Morgunblaðið - 15.12.1985, Síða 16

Morgunblaðið - 15.12.1985, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 Ljósm./Árni Sæber* Kristinn Einarsson vatnafræðingur: íslendingar nota rúml. 1.100 lítra af vatni hver á dag“ Kristinn Einarsson vatnafræðingur. Vatnafræði er ekki fag sem hægt er að segja að sé á allra vörum alla daga, þvert á móti, þó er þetta fag sem maður gæti hugsað sér um, „það hlaut að vera til“. Sem sérgrein er vatnafræði fremur ung, algengara var hér áður að landafræðingar, jarð- fræðingar og fleiri fræðingar hugðu að vatnafræði sem hliðargrein frá sínum sérfögum. Margar af þessum greinum eru hliðargreinar vatnafræð- innar og öfugt. Morgunblaðið ræddi fyrir skömmu við Kristin Einarsson, ungan vatnafræðing, sem starfar hjá Orkustofnun, en Kristinn hélt fyrir skömmu fyrirlestur á vegum Nátt- úrufræðifélags íslands, þar sem hann fjallaði vítt og breitt um fag sitt og nýtingu vatns. Það lá ansi beint við að biðja Kristin í fyrstu að skilgreina í stuttu máli eins og hægt er hvað felst í orðinu „vatnafræði“. etta eru fræði sem ná til vatnshjúps jarðar- innar, en í skilgreiningunni eru höfin oftast undanskilin. Vatna- fræðin er býsna víðfeðm og hefur auk þess hliðargreinar sem tengj- ast henni bæði beint og óbeint allt eftir því hvar á henni er tekið. Þá á vatnafræðin sér ótal undir- flokka, eða eftir því hvort fjallað er um yfirborðsvatn, grunnvatn, regnvatn o.s.frv. Vatnafræði getur fjallað um hringrás vatns í heild, eða einstök ferli hluta eða svæða. Þetta er hundavaðsleg lýsing, en fræðin ná yfir svo stórt svið, að spurningunni verður vart svarað í stuttu máli. Starfa mareir vatnafræóingar á íslandi? Erlendis sérhæfa menn sig gjarnan meira en hér á landi og algengt er hér að menn stundi vatnafræðina sem hliðargrein. Þeir sem kalla sig vatnafræðinga eru innan við 10 talsins, en margir þeirra eru menntaðir verkfræðing- ar, jarðfræðingar og þvíumlíkt sem lagt hafa vatnafræðina fyrir sig. Ég gæti kallað mig landafræð- ing, því ég er menntaður sem slík- ur, en ég er einn af fáum hér á landi sem hef sérmenntað mig í faginu, lærði vatnafræði í háskóla í Kaupmannahöfn. Starf mitt hér heima er aðallega fólgið í því að reikna út rennsli á ákveðnum svæðum með hliðsjón af virkjunar- framkvæmdum, en það líða jafnan a.m.k. 20 ár frá því að rannsóknir hefjast uns hefja má framkvæmd- ir við viðkomandi virkjun. Þau gögn sem ég styðst þá einkum við eru bæði frá Vatnamælin^um og Veðurstofunni komin, því vatns- rennsli er svo misjafnlega mikið frá ári til árs, að meðaltalstölur byggðar á fáum árum aftur í tím- ann eru þá ekki nægileg gögn. Nú hélt þú umtalaðan fyrirlestur um fræðigrein þína, getur þú sagt okkur eitthvað um inntakið í honum? Ég kom nú víða við í umræddum fyrirlestri eins og nærri má geta, reyndi að láta sem minnst verða útundan í sambandi við vatnafar landsins. Ég birti til dæmis meðal- talstölur um rennsli yfirborðs- vatns frá landinu miðað við eina sekúndu. Og hver er sú tala? 5.200 rúmmetrar á sekúndu. Það er rúmlega 1.000 sinnum Elliða- árnar og rúmlega 50 sinnum vatns- magn Sognsins, sem er vatnsmesta lindá landsins. Meginhluti alls þessa vatns á rætur að rekja til úrkomu. Frárennsli þetta er misjafnlega mikið eftir landshlut- um og er það auk þess I beinum tengslum við jarðlög. Þannig renn- ur mest af grunnvatni til hafs við norður- og suðurenda gosbeltisins, þar eru jarðlögin lekust, fyrir miklum hluta Suðurlands og svo aftur fyrir norðan, í Kelduhverfi og Axarfirði. Svo er annað, rennsli er mikið i jöðrum gossvæðanna og kemur það út sem mikil lindasvæði. Rennsli ofanjarðar er að sama skapi lítið inni á svæðunum sjálfum. Nægir að nefna Reykjanesið, en mikil lindasvæði eru I austurjöðrum þess, einnig inn af Rangánum og umhverfis Heklu. Þá má nefna svæði eins og stóran hluta Ódáða- hrauns, svæðið inn af Þórisvatni milli Köldukvíslar og Tungnár, svæði vestan Langjökuls í grennd við upptök Norðlingafljóts og vest- asti oddi Snæfellsness. Þann lær- Mikið vatn rennur um lindir í jöðrum gosbeltanna. dóm má draga, að óvarlegt er að fara vatnslaus í langan göngutúr um Ódáðahraun! Einnig, að önd- vegissúlur Ingólfs forðum hafi vitað lengra nefi sínu og valið rétt! Þær hafa verið góðir vatnafræð- ingar, því það er ekki einungis góð höfn í Reykjavík og nóg af grunn- vatni og lindum, heldur einnig mikill jarðhiti, en slikt fylgir ekki alltaf lindasvæðum, þvert á móti. Hvaða lærdóm má draga af þessu? Ja, hvaða lærdóm? Það má hafa þessa vitneskju til hliðsjónar þeg- ar hugað er að ýmsum þáttum vatnafræðinnar hér á landi, til dæmis með tilliti til vatnsneyslu landsmanna. Mælingar hafa t.d. leitt í ljós, að meðalvatnsnotkun íslendinga er helmingi meiri á hvern mann en gengur og gerist í Vestur-Evrópu. Neyslan var meiri í Vestur-Evrópu fyrir nokkrum árum, en þar hafa menn lent í vandræðum vegna mengunar og fleira. Víðast þar þarf að hreinsa vatnið og það er talið svo dýrmætt, að það er oft margnotað, hreinsað í sérstökum hreinsistöðvum, og svo notað aftur. En hvers vegna er vatnsnotkunin hér svona mikil umfram notkun í Vestur-Evrópu? Fyrst og fremst má nefna, að íslendingar hafa aldrei vanist því að það þurfi að spara vatn eða fara vel með.það. Hreint og gott vatn er talið sjálfsagður hlutur. Þá má nefna í öðru lagi, að alltaf er eitthvað um að leiðslukerfin leki. Það er ekkert séríslenskt þó. í þriðja lagi má nefna, að inni í þessum meðaltalstölum er tekin vatnsnotkun til fiskiðnaðarins. Er þá alls staðar til nóg vatn á íslandi? Nei, nei, það er af og frá. A sumum stöðum er erfitt um vik. Tökum til dæmis Akranes, bæjar- búar verða að notast við yfirborðs- vatn og það er kostnaðarsamt fyrir bæinn að leggja leiðslur í lindir, því það er langt að sækja slíkt vatn. Seyðisfjörð mætti einnig nefna, jafnvel ísafjörð. Ýmis vandamál fylgja síðan neyslu yfir- borðsvatnsins, ekki síst hreinlæt- isþátturinn, því lítið má út af bregða til þess að neysluvatn mengist. Skagamenn hafa t.d. átt í vandræðum með mávana sem sækja I vatnsból þeirra og gera þar fleira en að lauga sig. Þeir hafa því þurft að gerilsneyða vantið með útfjólubláu ljósi. Þá má segja, að eftir óvenjulegt þurrkasumar eins og var sunnanlands og vestan síðasta sumar, urðu vandræði með neysluvatn víða í þeim landshlut- um og voru það þá einkum sveitabæir sem lentu illa í því er hreimabrunnar þomuðu. Hið sér- kennilega veðurfar hafði hins vegar ekki áhrif á vatnageymslu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.