Morgunblaðið - 15.12.1985, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
59
Stóra hundabók
Fjölva komin út
STÓRA hundabókin er heiti á nýrri
bók frá Fjölva. Aðalhöfundur er
Joan Palmer kunnur höfundur
hundabóka í Englandi og íslenzkur
höfundur er Þorsteinn Thorarensen
og er langur kafli eftir hann í bók-
inni um hunda á íslandi, sögu
þeirra og deilur um þá.
Fyrri hluti bókarinnar er lýsing
á um 200 hundakynum, þ.e. viður-
kenndum ræktunarkynum. Lýs-
ingunum fylgja litmyndir af
hverju kyni. Sagt er frá eðliseigin-
leikum, greind og gagnsemi hvers
kyns, þörf þess, snyrtingu og fóðr-
un. Þá er rakinn uppruni og saga
hvers þeirra og er öllum hunda-
kynum gefin íslensk heiti. Stóri
hundurinn Doberman heitir til
dæmis Dofri og Labrador-retriver
Labrador-sækir. Þorsteinn sagði á
blaðamannafundi, þar sem bókin
var kynnt, að hann hefði fljótlega
uppgötvað að engin íslensk orð
hefðu verið til um flest hundakyn-
in og því hefði hann ekki viljað
una. Það yrði síðan að koma í ljós,
hvernig fólki litist á nöfnin ís-
lensku.
Seinni hluti bókarinnar eru sjö
myndskreyttir kaflar um meðferð
á hundum, um val á hundi, um
fóðrun og hreyfingu, heilsugæslu,
sjúkdóma og hundarækt, þar sem
'lýst er tímgun og hvolpauppeldi.
Loks koma greinar um félagsskap
og sýningar, um samfélagið og
lögin, þar sem rakin er saga hunds-
ins á Islandi. Sagt er frá starfsemi
Hundaræktarfélags Islands og
deilda þess og raktar allar hunda-
sýningar sem haldnar hafa verið
hérlendis.
Á blaðamannafundinum voru
ennfremur stödd þau Guðrún
Guðjohnsen formaður Hunda-
ræktarfélagsins og Marinó Þor-
steinsson gjaldkeri. Þeim bar
saman um að bókin væri mikið og
gott framlag til þeirra sem áhuga
Flugleiðir
taka í notkun
nýtt símkerfi
FLUGLEIÐIR taka í notkun nýtt
símkerfi mánudaginn 16. desember
og um leiö breytist aðalsímanúmer
félagsins úr 27800 í 690100.
Nýja símkerfið er keypt frá
Bandaríkjunum og er fullkomn-
asta fyrirtækjasímkerfi landsins.
Stöðin er algjörlega stafræn og
verður afgreiðsla símtala til fyrir-
tækisins og frá því mun hraðari
en áður.
Auk þess er kerfið búið sjálf-
virku innvali sem gerir kleift að
hringja beint í aðila innan Flug-
leiða án þess að símtalið fari um
skiptiborð. Þá gerir búnaður stöðv-
arinnar Flugleiðum kleift að fylgj-
ast náið með álagi á símkerfið
hverju sinni og tryggja að síma-
þjónustan verði jafnan sem best.
Tölvubúnaður sér um að símtöl til
félagsins verði afgreidd í réttri röð
og sýnir um leið hve margir eru
að hringja til félagsins hverju
sinni.
Viðskiptavinir Flugleiða eru
beðnir að sýna biðlund ef truflanir
verða á símaþjónustu fyrstu dag-
ana meðan starfsfólk er að venjast
nýjakerfinu.
FrétUtilkynning
Vísnakvöld
VÍSNAVINIR halda vísnakvöld á
Hótel Borg nk. mánudagskvöld.
Meðal gesta verða Kristín Ólafs-
dóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son, Sniglabandið, MK-kvartettinn,
Eyjólfur Kristjánsson og Stefán
Ingólfsson.
Færri komust að en vildu á nóv-
emberkvöldi Vísnavina svo fólki
er bent á að mæta tímanlega. Þetta
er síðasta vísnakvöldið á þessu ári
og það hefst klukkan 20.30.
hefðu á hundum og hundarækt,
reyndar væri þetta fyrsta stóra
bókin um þetta efni sem út kæmi
á íslensku. „Þetta er stórt skref í
átt að ábyrgu hundahaldi," sagði
Guðrún Guðjohnsen.
Frá blaðamannafundinum þar sem
bókin var kynnt, talið frá vinstri:
Marinó Þorsteinsson gjaldkeri
Hundaræktarfélagsins, Guðrún
Guðjohnsen formaður, Sturla
Eiríksson frá Fjölva og Þorsteinn
Thorarensen íslenzkur höfundur
bókarinnar. Með þeim á myndinni
er fulltrúi þeirra, sem bókin fjallar
um, en hann er fjögurra mánaða
hvolpur af Cocker Spaniel-kyni —
eða Lubba-kyni, eins og Þorsteinn
kailar þá tegund hunda.
Morgunblaöið/Júlíus
á Kástle skíðum, Marker bindingum og Dynafit
skíðaskóm. Við bjóðum upp á skíðapakka með
skíðum og bindingum á ótrúlega lágu verði.
Fullorðinspakki
Kástle skíði, lengd 160-195 cm
Marker bindingar
Verð kr. ;Hr3t6.-
Jólatilboð kr. 699CK-
Barna- og unglingapakki
Kástle skíði, lengd 120-140 cm
Marker bindingar
Verð kr.
Jólatilboð kr. 4.990,-
Gönguskíði
Kástle gönguskíði, lengd 180-215 cm
Marker bindingar
Verð kr.-a^re.-
Jólatilboð kr. 299Œ-
Dynafit skíðaskór Super Shadow
Stærðir 5-12
Verð kr. 39t6.-
Jólatilboð kr. 2960^-
Dynafit skíðaskór Hot Racer
Stærðir 5-12
Verð kr. 4:960.-
Jólatilboð kr. 3.720.-
Dvnaf
SKATABUÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045