Morgunblaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 23 Þessi hús eru einkennandi fyrir byggingarstfl á svædinu. Innréttingar eru vandaðar að sögn þeirra sem til þekkja. Hér má sjá tvo úr hópnum í eldhúsi eins húsanna á svæðinu. Fyrir þá sem áhuga hafa á siglingum er bátshöfn í næsta bæ við hverfíð. Þetta er hluti smábátabryggjunnar. Boðið var til hádegisverðar í veitingahúsi í nágrannabæ og hér er hluti hópsins til borðs. Að sögn þeirra sem til þekkja eru húsin vönduð smíði, miðað við það sem gerist á Spáni. Stærð húsanna er allt frá um 40 fer- metrum upp í um 150 fermetra. Benda má fólki, sem áhuga hefur á að fjárfesta í íbúðarhúsnæði á Spáni, að kynna sér reglur gjald- eyrisyfirvalda þar um, en greiðsluskilmálar húsanna mið- ast við að 50% séu greidd við undirritun kaupsamnings, 25% þegar húsið er risið og 25% þegar flutt er inn í það, en samtímis á sér stað þinglestur hjá spænskum yfirvöldum. Unnt er að búa sem „ferðamaður" á Spáni án sérstakra formsatriða í allt að þrjá mánuði á ári, ef viðkomandi á húsnæði í landinu. Eftir það er sótt um „bráða- birgðaaðsetur" til spænskra lög- regluyfirvalda. Greiða verður þinglestur, stimpilgjöld og tengigjöld fyrir vatn, frárennsli og rafmagn. í allt nema þessi gjöld rúmlega 30 þús. ísl. kr. Á Spáni kostar raforkan u.þ.b. 10 peseta kWh., eða um 2 kr. ísl. Þriðja hvern mánuð er greitt fast gjald sem nemur 474 peset- um. Á umræddu svæði er greitt svonefnt byggðagjald, sem er um 20 þúsund pesetar á ári. Gas- samningur kostar 3.500 peseta, gashylki 745 pesta hver 13,9 kg. Tryggingariðgjöld fyrir hús- næði og innbú eru u.þ.b. jafnhá og á íslandi. Fólki sem hugleiðir að fjárfesta íbúðarhúsnæði er ráðlagt að kaupa húsgögn á Spáni. Þá er fólki og bent á að á þessum slóðum er engan veg- inn þörf fyrir jafnstórt húsnæði og hér heima, þar sem fólk held- ur til utandyra stærstan hluta sólarhringsins. Texti: Fríða Proppé Ljósm.: Matthías G. Pétursson Eyrarbakki: Vakning fyrir varðyeislu gamalla húsa — Búið að vinna nýtt aðalskipulag fyrir þorpið Selfoœi, 13. desember. BÚIÐ ER að vinna upp nýtt aðal- skipulag fyrir Eyrarbakka. Gildandi skipulag er frá 1936. Nýja skipulagið verður sýnt almenningi þegar unnin hefur verið greinargerð sem í að fylgja því. Nýja skipulagið felur í sér stefnumörkun fyrir framtíðina. Á því eru ákveðnir reitir þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð, reitir fyrir verslun og þjónustu og fyrir iðnað. Hreppsnefndin hefur fengið deiliskipulag af svæði í vestur- kanti þorpsins þar sem ný íbúða- byggð er tengd við gamalt hverfi, Einarshafnarhverfið. Þegar aðalskipulagið verður sýnt er einnig áformað að sýpa, húsakönnun sem gerð hefur verið á gömlum húsum á Eyrarbakka á vegum Þjóðminjasafnsins og húsa- friðunarsjóðs. Þar kemur fram hvaða hús talið er að eigi að varð- veita. Þessi húsakönnun er i vinnslu, en tekin eru fyrir hús sem byggð voru fyrir 1930. Þau eru vegin og metin og eigendasaga þeirra rakin. Magnús Karl Hannesson sveit- arstjóri og oddviti á Eyrarbakka sagðist eiga von á því að lagt yrði til að götumynd aðalgötunnar og vesturþorpið yrðu varðveitt. „Það er álit manna að þetta sé sérstök götumynd sem varðveist hefur hérna. Það hefur lítið verið rifið af húsum og hægt að halda þessu við,“ sagði Magnús Karel. Mörgu gömlu húsanna eru í eigu utanbæjarfólks sem heldur þeim vel við. „Mér finnst vera vakning hérna að varðveita gömul hús. Þetta þorp hefur sín einkenni af þessum gömlu húsum," sagði Magnús sem sjálfur á heima í gömlu húsi. Hann sagðist verða var við aukinn straum fólks til Eyrar- bakka yfir helgar. „Þetta fólk kemur hér til að skoða gömlu húsin og margir líta inn í verslunina hjá Guðlaugi Pálssyni sem alltaf er með opið og hefur verið siðan 1919 á sama gólfinu," sagði Magn- ús Karel sveitarstjóri. Sig. Jón. Morgunbladið/Sv. P. Draumurinn um útflutning í íslensku vatni er að verða að veruleika. Þórar inn E. Sveinsson framkvæmdastjóri AKVA sf. með vatnsfernu. Vatnsútflutn- ingur að hefjast frá Akureyri — AKVA með 5 ára samning við danskt dreifingarfyrirtæki Akureyri, 11. desember. FYRIRTÆKIÐ AKVA sf. er í þann veginn að hefja framleiðslu, pökkun og sölu á drykkjarvatni til útflutn- ings og hefír þegar gert rammasamn- ing við danskt fyrirtæki til 5 ára um sölu á vatninu undir vörumerkinu Natural Icelandic Aqua Minerale. AKVA sf. er eign fimm kaup- félaga á Norðurlandi, Kaupfélags Þingeyinga, Húsavík, Kaupfélags Eyfirðinga, Akureyri, Kaupfélags Skagfirðinga, Sauðárkróki, Kaup- félags Húnvetninga, Blönduósi, og Kaupfélags Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga. Fyrirtækið er í leiguhúsnæði hjá Mjólkursamlagi KEA og þar eru áfyllingartækin, sem síðar verða einnig notuð til framleiðslu ýmiss konar svala- drykkja, ef henta þykir. Fram- kvæmdastjóri er Þórarinn E. Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri. Nýlega var gerður rammasamn- ingur við danskt fyrirtæki, Ice- landic Supply, sem er sérstaklega stofnað vegna þessara viðskipta, um sölu á Akureyrarvatni næstu 5 ár. Á næsta ári er tryggð sala á 4 millj. ferna og á að fara upp í 12 millj. fernu eftir 5 ár, og er hér um lágmarkstölur að ræða. Fern- urnar verða af tveimur stærðum, Vi lítraog0,21ítra. Pöntun hefir þegar borist um 5,4 millj. ferna af báðum stærðum til sölu í Danmörku og Bandaríkj- unum, en einnig verður leitað markaða í fleiri heimshlutum. Brúttótekjur AKVA sf. af sölu þessara 5,4 millj. ferna eru 20—25 millj. kr., en stofnkostnaður fram- leiðslunnar er áætlaður svipaður. Miðað við fyrirliggjandi pöntur fá þrír starfsmenn fulla dagvinnu við áfyllingu og pökkun, en vanda- laust er að auka afköstin til muna með lengri vinnutíma, ef eftir- spurn eykst. Þess má geta, að neysla hreins vatns fer mjög vax- andi í heiminum og þar með eftir- spurn vegna vaxandi mengunar víða og yiðleitni fólks til að bæta heilsu sína, m.a. með heilnæmu viðurværi. Hins vegar er sam- keppni afar hörð á þessum mark- aði. Vatnið er tekið úr Hesjuvalla- lindum í Hlíðarfjalli og er afar hreint og gerlaiaust. Heilbrigðis- eftirlit Eyjafjarðar, Heilbrigðis- eftirlit ríkisins, rannsóknarstofa Mjólkursamlags KEA og Dansk Handels- og Landbrugslaborator- ium í Óðinsvéum munu fylgjast mjög grannt með ástandi vatnsins, einkum með tilliti til gerla og snefilefna. Vatnið er selt FOB á Akureyri og er flutt héðan hálfs- mánaðarlega með skipum. Ef svo ólíklega vildi til, að eitthvað fynd- ist athugavert við sýni úr einhverri sendingu, væri hægt að stöðva hana, áður en hún kemst á markað. Salan er algerlega háð því, að aldrei finnist ferna með vatni, sem stenst ekki ströngustu heilnæm- iskröfur. Verið er að prenta umbúðirnar þessa dagana, en áfylling ætti að geta hafist öðru hvorum megin við áramótin. Sv.P.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.