Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
Hnífsstungumálið á Hverfísgötu:
Kona ákærð fyrir
tilraun til manndráps
TUTrUGU og fimm ára kona hef-
ur verið ákærð fyrir tilraun til
manndráps og til vara fyrir stór-
fellda líkamsárás vegna hnífs-
stungu sem hún veitti tæplega
100.000 lest-
ir loðnu nú
veiddar í
desember
LOÐNUAFLINN á haustvertíð er
nú orðinn um 625.000 lestir og í
desembermánuði hafa veiðst rúm-
lega 100.000 lestir. Afli og gæftir
hafa verið góðar að undanfornu. Á
fimmtudag fengu 12 skip samtals
8.740 lestir og síðdcgis á lostudag
var aflinn oröinn 10.310 lestir af 16
skipum.
Auk þeirra skipa, sem áður
hefur verið getið í Morgunblaðinu
tilkynntu Höfrungur AK um 910
lestir og Jöfur KE um 450 á
fimmtudag. Síðdegis á föstudag
voru eftirtalin skip með afla: Sig-
urður RE, 1.400, Bergur VE, 500,
Helga II RE, 530, Huginn VE, 600,
Dagfari ÞH, 520, Guðmundur Ólaf-
ur OF, 600, Hilmir SU, 1.370, Vík-
urberg GK, 520, Bjarni Ólafsson
AK, 1.100, Sæberg SU, 620, Kefl-
víkingur KE, 540 og Eríing KE 440
lestir.
þrítugum manni í húsi við Hverfis-
götu að morgni 4. október sl. Jafn-
framt hefur gæsluvarðhald stúlk-
unnar verið framlengt til janúar-
loka. Búist er við að málið verði
flutt í Sakadómi Reykjavíkur í
janúar.
Maðurinn og konan voru stödd í
íbúð að Hverfisgötu 86 ásamt
fleira fólki þegar hún stakk hann
skyndilega í kviðinn með vasa-
hníf, að því að talið er vegna
deilna um fíkniefni. Hinn særði
komst út úr húsinu en féll þar á
götuna skömmu áður en lögregan
kom á staðinn. Á sjúkrahúsi
gekkst hann þegar undir um-
fangsmikla skurðaðgerð sem tal-
in er hafa bjargað lífi hans.
Leiðrétting:
Formaður
fjárveitinga-
nefndar
Á ÞINGSÍÐU Morgunblaðsins í
gær, þar sem sagt er frá annarri
umræðu fjárlagafrumvarps, mis-
ritaðist nafn formanns fjárveit-
inganefndar. Formaður fjárveit-
inganefndar er Pálmi Jónsson
(S-Nv). Velvirðingar er beðist á
þessum mistökum.
Þýðing Svein-
bjarnar Egils-
sonar á Menón
ÚT ER AÐ koma á vegum Hins íslenzka bókmenntafélags áður óbirt
þýðing eftir Sveinbjörn Egilsson á samræðunni Menón eftir forngríska
heimspekinginn Platón. Tveir ungir fræðimenn hafa búið þýðingu
Sveinbjarnar til prentunar og skrifað inngang, þeir Eyjólfur Kjalar
Emilsson og Gunnar Haröarson, sem báðir eru starfsmenn Heimspeki-
stofnunar Háskóla íslands. Útgáfan er helguð minningu Jóhanns S.
Hannessonar skólameistara.
„Menón er eitt merkasta og jafn-
framt aðgengilegasta rit Platóns
og ekki spillir að þýðandinn er
ekki af lakara taginu og sýnir
nú á sér aðra hlið en í Hómers-
kviðum," sagði Gunnar Harðar-
son. „Samræðan fjallar um það
hvort hægt sé að kenna það að
vera góður maður. í Menóni setur
Platón einnig fram hina frægu
upprifjunarkenningu sína, en
samkvæmt henni er þekking
manna á heiminum eins konar
endurminning þess sem þeir hafa
áður haft kvnni af í fyrra lífi.
Sveinbjörn Egilsson
Ennfremur er að finna í samræð-
unni harða gagnrýni á sófistana
svokölluðu, hina grísku farand-
kennara, sem töldu sig þess
umkomna að kenna öðrum listina
að lifa vel,“ sagði Gunnar.
Þýðandinn, Sveinbjörn Egils-
son, var sem kunnugt er grísku-
kennari Bessastaðaskóla og síðar
fyrsti rektor Lærða skólans, sem
síðar var MR. Kunnastur er
Sveinbjörn fyrir þýðingar sínar
á kviðum Hómers. Menón þýddi
hann árið 1830.
Platón
Saltfiskur flokkaður af nákvæmni á námskeiðinu Moruunbiaftið/Ævar
Eskifjörður:
Námskeið í saltfiskmati
Eskifiröi, 13desember.
NÝLEGA var haldið námskeið í
saltfiskmati á Eskifirði. Var nám-
skeiðið haldið á vegum Fisk-
vinnsluskólans og Sölusamtaka
íslenskra fiskframleiðenda. Voru
leiðbeinendur frá þessum aðilum
og Ríkismati sjávarafuröa.
Sigurður Óskarsson frá Fisk-
vinnsluskóla Islands var for-
stöðumaður námskeiðsins sem
stóð yfir í eina viku. Þetta var
fyrsta námskeið sinnar tegundar
sem haldið er á Austfjörðum. 15
manns víðs vegar úr fjórðungn-
um sótti það. Sigurður Oskarsson
sagði að námskeiðið hefði verið
mjög vel heppnað.
Hraðfrystihús Eskifjarðar
lagði til húsnæði og fisk til að
vinna með. Sagði Sigurður það
stefnu samtakanna að færa nám-
skeið sem þessi sem mest þangað
sem framleiðslan fer fram.
-Ævar
Morgunblaðið/Ævar
FORSTÖÐUMAÐUR saltfisknámskeiðsins tekur nemendur í próf í salt-
fiskmati. Á myndinni eru f.v.: Reynir Gunnarsson Reyðarfirði, Árni
Halldórsson Eskifirði, Sigurður Óskarsson forstöðumaður námskeiðsins,
Friðrik Rósmundsson Eskifirði og Valur Valgeirsson Reyðarfirði.
Fyrsta DC-8 vél Flugleiða komin með nýja hljóðdeyfinn:
Kostar samtals um
370 millj. króna
Vesturfari á Keflavíkurflugvelli á (ostudag.
AÐFARANÓTT föstudags kom
hingað til lands fyrsta DC-8 vél
Flugleiða með nýjan hljóödeyfibún-
að. Hefur félagið keypt slíkan bún-
að á þrjár DC-8 63 vélar, en búnað-
inum verður ekki komið fyrir í
seinni tveimur vélunum fyrr en f
byrjun næsta árs. Samtals kostar
þessi hljóðdeyfibúnaður um 370
milljónir króna, eða um 9 milljónir
dollara, samkvæmt upplýsingum
Leifs Magnússonar framkvæmda-
stjóra flugrekstrarsviðs Flugleiða.
„Flugleiðir hafa keypt svona
búnað á þrjár DC-8-vélar, og
kostnaður við hverja vél er liðlega
120 milljónir króna, eða um 3
milljónir dollara," sagði Leifur.
Hann sagði að hljóðdeyfarnir
væru keyptir af fyrirtækinu ADC,
eða Aeronautic Development
Corporation og SAS í Stokkhólmi
hefði séð um að setja búnaðinn á
fyrstu vélinafyrir Flugleiðir.
Leifur sagði að það sem fælist
í þessum búnaði væri að loftinn-
takið væri lengt um ca. 30 senti-
metra og allt klætt að innan með
hljóðdeyfandi efni. Auk þess væru
loftrásir sem liggja utan um hreyf-
ilinn klæddar með þessu hljóð-
deyfandi efni. Þetta hefði það i för
með sér að hávaðinn frá vélunum
í aðflugi og flugtaki minnkaði um
lOdecibel.
Morgunblaðið/Einar Palur
Leifur sagði að önnur vélin fengi
svona búnað í lok janúarmánaðar
1986 og sú þriðja í lok febrúar.
Fyrsta vélin flaug áleiðis til New
York í gærkveldi.