Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
33
„Eg heyrði oftsinnis um það
rætt á fundum hjá Hafsteini
Björnssyni hversu mikilvægt það
væri fyrir nýhorfna vini að þeirra
væri minnst við leiðarlok. Þúsund-
ir manna lesa slíkar greinar og er
það hinum framliðna til góðs og
þroska á nýjum leiðum að fá svo
marga til að hugsa um sig. En
fyrst og síðast fór ég út í að vinna
þetta verk, svo og að rita jólakveðj-
ur fyrir fólk, til þess að geta sinnt
foreldrum mínum á heimili þeirra.
Þegar ég var drengur lofaði ég
foreldrum mínum að þau skyldu
aldrei þurfa að fara á stofnun
þegar þau yrðu gömul. Faðir minn,
Vigfús Jóhannesson er nú orðinn
heilsuveill og móðir mín Mildiríður
Falsdóttir frá Bolungarvík, hefur
misst verulega bæði sjón og heyrn
og þarfnast umönnunar sem eng-
um er skyldara að veita en einmitt
mér, sem einkabarni. Milli okkar
mömmu er alveg óstjórnlega sterk-
ur strengur væntumþykju.
Slíkan bikar sem þennan fékk Helgi
í hverjum mánuði allt árið 1967 sem
söluhæsti sölumaður Encyclopædia
Britannica.
Það er mjög mikið til mín leitað
eftir greinum og mér þykir vænt
um að geta fundið að fólk fer oft
glaðara frá mér út en það kom.
Það er í mörgum tilvikum að þegar
einhver pantar grein hjá mér um
látinn vin að þá er komið með
hann að handann hér í stofuna til
mín og einstaka sinnum segi ég
fólki frá þessum gestum að hand-
an.
Um ættfræðigrúsk
Stór þáttur í störfum mínum er
ættfræðigrúsk. Ættfræðiáhugi
minn byrjaði þegar ég var lítill
drengur. Eg var í sveit norður í
Kvíum í Jökulfjörðum. A heimil-
inu var gamla húsmóðirin, Kristín
Alexandersdóttir, og hafði hún
gaman af að segja mér frá at-
burðum og fólki í sveitinni frá
löngu liðnum tíma. Hún kveikti
þann neista sem hefur fylgt mér,
að hafa áhuga á að vita hver er
maðurinn.
Sennilega hefur þó haft hvað
mest áhrif á mig hvað þetta snertir
að móðurbróðir föður míns, Þor-
bergur H. Vigfússon fór ungur til
Ameríku og týndist þar. Langafi
minn leitaði hans langa æfi og
systir Þorbergs syrgði einnig hvárf
bróður síns alla æfi sína. Eg hafði
samúð með henni og vildi gera
mitt besta til þess að hafa uppá
frænda í Ameríku.
Sennilega er hvarf Þorbergs
aðalorsök þess að ég hef mikinn
áhuga á Vestur-Islendingum og
ættfræði þeirra. Eg hef oftsinnis
farið til Kanada og Bandaríkjanna
og á þar nána ættingja m.a. hálf-
systur.
Eg endurútgaf „Sögu Islendinga
í Norður Dakota" fyrir þremur
árum en þá var ég um það bil að
flytja til Noregs. Eg s.ettist að í
Aal í Hallingdal ásamt sambýlis-
konu minni, Berit Dynge. Við
stofnuðum bókaútgáfuna Dyngju
og endurútgáfum í sameiningu
bókina „Islendingar í Danmörku"
eftir dr. Jón Helgason og auk bók-
anna sem eru að koma út núna
erum við að ráðgera að gefa út
listaverkabók Alberts Thorvald-
sens í átta bindum."
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir.
jcippkz
Canon
Jólagjöfin handa fyrirtækinu
frá hinu heimsþekkta fyrirtæki Canon.
Canon A-200 PC-samhæfða tölvan hefur
alls staðar hlotið hæstu einkunn fyrir frá-
bæra hönnun, vinnsluhraða og gæði. Þetta
er PC-tölvan sem hæfir þeim er gera mikl-
ar kröfur. Jólatilboð útborgun lA eftir-
stöðvar á 6—10 mán.
Jólagjöfin handa nútímafólki
— Macintosh frá Apple
• tölvan sem var aðlöguð vinnubrögðum
mannsins • tölvan sem þú lærir á á ör-
skömmum tírtia, vegna þess að Macintosh
er hönnuð til þess að gera þér lífið létt •
tölvan sem þú getur byrjað að nota strax,
í stað þess að eyða löngum tíma á nám-
skeiði. Jólatilboð 99.980.- stgr. útborgun
20.000.- eftirstöðvar á 6—8 mán.
Jólagjöfin handa heimilinu
— Apple IIc lítil að utan en stór
að innan • ein fjölhæfasta tölvan á mark-
aðnum í dag. • Apple IIc er samhæfð
hinni heimsfrægu Apple Ile, sem er notuð
í fleiri skólum um allan heim en nokkur
önnur tölva. • Apple IIc státar af stærra
og fjölbreyttara úrvali forrita en nokkur
önnur tölva af sambærilegri stærð. • yfir
20.000 forrit til kennslu, til leikja og til
vinnu. Jólatilboð 49.980.- stgr. útborgun
10.000.- eftirstöðvar á 6—8 mán.
VIÐ TÖKUM VEL
SKIPHOLTI 19 SIMI 29800
A M0TI ÞER