Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 17

Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 17 Heiðmerkur, hún er það mikill vatnstankur, en það er flókið reikningsdæmi að reikna hvort tvö slík sumur í röð myndu hafa þau áhrif að vatnsskorts myndi gæta.“ Engin mengunarmál í neysluvatni á fslandi? Engin alvarleg, en við megum alls ekki sofna á verðinum í þeim efnum. Það þarf að fylgjast vel með slíku á Heiðmerkursvæðinu og á vissum stöðum á Reykjanes- inu, grunnvatn á þessum slóðum gæti megnast ef einhver aðskota- efni færu þar í jörðina. Þá höfum við sloppið við skelfinn mikla í Vestur- og Norður-Evropu, súra regnið, og stafar það af því að lægðirnar sem sjá okkur fyrir rigningunni koma vestan og sunn- an úr höfum, en súra regnið á uppruna sinn í verksmiðjureyk- háfum í Vestur-Evrópu. í viðvar- andi austanátt kemur stundum mengað ioft hingað til lands frá Vestur-Evrópu — hver kannast ekki orðið við mistrið. Þau efni sem valda súra regninu eru fyrir hendi í þessu mistri, en þetta gerist ekki nógu oft, né er mengunin nógu mikil hverju sinni til þess að ís- lenskt vatn eitrist af þvi. Ef við vendum kvædinu í kross, þú greindir áðan frá mikilli vatns- neyslu íslendinga í samanburði við aðrar þjóðir. Eru til einhverjar tölur þar um? Með þeim gögnum sem ég hef úr að moða, hef ég áætlað vatns- neyslu íslendinga. Tökum fyrst vatnsveiturnar. Á Reykjavíkur- svæðinu eru notaðir u.þ.b. 1.100 lítrar á sekúndu eða tæplega 900 lítrar að meðaltali á dag pr. mann. Sé miðað við landsbyggðina, eru notaðir 1.800 lítrar á sekúndu eða tæplega 1.200 lítrar hver maður dag hvern. Sé þetta dregið saman fyrir allt landið eru þetta u.þ.b. 2.900 lítrar á sekúndu, eða að jafn- aði rúmlega 1.000 lítrar á mann dag hvern. Ef við tökum svo vatnsnotkun um hitaveitur, þá eru tölurnar hærri, á Reykjavíkursvæðinu er útkoman Vatnsnotkun íslendinga er að því er virðist miklum mun meiri en annarra íbúa Vestur-Evrópu ... 1.500 lítrar pr. sekúndu, eða að jafnaði 1.000 lítrar pr. mann pr. dag. Á landsbyggðinni er útkoman 1.500 lítrar pr. sekúndu og 1.200 lítrar fyrir hvern mann hvern dag. Ef þetta er dregið saman fyrir allt landið er útkoman þessi: 3.000 lítr- ar pr. sekúndu, og 1.100 lítrar pr. mann dag hvern. Þar af er heitt neysluvatn um 1.00 lítrar pr. mann dag hvern. Sameiginleg útkoma fyrir vatn- sveiturnar og hitaveiturnar er sú, að neysluvatnsnotkun hvers manns á dag hvern er rúmlega 1.100 lítrar. Það er rúmlega tvöföld neysla á við það sem gengur og gerist í Vestur-Evrópu. Rétt er þó að minna á, að inni i þessum tölum er vatnsnotkun í hluta fiskiðnað- arins. Svona í lokin, inn á hvaða brautir er vatnafræðin likleg til að sveigja á næstu árum? Það má búast við því að hún verði á svipuðum brautum og verið hefur, hér á landi að minnsta kosti. Fagið snýst mest í kring um virkjunarmál og neysluvatnsmál, einnig get ég ímyndað mér að farið verði æ meira út í mengunarvarnir og eins að vatnafræðin láti sig æ meira skipta vatnsþörf fiskeldis og stóriðju hér á landi. Mengunar- varnir heyra eð vísu ekki undir Orkustofnun, en þær eiga samleið með vatnafræðinni. í þessu sambandi má geta þess, að starfshættir Orkustofnunar hafa breyst mikið síðustu árin. Sjálfur vinn ég mikið með gögn frá Veðurstofunni eins og ég gat um áðan og einnig með niðurstöður frá vatnshæðarmælum sem eru dreifðir hér og þar um land allt, en starfsemin er öll að tölvuvæðast og verða nákvæmari og vísinda- legri, ef hægt er að orða það þann- ig. Mitt starf er og verður trúlega áfram að áætla rennsli til hugsan- legra virkjana og þess ber að geta, að rannsóknir þessar, grunnrann- sóknir, eru þær ódýrustu og nema yfirleitt innan við einu prósenti af heildarkostnaði hverrar virkj- unar. Samt sem áður segjum við alltaf: „Aldrei eru gögnin nægilega góð og þar af leiðandi ekki niður- stöðurnar heldur. — gg- meginþorra þjóöarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80 Laugave V6 veðsku ^nsjón: B V: 621310 651633 OpiÖ frá kl. 9.00—18.00 virka daga. Um helgarfrá kl. 12.00—19.00. ■ Hp ■ ■. WBm ■■ . . • . V -■ mm IBETEL Rödd Einars hefui' náð eyrum fólksins vegna opinskárrar og væmnislausrar boðunar. Hann segir hressi- lega frá með tungutaki sjómannsins og Eyjapeyjans. Þessi bók geymir endurminningar Einars frá Vestmannaeyjum. Einar segir frá bernskuheimili sínu, uppvexti á kreppuárunum, atvinnu og mannlífi í Eyjum, bátasmíði, útgerð og sjósókn. Hann greinir frá merkilegum trúarreynslum, persónulegri sorg og dapurri lífsreynslu. Lesandinn fær áð skyggnast inn í huga sálusorgarans, sem verður að veita huggun og ráð á erfiðum stundum. Frásögnin er lífleg Og krydduð skemmtifegum sögum eins og Einars er vandi. rflADELTÍA rORLAG Hátúni 2, 105 Reykjavík, símar 91-20735/25155 Askriftcirsíminn er 83033

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.