Morgunblaðið - 11.12.1985, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
63
■s
Góður fyrri
hálfleikur
— Það dugði þó ekki til sigurs
LANDSLIÐ íslands í handknatt-
leik skipaö leikmönnum yngri en
21 árs tapaói sínum fyrsta leik í
milliríólum heimsmeistarakeppn-
innar í handknattleik sem fram fer
á ítalíu um þessar mundir. Leikur-
inn var viö Austur-Þjóðverja sem
unnu leikinn með 25 mörkum
gegn 19 eftir aö íslenska liöiö
haföi haft yfir, 12:9, í leikhléi.
íslensku strákarnir áttu mjög
góöan leik í fyrri hálfleik, vörnin
var geysisterk og sóknin alveg
ágæt. Því miöur tókst þeim ekki
aö halda þennan góöa leik út því
í síöari hálfleik var mikiö um mistök
í sóknarleiknum og Þjóöverjarnir
smá söxuöu á forskotiö og þegar
tvær mínútur voru eftir af leiknum
höföu þeir tveggja marka forskot.
Viggó Sigurðsson, þjálfari liös-
ins, brá þá á þaö ráö aö láta strák-
ana leika maöur á mann til þess
aö freista þess aö jafna leikinn.
Þetta herbragð heppnaöist ekki
og í staö þess aö jafna skoruöu
Þjóöverjar fjögur mörk án þess aö
okkar mönnum tækist aö svara
fyrir sig.
Viggó sagöi eftir leikinn í gær-
kvöldi aö Austur-Þjóðverjar væru
meö sæmilega sterkt liö en þó
ekki þaö gott aö viö ættum ekki
aö geta unniö þá. „Mesti munurinn
á liðunum felst í mun meiri æfingu
Þjóöverjanna og annarra liöa sem
hér eru miðað við okkar liö. Undir-
búningur þeirra er mun meiri og
betri en okkar. Ástæöan fyrir því
aö viö erum svona illa undirbúnir
miöaö viö aörar þjóöir er aö heima
gafst ekki tími til aö ná liöinu
almennilega saman”.
Viggó sagöi aö markmiöiö væri
aö ná sjöunda sætinu á mótinu en
á morgum leikur liðiö við Svía sem
taldir eru öruggir í úrslitaleikinn.
Þeir eru meö mjög sterkt og
skemmtilegt liö, unnu meðal ann-
ars Austur-Þjóöverja meö tveggja
marka mun þannig aö róðurinn
veröur erfiöur á morgun hjá strák-
unum.
Bestur í leiknum í gær var Gylfi
Birgisson og var hann sá eini sem
lék eölilega í síöari hálfieik. Allir
léku vel í þeim fyrri, vörnin hefur
verið góö í þeim leikjum sem lokiö
er og sama má segja um Guö-
mundana í markinu, þeir hafa variö
vel.
Mörk Itianda: Jakob Jónsson 4/1, Jakob
Sigurösson 3, Hermundur Sigmundsson
3, Árni Friöleifsson 2, Gytfi Birgisson 2,
Julíus Jónasson 2, Geir Sveinsson 1, Einar
Maaby 1.
Chelsea einum
færri en vann
Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaösina i Englandi.
TVEIR leikir voru í Mjólkurbikar-
keppninni í gærkvöldi. Chelsea
vann Everton á útivelli, 2:1, og
kemst áfram í keppninni og
Portsmouth vann Tottenham á
heimavellí, 1:0, og kemst í undan-
úrslit.
Markakóngurinn Kerry Dixon
skoraöi fyrsta mark Chelsea eftir
aöeins 16 sekúndur og var þaö 20.
mark hans á þessu keppnistíma-
bili. Annar markakóngur jafnaöi
metin fyrir Everton fyrir leikhlé og
heitir sá Gary Lineger og var þetta
hans 16. mark ívetur.
Snemma í síöari hálfleik var
Darren Wood rekinn af leikvelli og
léku því Chelsea-leikmenn einum
færri í rúma hálfa klukkustund. Þaö
kom ekki aö sök því varnarmaður-
inn Joe McLaughlin skallaöi í netiö
eftir hornspyrnu og sigurinn í höfn.
Tottenham sótti ekki gull í greip-
ar Portsmouth í gær er liðin mætt-
ust í öörum leik sínum í 4. um-
feröinni. Noel Blake skallaöi í net
Tottenham skömmu fyrir leikhlé
eftir hornspyrnu Kevin O'Callag-
han. Alan Ball framkvæmdastjóri'
Portsmouth og hinir 30.000 áhorf-
endur fögnuðu vel aö leikslokum
enda frábær árangur hjá Ports-
mouth.
íslenska kvennalandsliðið:
Stórt tap í
fyrsta leiknum
ÍSLENSKA kvennalandsliöiö í
handknattleik lék fyrsta leik sinn
í B-riðli heimsmeistarakeppni
kvenna í gærkvöldi en mótið fer
fram í Þýskalandi. Fyrsti leikurinn
var gegn Ungverjum og okkar
stúlkur töpuóu stórt. Úrslit leiks-
ins urðu 15:38 eftir að staöan haföi
verið 5:18 í leikhlói.
Ungverska liöiö haföi mikla yfir-
buröi á öllum sviöum handknatt-
leiks í þessum leik eins og búist
var viö. Þær hafa á aö skipa geysi-
sterku liöi, stúlkurnar eru litlar og
eldsnöggar og í mjög góöri líkam-
legri æfingu. Þaö var sama hvaöan
þær skutu, öll skot þeirra voru
mjög hnitmiðuð og róöi íslenska
liöið ekkert viö þær.
jslenska iiöiö lék alls ekki vel í
þessum leik, aö sögn Helgu Magn-
úsdóttur fararstjóra liösins. Stúlk-
urnar virtust bera of mikla viröingu
fyrir Rúmenska liöinu og þaö vant-
aöi þann baráttuanda sem veriö
hefur í liöinu.
Margrét Theodórsdóttir var
markahæst íslensku stúlknanna,
skoraöi 9 mörk og þar af 6 úr víta-
köstum. Ingunn Bernódusdóttir
skoraöi þrjú mörk, Erla Rafnsdóttir
tvö og Arna Steinsen geröi eitt
mark úr vítakasti.
Sigrún Blómsterberg mun ekki
geta leikið meö liöinu í þessu móti.
Hún veiktist er liöiö kom til Þýska-
lands og Helga reiknaöi ekki meö
aö hún yröi búin aö ná sér fyrir
síöasta leikinn. Helga sagöi aö þaö
heföi mikið gengiö á í ferö liösins.
Þegar þær komu tii Þýskalands átti
aö bíöa rúta eftir þeim á flugvellin-
um en þaö haföi gleymst aö senda
bíl eftir liöinu og taföist feröin
mikiö viö þetta. Síöan þegar stúlk-
urnar komu á hóteliö sem þær áttu
aö gista var alls ekki gert ráö fyrlr
þeim þar. Allt bjargaöist þó um
síöir og allar stúlkurnar eru heilar
nema Sigrún eins og áöur sagöi.
Morgunblaófó/Bjarni
• Árni Friöleifsson úr Gróttunni skoraði tvö mörk í leiknum gegn Austur-Þjóöverjum í gær. Þsð dugöi
þó ekki til því Þjóðverjarnir skoruöu þrjú mörk á lokamínútunum og unnu nokkuð örugglega.
Gefðu ballerínunni
mjúkan jólapakka frá
Dansstúdíói Sóleyjar:
Upphitunarbuxur,
legghlífar eða hina
vinsælu
DANCE-FRANCE
búninga sem fást í
öllum litum.
Opið frá kl. 15 - 22.
Póstsendum.
Small, medium, large
Sigtúni 9, sími 687701