Morgunblaðið - 11.12.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
37
Hafskip — Utvegsbankinn:
Ríkisstjórnin setur á fót
nefnd sérfróðra manna
Mun leita lagaheimildar til aö fela Hæstarétti ad tilnefna þessa nefnd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá rík-
isstjórninni:
A fundi sínum í dag samþykkti
ríkisstjórnin eftirfarandi:
„Föstudaginn 6. desember sl. var
Hafskip hf. tekið til gjaldþrota-
skipta. Samkvæmt gjaldþrotalög-
um nr. 6/1978 fer skiptaráðandinn
í Reykjavík nú með forræði gjald-
þrotabúsins jafnframt því hlut-
verki sínu að rannsaka, hvort ein-
hver lögbrot tengist gjaldþroti
fyrirtækisins og ástæðum þess.
Með hliðsjón af þessu er ljóst, að
rannsókn á hugsanlegu refsiverðu
athæfi í tengslum við þetta gjald-
þrot er nú þegar í þeim farvegi,
sem lög gera ráð fyrir.
Þá hefur það ennfremur gerst,
að iðnaðarráðherra hefur farið
þess á leit við ríkissaksóknara, að
hann láti framkvæma sérstaka
rannsókn á þeim ásökunum, sem
beinst hafa að iðnaðarráðherra
nýverið í þá veru, að hann hafi
misnotað aðstöðu sína sem for-
maður bankaráðs Útvegsbankans
til að greiða fyrir viðskiptum
Hafskips hf.
Til viðbótar þessu telur ríkis-
stjórnin þörf á, að könnuð verði
sérstaklega þau atriði, er lúta að
viðskiptalegum þáttum málsins,
sem ekki eru til athugunar sem
refsiverð háttsemi af hálfu ofan-
greindra rannsóknaraðila. í því
skyni ákveður ríkisstjórnin að
setja á fót nefnd þriggja sérfróðra
manna, sem að höfðu samráði við
skiptaráðanda, hafi það hlutverk
að kanna hvort um óeðlilega við-
skiptahætti hefur verið að ræða í
samskiptum Útvegsbankans og
Hafskips hf. á undanförnum árum.
Bankaeftirlit Seðlabankans verður
nefndinni til aðstoðar um upplýs-
ingaöflun sem þörf er á. Ríkis-
stjórnin mun leita lagaheimildar
til að fela Hæstarétti að tilnefna
þessa nefnd. Nefndin skal hraða
störfum sínum og skila skýrslu til
viðskiptaráðherra að starfi loknu.“
Jafnframt skýrði viðskiptaráð-
herra frá því, að hann hefði þegar
falið bankaeftirliti Seðlabankans
að gera athugun á því, hvernig
skuldastöðu stærstu viðskiptafyr-
irtækja í ríkisviðskiptabönkunum
sé háttað og fjárhagsstöðu við-
skiptabankanna.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á
að þessari könnun verði hraðað.
10. desember 1985.
Steingrfmur Hermannsson forsætisráðherra:
„Sérfróðir menn vara ein-
dregið við þingkjörinni nefnd“
„ÉG ER BÚINN aö ræöa við fjölmarga aðila um þessar hugmyndir um þing-
kjörna nefnd, og hver einasti maöur sem ég ber traust til úr lögfræöistétt
hefur varað alveg eindregið viö því, einkum þeir sem tengjast dómarastörf-
um,“ sagöi Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra er hann var spurður
álits á þeirri hugmynd Ólafs Ragnars Grímssonar aö þingkjörin rannsóknar-
nefnd og nefnd skipuð af Hæstarétti störfuðu hlið viö hlið aö rannsókn á
viðskiptum Útvegsbankans og Hafskips.
Forsætisráðherra sagði að þeir
sem hann hefði rætt við segðu ein-
faldlega að það gengi ekki þegar
dómstólar væru að fjalla um mál,
að um þau væri fjaliað fyrir opnum
tjöldum. „Þessir menn hafa allir
varað við því, og sumir hafa bókstaf-
lega gengið svo langt að segja að
erfitt væri að sjá hvernig skiptaráð-
andi ætti að sinna rannsókn sinni
sem skyldi, ef jafnhliða færi fram
rannsókn fyrir opnum tjöldum,"
sagði Steingrímur. Nefndi hann sem
dæmi erfiðleika þess að þau vitni
sem skiptaráðandi ætlaði að kalla
fyrir, hefðu áður komið til yfir-
heyrslu og vitnisburðar hjá opin-
berri nefnd.
Steingrímur var spurður hvort
afstaða þingflokks Framsóknar-
flokksins í þessu máli væri klofin,
þar sem Ólafur Þ. Þórðarson er einn
flutningsmanna þingsályktunartil-
lögu um þingkjörna rannsóknar-
nefnd: „Ég tek enga ábyrgð á Ólafi
Þ. Þórðarsyni," sagði Steingrímur,
„en ég held að það sé fljótfærni
hjá honum að vera flutningsmaður
að slíkri tillögu. Við ræddum þetta
á þingflokksfundi í gær og ég heyrði
ekki annað en menn væru mjög á
þeirri skoðun sem ég hef lýst."
Steingrímur sagði að ríkisstjórn-
in væri vegna ofangreinds sammála
um að vera andvíg þingkjörinni
rannsóknarnefnd, og hún varaði
reyndar eindregið við því að slík
leið væri valin.
Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Alþýðuflokks:
„Leið ríkisstjórnarinnar tryggir
ekki það sem við viljum fá fram“
„ÉG FAGNA því aö þaö viröist vera
orðin breið samstaða um það hjá öll-
um flokkum hér á Alþingi að það fari
fram rannsókn í þessu máli, en það
er Ijóst aö hér á Alþingi greinir menn
á um leiðir til þess aö ná því fram
aö rannsóknin verði sem ítarlegust.
Þaö er mín skoðun aö sú leiö sem
Ólafur Ragnar Grímsson:
„Leið ríkisstjórnarinnar
með öllu ófullnægjandi“
„ÞETTA er aö mínu mati meö öllu
ófullnægjandi. Þetta er cinhliöa
ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aö
skipa þrjá menn sem eiga að starfa
fyrir luktum dyrum aö athugun máls-
ins,“ sagöi Olafur Ragnar Grímsson
þingmaöur Alþýöubandalagsins, er
hann var spurður álits á þeirri
ákvöröun ríkisstjórnarinnar aö beita
sér fyrir lagasetningu sem heimili
Hæstarétti aö skipa þriggja manna
rannsóknarnefnd er rannsaki viö-
skipti Hafskips og Útvegsbankans.
„Þar með er þjóðþingið sett til
hliðar. Þetta er gert án þess að
ræða við stjórnarandstöðuna, og þar
með er reynt að koma í veg fyrir
að það náist safnstaða þings og þjóð-
ar um meðferð málsins," sagði ólaf-
ur Ragnar. Hann sagði að jafnframt
væri því lykilatriði hafnað af ríkis-
stjórninni að störf nefndarinnar
væru fyrir opnum tjöldum og fundir
hennar haldnir í heyranda hljóði.
„Við erum þeirrar skoðunar að það
eigi að beita við þetta samskonar
aðferðum og þingnefndir í Banda-
ríkjunum beita, þar sem fulltrúar
þingsins með aðstoð sérfræðinga, á
fundum sem haldnir eru í heyranda
hljóði, reyna að leiða hið sanna í
ljós,“ sagði Ólafur Ragnar. Ólafur
Ragnar sagði að sér væri til efs að
einhverjir þrír menn fengjust til
þess að taka það verk að sér að
starfa sem fulltrúar þjóðarinnar
fyrir luktum dyrum að því að leiða
þetta mál til lykta og sitja siðan
undir grunsemdum um að hafa ekki
gert öllu skil.
Sagðist Ólafur Ragnar því vonast
til þess, þegar tillögurnar um rann-
sóknarnefndir Alþingis kæmu til
afgreiðslu á þinginu, að ráðherrar
ríkisstjórnarinnar féllust á að slíkar
nefndir yrðu kosnar, og þessir þrír
einstaklingar sem ríkisstjórnin vildi
að Hæstiréttur skipaði gætu síðan
starfað með nefndunum.
ríkisstjórnin vill fara, tryggi ekki þaö
sem við höfum viljaö ná fram,“ sagöi
Jóhanna Siguröardóttir þingmaður
Alþýöuflokks, fyrsti flutningsmaður
þingsályktunartillögu um þingkjörna
rannsóknarncfnd.
Jóhanna sagði að á þingskjölum
lægju frammi mjög ítarlegar spurn-
ingar, sem engin trygging væri fyrir
að fengjust svör við, með þeirri leið
sem ríkisstjórnin hygðist fara.
Nefndi hún sem dæmi óskir flutn-
ingsmanna tillögunnar um að samn-
ingatilboðin væru rannsökuð, ýmsar
spurningar sem beindust að fyrrver-
andi viðskiptaráðherra og afskipt-
um hans að þessu máli, hlut Alberts
Guðmundssonar, bankaráðin og
bankastjórnina.
„Ég tel því að það sé engin trygg-
ing fyrir því að við fáum svör við
þeim spurningum sem fram hafa
komið hér á Alþingi, með rannsókn
þeirrar nefndar sem framkvæmda-
valdið vill skipa, og að það sé eðli-
legra að Alþingi, sem krafist hefur
ítarlegra upplýsinga um þessi mál,
skipi þessa nefnd sjálft," sagði Jó-
hanna.
INNLENT
Stuömenn munu halda uppi fjörinu í beinni útsendingu af áramóta-
gleöi sjónvarpsins á nýársnótt.
Aramótadansleikur í sjón-
varpssal í beinni útsendingu
ÁKVEÐIÐ hefur veriö aö efna til áramótagleöi í sjónvarpssal á nýjárs-
nótt og veröur gleöin send út í beinni útsendingu. Mun útsending hefj-
ast um miönætti og veröur um 250 manns boöiö til fagnaöarins.
Stuðmenn munu halda uppi ekki verið ákveðið hversu lengi
fjörinu á þessum sérstæða ára- útsendingin stendur né heldur
mótadansleik og að sögn Jakobs nánar um einstaka framkvæmda-
Magnússonar er undirbúningur þætti. Sagði hann að beðið væri
nú þegar hafinn. Jakob varðist eftir að Hrafn Gunnlaugsson
allra frekari frétta af gangi mála kæmi til landsins frá Svíþjóð, en
en sagði, að hugmyndin væri að Hrafn mun upphaflega hafa átt
flétta ýmsum uppákomum inn í hugmyndina að þessari áramóta-
dansleikinn. Að sögn Viðars Vík- gleði.
ingssonar hjá sjónvarpinu hefur
Utvarpsrað og fréttastjóri sjónvarps:
Mjög undrandi á við-
brögðum Ingva Hrafns
— segir Inga Jóna Þórdardóttir
„ÉG ER mjög undrandi á þeim viöbrögöum Ingva Hrafns að fara ekki
aö tilmælum útvarpsráös og biðja forstjóra Arnarflugs velvirðingar á
mistökum í fréttaflutningi sjónvarpsins. Þaö voru allir útvarpsráösmenn
sammála um það að fréttareglur hefðu verið brotnar og því heföi Ingvi
Hrafn átt að hlíia ályktun ráösins, þótt einungis heföi veriö um tilmæli
að rteöa," sagöi Inga Jóna Þóröardóttir formaöur útvarpsráös, spurö álits
á þeirri afstööu Ingva Hrafns Jónssonar aö veröa ekki viö tilmælum
útvarpsráös aö biöja forstjóra Arnarflugs, Agnar Friöriksson, velvirðing-
ar vegna viðauka viö fréttaviötal viö hann þann 22. nóvember sl.
Forsaga má'sins er sú að út-
varpsráð samþykkti ályktun á
fundi sínum sl. föstudag þar sem
þess var farið á leit við fréttastofu
sjónvarps, að forstjóri Arnar-
flugs, Agnar Friðriksson, yrði
beðinn velvirðingar vegna fréttar
sjónvarpsins í kjölfar viðtals við
hann, sem birtist þann 22. nóv-
ember. Ennfremur fordæmdi út-
varpsráð „mismunun sem fram
kom í þessum sama fréttatíma",
í umfjöllun sjónvarpsins af mál-
efnum Arnarflugs og Flugleiða. í
fréttatíma sjónvarpsins sl. föstu-
dagskvöld var sagt að Ingvi Hrafn
Jónsson, fréttastjóri sjónvarps-
ins, hefði lagt fram bókun á fundi
útvarpsráðs, þar sem hann neitaði
þvi að mistök hefðu átt sér stað
í umfjöllun sjónvarpsins um mál-
in og taldi því ekki ástæðu til að
biðja forstjóra Arnarflugs vel-
virðingar. I fréttum sjónvarpsins
á laugardagskvöldið var svo lesin
athugasemd frá þeim fjórum út-
varpsráðsmönnum sem að álykt-
unni stóðu, þar sem sagt er að
það sé rangt að Ingvi Hrafn hafi
lagt fram formlega bókun á fund-
inum, auk þess sem segir að í frétt
sjónvarpsins af ályktun útvarps-
ráðs hefði mátt koma fram bókað
álit þeirra útvarpsráðsmanna
sem sátu hjá við afgreiðslu álykt-
unarinnar. Ingvi Hrafn var spurð-
ur hverju þetta sætti:
„Um þessa athugasemd út-
varpsráðs hef ég það eitt að segja
að hún er þörf ábending til mín
um starfsaðferðir og fundarsköp
ráðsins. Ég vissi ekki að það
þyrfti að leggja bókanir fram
formlega og stóð í þeirri trú að
orð mín hefðu verið bókuð orðrétt
eftir mér á fundinum," sagði Ingvi
Hrafn. Að öðru leyti sagðist Ingvi
Hrafn ekki hafa skipt um skoðun,
hann stæði enn við það að sjón-
varpinu hefði ekki orðið á mistök
í umræddum fréttatíma og því
væri ekki þörf á afsökunarbeiðni.
Markús Á. Einarsson, varafor-
maður útvarpsráðs, sagði, að það
væri mál Ingva Hrafns hvort
hann bæðist velvirðingar eða
ekki. Ef hann kysi að fara ekki
að tilmælum útvarpsráðs væri
ekkert við því að gera. „Hins
vegar hefði ég kosið að bókað álit
þeirra þriggja útvarpsráðsmanna
sem hjá sátu þegar ályktunin var
afgreidd hefði komið fram í sjón-
varpsfréttum á föstudaginn. Þau
létu bóka að þau teldu að frétta-
reglur hefðu verið brotnar í
umræddum tilvikum. Við sem að
ályktuninni stóðum töldum að um
svo alvarleg mistök í fréttaflutn-
ingi hefði verið að ræða að það
gæfi tilefni til ályktunar. Hin
þrjú töldu að bókun dygði," sagði
Markús Á. Einarsson.
Ingibjörg Hafstað var ein
þeirra sem sátu hjá við afgreiðslu
ályktunarinnar. Hún var spurð
hvað hún hefði látið bóka eftir
sér á fundinum: „Við Jón Þórar-
insson lögðum fram sameiginlega
bókun, þar sem við sögðum efnis-
lega að ótvírætt hefði verið brotið
gegn reglugerð frá 1976 um
fréttaflutning í ríkisfjölmiðlum,
en töldum hins vegar fulla ástæðu
til að endurskoða þær reglur,
einkum í ljósi komandi sam-
keppni," sagði Ingibjörg.
Ingibjörg sagði að útvarpsráðs-
menn hefðu verið sammála um
að í viðkomandi fréttum hefðu
tvær reglur verið brotnar. Ein
sem kveður á um að skilja skuli
að fréttir og fréttaskýringar og
önnur sem segir að geta skuli
heimildarmanna ef frétt er vé-
fengd. „Það er erfið aðstaða fyrir
fréttamenn að vera í þeim sporum
að þurfa annað hvort að þegja
yfir einhverju sem þeir vita, eða
bregðast trúnaði heimildarmanns
síns. Því er nauðsynlegt að breyta
þessum reglum," sagði Ingibjörg.
Inga Jóna Þórðardóttir, for-
maður útvarpsráðs, lagði fram
sérstaka bókun á fundinum. „Ég
taldi ekki ástæðu til ályktunar
um þetta einstaka mál, þótt ótví-
rætt hefði verið um brot á frétta-
reglum að ræða. Ég tel að svona
mál eigi frekar að leysa innanhúss
hjá stofnuninni. Hins vegar lagði
ég áherslu á það í bókun minni
að aðgreina ætti fréttir og frétta-
skýringar,“ sagði Inga Jóna Þórð-
ardóttir.