Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 9

Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 9
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 9 JSú er það hlutverk íslendinga á jóla- föstu að kaupa sáðkorn handa hungruð- um bœndum og börnum þeirra í lang- hröktu landi austur í Asíu. Sáðkorn er tákn lífs og vonar, gróandi og jafnvel sjálfs guðsríkis. Útsœði, sem við öflum í skammdegismyrkrinu hér heima nú á nœstu dögum, gœti bjargað lífi manna í Afganistan, þegar sól rís á komandi ári. “ Börnum brauð — eftir séra Heimi Steinsson Alkunn er vísan gamla: „Það á að gefa börnum brauð að bíta í á jólunum." Við lærðum þessar hendingar, þegar við vorum lítil, og framhaldið einnig og höfðum gaman af, þótt ýmislegt væri þar fornlegt og framandi. E.t.v. var brauðið sjálft torkenni- legast í þessum kveðskap. Svo er fyrir að þakka, að nú munu þeir fáir á íslandi, er af eigin reynd hafa kynnzt draumi soltins manns um brauð. Á barnsaldri þótti mér hún kátleg þessi kveðandi um brauð að bíta í á þeirri hátíð, sem þá þegar einkenndist fremur af sælgæti og stórum steikum en hversdagslegu brauðmeti. Þó varð mér snemma ljóst, að ekki bjó mannkyn allt við þá full- sælu matar, sem flestir fslendingar hafa notið a.m.k. frá því á fimmta tugi þessarar aldar. Sú staðreynd gjörðist nærgöngulli með árum, að umtalsverður hluti jarðarbúa tær- ist upp af næringarskorti, og í allnokkrum stöðum sverfur að mönnum algjört bjargarleysi. Þetta er reyndar og verður óskiljanlegt þeim, sem ekki þekkir tiL Því fer fjarri, að af okkur Is- lendingum hafi verið létt öllum vandkvæðum. Engu er líkara en við höfum verið minnt á eigin mótlæti af óvenjulegum þrótti síðustu vikumar. Sízt skyldi nokk- ur maður gjöra lítið úr þvi hugar- angri, er hrjáir skulduga þjóð. En hungur þekkjum við upp til hópa ekki og höfum tæpast kynnzt því, núlifandi Islendingar. Hún er að mestu frá okkur vikin sú aigjöra ögrun við frumlægasta tilverurétt mennskra manna á jörðu, sem í því hlýtur að felast að hafa ekkert að borða. Þrátt fyrir þetta reynsluleysi ætti okkur ekki að vera með öllu fyrirmunað að renna grun í þær hörmungar, er ganga yfir sveltandi menn í fjarlægum landsálfum. Við erum minnt á staðreyndir hungurs og fullkominnar örbirgðar. Hjálp- arstofnun kirkjunnar er á síðari árum framarlega í flokki þeirra aðila, er halda að mönnum slíkri áminningu. Hjálparstofnunin er enn á ferli á þessari aðventu og hefur meðal annars brugðið á loft tilteknu verkefni, sem landsmenn eru hvattir til að leggjast á eitt við að leysa. Afganistan Þessu sinni beinist athyglin einkum að stríðshrjáðri þjóð aust- ur í löndum. Árum saman hafa Afganir háð varnarstyrjöld gegn ofurefli og ekki látið bugast, þótt við, sem einnig erum reynslulaus á sviði hernaðar, fáum tæpast skilið þolgæði þeirra. Afleiðingar styrjaldarinnar eru skelfilegar. Skulu þær ekki tíundaðar hér, enda verða tölur yfir fallna og bæklaða, langsoltna og brottrekna á stund- um til þess eins að færa hörm- ungamar fjær áhorfandanum: 1 Hrellingar breytast í reiknings- dæmi, og nístandi mannleg neyð víkur fyrir spaklegum áætlunum. Það er mál fyrir sig, hvemig þessi ósköp era til komin. Frá ári til árs stígur hungurvofan sinn heljardans við margháttaðan und- irleik. Stundum ráða náttúraham- farir fyrir strengjaslættinum. En í Afganistan er um að ræða upp- vakning, sem mennskir menn hafa sært fram. Afganir verðskulda alla þá sam- úð, sem ein smáþjóð framast fær látið annarri í té. Áform Hjálparstofnunar Hjálparstofnun kirkjunnar hef- ur látið frá sér fara áform um hjálp við Afgani. Skiptist áformið í þætti, og verður þriggja getið hér fyrst, en hins fjórða að lyktum. Fyrirhuguð er aðstoð við flótta- fólk, sem nýkomið er úr heimalandi sínu og setzt hefur að í grann- landinu Pakistan. Beðið er um „fyrstu hjálp" í mynd matvæla, lyfja og annarra brýnna nauð- synja. Fólk þetta er einkar illa statt og hefur verið á göngu vikum saman um fjöll og firnindi. í til- kynningu Hjálparstofnunar segir, að það hafi á leið sinni sætt „nán- ast stöðugum sprengiárásum úr þyrlum“. Sem fyrr greinir þekkjum við Islendingar lítt til víga og skilj- um vísast ekki, hvaða hemaðar- þýðingu það hefur að murka lífið úr konum og börnum með þeim markvissa hætti, sem hér greinir. En þessi lýsing er i góðu samræmi við aðrar fregnir er borizt hafa af „styrjöldinni" austur þar. Reyndar hefur 20. óldin kynnzt ýmsum tiltektum, sem tekjast mega nokkur nýlunda í sögu manna. Hér hillir undir nýlundu sem oftar Það er gömul saga, að ríki reyna að halda andstæðingum sínum utan stokks, byggja t.a.m. múra í því skyni að hindra inngöngu ósækilegra afla. Hitt er nýlunda og nútímafyrirbæri, að hlaðnir era múrar og reistar gaddavírsgriðing- ar umhverfis heil mannfélög í þvi skyni að koma í veg fyrir brottför þeirra, sem ekki una sér innan rammans. Ef menn síðan hafa þetta allt að engu, era þeir skotnir á flótta, ellegar sæta sprengjukasti úr þyrl- um. Sennilega vitnar þessi múrsmið öll um einhvern stærsta stjórn- málaósigur endilangrar veraldar- sögunnar. Sennilega vitnar þessi múrsmíð öll um einhvern stærsta stjóm- málaósigur endilangrar veraldar- nnar. annan stað hyggst Hjálpar- stofnun kirkjunnar styðja sjúkra- námskeið á vegum samtaka afg- anskra lækna, sem skipuleggja ferðir hjúkrunarfólks yfir landa- mærin til Afganistan. Þetta áform er talandi dæmi um hið sérlega eðli málsins: Kirkjan seilist með hjálp sína inn á það landsvæði, sem er vettvangur hernaðarátakanna. Hún skerst í leikinn með beinni hætti en verið hefði, ef hjálpin væri einskorðuð við flóttamanna- búðir Afgana í Pakistan. I þriðja lagi stefnir Hjálpar- stofnun að eflingu skólahalds meðal afganskra flottabarna. Meðal annars er um að ræða almenna fræðslu í lestri, skrift og öðram greinum grannmenntunar. Þörfin fyrir þessa fátæklegu aðstoð sýnir, hvemig komið er fyrir afg- önskum flóttamönnum. Jafnframt er efling skólahalds hjálp til sjálfs- hjálpar og vekur vonir um framtíð. Flutningur á sáðkorni Það áform, er sárast hlýtur að ganga þeim til hjarta, sem enn kynnu í barnslegri einfeldni að brosa að vísunni gömlu um að gefa bömum brauð, skal nefnt að lykt- um. I dreifibréfi Hjálparstofnunar kirkjunnar segir á þessa leið: „Drjúgur hluti flóttamanna er sveitafólk, sem hrakizt hefur af landinu vegna gróðureyðingar, er rekja má til afleiðinga stríðsins. Mjög var hvatt til þess, að þama yrði rétt fram hjálparhönd, t.d. með því að kosta kaup og flutning á útsæði til fólksins í Afganistan. Þessi aðstoð svarar mjög brýnni þörf í mikilli neyð og er um leið fyrirbyggjandi aðgerð." Hún er gömul orðin í hernaði aðferðin, sem Kolbeinn ungi hugð- ist beita, er hann vildi eyða Vest- firði, að óvinir hans ekki mættu eflast þaðan. Tuttugasta öldin hefur litið þetta herbragð í nýrri og geigvænlegri mynd. Afganir fara ekki varhluta af þeirri fram- takssemi. Nú er það hlutverk íslendinga á jólaföstu að kaupa sáðkom handa hungraðum bændum og bömum þeirra í langhröktu landi áustur í Asíu. Sáðkorn er tákn lífs og vonar, gróandi og jafnvel sjálfs guðsríkis. Utsæði, sem við öflum í skamm- degismyrkrinu hér heima nú á næstu dögum, gæti bjargað lífi manna í Afganistan, þegar sól rís á komandi ári. Kyrtill handa barni I dag er þriðji sunnudagur í aðventu. Textar dagsins fjalla um Jóhannes skírara. Hann var ómyrkur í máli, maðurinn sá. Orð hans dynja eins og svipuhögg enn í dag um eyru hverjum þeim, er heyra vill. Jóhannes talar umbúða- laust til okkar, sem hvött eram til þátttöku í aðstoð við afganska flóttamenn. „Sá sem á tvo kyrtla, gefi þeim, er engan á, og eins gjöri sá, er matföng hefur." Almenn rök fyrir aðstoð við hrjáða meðbræður nær og fjær era ærin og sígild. Biblíuleg fyrirmæli haldast í hendur við hin almennu rök. Ég hljóp reyndar yfir „tjöld og teppi" í framangreindri upptaln- ingu á þeim einföldu hlutum, sem afganska flóttamenn skortir og nefndir era í gögnum Hjálpar- stofnunar. Tjöld og teppi gætu í þessu tilviki komið í stað kyrtilsins, sem um getur í ræðu Jóhannesar. Og matföngin sem skírarinn talar um, hafa sömu merkingu í dag og fyrir tvö þúsund áram, sömu merkingu í fióttamannabúð- um Afgana og við eldhúsborðið heima hjá mér og þér. Tökum því vel að vanda undir kall Hjálparstofnunar kirkjunnar. SÖLUGENGI VERÐBRÉFA 16. DES. 1985 Spadsbrtolni, happdroWsIón og Tsribréf S»««* Avöxtun- OagafKWdl Ar-Aokkur pr.kr.100 arkrafa ttllnnl.d. 1971-1 23.782,60 Inntv i Seöiab 15.00.85 1»72-1 23.153.72 7,50% 39 d. 1972-2 18.449.89 7,50% 269 d. 1973-1 13.524,58 7,50% 269 d. 1973-2 12.830,08 7,50% 39 d. 1974-1 8.195.71 7,50% 269 d. 1975-1 6.793,17 7,50% 24 d. 1975-2 5.026,49 7,50% 39 d 1978-1 4.510,48 7,50% 84 d. 1978-2 3.740,69 7,50% 39 d. 1977-1 3.224,24 7,50% 99 d. 1977-2 2.603,43 7,50% 264 d. 1978-1 2 186.22 7.50% 99 d. 1978-2 1.720,78 7,50% 264 d. 1979-1 1 504^7 7,50% 69 d. 1979-2 1 11445 740% 269 d. 1960-1 1.016,09 740% 119 d 1980-2 768,42 Inntv t Seötab. 25.10 85 1961-1 683,77 7,50% 39 d. 1981-2 500.39 7,50% 299 d. 1962-1 471,87 7,50% 75 d. 1902-2 345,43 7,50% 285 d. 1903-1 274,15 7,50% 75 d. 1983-2 174,13 7,50% 315 d. 1964-1 168,56 7,50% 1 ér 45 d 1964-2 160,96 7,50% 1 ér 264 d. 1984-3 155,57 7.50% 1 ér 326 d 1985-1 139,74 7,50% 2 ér 240. 197Wj 4.07275 Inntv 1 Saötafc 1985.85 1976-M 3.728,69 6,00% 104 d. 197W 2 880,18 8,00% 344 d. 1977-J 2.563,29 840% 1 ér 106 d i96i-ia 547,56 8,00% 136 d. 1985-1IB 9245 1140% 10 ér, 1 afb é érl 1989-2IB 95,40 10,00% 5 ér, 1 afb. é érl 1985-3» 92,60 10,00% 5 ér, 1 0ft. é érl Veðskuldabréí - Terðtiyggð LAnst 2 afb é«f1 lér 2ér 3ér 4ér Sér 6 ér 7ér Sér 9ér 10 ér Sðtugengi m.v. mtsm. évöitunar- Veðskuldabrét - orerðtrfggð 1 ér 2 ér 3ér 4ér 5 ér Kjarobréí Verðbréías]óðslns |l pr 1V12 - 1JSO SötuverA 8.900 60.000 KJARABRÉFIN! Á hálíu ári haía þau skilað eigendum sínum ársávöxtun umíram verötryggingu. Spariljáreigendur! Kynnið ykkur kosti Kjarabréía. Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins Hafnarstraeti 7, o 28566 Stofnaðili að Verðbréfaþmqi Islands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.