Morgunblaðið - 11.12.1985, Page 64

Morgunblaðið - 11.12.1985, Page 64
* MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Happdrætti Háskóla Islands: Hæsti vinningshafi hlaut 6 milljónir Tveir hæstu vinningarnir komu á óselda trompmiða HÆSTI vinningshafi í Happdrætti Háskóla íslands fékk sex milljónir króna í sinn hlut eftir að dregið hafði verið í 12. flokki í gær. Tveggja milljóna krónu vinning- urinn kom á miða númer 43252, en í því númeri var trompmiðinn óseldur og því eign happdrættis- ins. Trompmiðinn er fimmfaldur og vann því happdrættið á hann 10 milljónir króna. Fyrrnefndur vinningshafi átti hins vegar þrjá miða í númerinu og annar ein- staklingur, sem átti þann fjórða, fékk tvær milljónir í sinn hlut. Báðir miðarnir voru seldir í aðal- umboði í Reykjavík. Einnar milljón króna vinningur- inn kom á miða númer 46110 og Islenska óperan: Kristján Jóhannsson syngur í Leð- urblökunni þar var trompmiðinn somuleiðis óseldur og vann happdrættið sjálft á hann 5 milljónir króna. Einn miði með þessu númeri var seldur á Þingeyri, og þrír einfaldir miðar í aðalumboði í Reykjavík. 100 þús- und króna vinningurinn kom á miða númer 42426. Sjá vinningaskrána í heild á bls. 40. Kindakjötsút- sölunni lokið Kindakjötsútsölunni er nú lokið. Stóð hún yfir í rúmar 5 vikur og seldust rúm tvö þúsund tonn á þessu tímabilL Guðmundur Sigþórsson skrif- stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt- inu sagði í gær að þó niðurgreiðsl- um kindakjöts í heildsölu hafi nú verið hætt yrði kjötið eitthvað áfram til sölu í verslunum á lága verðinu, það er að segja meðan birgðir verslana entust. Hann sagði að áætlanir frarnkvæmdanefndar búvörusamninga hefðu staðist í meginatriðum. Selst hefðu 2.000— 2.500 tonn af kjöti en í upphafi var miðað við sölu á 2.000 tonnum. í upphafi var áætlað að kostnaður við markaðsátakió yrði 90 milljónir, 40 milljónir sem bændur greiða og 50 milljónir sem ríkið greiðir, og taldi Guðmundur að það stæðist. Hlutur bænda í þessum kostnaði verður greiddur úr Kjarnfóður- sjóði, 28—30 milljónir kr., auk þess sem innheimt verður í verðskerð- ingu á innlagt kjöt haustið 1984 10—12 milljónir. Verðskerðingin verður rúm króna á hvert kíló af innlögðu dilkakjöti 1984 og helm- ingi minna fyrir hvert kíló af full- orðnu fé. * ■ k .W* M 'l Morgunblaöid/KAX Staðurinn þar sem vörubifreiöin rann inn á gæsluvöllinn. Þegar Ijósmyndara Morgunblaðsins bar að var búið að lagfæra grindverkið en sjá má hjólförin í snjónum. Mannlaus vörubifreið rann inn á barnaleikvöll Mesta mildi að engin slys urðu á börnum MESTA mildi var að ekki urðu slys á börnum er mannlaus vöru- bifreið rann af bílastæði við versl- unina Austurver við Háaleitis- braut um hádegisbilið í gær, og stöðvaðist inni á gæsluvelli fyrir neðan verslunina. Fjöldi barna hafði verið að leik á vellinum um morguninn en höfðu öll verið sótt nema eitt, sem stóð uppi við hús ásamt gæslukonum er óhappið varð. Guðrún Finnbogadóttir, önnur tveggja kvenna sem starfa á gæsluvellinum, sagði í samtali við Morgunblaðið að vörubifreið- in hefði hafnað við grashól sem börnin væru vöh að leika sér mikið á og því hefði verið mikil mildi að enginn skyldi hafa verið þar er óhappið varð. „Við gæslu- konurnar vorum staddar við hús- ið ásamt barninu sem átti eftir að sækja, þegar bifreiðin kom skyndilega æðandi á miklum hraða niður hallann, braut niður grindverkið og stöðvaðist á einu leiktækinu inni á gæsluvellin- um,“ sagði Guðrún. „Börnin sem koma til okkar á gæsluvöllinn eru ævinlega úti að leika sér og því var það mikið lán í óláni að óhappið varð á þessum tíma, þegar flest börnin voru farin heim til sín. Það hefði svo sann- arlega getað farið verr.“ Guðrún sagði að gæsluvöllur- inn væri mjög nálægt bifreiða- stæðunum við Austurver og því væri það mikið gáleysi að hafa gæsluvöllinn svo óvarinn fyrir ökutækjum. Sagði hún að eina fyrirstaðan væri steypt brún við hlið gæsluvallarins, sem hefði þó ekkert að segja í tilviki sem þessu. Kvaðst hún vona að ein- hverjar ráðstafanir yrðu gerðar til að varna því að óhapp sem þetta gæti endurtekið sig. Albert Guðmundsson á Alþingi í gærkvöldi: BankaráðiÖ kom ekki ná- lægt lánum til Hafskips Stórslys ef rannsókn færi fram fyrir opnum tjöldum, sagði forsætisráðherra KRISTJÁN Jóhannsson óperu- söngvari mun koma fram sem sér stakur gestur á fjórum hátíóarsýn- ingum Islensku óperunnar á Leóur- blökunni eftir Strauss, sem fluttar verða á sviói Gamla bíós milli jóla og nýárs. Kristján syngur sérstak- lega til styrktar íslensku óperunni og mun koma fram sem gestur í veislu Orlofskí fursta. Veisla þessi ac er þáttur í sýningunni og er það til siós á stórum uppfærslum erlendis að stórstjörnur, sem ekki hafa fast hlutverk í sýningunni, komi þar fram sem gestir og syngi verk aó eigin vali. Stjórnandi hljómsveitar og upp- færslu Leðurblökunnar er Garðar Cortes og leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Sömu söngvarar fara með aðalhlutverkin nú og í vor, þau Ólöf Kolbrún Harðardótt- ir, Sigurður Björnsson, Sigríður Gröndal og Guðmundur Jónsson. Sýningarnar verða dagana 26.—29. desember og er miðaverð 1.250 krónur. Að sögn Harðar Erlends- sonar framkvæmdastjóra íslensku óperunnar verður veitt kampavín í báðum hléum sýningarinnar. „Þetta verða hátíðarsýningar, því áhorfendur munu í vissum skiln- ingi taka þátt í veislu Orlofakís. -y Það er vel við hæfi, því Iæður- blakan er sannkallað áramóta- glens,“ sagði Hörður. MIKLAR umræóur um málefni Haf- skips og Útvegsbankans fóru fram utan dagskrár í sameinuðu þingi í gær. Gert var hlé um sjöleytió, en síðan hófust umræóur á ný kl. 21 og stóóu enn þegar blaðió fór í prentun. Albert Guðmundsson, iðnaðarráó- herra, talaði á tíunda tímanum og sagöi m.a. að ekkert lánamál tengt Hafskip heföi komió fyrir bankaráð Útvegsbankans meöan hann sat þar í formennsku. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, sagði að nauðsyn- legt væri að skiptaráðandi fengi frið fyrir fjölmiðlum til að rann- saka þrotabú Hafskips. Kvað hann það stórslys, ef rannsókn á gjald- þroti Hafskips og viðskiptunum við Útvegsbankann færi fram fyrir opnum tjöldum. Forsætisráðherra og Matthías Bjarnason, viðskiptaráðherra, lögðu áherslu á, að rannsókn máls- ins yrði hraðað. „Hér á ekkert að fela og engu að leyna,“ sagði við- skiptaráðherra. Rannsókn málsins væri nú í réttum farvegi, en auk þess ætlaði ríkisstjórnin að fá nefnd þriggja sérfróðra manna, skipaða af Hæstarétti, til að kanna þá þætti málsins, sem ekki koma beint inn í rannsókn skiptaráöanda. Ólafur Ragnar Grímsson, þing- maður Alþýðubandalagsins.sem hóf umræðuna, taldi nauðsynlegt að sérstök þingnefnd rannsakaði Hafskipsmálið. Hann vakti athygli á alvarlegum ásökunum á hendur forráðamönnum fyrirtækisins og kvaðst jafnframt hafa undir hönd- um upplýsingar, sem bentu til þess að tap Utvegsbankans vegna við- skiptanna við Hafskip næmi allt aö einum milljarði króna. Þaö þýddi að leggja yrði um 20 þúsund króna „Hafskipsskatt" á hverja fjölskyldu í landinu. Matthías Bjarnason gagnrýndi harðlega umfjöllun ýmissa fjöl- miðla um Hafskipsmálið og skyld mál um erfiðleika fyrirtækja. Benti hann á, að innlán í Útvegsbankan- um hefðu aukist mjög á þessu ári fram að því að veruleg blaðaskrif hófust um erfiðleika hans í nóvem- ber. Þá hefði orðið um 200 milljóna króna samdráttur í innlánum í bankanum. Hann gagnrýndi einnig það sem hann kallaði „fréttahasar" sjónvarpsins og sagði að óvönduð vinnubrögð sjónvarpsins hefðu leitt til aukinna erfiðleika Arnarflugs. Albert Guðmundsson minnti á það í ræðu sinni, að hann hefði tekið að sér formennsku í bankaráði Út- vegsbankans að beiðni Alþýðu- bandalagsins og fyrrverandi for- sætisráðherra að fengnu samþykki þingflokks sjalfstæðismanna. Þá sagði hann það staðreynd að lög takmörkuðu mjög rétt bankaráðs- manna til að taka ákvarðanir um einstakar lánveitingar. Albert sagðist ekki eiga neinn þann óvin, sem hann óskaði þess að þyrfti að ganga í gegnum það, sem hann hefði mátt þola undan- farna daga. Hann bað Guð að forða þeim ungu íslensku íþróttamönn- um, sem nú gera garðinn frægan erlendis, frá því að fara í pólitík. Hann sagði, að enginn gæti brotið sig og ekki mundi hann leggja á flótta undan því óáþreifanlega, eins og hann orðaði það. Sjá fréttir um Hafskipsmálið á bls. 2, 4, 37, 38 og viðtal viö fram- kvæmdastjóra Arnarflugs á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.