Morgunblaðið - 15.12.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.12.1985, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 Rafmagn og hiti hækka um áramót Hækkunin minni en verðlagshækkanir almennt BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum þann 10. desember sl. hækk- un á gjaldskrá Hitaveitu Reykjavík- ur og Rafmagnsveitu Reykjavíkur samkvæmt samþykkt stjórnar veitu- stofnana frá 6. desember. Gjaldskrá Hitaveitunnar hækkar um 17,6% en gjaldskrá Rafmagnsveitunnar um 14%. Hækkanirnar taka gildi frá og með 1. janúar 1986. Að sögn Aðalsteins Guðjohnsen rafmagnsstjóra er þessi 14% hækkun á gjaldskrá Rafmagns- veitunnar að mestu leyti komin til vegna hækkunar Landsvirkjunar frá sama tíma, en 60% af útgjöld- um Rafmagnsveitunnar eru vegna orkukaupa frá Landsvirkjun. „Annars er ekki hægt að tala um að hér sé um hækkun að ræða ef miðað er við 30% verðbólgu milli ára. Þetta er í raun og veru lækk- un. Á síðasta ári kom hækkunin í þrepum, og var samtals 14% um síðustu áramót. Þá hafði rafmagn ekki hækkað frá 1. ágúst 1983,“ sagði Aðalsteinn Guðjohnsen. Gunnar Kristinsson yfirverk- fræðingur hjá Hitaveitu Reykja- víkur sagði að verð á vatni hækk- aði úr 17 krónum í 20 krónur rúm- metrinn, eða um 17,6%. „Verð á heitu vatni hefur staðið í stað frá því 1. febrúar sl. og er þessi hækk- un því mun minni en verðlags- nækkanir aimennt," sagði Gunnar. „Farið var fram á þessa hækkun til þess að viðhalda verði á vatni í samræmi við allt annað í landinu. Sérstaklega á þetta við um bygg- ingarkostnað, því Hitaveitan stendur í miklum framkvæmdum, bæði lagningu hitaveitu í ný hverfi, stækkun á dælustöðvum og kyndistöðvum, viðgerðir og við- hald svo eitthvað sé nefnt," sagði Gunnar Kristinsson. Verðbólgu- hraðinn nú 32 % KAUPLAGSNEFND hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag í desemberbyrjun 1985. Reyndist hún vera 159,33 stig (febrú- ar 1984 = 100), eða 2,58% hærri en í nóvemberbyrjun 1985, segir í frétt frá Hagstofu íslands. Af þessari hækkun stafa 0,4% af hækkun á verði mjólkurvöru vegna hækkunar verðlagsgrund- vallar landbúnaðarafuröa 1. des- ember sl., 0,4% stafa af hækkun fatnaðarliðs, 0,4% af hækkun hús- næðisliðs, 0,2% af hækkun á verði tóbaks og áfengis 15. nóvember sl. og 1,2% stafa af hækkun á verði ýmiss konar vöru- og þjónustuliða. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 35,9%. Hækkun vísi- tölunnar um 2,58% á einum mán- uði frá nóvember til desembner svarar til um 35,8% árshækkunar. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 7,16% og jafngildir sú hækkun 31,9% verð- bólgu á heilu ári. 1 kjarasamningum ASÍ og VSÍ 15. júni sl. var við það miðað að vísitalan yrði 154 stig í desember en hún reyndist 3,5% hærri. Skemmdarverk á bflum í Kópavogi „ÞAÐ var hryllilegt að horfa upp á þetta. Okkur brá mikið og erum við varla búin að ná okkur enn,“ sagði fullorðinn Kópavogsbúi, Kristján Kristjánsson, sem varð fyrir því á fimmtudagskvöldið að unglingar unnu skemmdarverk á tveimur bílum fjölskyldunnar fyrir utan heimili þeirra að Borgarholts- braut 1. Kristján sagði að þau hefðu heyrt miklar drunur fyrir utan hjá sér á sjöunda tímanum á fimmtu- dagskvöldið. Sonur hans hefði strax hlaupið út og þá hefðu unglingspiltar verið að lemja á bilunum með grjóti. Voru þeir búnir að brjóta allar rúður í báð- um bílunum þegar að var komið, en forðuðu sér þá, en húsráðendur misstu af þeim vegna mikillar hálku á götunni. Kristján sagði að tjón þeirra væri verulegt, bíl- arnir væru ekki tryggðir fyrir svona skemmdarverkum, og sagði að óskemmtilegt væri að lenda I svona. Hann sagði að málið væri nú í höndum lögreglunnar í Kópa- vogi en henni hefði ekki tekist að hafa hendur í hári piltanna. Vildi hann beina þeim tilmælum til fólks sem hugsanlega gæti veitt upplýsingar um atvikið að hafa samband við lögregluna. Steingrímur Hermannsson: Þarf mótvægi á móti Morgunblaðinu og DV STEINGRÍMUR HERMANNSSON forsætisrádherra og formadur Fram- sóknarflokksins telur að til greina geti komið einhvers konar samstarf, eða sameining NT, Þjóðviljans og Alþýðublaðsins. Hann segir engar formlegar viðræður formanna Framsóknarflokks, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks hafa farið fram um þetta, en mál þessi hafi verið reifuð á göngum. „Við höfum ekki haldið neinn fund, flokksformennirnir, þar sem þetta mál hefur verið rætt,“ sagði Steingrímur, „en á göngum hefur það borið á góma að það þurfi að gera eitthvað til þess að standa gegn ofurveldi Sjálfstæðisflokks- ins í fjölmiðlaheiminum." Steingrímur sagði að ýmsir hefðu hreyft því að undanfðrnu að eitthvað mótvægi yrði til að koma á móti Morgunblaðinu og DV. Þessi sundruðu litlu blöð, NT, Alþýðublaðið og Þjóðviljinn væru það ekki lengur. Steingrímur sagði að það væri engin launung að Framsóknarflokkurinn hefði ekki bolmagn til þess að halda úti blaöi eins og NT með bullandi tapi á hverjum mánuði. „Ég er þeirrar skoðunar að það væri ákaflega slæmt fyrir lýðræðið í þessu landi, og reyndar einnig fyrir Sjálfstæðisflokkinn, ef engir flokkar halda úti málgagni nema hann. Það er vissulega þess virði að skoða það sem aðrar þjóðir hafa þegar skoðað og komist að niðurstöðu um að nauðsynlegt sé að öll sjónarmið geti komist að í fjölmiðlum." Steingrímur sagði að það væru aðrir menn en flokksformennirnir sem væru að skoða þessi mál nánar núna, og átti þá við ritstjóra blað- anna. Akureyri: Lokasprettur jóla- undirbúnings hafínn Akoreyri, 14. deaember. Fri SkmpU lUllKrímnjoí, blatammnoi MorgomblmMu. LOKASPRETTUR jólaundirbún- ingsins er nú hafinn hér í höfuð- stað Norðurlands. Jólaljós og jóla- tré eru víða komin upp og að sögn kaupmanna hefur sala aukist mjög undanfarna daga. „Eg gæti best trúað að þetta yrðu „korta-jól“ — að fólk nýtti sér mikið krítarkortin eftir 18. þessa mánaðar. Annars sýnist mér fólk hafa nóga peninga," sagði kaupmaður einn hér í bæ í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að heldur rólegt hefði verið í jólainnkaupum undan- farið, en í gær, föstudag, hefði sala glæðst mikið og reiknaði hann með að mikið yrði að gera í dag, en flestar verslanir eru opnar til klukkan 18. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins eru jólasveinar komnir í bæinn og hafa þeir gefið krökkum í skóinn að undanförnu. Sveinarnir hafa nú hugsað sér alvarlega til hreyfings og verða mikið á ferðinni næstu daga. i Tillaga um að fresta af- greiðslu fjárlaga felld TILLAGA um að fresta afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár fram yfir ára- mót, sem stjórnarandstaðan lagði fram við 2. umræðu um fjárlagafrum- varpið, var felld við atkvæðagreiðslu í Sameinuðu þingi í gær að viðhöfðu nafnakalli með 36 atkvæðum gegn 16. Átta þingmenn voru fjarverandi. Frumvarpinu var síðan vísað til 3. umræðu með 54 samhljóða atkvæð- um. Allar breytingartillögur frá fjárveitinganefnd í heild og frá meirihluta nefndarinnar, sem til atkvæöa komu, voru samþykktar. Allar breytingartillögur stjórnar- andstöðunnar, sem til atkvæða komu, voru felldar. Nokkrar breyt- ingartillögur voru dregnar til baka og afgreiðslu þeirra frestað til 3. umræðu. Meðal breýtingartillagna frá meirihlutanum sem samþykktar voru var tillaga um að lækka fram- lag til neyðaraðstoðar við ríki þriðja heimsins úr 11 milljónum króna í 4 milljónir. Var hún sam- þykkt með 33 atkvæðum gegn 18. Þrír þingmenn stjórnarflokkanna sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Meðal tillagna sem frestað var til 3. umræðu voru tillögur um styrki til dagblaðanna og fjár- framlög til UNESCO. Halldór Blöndal (S-NE) lagði til í umræð- unum að báðir þessir liðir verði felldir niður úr fjárlögunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.