Morgunblaðið - 11.12.1985, Síða 50

Morgunblaðið - 11.12.1985, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985 Minning: Anna Guðmunds- dóttir leikkona Anna Guðmundsdóttir leikkona lést laugardagsmorguninn 30. nóv- ember sl. Anna fæddist á Skála- nesi í Vopnafirði 19. apríl árið 1902 og var dóttir hjónanna Stefaníu Benjamínsdóttur og Guðmundar Ólafssonar, veitingamanns á Seyð- isfirði. Hún fluttist til Reykjavík- ur með foreldrum sínum árið 1917 þá 15 ára gömul og í Reykjavík alla tíð síðan. Anna giftist Páli Þorleifssyni bókhaldara árið 1927 en hann lést í janúar 1961. Þeim varð ekki barna auðið. Áhugamál Önnu voru fjölmörg á lífsleiðinni og margt sem hún lagði gjörva hönd á. Hún lærði ljósmyndagerð ung að árum, þá stundaði hún fimleika af kappi og fór meðal annars margar ferðir til útlanda með sýningarflokki sínum í fimleikum. Anna var mikil söng- manneskja og söng t.d. í Dóm- kirkjukórnum í rúm 40 ár. Þá var hún hagmælt vel og las oft upp ljóð sín við hátíðleg tækifæri. En það var leiklistin sem heillaði hana mest, enda gerði hún hana að lífsstarfi sínu. Fyrsta hlutverk hennar var í revíunni „Spánskar nætur" árið 1924. Hún stofnaði ásamt fleirum Leikfélag templara. Á annan í jólum 1929 stóð hún fyrst á sviði Leikfélags Reykjavík- ur í „Flóninu" eftir Channing Pollock þar sem hún lék frú Thorn- bury. Hún lék hjá Leikfélagi Reykjavíkur allt frá þessum tíma og þar til Þjóðleikhúsið var stofnað árið 1950. Ferill hennar hjá Þjóðleikhús- inu er orðin býsna langur eða 35 ár og auðvitað lét Anna sig ekki vanta í afmælissýningu Þjóðleik- hússins sem var „íslandsklukkan" sem frumsýnd á 35 ára afmæli leikhússins-í apríl, skömmu eftir að hún sjálf varð 83 ára. Hlutverk hennar hjá Þjóðleikhúsinu urðu um 85 á hennar listamannsferli og 25 hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hún lék í „Fjalla-Eyvindi" og „ís- landsklukkunni" við opnun Þjóð- leikhússins og hún stóð nú í síðasta sinni á leiksviði þann 6. október sl. í sýningu á „íslandsklukkunni" skömmu áður en hún veiktist. Anna Guðmundsdóttir var ákaf- lega traust leikkona og leysti hún ævinlega hlutverk sín af hendi með miklum sóma. Hún var vinsæl í hópi starfsfélaga sinna og oft fjör í kringum hana þar sem margt bar á góma. Hún hafði mikinn áhuga á félagsmálum leikara og var einn af stofnendum Félags íslenskra leikara 1941, hún gegndi margvís- legum trúnaðarstörfum fyrir félag sitt og var meðal annars gjaldkeri þessum árabil. Það er með söknuði sem við kveðjum Önnu Guðmundsdóttur leikkonu en jafnframt með þakk- læti og stolti yfir því sem hún hefur lagt af mörkum í þágu leik- listarinnar. Ættingjum hennar færum við hugheilar samúðarkveðjur. Gísli Alfreðsson Nú nálgast jólin og eftirvænting fyllir huga okkar, tilhlökkun til að njóta hátíðarinnar í hópi ætt- ingjaog vina. Jólin hafa alltaf verið hátíð fjöl- skyldunnar, þá gefst tækifæri til að hittast oggleðjast saman. Sá hefur verið siður í okkar fjölskyldu frá fyrstu tíð og alltaf hefur Anna frænka verið í hópn- um, en nú verður skarð fyrir skildi, því að hún Anna frænka er dáin, hún er farin heim til guðs. Við minnumst margra ánægju- stunda á heimili hennar. Fyrst meðan Páll maður hennar var á lífi og vakti skemmtun og ánægju allra með frábærri glettni og gáf- um. Við vissum öll um hinn mikla missi og söknuð í huga Önnu þegar hann féll frá, eftir erfið veikindi. Þá hófst nýr kafli í lífi hennar. Hún sagði stundum á hátíðis- stundum er hún hélt skörulegar ræður, að það hefðu verið 2 stór L í lífi sínu: Ljósmyndun, en það starf lærði hún í æsku, leiklistin sem varð hennar lífsstarf að þjóna, og laxveiði, sem var henni mikill gleðigjafi áður fyrr. í öllu þessu leitaði hún fram á við og þar kom í ljós hinn mikli kjarkur og dugnaður Önnu. Eftir lát eiginmanns síns byggði hún upp nýtt heimili og mótaði líf sitt að nýjum aðstæðum. Henni féll varla verk úr hendi og hugurinn var með í hverju verki. Hvert verk unnið af alúð eins og best varð gert. Sama hvort það var á leiksviðinu, á skemmtun- um yngri eða eldri borgara, eða heimahúsum. Maður hreyfst af hinu jákvæða lífsviðhorfi þessarar reyndu konu, sem miðlaði öllum, sem henni kynntust svo mikilli lífsgleði. Maður hlaut að hrífast af þreki hennar og dugnaði við hvert það verk, sem unnið var. Hún var trú í litlu sem stóru. Þegar ég kom inn í fjölskyldu konu minnar og kynntist frænku hennar, Önnu Guðmundsdóttur, leikkonu, eignaðist ég vin, hvers vinátta aldrei brást í öll þessi mörgu ár. Þessi samheldni og vinátta stórrar fjölskyldu er einn af þáttum íslensks þjóðfélags, sem við eigum að meta mikils og varð- veita. Nú er Anna frænka dáin. Heils- an var biluð og við hljótum að unna henni hvíldar eftir langt og gæfuríkt ævistarf, þó söknuður okkar sé nú mikill í fjölskyldunni og að nú fáum við ekki að njóta samvista um jólin eins og endra- nær. Við þökkum guði, sem gaf okkur svo góðan vin, og óskum henni góðra endurfunda við vininn sinn, sem hún elskaði mest. Páll Gíslason Hversu oft hefur því ekki verið Iýst með nokkurri eftirsjá hvernig Ieiklistin fæðist á sama augnabliki og hún deyr. Og þó hún endurnýi sig í sífellu, á hún óhægara um vik en til dæmis ljóðlistin eða málara- listin að bera vitnisburð, sem blíf- ur í menningarsögunni. Einstaka frásögn áhugamanna, mynd, fáorð gagnrýni, leikritið á bók — allt hjálpar þetta eitthvað, en á sama tíma og við getum lesið kvæði eftir Jónas eða Grím, virt fyrir andrúm sem Stefanía Guðmundsdóttir eða Árni Eiríksson sköpuðu á leiksvið- inu horfið og kemur aldrei aftur. Þessi stund í leikhúsinu lifir með- an vitnin lifa og muna — og síðan verður hún saga, sem er misjafn- lega vel haldið á lofti. I íslenskri leiklistarsögu hafa verið nokkur glögg kynslóðaskipti, og við lát Önnu Guðmundsdóttur saxast enn á þá kynslóð, sem tók upp merkið af brautryðjendunum, Stefaníu, Árna og þeim hinum. Þau gerðu flest vart við sig upp úr 1920, og það gerði Anna líka, lék fyrst með Leikfélagi templara, þar sem hún var driffjöður, það var árið 1923, svo að leikferill hennar spannar sjöunda tug ára, því að nokkrum vikum fyrir lát sitt stóð hún enn á sviðinu í Íslandsklukk- unni, og var engan bilbug á henni að finna. Hún lék fyrst með Leik- félagi Reykjavíkur á fjórða ára- tugnum, í upphafi hans, og upp úr 1940 er hún komin í hóp þeirra leikara, sem félagið treystir mest á. Undirritaður átti þess kost að fylgjast með ferli þessarar dug- miklu leikkonu í yfir 40 ár og unnum við oft saman. Henni létu ekki öll hlutverk, fremur en öðrum leikurum og hlutverkin voru ekki endilega alltaf stór, þó að reyndar léki hún iíka fjölmörgaðalhlutverk með sóma. Ég mun hafa séð Önnu fyrst í gamanleiknum Gift eða ógift 1944 eða 5, þar sem hún lék eitt aðalhlutverkanna af ísmeygi- legri kímni, en minnisstæðari er hún mér þó í öðru hlutverki, sem hún lék um líkt leyti sem frú Petrína Skagalín í Uppstigningu Nordals; um þá túlkun var sagt, að leikkonan hefði „átt“ salinn og mun það ekki ofmælt, svo trúverð- ug var sú lýsing hinnar umhyggju- sömu, sómavöndu og ofurlítið þröngsýnu gæðakonu, sem Anna lýsti þar. Ýmis ágæt hlutverk fylgdu, við opnun Þjóðleikhússins lék hún bæði í Fjalla-Eyvindi og íslandsklukkunni, en ekki var síð- ur um vert þátttöku hennar í „opn- unarsýningu" Leikfélagsins eftir blóðtökuna, Elsku Rut, þar sem hún lék dómarafrúna og fór á kostum í samleik við Þorstein Ö. Stephensen. Þau áttu raunar ann- an frægan samleik í vændum, mörgum árum síðar, er þau léku pressarahjónin ógleymanlegu í Dúfnaveislu Laxness. Og enn ann- að af sínum bestu hlutverkum átti hún og í Iðnó á sjöunda áratugn- um: fóstruna í Rómeó og Júlíu, ekkert nema gáski og hlýja og þó aldeilis ófær um að setja hlutina í sitt rétta samhengi. Annars var mestallur ferill Önnu tengdur Þjóðleikhúsinu eftir að það kom til. Árið 1972, lét hún af starfi sem fastráðin leikkona vegna aldurs, en eftir það mátti þó heita að hún léki með á hverju leikári allt til hinstu stundar. Hlutverkin eru orðin fjölmörg og skal á fá ein minnst: Vilborgu grasakonu, er hún lék fyrst í frægðarför íslenskra leikhús- manna til Finnlands með Gullna hliðið 1948 og síðast á sérstakri hátíðasýningu á sjötíu ogfimm ára afmæli sínu, þar bjó hún yfir al- þýðlegum tón, sem ekki varð dreg- inn í efa; hún brá líka upp skond- inni Reykjavíkurmynd í hlutverki Mad. Ludvigsen í Pilti og stúlku, en það hlutverk er samið til að sýna dönsku hættuna í málfari og háttum — og nú er svo komið að fæstir geta borið dönsku skamm- laust fram; minnisstæðar eru og Sara Good i í deiglunni, Þórdís í Manni og konu, sem Anna lék af þótta og fylgni, grannkonan í Blóð- brullaupi, móðir Jóns Hreggviðs- sonar, Nilla í Jeppa á Fjalli og lengi mætti telja; hún tók og við hlutverki Ásu í Pétri Gaut af Arndísi Björnsdóttur og þótti takast vel; ég sá því miður ekki þá túlkun. Þegar horft er yfir leikferil Önnu Guðmundsdóttur, virðist mér ljóst, hvernig samstarf þeirra Lárusar Pálssonar leikstjóra hefur leyst úr læðingi ýmsa bestu kosti Önnu sem leikkonu. Þó langar mig i lokin að nefna eitt hlutverk frá allra síðustu árum í samvinnu við annan leikstjóra, Baldvin Hall- dórsson. Það var hlutverk frú Perez í Vopn frú Carrar, ein af þessum ógleymanlegu litlu perlum, lítið hlutverk, sem verður stórt í krafti umbúðalausrar einlægni tilfinninganna, hógvær og djúp lýsing á sálarþroska umkomulí- tillar konu, sem mikið hefur reynt. Anna Guðmundsdóttir fæddist 19. apríl 1902 og lést laugardaginn 30. nóvember. Hún verður borin til hinstu hvílu í dag. Blessuð sé minning hennar. Sveinn Einarsson Kveðja frá Leikfélagi Reykjavíkur í dag kveðjum við Önnu Guð- mundsdóttur leikkonu hinstu kveðju. Anna kom til starfa hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1929 og lék þá frú Thornbury nokkra í leikritinu Flónið. Hún hafði þá stofnað Leikfélag templara og var formaður þess fyrstu árin. Anna lék síðan svo til samfellt með Leikfélaginu allt fram til ársins 1950 að hún ásamt stórum hópi leikara hóf störf við hið nýja Þjóð- leikhús. Á fjölum þess leikhúss fór hún með yfir 80 hlutverk á leikferli sínum, fjölbreytileg og flest hver eftirminnileg, þótt ekki væru það alltaf hlutverk þau, sem úrslitum réðu um framvindu leiksins. Minnisstæð er hún úr mörgum íslensku leikritunum; hún lék strax í frumuppfærslu Gullna hliðsins hjá Leikfélaginu 1941 og aftur 1948, þá Vilborgu grasakonu, sem hún lék einnig í leikför félags- ins til Finnlands og síðar í Þjóð- leikhúsinu. Þá lék hún einnig í öllum uppfærslum Þjóðleikhússins á íslandsklukkunni, nú síðast í sviðsetningu Sveins Einarssonar á þessu ári og varð það jafnframt hennar síðasta hlutverk. Erfitt er að nefna hér eitt hlutverk öðrum fremur af þeim, sem hún skilaði svo eftirminnilega, en í hugann koma persónur eins og Óla vinnu- kona í Strompleiknum, Maddama Ludvigsen í Pilti og stúlku og frú Bastían í Kardemommubænum svo eitthvað sé nefnt, þrjár mjög svo ólíkar manngerðir en ágæt dæmi um hversu Önnu reyndist létt að gæða jafnvel smæstu hlut- verk sterkum og skemmtilegum persónueinkennum, svo að þær urðu trúverðugar og ljóslifandi, þótt um ákveðna skopfærslu væri að ræða. Önnu voru ekki oft falin veigamikil dramatísk átakahlut- verk, kannski alltof sjaldan, þegar til þess er litið hversu eftirminni- leg skil hún gerði Ásu í Pétri Gaut, sem hún lék í forföllum í eitt skipti á móti Gunnari Eyjólfssyni, ekki hvað síst í hinu áhrifamikla atriði, dauða Ásu. Þótt Anna starfaði lengst af ævi sinnar við Þjóðleikhúsið, heimsótti hún Leikfélagið aftur a.m.k. í tví- gang og vann í bæði skiptin eftir- minnilegan leiksigur, fyrst sem fóstran í Rómeó og Júlíu, 1964 og síðast og ekki síst sem pressara- konan í Dúfnaveislunni, 1966/67, á móti Þorsteini Ö. Stephensen. Það var einkar ánægjulegt að rifja upp þau kynni, þegar ég tók að mér að æfa atriði úr því leikriti með Önnu, Þorsteini og Gísla Halldórs- syni til flutnings á friðarhátíð í Þjóðleikhúsinu fyrir um það bil tveimur árum. Anna hafði þá átt við vanheilsu að stríða en kom hin brattasta til leiks og fór létt með að bregða sér á ný í þetta bráð- skemmtilega hlutverk. Annars urðu kynni okkar aldrei náin, þótt stundum lægju leiðir okkar saman í starfi, ekki síst í útvarpi. En hún var þægileg og þó röggsöm í sam- vinnu, greind og snögg til svars, tók starf sitt föstum tökum, var virkilega „prófessíónal". Einn var sá háttur hennar, að fá að koma á æfingar verka, sem hún ekki lék í, þegar nálgaðist frumsýningu, kvaðst ekki hafa þolinmæði til að bíða lokaæfingar, var athugull en gagnrýninn áhorfandi og sýndi þetta einlægan áhuga hennar á listgreininni allt til hinstu stund- ar. Anna var afskaplega lífleg, kraftmikil og fjölhæf leikkona með sterka sviðsnærveru og smitandi kátínu, þegar á þurfti að halda en réði engu að síður við hinar alvar- legri hliðar, þegar á reyndi. Á síðustu misserum hafa æ fleiri skörð verið höggvin í raðir þeirrar kynslóðar leikara, sem bar leik- húslíf okkar uppi um miðja öldina, tók þátt í að móta og þróa leik- mennt okkar í hinu nýja Þjóðleik- húsi en kom gjarnan til liðs við Leikfélagið aftur á seinni árum. Anna var ein í þeirra hópi, við minnumst með söknuði þessarar fjölhæfu leikkonu og ótal gim- steina, sem hún fékk til að glitra í sviðsrökkrinu. Blessuð sé minning hennar. Stefán Baldursson Kveðjuorð: Maríus Helgason umdœmisstjóri Það er margs að minnast, er maður sér á bak jafn traustum og góðum samferðamanni, sem Mar- íusi Helgasyni fyrrum umdæmis- stjóra Pósts og síma á Isafirði um tíu ára skeið, síðan á Akureyri jafn lengi. Við bjuggum á ísafirði er þau fluttu þangað 1956. Maríus og hans ágæta kona Berþóra Eggertsdóttir urðu fljótlega tryggir heimilisvinir okkar. Á þeim tíma var maðurinn í pólitikinni og voru þau bæði ein- lægir stuðningsmenn hans, ekki eitt í dag og annað á morgun. Meintu það sem þau sögðu. Einnig voru þau með eindæmum gestrisin, getum við og okkar börn best borið um það. Oft skrapp ég suður á þessum árum, voru þá dætur mínar tvær einar heima. Þau hjón voru þeim ómetanleg. Þetta yljaði mér er ég hringdi vestur og gleymist aldrei. Stend ég og við öll í mikilli þakkarskuld við það heimili æ síðar. Sömuleiðis eftir að við fluttum suður, var yngsti sonur minn tíður gestur hjáþeim. Það var sama hvort þeirra hjóna var, bæði voru þau sérstaklega vinalega og myndarskapurinn þeim báðum í blóð borinn. Þau fluttu til Akureyrar árið 1966, þar sem Maríus varð um- dæmisstjóri. Nutum við öll einnig að heim- sækja þau þar. Er sonarsonur okkar var þar í MA voru þau honum betri en engir. Alltaf var hann velkominn á þeirra heimili. Sömuleiðs dóttir mín, sem vann um tíma á sjúkrahúsinu þar. Fyrir allt þetta þökkum við innilega. Því miður höfum við sést alltof sjaldan hin síðari ár, og hefur fundum við þau fækkað en það er svona þegar maður er á sitthvoru landshorninu. Heilsan og heilsuleysið hafði líka sitt að segja. Alltaf voru samt jólakveðurnar jafn innilegar, og fluttu með sér hlýju og vinarhót. Maríus stóð ekki einn, hann átti fádæma duglega og hjálpsama konu. Biðjum henni alls hins besta. Kveðjum Maríus með kærri þökk fyrir allt og allt. Sendum Bergþóru og börnunum innilegar samúðar- kveðjur, svo og öðru venslafólki. J.B.I.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.