Morgunblaðið - 11.12.1985, Side 43

Morgunblaðið - 11.12.1985, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985 43 Lítum þá fyrst á þetta söguljóð í heild. Það er að mestu leyti frá- sögn sjálfrar söguhetjunnar, Helgu, sem rekur örlög sín frá æsku til elli. Hún byrjar persónu- lega frásögn sína í kafla II, enda er fyrsta vísuorðið eins konar inngangur og fer mjög vel á því. Þareð frásögn ljóðsins er lögð að langmestu leyti í munn konu leiðir af því, að best færi á því að konu- rödd flytti ljóðið, þótt það sé engan veginn óhjákvæmilegt. Flytji karl- maður hins vegar ljóðið verður hann samt að sjálfsögðu að hafa það í huga. Þet’ta ljóð er mjög þrungið stemmningu og því freistandi við- fangsefni fyrir góðan upplesara. Það er margt og misjafnt sem hendir Helgu, og þess vegna er lj óðið mj ög þlæbrigðaríkt. Hvað snertir meginstemmning- ar í ljóðinu er bersýnilegt, að upphaf frásagnar söguhetjunnar skýrir frá einum fegursta kafla ævi hennar, æskuárunum. Að vísu er birta yfir slíkum minningum hjá flestum, en það er óvenjumargt sem slær ljóma á æsku þessarar konu. Hún er dóttir eins af æðstu mönnum i landi sínu, auðugs manns, sem hefur því getað veitt henni allt sem nauðsynlegast er fyrir konu að hafa í lífi sínu: menntun, uppeldi, fagran klæðnað og góð húsakynni. En auk þess hefur hún til að bera það sem fylgir ekki alltaf slíkri aðstöðu í lífinu, því hún er bæði forkunnar- fögur og gáfuð kona, og saga henn- ar sýnir okkur ljóslega að hún býr auk þess yfir miklum viljakrafti, skapfestu, hugrekki og dirfsku. Hún stendur eins og klettur við hlið manns síns, þegar líf hans hnígur á ógæfuhlið. Hér er lýst miklum mannkostum. Skáldið gerir okkur einnig ljóst, að hún finnur til þeirrar ábyrgðar sem því fylgir að vera stórættuð kona. „Ég er Helga Haraldsdóttir, Hólm- verjanna tigna drottning." Upphaf kvæðisins (kafli I) er einskonar forleikur, sem ber í sér dramatískan tón þeirra myrku örlaga sem bíða söguhetjunnar og manns hennar. Hann ber því að flytja hægt og með nokkrum þunga. En svo (með kafla II) hefst persónuleg frásögn og endurminn- ingar þessarar gömlu konu, sem býr ein niður við hafið og á erfitt með svefn sökum brimhljóðsins og þá sækja að henni endurminning- arnar hver af annarri. Hverjum þeim sem einhvern tíma hefur fengið um lengri eða skemmri tíma að hverfa á vit forn- ra minninga, er það ljóst, að slíkar hugrenningar endurvekja raun* verulega þær tilfinningar að meira eða minna leyti, sem bundnar voru því sem minnst er. Hugarástand þess sem þannig rifjar upp endur- minningar er þess vegna undir því komið hvers eðlis endurminningin er hverjusinni. Og með hverjum hætti eru nú þær endurminningar gömlu kon- unnar, sem eitt sinn var hin fagra og glæsilega Helga, dóttir jarls- ins? Þær eru vitanlega fagrar og gleðivekjandi. Hún byrjar á að segja frá því hve dáð hún hafi verið af hinum ágætustu mönnum, sem felldu til hennar ástarhug, en þeir hverfa henni allir úr huga, þegar hún litur fyrsta sinni hinn hávaxna, glæsi- lega íslending Hörð Grímkelsson, sem hún meðal annars segir um: „Hann var logi, aðrir reykur." Og að hætti ástfanginnar, ungrar stúlku sér hún vitanlega ekkert annað en kosti hans, sem Davíð lætur hana lýsa af mikilli mælsku. Síðan skýrir hún frá því hvernig þau felldu hugi saman og tengdust tryggðaböndum og er alsæl í ást- arvímu sinni: „Framtíðin var fagur draumur, fögnuður í ungum sálum,“ segir hún og gengur að lokum til skips með Herði sínum. Þessi kafli (II kafli) endar svo á lýsingu hennar á landsýn í slands og er hún mjög fögur, enda viknar hin unga konu við þá sýn. íslendingar eru miklir sögu- menn og eru margir þeirra ákaf- lega færir í þeirri list að segja vel sögu og sumir orðsnjallir, þótt þeir búi ekki yfir snilld skálda á borð við Davíð Stefánsson. Þeir sem hafa einhvern tíma hlustað á frásagnaglaðan mann segja frá með þessum hætti, hafa vafalaust tekið eftir því hve svipbrigði hans breytast eftir efni frásagnarinnar. Það er eðlileg afleiðing af innlifun og einlægni sögumanns og eykur mjöggildi frásagnarinnar. Þetta sama einkennir einnig góða lesara, þótt áhorfendur geti alls ekki séð þá, eins og til dæmis, þegar lesið er í hljóðvarp, eins og nú gerist æ tíðara. Einhverjum kynni nú að detta í hug að slíkt væri með öllu óþarft, þareð það kæmi hvort eð er ekki að neinu gagni. En þetta er misskilningur. Svipbrigðin eru speglun hugar- ástands og það á vitanlega jafnan að vera í samræmi við það sem lesið er. Jafnvel í hljóðvarpi heyr- ist það í lestri, í hljóðvarpi skiptir rnáli til dæmis hvort lesari brosir eða ekki, þegar hann les, því það kemur fram í blæbrigðum raddar- innar. Þegar því lesinn er II kafli kvæðisins um Helgu jarlsdóttur eftir Davíð Stefánsson, skáld, skiptir þetta máli. Þetta er feg- ursti og bjartasti kaflinn í endur- minningum þessarar konu og það birtir því yfir sál hennar, þegar hún rekur þær. Þetta verður lesari að láta heyrast í lestri sínum. Blæbrigði III kafla eru vitanlega allt annars eðlis, sökum þess að í þeim hluta endurminninga hinnar öldnu konu tekur að dimma í hennar hugarborgum. Kaldar staðreyndir lífsins hafa tekið við af björtum draumum um heillandi lán og hamingju. Þessi tigna kona hefur bundið örlög sín óláni eins þeirra ógæfumanna, sem þrátt fyrir hetjudáðir og mannkosti verða að lúta hörðum örlögum. Og sökum drengskapar, skapfestu, trygglyndis og viljaþreks hikar þessi aðdáanlega kona ekki við að deila þessum hörðum kostum með manni sínum, sem hún ann ^vo heitt. Hún skapar sér því eilífan orðstír með því að verða sjálf ein af hetjum Harðar sögu og Hólm- verja ásamt manni sínum. Svo sterk er ást þessarar mikil- hæfu konu, að hún nýtur hennar jafnvel í hinum mestu hættum og andstreymi: „Svaf ég trygg í sekum örmum. Sælt var mér að fylgja Herði. Ást hans bætti úr öllum hörmum; allt var gott sem Hörður gerði.“ Það liggur í augum uppi, að taka verður raddlega öðrum tökum þessa hluta III kafla þar sem hún bregður birtu ástar sinnar yfir endurminningar sínar, en hinum þar sem hún með biturleik minnist andstreymisins, eins og „Af ýmsum var hann illa ræmdur, ættarsmár og fjandamargur, út í Hólminn friðlaus flæmdur, fyrirlitinn brennuvargur “ Það er því ljóst að innan hvers kafla skiptast á blæbrigði, sem mjög er mikilvægt að komi fram í lestrinum, og gildir hér enn það sem margoft hefur verið bent á, að það er efnið sem gefur tilefni tií blæbrigðanna. Það ber því ekki einungis að ganga úr skugga um mismunandi stemmningu hinna ýmsu kafla kvæðisins, heldur að íhuga vand- lega hvernig blæbrigðin skiptast eftir efninu innan hvers kafla fyrir sig. Það sem hér hefur verið sagt á að sjálfsögðu einnig við um IV og V kafla kvæðisins. Aðeins skal þó bent hér á eftirtektarvert atriði í síðarnefnda kaflanum, sem veru- legu máli skiptir fyrir upplesar- ann. Þar er um að ræða 3. erindi V kaflans, sem er svona: „Naut ég afls og örmum beitti. Yfir Þyrli máninn glóði. Sundið fast ég friðlaust þreytti og fannst ég synda í Harðar blóði. Hjartað var þeim böndum bundið, sem brúði veika að hetju gera. Til hinsta dags skal Helgu sundið heiðinni móður vitni bera.“ Hingað til hefur skáldið lagt þessa dramatísku frásögn í munn söguhetjunnar, Helgu; og er ekki annað sjáanlegt en hún haldi henni áfram í upphafi þessa erindis. En nær það nokkurri átt, að Helga taki allt í einu að leggja dóm á eigin afrek með þessum orðum: „Hjartað var þeim böndum bundið, sem brúði veika að hetju gera. Til hinsta dags skal Helgu sundið heiðinni móður vitni bera.“ — ? Nei, vitanlega kemur það engan veginn til mála. Það er því skáldið sjálft sem grípur fram í frásögn Helgu með því að leggja dóm síðari tíma á afrek hennar. Þetta er alveg augljóst, því í næsta kafla heldur Helga áfram endurminningum sínum, eins og ekkert hafi í skortst. Þareð þetta er hvergi annars stað- ar aðferð skáldsins er óhjákvæmi- legt að líta á þetta sem galla á fögru kvæði. Þetta er ekki viðeig- andi. Og hvað snertir því upplestur þessa erindis verður lesari að gera sér þetta alveg ljóst, því annars hljómar það í eyrum hlustanda eins og Helga sjálf sé farin að grobba af afrekum sínum. Hér verður því að hverfa frá þeim frá- sagnartóni sem lesari hefur valið Helgu í þessu kvæði; hafa þögn eftir fyrstu fjórar línurnar til þess að greina síðari línurnar frá per- sónulegri frásögn hennar með öðrum tón, og reyna með þeim hætti að koma því til hlustanda, að hér grípi höfundur fram í frá- sögnina með að vísu lofsamlegum dómi, sem .samt virðist of dýru verði keyptur. Hér er mjótt á mununum að misskilningur geti orðið og verður lesari að kappkosta að koma í veg fyrir hann. f VI kafla kemur fyrir erindi, sem getur sýnt betur í átta línum blæbrigðaskipti en annað efni þessa kvæðis. En það er síðasta erindi þessa kafla, sem er þannig: „Hún er fædd við eld og ísa, ægileg og tignarfögur. Hún er mild sem vögguvísa, voldug eins og hetj usögur. Hún er björt sem dýrðardagur, draugaleg sem nóttin svarta. Hún er grimm sem galdrabragur, göfug eins og móðurhjarta" Hér leggur skáldið söguhetjunni i munn lýsing á íslensku þjóðinni, sem er vægast sagt hástemmd. En hvað sem því líður verður að vanda að flytja hana í fullu samræmi við textann, sem frá upplestrarsjónar- miði er að því leyti athyglisverður, að í þessum átta línum skiptast mjög á blæbrigði, sökum þeirra andstæðna sem höfundur hér sí- fellt teflir fram í einu og sama erindinu. Andstæðurnar í erindinu liggja í því, að ýmist bregður höfundur upp því sem er hrikalegt og jafnvel ógnarlegt eða hinu sem er milt og fagurt. Samkvæmt því sem í þess- um greinum hefur verið haldið fram um skyldu lesara til að láta heyrast blæbrigði efnisins, verður hann að gæta þess vandlega að ná þessum. blæbrigðum, þótt þau reki hvert annað á svo skömmum tíma í einu og sama átta lína erindinu. Og hvernig eru þá þessi blæbrigði í þessum texta? Og með hverjum hætti er best að ná þeim? I fyrstu tveim línunum er talað um hinar miklu andstæður elds og íss og lýsingarorðin „ægileg" og „tignarfögur" notuð. Hér er því um hrikafegurð að ræða. Því er best að ná með djúpri rödd og breidd (löngum sérhljóðum) í orð- um. En svo kemur þriðja línan með allt öðrum blæ og andstæðum: „Hún er mild sem vögguvísa." Þessa línu verður því að lesa með öðrum raddblæ mjúkri rödd og bjartri, en fjórða línan er hins vegar strax af hrikalegri gerðinni: „voldug eins og hetjusögur." Og verður því aftur að grípa til fyrri raddbeitingar. Sama er að segja um næstu tvær linur. Þær sýna blæbrigðaandstæður: „Hún er björt sem dýrðardagur, draugaleg sem nóttin svarta." Þessar tvær línur þurfa því hvor um sig að hafa sinn blæ eftir efninu. Og nákvæmlega hið sama er að segja um síðustu tvær línurn- ar. Þetta erindi er því gott dæmi um það hve nauðsynlegt er að greina andstæður í blæbrigðum eftir efni; og engu síður þótt þær reki hver aðra frá einni línu til annarrar, eins og hér gerist. Þetta ætti að nægja að sinni um þá möguleika til blæbrigða sem þetta merkilega kvæði veitir góð- um lesara. Með kvæðunum Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson og Helgu jarlsdóttur eftir Davíð Stefánsson er engan veginn verið að reyna að kenna að lesa þau upp sérstaklega, heldur hafa þau einungis verið valin hér sem dæmi um íhugun á lestrarefni almennt, sökum þeirra miklu möguleika sem þau veita góðum upplesara til frábærrar túlkunar. Hér lýkur þá þessum greina- flokki mínum í Morgunblaðinu um upplestur bundins máls og óbund- ins. Tilgangur minn hefur meðal annars verið sá, að vekja athygli á íslenskri listgrein, sem ekki hefur verið sýndur sá sómi sem henni ber. I nágrannalöndum okkar eru til listamenn, sem náð hafa mikilli frægð einmitt á sviði frábærs upplesturs. En hérlendis virðist þessari listgrein engan veginn sinnt sem vert væri. Annað veifið hafa komið hingað til lands og lesið upp fyrir okkur frábærir upplesarar, einkum frá Danmörku, en þess hafa ekki aðrir notið en þeir, sem eru vel að sér í því tungu- máli sem lesið er á. í þessu sam- bandi er mér mjög minnisstæður danskur maður, sem kom hingað til lands fyrir mörgum áratugum og ég man nú ekki lengur hvað heitir. Sennilega hefur hann verið lærður leikari, en hann var mjög frægur upplesari í Danmörku. En hann var sérfræðingur í léstri hinna dásamlegu sagna skáldsins H.C. Andersen. Ég var ungur pilt- ur þegar ég sá og hlustaði á þennan galdramann í upplestri, svo hann stendur mér enn fyrir hugskots- sjónum. Hann bókstaflega lék all- ar persónur sögunnar, sem hann vitanlega kunni utanbókar. Ég undraðist ekki frægð þessa manns í föðurlandi sínu þar sem þessar heimsfrægu sögur eru á hvers manns vörum. Listfræðingurinn Björn Th. Björnsson hafði fyrir nokkrum árum útvarpsþátt, sem ég hafði mikið yndi af að hlusta á sökum þess, að í þættinum leyfði hann hlustendum að heyra á ýmsa fræga leikara enska lesa upp. Og var unun á þá að hlýða. En sá er gall- inn á slíkum upplestrum, að þeir koma ekki að gagni öðrum en þeim hlustendum, sem hafa verulega góða þekkingu á máli því, sem upplesturinn fer fram á. Við eigum þegar hér á landi nokkra mjög góða upplesara, sem útvarpshlustendur eru jafnan mjög fegnir að fá að hlusta á, en þeir heyrast alltof sjaldan. Ég vona að þessar greinar mínar geti komið hverjum sem er að nokkru gagni, sem langar til að lesa vel upp. Hefjum nú þessa vanræktu listgrein, upplesturinn, til nýrrar virðingar. Höfundur er leikari og hefur kennt framhurð um írabil. Guðlaun hr. Rosewater eftir Kurt Vonnegut Þýðandi Sveinbjörn I. Baldvinsson. Sprcnghlægileg en jafnframt átakanlcg saga eftir hinn óviðjafnanlega bandaríska rithöfund Kurt Vonnegut. Sagan ef Eliot Rosewater, drykkfellda sjálfboðaslökkviliðsmanninum, sem haldinn er ofurást á meðbræðrum sínum, ekki síst smælingjunum. Hvað á slíkur maður að gera? Bókin kafar djúpt í bandarískt samfélag og nútímann yfirleitt með hjálp sinna skemmtilegu og fjölskrúðugu persóna. BOK AUÐVITAÐ A1.MENNA BÓKAFÉLAGIÐ. AUSTURSTRÆTl 18. SlMI 25544

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.