Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 26
+
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
Allistamaðurinn okkar
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Senn líður að því, að allar þær
sýningar, sem settar voru upp í
tilefni 100 ára ártíðar Jóhannesar
Sveinssonar Kjarval loki dyrum
sínum.
Minn hlutur sem listrýnis hefur
enginn verið í sambandi við þessar
sýningar né afmælið yfirleitt, og
það er af ýmsum ástæðum og
þeirri mest, að sýningarnar bar
allar að í frímánuði mínum frá
skrifum.
Sýningarnar hafa verið veglegar
og einstæðar, jafnframt því sem
gefnar hafa verið út glæsilegar
sýningarskrár, sem hafa ómetan-
legt heimildagildi og léttir þeim
róðurinn, er skrá munu myndir
listamannsins og rannsaka lífs-
feril hans.
Þó að mikið úrval hafi verið til
sýnis af myndum Kjarvals, er enn
til fjöldi mynda, sem aldrei hefur
komið fyrir sjónir almennings og
eru margar þeirra þó í háum
gæðaflokki.
Skrifi þessu fylgir ein slík mynd
í lit, sem ég fyrst leit augum fyrir
rúmu ári á heimili Halldórs Karls-
sonar, trésmiðs, en hann á mikið
safn málverka. Ég varð strax mjög
hrifinn að myndinni, sökum þess
hve fínlega hún var máluð, áhrifa-
máttur hennar mikill, þótt spar-
lega væri farið með lit, og sjálf
áferðin einstök. Þetta liggur í
mikilli tilfinningu fyrir blæbrigða-
auðgi og töfrandi ferskleika, sem
ber miklum „artista" vitni.
Halldór sagði mér eftir að ég
hafði lýst hrifningu minni á mynd-
inni, að Sverrir Haraldsson hafi
orðið ámóta við er hann sá mynd-
ina, segir svo eftir drykklanga
stund: „Þú mátt ekki láta þessa
mynd fyrir minna en andvirði eins
einbýlishúss."
Það sem gleymdist í sambandi
við Kjarvalsveizlu, var að gera
úttekt á þessari hlið listamanns-
ins, nefnilega „artisWnum" og var
hún þó mest áberandi í fari hans
út og í gegn.
í sambandi við síðustu sýningu
Málverk Kjarvals: „Tinda-
fjallajökull“ séður frá Þórs-
mörk. Olfa á léreft 111x98
sm máluð 1925.
Kjarvals í Listamannaskálanum
gamla við Kirkjustræti í júní árið
1968 skrifaði ég heilsíðugrein um
þann mikla listviðburð og lagði
áherslu á þessa hlið listar hans.
(Jtskýrði ég þar, hvað ég ætti við
með hugtakinu „artisti", og langar
mig til að taka sitthvað upp úr
þeirri grein minni um atriði sem
yfirsást að gera nokkur skil í
sambandi við Kjarvalssýningarn-
ar þrátt fyrir langan og strangan
undirbúning. Margfalt meiri en
gerst hefur í annan tíma um sýn-
ingu einstaklings hérlendis.
II
Það skeði í samræðum mínum
við Jón Stefánsson, listmálara
fyrir rúmum tveim áratugum, að
hann kom inn á það að minnast á
„artistíska" kennd í málverki, og
var það í fyrsta skipti, sem ég nam
slíka skilgreiningu á atriði í mál-
verki. Jón sá, að ég var ekki alveg
inni í því, hvað hann meinti og fór
létt með að útskýra það fyrir mér,
sá mikli gáfumaður og rökfræðing-
ur. Til áherslu sagði hann mér, að
t.d. væru Kjarval ogannar íslenzk-
ur málari, er hann nafngreindi
mestir artistar í íslenzkri mynd-
list. Er ég skoðaði svo sýningu
Kjarvals í Listamannaskálanum
1968, tók ég að hugleiða þessa
skilgreiningu Jóns Stefánssonar
og vildi gjarnan koma henni á
framfæri. Þótti mér það og mikið
ævintýri, hvernig þessi skútusjó-
maður frá fyrstu árum aldarinnar
varð seinna að mesta „artista"
íslenzkra málara.
Artisti er sú hlið málara, er
höfðar til tilfinninganna og
ósjálfráðrar, frjálslegrar með-
höndlunar myndefnisins frekar en
t.d. strangrar, yfirvegaðrar mynd-
byggingar. Oftast fer hann ham-
förum í stað þess að smáþokast
hægt og bítandi að markinu, og
þó getur hann einnig unnið óra-
lengi að sömu mynd, án þess að
hún missi nokkuð af léttum og
leikandi ferskleika sínum — það
er eins og slíkar myndir verði bara
til, óháðar tíma og rúmi og í tign-
arlegri samsemd við sjálft sköpun-
arverkið.
Slíkir menn hafa jafnframt ríka
tilfinningu fyrir litnum, eru „kol-
oristar" á þann veg, að þeir
blómstra jafnt í viðkvæmustu sem
sterkustu litaandstæðum — þeir
hafa þannig vítt og næsta ótak-
markað tæknisvið, sem þó er jafn-
an í bland við upprunaleikann og
~Remington_
MICRO SCREEN SUPER RAKVÉLAR
MICRO SCREEN
SUPER
XLR-1100
220 V. M/HLEÐSLU
KR. 5.290.-
• 14 DAGA SKILAFRESTUR
• ÁRSÁBYRGÐ
• MICRO SCREEN SUPER
XLR-800 220 V. KR. 3.460.-
• ÞREFÖLD VIRKNI
OG BARTSKERI
• FERÐATASKA
FYLGIR
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670
+