Morgunblaðið - 11.12.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
19
ráða menn, önnur óhöpp henda
sem eiga rætur í óviðráðanlegum
atburðum á heimsmarkði svo sem
verðfalli, óhagstæðri gengisskrán-
ingu og fleiru. Hér verður ekki
gerð tilraun til að finna því stað
eða leiða rök að hvers vegna Haf-
skip hf. er nú gjaldþrota. Það sem
er mér undrunarefni og fær mig
til að grípa til pennans er sú furðu-
lega leikflétta, sá rógur og órök-
studdar fullyrðingar sem varpa
allri ábyrgð af örlögum Hafskips
hf. og tapi Útvegsbankans þeirra
vegna á herðar Alberts Guð-
mundssonar, manns sem ekki hef-
ur komið við stjórn þessara
tveggja fyrirtækja 1 þrjú ár, en
þegar hann hættir er ekkert sem
gefur tilefni til að þá hafi ekki
allt verið með felldu.
Þegar framangreint mál er
skoðað í kjöl þarf ekki mikið hug-
myndaflug til að álykta að hér sé
á ferð bein pólitísk árás á Albert
Guðmundsson. Um það, hverjir
standa þar að baki skal ekki rætt,
en á hitt bent, sem er undirstaða
réttarríkis, að allir menn eigi að
njóta fyllsta réttar til að kallast
heiðarlegir menn þar til sök á þá
er sönnuð. Við Albert Guðmunds-
son skal að sumra áliti og ósk-
hyggju viðhöfð önnur aðferð. Það
á að svipta hann opinberum störf-
um. Skipa pólitíska nefnd til að
sakfella hann og dæma. Hver er
svo forenda þessa, órökstuddur
rógur, dylgjur í óvönduðum blöð-
um og kjaftháttur í sjónvarps-
þætti. Engin ákæra, ekkert sem
gefur tilefni til ákæru.
Er þetta ekki ómakleg árás á
sómakæran mann?
Hafskip hf. hefur verið lýst
gjaldþrota. Er ekki sú ein leið
lögleg og rétt sem Matthías
Bjarnason, ráðherra bankamála,
hefur bent á, að láta skiptaráðanda
rannsaka málið allt í kjöl en fella
ekki sleggjudóma að ástæðulausu
svo enginn verði fyrir órétti, en
málið allt liggi opið fyrir sem allra
fyrst?
Höíundur er fyrryerandi ferða-
málastjóri.
unnt að segja, að Þór fari hratt
yfir í frásögn sinni. í tveimur
bindum hefur hann sagt okkur frá
því, sem gerðist, áður en landið
var hernumið í stríðinu. Þetta er
þó enginn formáli að sögunni um
Island í síðari heimsstyrjöldinni,
heldur nauðsynleg áminning um
það, að stríð eru afleiðing þess,
þegar stjórnmálamenn ná ekki
vilja sínum fram nema með því
að beita vopnum. Þeir leita fyrir
sér með hjálp manna eins og
Gerlachs á íslandi. Það fer síðan
eftir hernaðarmættinum, hvernig
tómarúmið er fyllt, þegar í harð-
bakka slær. í því efni stóðu Bretar
betur að vígi en Þjóðverjar, þegar
á reyndi og lsland var hernumið.
Teningun
Nýtt tímarit
um bókmennt-
ir og listir
NÝTT tímarit um bókmenntir og list-
ir hefur hafið göngu sína. Teningur
heitir það og ber nafn með rentu, því
brotið á blaðinu er teningslaga.
í fyrsta heftinu, sem kom út nú
í byrjun mánaðarins, eru viðtöl við
Helga Þorgils Friðjónsson mynd-
listarmann og Einar Kárason rit-
höfund, grein eftir Örn Ólafsson um
tímabil milli stríða, verðlaunaávarp
Milan Kundera, sem hann flutti við
móttöku Jerúsalem-verðlaunanna í
bókmenntum 1985, grein um kvik-
myndir eftir Alain Bergala, auk
fjölda ljóða eftir marga höfunda.
Blaðið er prýtt fjölda mynda og er
60 blaðsíður að stærð.
Að útgáfu Tenings standa: Eggert
Pétursson, Guðmundur Andri
Thorsson, Gunnar Harðarson, Hall-
grímur Helgason, Páll Valsson og
Steingrímur Eyfjörð Kristmunds-
son.
Meiningin er að gefa Tening út
ársfjórðungslega og kostar hvert
blað kr. 200 í lausasölu en 250 í
áskrift.
í Austurveri, Glæsibæ, Hafnarstræti, við Hlemm, og á Akranesi.
I SS-búðunum rignir vör-
unum hreinlega yfir þig —
úrvaiid er eins og best
verður á kosið. Og þar er
auðvelt að nálgast vörum-
ar; hjá okkur hittir þú
nefnilega fyrir hjálpsamt
og nærgætiö starfsfólk
sem veitir hraða og góða
þjónustu af alúð og hlýleik.
Jólin eru á næsta leiti og
í SS-búöunum getur þú
fengið nánast allt sem
þarf til hátíðarinnar —
nema lifandi jólasveina. í
búðunum er þér nú boöið
uppá glæsilegt úrval af
gimilegum kjötvörum með
öllu tilheyrandi, úrvals
ávexti, óviðjafnanlegt
sælgæti og allt sem þú
hugsanlega þarft í jóla-
bakstuhnn.
Það er auðvitað ekki ráð-
legt að fara i búðarkerru-
kappakstur í SS-búðunum,
en rýmisins vegna er það
vel mögulegt. Þar ert þú
laus við þrengsli, hama-
gang og hávaða stór-
markaða; þar er afslapp-
andi umhverfi og nægt
olnbogarými.
ww0