Morgunblaðið - 11.12.1985, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 11.12.1985, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR11. DESEMBER1985 N 7 Hinn nýi Blackmore lætur til sín taka Hljómplötur Sigurður Sverrisson Yngwie Malmsteen’s Rising Force Marching Out Polydor/Fálkinn. Þrátt fyrir að Yngwie Malm- steen hafi Ritchie Blackmore að leiðarljósi í flestu því sem hann tekur sér fyrir hendur á tónlist- arsviðinu hikar hann ekki við að afneita öllum tengslum við þann gamla jöfur. Fyrir hvern meðal- jón er það deginum ljósara að Malmsteen sækir áhrif sín til Ritchie Blackmore og ekkert annað. Sem dæmi um þetta skal nefnt, að allt fas þessara tveggja manna er keimlíkt sem og klæða- burður, Malmsteen notar sömu tegund gítars og Blackmore, er meira að segja með svipað „sánd“, byggir sóló sín oft upp á sambærilegan hátt og sá gamli og leitar fanga í verkum gömlu meistaranna rétt eins og Black- more. Það gera reyndar miklu fleiri en úrvinnslan er svipuð hjá þessum tveimur. Nafnið á sveitinni, þ.e. uppsetning þess, er að auki sláandi lík því sem var hjá Blackmore fyrir áratug. Sveitin heitir Yngwie Malm- steen’s Rising Force en hin hét Ritchie Blackmore’s Rainbow. Eftir alla afneitunina lætur sænski snillingurinn sig ekki muna um að senda Blackmore sérstakar þakkir á plötuumslag- inu. Að öllu þessu framansögðu mætti halda að undirritaður hefði ekki mikið álit á Maimste- en. Því fer fjarri. Hann er tví- mælalaust einhver allra mesti gítarsnillingur rokksins í dag þótt stundum leiki hann meira af tækni einni saman en tilfinn- ingu. Það skólast vafalítið af honum með tímanum. Síðast heyrði ég í Malmsteen innan veggja Alcatrazz áður en honum og Graham Bonnet varð alvarlega sundurorða. Frá þeim tíma hefur gítarleikur Malmste- en þroskast talsvert en hið sama verður ekki sagt um lagasmíð- arnar. Þær eru alls ekki slæmar en keimlíkar, aðallega vegna þess að lögin þjóna flest þeim tilgangi einum að vera undirspil fyrir grenjandi sóló hans. Beitt stunga frá vespunum. W.A.S.P. The Last Command Capitol/Fálkinn. W.A.S.P. sló strax í gegn með fyrstu breiðskífunni sinni, I Wanna Be Somebody. Ef að lík- um lætur á The Last Command eftir að styrkja stöðu Blackie Lawless og manna hans stórlega á Bandaríkjamarkaði a.m.k. The Last Command er um flest tals- vert betri en forveri hennar, sem þó var hin ágætasta. The Last Command hefst á ágætu lagi, Wild Child, sem fylgt er eftir af Ballcrusher. Síðan rekur hvert lagið annað og veil- urnar á plötunni eru fáar þótt lögin á síðari hliðinni séu kannski full keimlík innbyrðis. Hljóðfæraleikur þeirra W.A.S.P. manna er hnökralítill. Lawless drífur sveitina áfram með kröftugum bassaleik og gít- arleikur þeirra Holmes og Piper er nokkuð fjölbreyttur án þess nokkru sinni að geta talist stór- brotinn. Trommuleikur Riley öruggur en einfaldur. í heild er tónlistin ákaflega dæmigert þungt bandarískt rokk af árgerð 1985. Snoturt en átakalítið ABC How To Be A Zillionaire? Mercury/Fálkinn Einhvern veginn fór það svo, að mér tókst á sínum tíma að vera á öndverðri skoðun við flest alla hljómplötugagnrýnendur þegar fyrri plötur ABC, The Lexicon of Love og The beauty Stab, komu út. Mér fannst sú fyrri afleit, hin síðari býsna góð. Það voru víst fáir um þá skoðun. Að mínu mati fengi þessi plata aldrei nein verðlaun, nema ef vera skyldi fyrir fagmennsku og varla þó. Hljómborð, þ.m.t. hið illræmda Fairlight-apparat, eru allt í öllu og trommumaskínur sjá um stóran hluta af því sem eftir er. í það heila tekið er tón- list ABC ósköp venjulegt popp í ljúfustum skilningi þess orðs með öllum þeim bellibrögðum sem nú tíðkast í hljóðverum er- lendis. Eftir stendur þó, að Martin Fry er ágætis söngvari í alla staði og getur sett saman ágætis lög. Best tekst honum í Be Near Me, sem þegar hefur notið vin- sælda, en að öðru leyti er tónlist ABC þess eðlis að hún gleymist fljótt. Vinnur hægt og bítandi á Motels, Shock Capitol/Fálkinn Það var sannarlega áfall fyrir aðdáendur Motels þegar það komst í fréttir, að Martha Dab- ves, höfuðpaur sveitarinnar og söngkona þurfti að gangast undir skurðaðgerð á höfði vegna heila- æxlis. Þetta var síðla á síðasta ári og sem betur fer reyndist æxlið góðkynja og Martha náði sér aftur á strik. En bersýnilega hafa veikindin sett meiri alvöru- blæ á tónlist hennar en áður var. Hið létta yfirbragð, sem ein- kenndi t.d. All Four One, sem kom út 1982 og Little Robbers, sem kom út ári síðar, er þó ekki með öllu á braut og skýtur upp kollinum hér og þar. Lög eins og New York Times, State of Heart ásamt Icy Red eru stórgóð og nokkur önnur koma þar skammt áeftir. Að því er best verður séð er liðsskipan Motels hin sama og var á tveimur fyrri plötunum en því miður er upptökustjórinn Val Garay fjarri góðu gamni að þessu sinni. Fjarvera hans breytir þó ekki þeirri staðreynd að Motels færa manni heim sanninn um það, að vesturstrandarrokkið þarf ekki að vera poppað kántrí eða gegnryðgað bárujárn. Þetta er góð plata sem vinnur stöðugt á. Sherlock sárt leikinn Myndbönd Árni Þórarinsson Konungur einkaspæjaranna Sherlock Holmes á sér margra aðdáendur á öllum aldri og ég er í þeim hópi. Þáð léttist því á mér brúnin þegar ég sá að komin er á myndbandamarkaðinn ný spóla um þennan ágæta viktoríanska snilling. Hún geymir mynd að nafni Masks of Death og í hlut- verkum Holmes og Watsons eru Peter Cushing, hinn gamalreyndi hrollvekjuleikari, og John Mills. einhver hæfasti leikari Breta. I aukahlutverkum eru aldnar stjörnur á borð við Ray Milland og Anne Baxter sem leikur Irene Adler, einu konuna sem Holmes taldi standa sér jafnfætis í greind og gáfum. En öllum þessum lei- kurum og gáfumönnum er á glæ kastað í Masks of Death, því miður. Þetta er sjónvarpsmynd frá því í fyrra, trúlega hluti af sjónvarpssyrpu, og eru handa- bakavinnubrögð í öllum deildum. Sagan segir frá rannsókn Holmes á óhugnanlegum morðum í Whitechapelhverfinu í London sem tengjast svo annarri rann- sókn hans á hvarfi í þýsks valda- manns sem svo aftur tengist yfirvofandi styrjöld í Evrópu. Masks of Death virðist að ein- hverju leyti runnin undan rifjum sömu aðila og stóðu að Hammer- kvikmyndafélaginu gamla sem á sjöunda áratugnum hélt nánast eitt og ótstutt uppi enskri kvik- myndagerð með hryllingsmynd- unum um Dracula og Franken- stein. Reyndar gerði Hammer einnig mjög frambærilega mynd um Sherlock Holmes, Basker- villehundinn, og þar fór einmitt Peter Cushing með hlutverk snill- ingsins. Höfundur sögunnar Masks of Death er John Elder, sem er dulnefni fyrir helsta hugmyndafræðing Hammers, Anthony Hinds, og leikstjóri er gamli Hammerlqikstjórinn Roy Ward Baker. En þeir félagar virðast ekkert hafa lært á síðustu áratugum og auk þess gleymt því sem þeir þó kunnu, þ.e. að byggja upp þokkalega spennu. Handrit og leikstjórn eru lygilega viðvan- ingsleg. Þá er Peter Cushing því miður orðinn allt of aldurhniginn til að túlka hinn gustmikla, frán- eyga einkaspæjara og aðrir leik- arar fá ekkert til að moða úr. Ég verð að vara Holmes-söfnuðinn á íslandi við Masks of Death. Stjörnugjöf: Masks of Death V4. ÍSLENSK FIÐLUTÓNLIST Hljémplötur Egill Friöleifsson Efnisskrá: Verk eftir Karólínu Eiríksdóttur, Jón Nordal, Áskel Másson, Jónas Tómasson og Þor- kel Sigurbjörnsson. Flytjendur: Guðný Guðmundsdótt- ir, fiðla, Nina G. Flyer, selló, Halldór Haraldsson, píanó. Ein þeirra platna er nýlega kom út hjá íslensku tónverka- miðstöðinni nefnist „Islensk fiðlutóniist". Þar er að finna fiðlumúsík fimm tónskálda. Þau eru Karólína Eiríksdóttir, Jón Nordal, Áskell Másson, Jónas Tómasson og Þorkell Sigur- björnsson. Atli H. Sveinsson ritar grein, er fylgir plötunni, og rekur í stór- um dráttum sögu fiðlutónlistar hér á landi, þar kemur fram að ekki var um auðugan garð að gresja í þeim efnum fyrr en eftir heimsstyrjöldina síðari. Það var Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sem brautina ruddi í þeim garðinum, eins og svo mörgum öðrum, með sónötu fyrir fiðlu og píanó auk smálaga. Síðar bættust þeir Jón Leifs og Þórarinn Jónsson í hóp- inn. Á síðustu áratugum hefur hins vegar drjúgt verið samið fyrir fiðluna, og koma þar við sögu öll heistu tónskáld okkar. í upptalningu Atla sakna ég t.d. Jórunnar Viðar, sem samið hefur laglega fiðlumúsík. Það er kon- sertmeistari Sinfóníuhljómsveit- ar íslands, Guðný Guðmunds- dóttir, sem strýkur fiðluna af þrótti og ákveðni á þessari plötu, og virðist þessi tegund tónlistar eiga jafnvel betur við hana en ýmislegt annað. Öll verkin að einu undanskildu (Vetrartré) eru samin, tileinkuð og frumflutt af Guðnýju, svo að sjá má að þáttur hennar í tilurð verkanna er eigi smár, enda auðfundin sú alúð og vandvirkni, sem einkennir túlk- un hennar á þessari plötu. Fyrsta verkið nefnist „In Vultu Solis" eða „í andlit sólar" og er „leikur að smámunum". Efnivið- urinn, sem höfundur skammtar sér er svo naumur að jaðrar við meinlæti og er í mótsögn við tilkomumikinn titil verksins. Satt að segja finnst mér þetta heldur tíðindalítil tónsmíð. „Teikn" Áskels Mássonar er um margt áþekk tónsmíð en rismeiri („In Vultu solis" hefst á lítilli fallandi tvíund en „Teikn" á rís- andi). Dúó fyrir fiðlu og selló eftir Jón Nordal er með léttara yfirbragði en ýmis önnur yerk höfundar, og er hið áheyrilegasta verk. Sömu sögu er einnig að segja um „G-Sweet“ Þorkels Sigurbjörnssonar. Ég hafði einn- ig óblandna ánægju af „Vetr- artrjám" Jónasar Tómassonar, sem hefst með hressilegri ákefð í þættinum „Góð tré“, þá taka við „Hrygg tré“, „Óð tré“ og loks þögul... Jónas er snjall tón- smiður og honum tekst vel upp í þessu verki. Sem fyrr segir er leikur Guðnýjar Guðmundsdóttur hinn vandaðasti á þessari plötu og henni til sóma. Það sama má einnig segja um meðleikara hennar, þau Ninu Flyer og Hall- dór Haraldsson. Mezzoforte með snilldartakta Hljómplötur ÁrniJohnsen Það er engin tilviljun að ís- lenska hljómsveitin Mezzoforte skuli hafa náð árangri á heims- markaði dægurtónlistarinnar og einmitt í vandaðasta flokki, því þeir félagar í Mezzoforte eru bráðsnjallir hljóðfæraleikarar, hver á sínu sviði og lög hljóm- sveitarinnar eru bæði sérstæð og stórbrotin. Á nýútkominni hljómplötu Mezzoforte, The Saga so Far, leikur hljómsveitin ellefu gömul og ný lög og slíkur er hljóðfæraleikurinn, tónsmíðin og hljóðblöndunin að unun er á að hlusta. Þeir Mezzoforte-félagar, Frið- rik Karlsson, Jóhann Ásmunds- son, Gunnlaugur Briem og Krist- inn Svavarsson leika flest öll lögin en til liðs í einu lagi kemur Björn Thorarensen á hljómborð. Lögin á plötunni eru Surprise frá 1982, Garden Party frá 1982 er það sveif inn í sviðsljós á alþjóðavettvangi, en á þessari plötu hafa þeir hljóðblandað að nýju. Þá er lagið Taking Off sem var hljóðritað fyrst 1983 og sama er að segja um hið kunna og vinsæla lag Rockall og lagið Dreamland, sem var fyrst hljóð- ritað 1981 og síðan á þessu ári, en það hefur lengi verið meðal vinsælustu laga Mezzoforte. Mezzoforte, The Saga so Far, er góð spegilmynd af tónlist Mezzoforte í gegnum mörg ár og með slík spil á hendinni eru Is- lendingar gjaldgengir hvar sem er í þessum þætti heimsmenning- arinnar, það stækkar ísland á sinn hátt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.