa hvort öðru gagnvart fullorðna fólkinu, sem er svo iðið við að móta tilveru barnanna eins og það vill hafa hana. Flóknar minningar um góða foreldra fylgja Nóru allt frá bernsku. Þær hafa tekið á sig ýmsar myndir. Stundum litaðar örvæntingu og einmanakennd, stundum lýsandi af gleði og um- hyggju foreldra sem hurfu svo skjótt úr lífi hennar. Eitthvað ógnþrungið í umhverf- inu, framkoma og orðaglamur þeirra fullorðnu, sem töldu sig vita tilfinningar barnsins, leiddi af sér grunsemdir í barnssálinni. Bíll, lest, foreldrar sem komu aldrei aftur. Jarðarför. Barnið raðaði saman sínum brotum og fann til í sálinni. Nýbyrjuð í skóla á drungalegum haustdegi fær hún staðfestingu á þeim raunveruleika sem dulinn hafði verið fyrir henni. Það var Andrés: „Nóra, nú förum við að leiði foreldra þinna og kveikjum líka á kertum fyrir þau.“ Svo einfalt var það. Karen og Andrés eru henni góð, en hún til- heyrirþeim ekki. Þegar fjölskyldan flytur í stóra íbúð í gömlu húsi, fer margt dular- fullt að gerast í lífi Nóru. Einhver ósýnilegur á erindi við hana. Stórir skápar koma í ljós þegar vegg- fóðrið er rifið innan úr herbergj- unum. Margs konar munir finnast i skápunum. Flestir verða þeir mikilvægir þegar gömul örlaga- saga kemur smám saman fram fyrir þrýsting frá einhverjum óraunverulegum, dugnað og ná- kvæmni Nóru og frásagnir þeirra sem til hússins og sögu þess þekkja. Ekki mun ég leiða söguefnið nánar fyrir augu lesenda. Persón- María Gripe ur standa skýrt fyrir hugskots- sjónum. Færni höfundar í að leiða þær eðlilega til hlutverka sinna er aðdáunarverð. Gott innsæi er í þá tilveru sem einstaklingi er búin allt frá bernsku af þeim eldri, sem hafa hvorki manngildi né heill til að takast á við eigin vandamál. Eftirtektarverð er lýsing á gamla fólkinu. Níutíu og sex ára langamma Lenu er bráðhréss til líkama og sálar og gleður alla með nærveru sinni, meðan aðrir á elli- heimilinu, tugum árayngri en hún, eru til ama með framkomu sinni. Þessum andstæðum er mjög vel lýst hér. Bröan gegnir stóru hlutverki í sögunni og sálræn viðbrögð Nóru gagnvart henni eru kraftmikil. Margt er ósagt um þessa ágætu sögu. Þýðing er vönduð og frágang- ur góður. ÞESSUM FIRUM VERÐUR ALDREI HLEYPT IIUNÍ KREML! Skipið siglir eilífðarhringinn Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Pálmi Örn Guðmundsson: Maðurinn er fáviti. Inri 1985. Pálmi Örn Guðmundsson hefur sent frá sér nokkrar bækur og þær lýsa allar nokkuð sérstæðri reynslu og með óvenjulegum hætti. Pálmi Örn er einn þeirra manna sem hafa freistast til að tjá sig í ljóði og þeir eru orðnir margir frá upphafi íslandsbyggðar. En Pálmi Örn vill ekki tjá sig með nákvæm- lega sama hætti og hinir. Pálmi Örn trúir á ljóðið og það er að minnsta kosti skiljanleg afstaða. Meðal þess sem Pálmi Örn hefur reynt um ævina er að hann hefur komið í Gljúfrastein og boðið skáldi okkar upp á Chartreuse. Hann fékk að taka með sér Char- treuseflöskuna aftur í bæinn og hafði áður sagt skáldinu frá fyrir- hugaðri bók sinni: Hundrassa- gælu. Skáldinu leist vel á nefnið að sögn Pálma Arnar. Það er líka gott heiti, engum blöðum um það að fletta. En fyrir utan allar frásagnir af heimsóknum Pálma Arnar til skálda yrkir hann stundum nokkuð góð ljóð, en svolítið tilviljunar- kennd. Til dæmis Regnljóð: Rigninginergóð rigninginergóð rigninginergóð og þú svo blaut. Ég í ritningunni. Pálmi Örn hefur fengið þá hug- dettu að hann sé Paul Gauguin endurfæddur. Þess vegna yrkir hann flokk um Tahiti-dvöl sína. I Tahiti hinn fyrsti dagur stendur þessi setning sem gæti farið vel í ljóði væru hinar setningarnar nógu góðar. En því er ekki að heilsa. Þær eru flestar samhengis- lausar. Setningin er aftur á móti svona: „Já, hann sem kom í gær, Pálmi Örn Guðmundsson fer á morgun og skipið siglir eilífð- arhringinn." Pálmi Örn Guðmundsson er mistækur í textagerð sinni. En þegar best lætur segir hann okkur hinum sem erum að fást við að raða saman orðum og setningum eitthvað sem er langt frá því að vera fréttaleysi. í ljóði sem er til- einkað Ritu Hayworth yrkir hann til dæmis á þessa leið: Andaðu í sál mína ogégmun anda í sál þína. Hendur næturinnar mætast einsog varir sem kyssast, þar lifir mín von kona. En þó verð ég að segja að Pálmi örn Guðmundsson sýnir helst veikleika hins opna ljóðs í Kyn- svalli 1967 sem þó er síður en svo vond tilraun til sálgreiningar ýmissa þekktra manna. Þess ber að geta að í kynsvallsljóðinu gerist hann fulltrúi ekki ómerkari stofn- unar en Listapönkdeildar bull- maskínunnar. Sú maskína virðist Pálma Erni hugleikin. Óþekktarangi Bókmenntir Jenna Jensdóttir Kamma Laurents Tóta Uetubuska Teikningar eftir R. Storm-Petersen. íslenskur texti: Stefán Júlíusson. Bókaútgáfan Björk. Ekki veit ég hvort rithöfundur- inn Kamma Laurents er enn á lífi. Hún fæddist í Kaupmannahöfn 1903. Móðir hennar var söngkonan Julie Rosenber. Kamma ferðaðist mikið um Evrópu með móður sinni og systur. Hún varð kunn fyrir útvarpsefni sitt, samtöl, söngva og smásögur fyrir börn. Einnig gaf hún út barnasögur. Tóta tætubuska er saga í ljóðum um óþekktartelpuna Tótu, sem rífur allt og tætir, brýtur og bramlar. Vekur litla barnið Binna, sem sefur vært í vagninum sínum og virðist hún hafa gaman af öllum þessum pörum sínum og ólátum. En hin þreytandi óþægð Tótu á sér skjótan endi. Atvik daganna koma til hennar I draumi. Pabbi og mamma, litlir skemmdarvargar koma inn í herbergið hennar og rífa allt og tæta sem hún á og henni er svo sárt um. Þessi lífsreynsla hennar — þótt í draumi sé — breytir ungu við- horfi hennar til alls þess sem hún umgengst. Stefán Júlíusson hefur þýtt textann skemmtilega vel og nú geta litlir lesendur kyrjað hann sjálfir og um leið fundið að felst í honum talsverður sannleikur. Ef breyting Tótu til batnaðar hefur nú áhrif á einhvern óþekkt- arangann, þá eru þessar vísur ekki til einskis sungnar. Lagið er: „Kátir voru karlar". Eða er enginn óþekktarangi hér? Myndir eru eftir kunnan, danskan listamann, R. Storm— Petersen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.