Morgunblaðið - 11.12.1985, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
27
Vilja frjálsa hafnar-
aðstöðu í Reykjavík
NOKKRIR viðskiptaadilar í Reykjavík hafa skrifað hafnarstjórn
Reykjavíkur bréf eins og fram kom í blaðinu í gær og óskað eftir frjáls-
um aðgangi að hafnaraðstöðu í Reykjavíkurhöfn og telja þeir að tæki-
færi til slíks skapist nú með brotthvarfí Hafskips hf. úr Reykjavíkur-
höfn. Bréf þessara viðskiptaaðila er svohljóðandi:
„Undirritaðir aðilar fara þess
hér með á leit við háttvirta hafn-
arstjórn að nú er Hafskip hf.
hefur hætt starfsemi og þar með
losnað sú hafnaraðstaða er það
félag hefur haft í Austurhöfn
Reykjavíkurhafnar, verði tæki-
færið notað til þess að skapa
frjálsan aðgang að hafnarað-
stöðu í Reykjavík, sem hingað til
hefur algjörlega skort.
í þessu sambandi viljum við
benda á eftirfarandi beiðni okkar
til stuðnings:
1. í langflestum' viðskiptalönd-
um okkar er sá háttur á hafð-
ur, að hafnaraðstaða og þjón-
usta í tengslum við hana sé
rekin sem sjálfstæð starfsemi,
annað hvort af bæjarfélögun-
um sjálfum eða af sérstökum
fyrirtækjum. Er þetta gert til
þess að frjáls samkeppni í
flutningum fái notið sín og til
þess að allir flutningsaðilar
hafi aðstöðu til þess að fá
eðlilega hafnarþjónustu og
veita viðskiptaðilum sínum þá
þjónustu er þeir þurfa á að
halda.
2. Á undanförnum árum hefur
það orðið ljóst, að framan-
greindrar þjónustu er þörf,
enda hafa margir smærri og
stærri flutningsaðilar hrökkl-
ast frá Reykjavík vegna skorts
á frjálsri hafnaraðstöðu, þar
sem allri hafnaraðstöðu í
borginni hefur verið ráðstafað
til ákveðinna skipafélaga. Af
þessu fyrirkomulagi hefur
m.a. leitt, að tekjur Reykja-
víkurhafnar af vöruflutning-
um hafa orðið minni en ella.
Mikilvægt er, að á máli
þessu verið tekið nú þegar, þar
sem í því kauptilboði, sem
Eimskipafélag íslands hf.
hefur gert skiptaráðanda í
ýmsar eignir hafskips hf. mun
skv. blaðafregnum vera orðuð
heimild til handa því félagi til
þess að yfirtaka þá hafnarað-
stöðu sem hér um ræðir. Að
sjálfsögðu er það þó í valdi
borgaryfirvalda í Reykjavík,
en ekki skiptaráðanda, að ráð-
stafa þessari aðstöðu, og ekki
þarf að taka fram, að Eimskip
hefur nú þegar mjög góða
hafnaraðstöðu hjá Reykjavík-
urborg.
Að lokum viljum við koma
á framfæri þeirri ábendingu í
sambandi við mál þetta, að
stofnað verði sérstakt félag til
þess að reka umrædda hafnar-
aðstöðu með eða án þátttöku
borgarinnar. Eru undirritaðir
aðilar að sjálfsögðu reiðubún-
ir til samvinnu í þessu efni,
og vitað er um fjölmarga aðra
aðila, sem eru sama sinnis.
Afrit bréfs þessa er sent til
borgarráðs Reykjavíkur og
skiptaráðandans í Reykjavík.
Við leyfum okkur að vænta
jákvæðs svars hafnarstjórn-
arinnar hið allra fyrsta."
Undir bréfið rita eftirtaldir:
Jón H. Guðmundsson fyrir
hönd Byko, Gunnar Ólafsson
fyrir hönd Andra hf., Þorvald-
ur Jónsson, skipamiðlari,
Guðmundur Karlsson fyrir
hönd Sjóleiða hf., Már Gunn-
arsson fyrir hönd Nesskips
hf., Guðlaugur Bergmann fyr-
ir hönd Karnabæjar, Ásgeir
Gunnarsson fyrir hönd Veltis
hf., Finnbogi Kjeld fyrir hönd
Skipafélagsins Víkur hf.,
Pálmi Pálsson fyrir hönd
skipafélagsins Nes hf., Lýður
A. Friðjónsson fyrir hönd
Vífilfells, Jón Snorrason fyrir
hönd Húsasmiðjunnar og
Bjarni Magnússon fyrir hönd
íslenzku umboðssölunnar.
Fundur um nýju
bankalöggjöfina
SAMBAND íslenskra bankamanna
og Bankamannaskólinn gangast fyr-
ir fundi um bankalöggjöfína sem
tekur gildi þann 1. janúar nk.
Fundurinn verður haldinn að
Hótel Hofi í kvöld, miðvikudaginn
11. des. kl. 20.00. Frummælendur
verða Þórður Ólafsson, forstöðu-
maður bankaeftirlits Seðlabank-
ans, Bragi Hannesson, bankastjóri
og Lúðvík Jósefsson, bankaráðs-
maður.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Kysteinn Jónsson og Vilhjálmur Hjálmarsson fyrir framan Alþingishúsið, en þar gerðust einmitt margir at-
burðir sem greint er frá í ævisögu Eysteins.
Eysteinn í
stormi og stillu
|»riðja bindi ævisögu Eysteins Jónssonar eftir Vilhjálm Hjálmarsson komið út
EYSTKINN í stormi og stillu,
þriðja og síðasta bindi ævisögu
Eysteins Jónssonar fyrrverandi
ráðherra og formanns Framsókn-
arflokksins, er nú komið út hjá
Vöku-Helgafelli. Bókina ritar Vil-
hjálmur Hjálmarsson fyrrverandi
ráðherra. Hún er tæpar 400 síður
og er hún prýdd tugum mynda.
Bókin er prentuð og bundin inn
hjá Prentsmiðjunni Odda hf.
Á blaðamannafundi þar sem
bókin var kynnt kom fram, að í
þessu síðasta bindi ævisögu
Eysteins væru birtar nýjar upp-
lýsingar um ýmislegt sem gerðist
á bak við tjöldin í íslenskum
stjórnmálum. Vitnað er í minnis-
blöð Eysteins, gerðarbækur
Framsóknarflokksins, bréf o.fl.
Sagt er frá myndun vinstri
stjórna, þorskastríðum og þegar
unnið var að stofnun nýs stjórn-
málaafls á vinstri vængnum. Þá
er gert að umtalsefni stórvirkj-
anir, orkufrekur iðnaður og
önnur mál sem voru ofarlega á
baugi á þeim tíma sem bókin
fjallar um, en það eru árin
1956—1985. Náttúruskoðun og
náttúruvernd eru hugðarefni
Eysteins og eru meðal annars
birtir minnispunktar sem hann
hefur skrifað í ferðalögum.
Sagan er ekki skrifuð í sam-
talsformi en Vilhjálmur Hjálm-
arsson byggir hana á ýmsum
heimildum, birtum og óbirtum.
Einnig notar hann munnlegar
frásagnir Eysteins og ýmsar
bendingar frá honum á meðan á
ritun sögunnar stóð. Vilhjálmur
notar jafnframt minningabrot
sín og sögur og tilvitnanir frá
ýmsum tímum. Vilhjálmur sagði,
að reynt hefði verið að fjalla vítt
og breitt um ýmsa atburði, sem
Eysteinn hefði sjálfur tekið þátt
í eða tengdust honum á annan
hátt, frekar en að leggja áherslu
á eitt ákveðið efni.
í síðustu köflum bókarinnar
er fjallað um ýmis áhugamál
Eysteins. Þar er m.a. sagt frá
því er hann flutti framsöguerindi
á fræðslufundi um málefni fjöl-
skyldunnar, sem haldinn var í
Félagsmálaskóla Framsóknar-
flokksins 1980. í þessari ræðu
sinni segi'r hann m.a.: „Áður fyrr
héldu atvinnuhættir og þjóðlífs-
hættir fjölskyldunni saman. Nú
spenna þeir fjölskylduna sund-
ur.“ Eysteinn sagði á fundinum,
að hann hefði e.t.v. viljað leggja
meiri áherslu á þá skoðun sína í
bókinni, að tími sé kominn til
þess að breyta allri vinnutil-
högun hér á landi. „Atvinnulífið
þarf að miðast við þarfir fjöl-
skyldulífsins ef við viljum að
fjölskyldan verði meginkjarni
þjóðfélagsins í framtíðinni,"
sagði Eysteinn Jónsson.
/ l£ N0UVEAU STOCX D'HABITATVlENr &ARRNER DB FRANCE •* \
/ DETRES J0US SOFAS A DES PRIX DBRISOIRES, PES LAMPES, \
I DESTABLES, DES CHAISES, DES ETMERES, DES COMMODES, )
—\ DESPIACARDS, DES BUREAUX ... J-
\ ET MEME DlVERS TISSUS .AINSI Q.UE 8UELQUES PA1UASS0NS. /
-----------—----'
habitat
Sjé þýðingu tveim opnum attar
Verslun — póstverslun. Laugavegi 13. simi 25808.