Morgunblaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 1
112SÍÐUR B STOFNAÐ1913 284. tbl. 72. ár L SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Evropuþingið: Verðlaun kennd við Sakharov Ntramborg, Frakklandi, 14. desember. AP. ÞING Evrópubandalagsins sara- þykkti f gær aó stofna til verðlauna, sem kennd skulu við sovéska andófs- manninn Andrei Sakharov og veitt yrðu fyrir stðrf að mannréttindamál- um. Stjórnmálanefnd Evrópuþinga- ins mun tilnefna verðlaunahafa en tilnefningin þarf að fá stuðning tveggja þriðju þingmanna. í álykt- un þingsins sagði, að verðlaunin skyldi veita þeim, sem ynnu að betri samskiptum austurs og vest- urs, og þeim, sem stæðu vörð um mannréttindi og rétt manna til frjálsra, visindalegra athugana. Griskir kommúnistar og græn- ingjar börðust hatrammlega á móti þessum verðlaunum. Reyndu þeir fyrrnefndu að fá þvi fram- gengt, að þau yrðu kennd við Nel- son Mandela, en græningjar héldu þvi fram, að verið væri að misnota nafn Sakharovs. Apinn beit 300 menn Dehlf, 14. dnwmber. AP. API GEKK berkserksgang og beit um 300 manns á fjórum dögum í borginni Kanpur í norðurhluta Ind- lands. Hann leikur ennþá lausum hala í nágrenni borgarinnar. Apinn hefur búið við borgina í áratug en aldrei verið nokkrum til ama þar til á miðvikudag að á hann rann æði. Réðst hann á börn, konur og gamalmenni og beit marga djúpt í bakið. Á þriðja hundrað manns þurftu að leita sér læknishjálpar vegna sáranna. Læknar hafa ekki getað staðfest hvort apinn sé með hundaæði. Götur Kanpur hafa verið nær mannlausar frá því apinn lét til skarar skrfða. Sveit manna reynir að fanga apann f net, en hann hefur enn ekki náðst. Morgunblaöid/Friðþjófur Helgason í MIÐBORGINNI George Shultz f Berlfn: Múrinn tákn mann- úðarleysis og óeðlis Berlfn, 14. desember. AP. GEORGE Shultz, utanríkisráð- | að Berlínarmúrinn bæri vott um hcrra Bandaríkjanna, sagði í dag j óeðli og mannúðarleysi. Shultz Kúbanskir sendiráðs- menn reknir frá Spáni Reyndu að ræna útlaga í Madrid Madrid, 14. desember. AP. FJÓRIR starfsmenn kúbanska sendiráðsins á Spáni fengu í dag fyrir- skipun um að yfirgefa landið þegar i stað. Sendiráðsmennirnir voru handteknir í Madrid í gær og sakaðir um að hafa ætlað að ræna eða drepa kúbanskan útlaga. Að sögn lögreglunnar er einn mannanna fjögurra vararæðis- maður Kúbu á Spáni, Angel Alberto Leon Cervantes að nafni, en hinir þrír eru lægra settir í sendiráðinu. Eru þeir sakaðir um að hafa reynt að ræna kúbönsk- um útlaga, Manuel Antonio Sanchez Perez, fyrrum áætlana- málaráðherra á Kúbu, sem feng- ið hefur hæli á Spáni til bráða- birgða. Ógnuðu sendiráðsmenn- irnir Perez með byssu í miðborg Madrid og reyndu að neyða hann inn i bíl, en hann slapp frá þeim. Kúbanski vararæðismaðurinn var vopnaður hálfsjálfvirkri byssu þegar hann var handtek- inn og einn félaga hans með marghleypu. Vitni bera, að þau hafi heyrt Perez hrópa „þeir ætla að drepa mig“ þegar hann hljóp frá mönn- unum og að þrír mannanna hafi barið hann áður en hann slapp frá þeim. I orðsendingu vegna brottvís- unarinnar sagði, að „spænska stjórnin lýsir yfir megnustu andúð og fyrirlitningu á þessu athæfi, sem samræmist engan veginn stöðu sendifulltrúa“. Talsmaður spænska utanríkis- ráðuneytisins, Inocencio Arias, sagði, að Francisco Fernandez Ordonez utanríkisráðherra, mundi í dag bera fram hörð mótmæli við sendiherra Kúbu á Spáni. I gær kvaddi utanríkisráð- herrann kúbanska sendiherrann, Oscar Garcia Fernandez, á sinn fund, en hann var tepptur í Barcelona vegna verkfalls flug- umferðarstjóra. heldur í fyrramálið, sunnudag, til Ungverjalands og Rúmeníu. Hann skoðaði í dag Berlínarmúr- inn, sem er táknrænn fyrir mis- munandi stjórnarfar í Austur- og Vestur-Evrópu. „Skipting þessarar borgar og skipting Þýzkalands er ómann- úðleg og óeðlileg. Með því að afsala sér ekki Berlín, og þeim rétti sem við höfum hér, viljum við og bandamenn okkar sýna að við sættum okkur ekki við innlimun Austur-Evrópu, þar með talið Austur-Þýzkaland og Austur-Berlín, í sovézkt valds- svæði," sagði Shultz. Shultz sagði stjórn Ronalds Reagan hafa heitið því að vinna af kostgæfni að því að ná sam- komulagi við Sovétríkin um takmörkun vígbúnaðar. Banda- rikjaforseti teldi að samhliða sliku samkomulagi yrði að slaka á pólitískri spennu. Draga yrði úr pólitiskum ágreiningi til að minnka stríðshættu. Shultz sagði drottnun af hálfu hers í austantjaldsríkjum og skert persónufrelsi dæmi um mun á ástandinu austan og vestan Berlínarmúrsins. „Berl- ínarbúar vita að valdbeiting og hömlur eru kjarninn í stjórnar- farinu handan múrsins og að vélbyssur, skriðdrekar og eld- flaugar eru vitnisburður um mismunandi stjórnarfar, en ekki orsök," sagði Shultz. I ferð sinni til Rúmeníu og Ungverjalands mun Shultz út- skýra afstöðu Bandaríkjamanna til takmörkunar vígbúnaðar og fækkun kjarnavopna fyrir leið- togum þeirra. Jafnframt mun hann ræða við leiðtogana um efnahagsvanda, sem þjakar rík- in tvö. Shultz sagði Bandaríkjamenn ekki mundu beita Vestur-Þjóð- verja þrýstingi til þátttöku í rannsóknum vegna geimvarna- áætlunar Bandaríkjamanna. Stjórnin í Bonn tekur innan tíðar afstöðu til málsins og sagði Shultz að ekki yrði litið á það sem óvild eða andúð á áætlun- inni þótt Vestur-Þjóðverjar tækju ekki þátt í rannsóknun- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.