Morgunblaðið - 11.12.1985, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Matreiðslumeistari
Óskum að ráða matreiðslumeistara til starfa
nú þegar eöa sem allra fyrst á Hótel Borg.
Viðkomandi þarf aö vera hugmyndaríkur,
duglegur og hafa góö meðmæli.
Allar nánari uppl. veitir Sigurður Garðarsson
á hótelinu.
Hótel Borg.
IS| LAUSAR STÖÐUR HJÁ
m REYKiAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamn-
ingum.
• Staða yfirmanns fjölskyldudeildar Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar er laus
til umsóknar.
Áskilin er félagsráögjafamenntun og
reynsla á sviði stjórnunar og starfa er lúta
að fjölskyldumeðferð og barnavernd.
Allar nánari upplýsingar veitir félagsmála-
stjóri í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð,
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 27. des. 1985.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á sjúkra-
hús Akraness frá 1/1 ’86 eöa eftir samkomu-
lagi. Allar nánari upplýsingar gefur hjúkrunar-
forstjóri í síma 93-2311.
Sjúkrahús Akraness
Sendill óskast
Viðskiptaráðuneytið óskar að ráöa sem fyrst
ungling til sendistarfa og aöstoöar á skrif-
stofu, hálfan eöa allan daginn.
Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu,
Arnarhvoli.
Viöskiptaráðuneytið,
9. desember 1985.
Hitaveita
Suðurnesja
Rafmagnseftirlitsmaður óskast til starfa hjá
Hitaveitu Suðurnesja. Viðkomandi þarf að
uppfylla skilyrði til B-löggildingar til raf-
virkjunarstarfa. Launakjör samkvæmt kjara-
samningi Starfsmannafélags Suðurnesja-
byggða. Umsóknareyðublöð og nánari uppl.
fást á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja,
Brekkustíg 36, Njarðvík og skulu umsóknir
berast þangað eigi síðar en 31. desember
1985.
Opinber stofnun óskar eftir að ráða
lögfræðing
til að annast stjórnun á umfangsmiklum fjár-
málaþætti.
Starfið felur í sér stjórnun, skipulagningu á
skilum gjalda, lögfræðilega innheimtu,
stefnumótun og ráðgjöf gagnvart stjórnvöld-
um um meðferö mála.
Lögfræðingar sem myndu vilja kynna sér
þetta nánar eru beðnir að leggja nafn sitt
og símanúmer í lokað umslag á auglýsinga-
deild blaðsins fyrir 23. desember nk. merkt:
„Afl —3010“.
Með allar upplýsingar veröur farið sem trún-
aöarmál.
Verslunarfólk
Óskum aö ráða starfsfólk til almennra af-
greiðslustarfa nú þegar eða frá næstu ára-
mótum í Stórmarkaðinn Skemmuvegi 4A.
Starfsreynsla æskileg.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð á skrif-
stofu KRON, Laugavegi 91,4. hæð.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis.
Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis
Offsetprentari
óskast
Viljum ráða offsetprentara. Mikil vinna. Góð
laun fyrir réttan mann.
Umsóknir sendist augl.deild Mbl fyrir 14.
þ.m. merktar: „Þagmælsku heitið — 0305“.
[ raöauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
til sölu
húsnæöi óskast
Til sölu
Vegna breytinga í rekstri byggingafyrirtækis
hefur umbjóöandi minn ýmsa hluti til sölu.
a. Hunnebeck — steypumót.
b. Hunnebeck — undirsláttarstoðir.
c. Hunnebeck — loftadregarar — álbitar.
d. Kassettumót (Waffle moulds).
e. Bílkrana25tonn(yfirfarinn).
f. Mótaklamsaca. 2000 stk
g Einnig límtrésbooí íyrir 3S0—440 m2
límtreshus.
h. Rafmagnsjárnaklippur(linden alimac).
i. Rafmagnsspil fyrir múrara (Steinujgt boy).
Greiðslur og tími alfarið samkomulag. (lang-
tímalán kemur til greina á hlutagreiðslu).
Upplýsingar óskast sendar til Mbl. fyrir 15.
des. 1985 merktar: „Byggingafyrirtæki —
0207“.
Verður viðkomandi svarað um hæl.
tilboö — útboö
Útboö — Könnun
Verkamannabústaðir í Kópavogi eru aö
kanna möguleika á að bjóða út íbúðabygg-
ingar með heildarútboöi. Hugmyndin er aö
útboðið innifeli alla hönnun, byggingu og frá-
gang lóða 70-80 íbúða.
Þeir verktakar sem áhuga hafa á að taka þátt
í útboði af þessu tagi ef til kemur, eru beðnir
að hafa samband viö skrifstofu VBK í síma
45140, fyrir 17. desember nk.
RÍKISSPÍTALARNIR
íbúð óskast
Tveggja til fimm herbergja íbúö óskast á
leigu, helst í nágrenni Landspítalans, fyrir
erlenda hjúkrunarfræðinga spítalans.
Upplýsingar veitir skrifstofa hjúkrunarfor-
stjóra Landspítalans í síma 29000.
Reykjavík 10. desember 1985.
íbúð óskast til leigu
Læknir óskar eftir íbúð til leigu strax. Leigu-
tími 6-12 mánuðir. Allar stærðir koma til
greina. 3 íheimili.
Upplýsingar í síma 25648 kl. 18.30-19.30 á
kvöldin.
tilkynningar
Félag íslenskra bifreiða-
eftirlitsmanna
Aðalfundur Félags íslenskra bifreiðaeftirlits-
manna sem haldinn var fimmtudaginn 14.
nóvember 1985, ályktar.
1. Fyrirbyggjandi aðgerðir í umferðarslysa-
vörnum koma öllum þjóðfélagsþegnum til
góða og fé sem veitt er til þessara mála
er því vel varið.
2. Athuganir sýna að fjárfesting í aðstöðu
til góðrar árlegrar bifreiðaskoðunar,
ásamt góðu vegaeftirliti er ein arðvænleg-
asta fjárfesting sem eitt þjóðfélaq qetur
stofnað til.
3. Bifreiöaeftirlitsmenn telja að þeir sem
stýra og stýrt hafa dómsmálum og fjárveit-
ingum hins opinbera hafi verið allt of
sinnulausir með að bæta úr ófremdar-
ástandi í húsnæöismálum Bifreiðaeftirlits
ríkisins.
4. Bifreiðaeftirlitsmenn eru opnir fyrir öllum
nýjum hugmyndum um breytingar á til-
högun aðalskoðunar. Hins vegar vara
bifreiðaeftirlitsmenn eindregið við hug-
myndum um að leggja niður árlega aðal-
skoðun. Má í því sambandi líta á reynslu
annarra þjóða um mikilvægi árlegrar
skoðunar á vegum hins opinbera á öllum
bifreiðum og bifhjólum.
5. Fundurinn telur að skapa eigi bifreiðaeftir-
litsmönnum aðstöðu til að vera mun meira
en nú er úti á vegum og líta eftir ástandi
ökutækja.
6. Aðalfundur Félags íslenskra bifreiðaeftir-
litsmanna fagnar fram komnu frumvarpi
til umferöarlaga. Frumvarpið er samt á
margan hátt gallað og hvetur fundurinn
til að fullt tillit veröi tekið til breytingartil-
lagna sem Bifreiöaeftirlit ríkisins og Félag
íslenskra bifreiðaeftirlitsmanna lögöu
fram sem umsögn meö frumvarpinu sl.
vor.