Morgunblaðið - 11.12.1985, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
51
Jóna G. Þóröar-
dóttir — Minning
Er konan mín sagði mér þessar
fréttir um lát ömmu sinnar var
mér hálfbrugðið. Mér var hálf-
brugðið, þótt ég innst inni hafi átt
von á þessu sökum langvarandi
veikinda hennar. í þakkarskyni
syrir það sem hún var mér og
fjölskyldu minni langar mig að
minnast hennar í fáum orðum.
Jóna amma, eins og við kölluðum
hana alltaf, hét fullu nafni Jóna
Guðrún Þórðardóttir. Hún fæddist
í Reykjavík þann 3. september
1904. Foreldrar hennar voru þau
hjónin Þórður Jónsson og Sigríður
Ólafsdóttir, en föður sinn missti
Jóna er hún var á fyrsta ári. Flutt-
ist þá móðir hennar með dætur
sínar, þær Emelíu og Jónu, til
Vestmannaeyja. Þar kynntist
móðir hennar Guðmundi Magnús-
syni frá Litlu-Löndum í Vest-
mannaeyjum og giftist honum
siðar. Saman eignuðust þau fimm
börn. Af systkinum Jónu eru nú
þrjúálífi.
Er Jóna var sextán ára að aldri
fluttist hún til Reykjavíkur og hóf
störf hjá apótekara, eins og þá
voru kallaðir. Fljótlega eftir kom-
una til Reykjavíkur kynntist Jóna
eftirlifandi manni sínum, Sigur-
jóni Jóhannssyni vélstjóra. Þau
giftust þann' 9. nóvember 1924 og
hófu búskap i Reykjavík. Þau eign-
uðust sjö börn. Sigurjón, maður
Jónu, var vélstjóri eins og fyrr
segir og var í millilandasiglingum.
Hefur á þeim tímum oft verið
langur vinnudagur hjá Jónu ömmu
að sjá um öll börnin og annað
heimilishald, er Sigurjón var á sjó.
Er ég kynntist Jónu fyrst, en það
var fyrir tíu árum, var það fyrsta
sem ég tók eftir, hversu falleg og
tignarleg framkoma hennar var.
Ósjálfrátt datt mér í hug fallegu
drottningarnar sem ég hafði lesið
um í ævintýrabókunum er ég var
barn.
Jóna var með afbrigðum mynd-
arleg í höndunum og ber heimili
hennar því fagurt vitni. Heimili
barna og barnabarna Jónu hafa
einnigorðið myndarskapar hennar
aðnjótandi. Þar má sjá ýmsa
handavinnu eftir hana og er leitun
að öðru eins handbragði. Eins og
fyrr segir þá eignuðust Jóna og
Sigurjón sjö börn, 24 barnabörn
og 26 barnabarnabörn.
Við fyrstu kynni tók ég strax
eftir hversu annt hún lét sér um
yngstu meðlimi þessarar stóru
fjölskyidu og dettur mér í hug öll
þau brúðuföt sem hún hefur saum-
að, heklað eða prjónað handa
barnabörnum sínum. Ég man er ég
og Sigurjón maður Jónu, kona mín
og sonur heimsóttu Jónu í Hátún
lOb hálfum mánuði áður en hún
dó. Hún virtist svo hress, spurði
okkur hvort hárið á sér væri í lagi
og annað i þeim dúr því hún var
einstaklega snyrtileg kona. Innri
manneskju Jónu ömmu er best lýst
með því að segja frá smá atviki
sem átti sér stað stuttu áður en
hún dó. Erla dóttir Jónu fór utan
nú í haust. Áður en hún fór spurði
hún móður sína hvort hún gæti
eitthvað fyrir hana gert. Bað Jóna
amma hana þá að kaupa eitthvað
fallegt handa yngsta barnabarna-
barni sínu, sem aðeins var nokk-
urra daga gamalt. Erla kom að
utan 25. október, tveimur dögum
fyrir lát mömmu sinnar. Daginn
eftir heimkomuna heimsótti Erla
móður sína og sýndi henni hvað
hún hafði keypt fyrir hana, í gjöf
handa ungbarninu. Ljómaði Jóna
amma öll af ánægju yfir því að
geta gefið barninu þessa gjöf og
lá hún þó á dánarbeðnum sjálf.
Það er mikil Guðsnáð að kynnast
manneskjum eins og Jónu ömmu
og verður erfitt fyrir ættingja
hennar og vini að yfirstíga þann
missi, sem að fráfalli hennar er.
En þeir sem syrgja skulu hafa
hugfast að þeir geta ávallt leitað
til Guðs sem best getur huggað
harmi slegna sál og frið veitt
tregafullu hjarta.
Sigurjóni Jóhannssyni, eftirlif-
andi manni Jónu, öðrum vinum og
vandamönnum sendi ég, í sorg
þeirra, mínar innilegustu samúð-
arkvéðjur.
Jóhann Norðfjörð
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. I
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni,
að frumort Ijóð um hinn látna
eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Ilandrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
AMSTRAD
---háþróuð afburðatölva-
Tölvukaupendur fá alltaf meira og meira fyrir peningana sina.
I þeirri þróun er Amstrad tvimælalaust toppurinn:
Allt á einum staft:
AMSTRAD CPC 6128 128k med diskdrifi og litaskja . 32.980 kr.
AMSTRAD CPC 464 64k með segulbandi og litaskja . 21.980 kr.
AMSTRAD DISKDRIF með tengi..................... 12.995 kr.
AMSTRAD diskdrit nr. 2 .............................. 8.200 kr.
AMSTRAD talbox og 2 sterio hatalarar........... 2.495 kr.
AMSTRAD Ijósapenm............................... 960 kr.
AMSTRAD telex-tengi............................ 3.950 kr.
AMSTRAD sjonvarps-tengi........................ 2.320 kr.
AMSTRAD styripmm ...................................... 850 kr.
Allar tæknilegar upplysingar fást i tölvudeild
Bókabúð Braga
Umboðsmenn um land allt:
Bókabuð keflavikur Kaupfelag Hafnarljarðar -
Bókaskemman Akranesi
KEA - hljómdeild Akureyri og viðar
Laugavegi 118 v/Hlemm S 29311,621122
e'kiS
',Us * '*a.
í M «£***
r**vézt
9ir
SÚU -
9tU- í> Jf
Mf; ; SjFJUs vat]iúr nn trvals
** #£?*** oJ: *»^jg*** kXfsúkku
«5* sT**** fertiú8t Z ^
kaká ^ ðant9nna Arf T^ndi
esitín (^nassi L , hefur úr, ‘
(G322) ’ kakóSn, - .. 9rUfn
Vanillíh y°r,
" ^ ynSd: 20o
° gr.
tunt
Síríus
Kbnsum
suðusúldadaði
Gam/a góða Síríus Konsum
súkkulaðið er í senn úruals
suðusúkkulaði og gott til átu. Það
er framleitt úr bestu hráefnum, er
sérlega nærandi og dijúgt til suðu
og í bakstur, enda jafnvinsælt í
nesdspökkum ferðamanna og
spariuppskriftum húsmæðra.
Síríus Konsum er uinsælast hjá
þeim sem uelja bara það besta.
JMOD