Morgunblaðið - 15.12.1985, Side 30

Morgunblaðið - 15.12.1985, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 Jólaiögin æfð {Skóla ísaks Jónssonar. Jólaundirbúningur — í Skóla ísaks Jónssonar og Tjarnarborg. m gangana hljómuöu skærar barnaraddir er sungu jólasálma viö orgelundirleik ,er viö litum inn í SKÓLA ÍSAKS JÓNSSONAR einn bjartan desem- berdag fyrir skömmu. Kertaljós loguðu og viö orgeliö sat Herdís Egilsdóttir kennari og spilaöi hvert lagiö á fætur ööru. Veriö var aö rifja upp og kenna jóiasálma og vísur. Mikið var klappaö og stapp- aö þegar viö átti og endaö á „is- landinu góöa“. Aö því búnu gengu börnin prúö og stillt í rööum hvert í sína stofu. I stofu 7 voru börnin í 5 ára M þegar tekin til viö jólaföndriö þegar viö komum þangaö. Kennarinn, Bjarney Ingólfsdóttir, sagöi okkur aö venja væri aö bekkjardeildirnar syngju saman einu sinni í viku, en i desember væri það gert oftar. Hver bekkjardeild syngi siðan á hverjum degi í sinni stofu. Farið væri í kirkju um miöjan desember og þá þyrftu börnin aö vera búin aö læra jólasálmana. Bjarney sagöi starfiö í desember snúast mikiö um jólin, skólinn væri skreyttur og börnin byggju til megniö af skraut- inu. Lesnar væru jólasögur, föndr- aö á hverjum degi, búnar til jóla- gjafir sem síöan væri pakkaö inn, þær skreyttar og fariö meö heim. Vitaskuld væri algjört leyndarmál hvaö væri í pökkunum og tóku börnin undir þaö, sögöu aö þaö mætti enginn vita fyrr en tekiö yröi utan af gjöfunum. Þau voru mjög stolt af sínu verki og sýndu merki- miöa er þau höföu búiö til þar sem teiknaöar voru myndir af þeim er fá skyldu gjafirnar og einnig af gefandanum. Þennan dag voru börnin aö búa til jólaskraut, voru þaö kúlur sem skreyttar voru meö niðurklipptum glanspappír. Voru þau skiljanlega önnum kafin og Irtiö fyrir þaö aö láta tefja sig frá verki. Einhvern næstu daga mun kökuilmur fylla ganga því þá á aö baka kökur, fylgjast þau þá meö því þegar deigiö er búiö til, fá sjálf aö forma deigiö og hjálpa til viö baksturinn. Bjarney sagöi aö talaö væri um jólin viö börnin. Mörg þeirra vissu hvers vegna hátíöin væri haldin, en skemmtileg skýring heföi þó sloppiö út úr einum sem sagöi þaö vera til þess aö blessaöir jólasvein- arnir fengju aö fara í bæinn meö jólagjafir handa þægum börnum. Síöasta skóladag fyrir jól yröi jóla- skemmtun, þá fengju börnin sæl- gætispoka, gengiö yröi í kring um jólatré, sungiö og leikiö sér og jóla- sveinar kæmu í heimsókn. Nyti skólinn oft liösinnis fyrrverandi nemenda viö útvegun þessara heiðurskarla. Næst lá leiö okkar í TJARNAR- BORG. Þar hittum viö Steinunni Auöunsdóttur forstööukonu. Hún sagöi aö i desember væri mikiö um aö vera í leikskólanum. Föndr- Þessar stjörnur verða að jólakúlum. Yngstu börmn i Tjarnarborg syngja af innlifun Jólatren skreytt i Tjarnarborg. - I u

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.