Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 68

Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 68
inunirí tnilomnarhrmi’a litmvndalistann (g>ull Sc é'tlfttr .augavegi 35 pitirgiiiinltlitltili SIAÐFEST lANSTRftUST SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Ráðist á blað- burðarstúlku ÁRS GAMALL maður var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. febrú- ar vegna síbrota. Maðurinn var handtekinn á fostudag en þá um morguninn réðist hann á 15 ára gamla blaðburðarstúlku, dró hana inn f íbúð sína og hueðist ræna hana. Stúlkan var að bera út blöð þegar maðurinn sá hana út um glugga íbúðar sinnar á 2. hæð f fjölbýlishúsi í Seljahverfi. Honum var fjár vant og ákvað að ræna hana. Fór hann niður í forstofuna, 9DAGAR TILJÓLA Húsakaup í sólarlöndum: kallaði á stúlkuna og fór að finna að útburðinum hjá henni. Hann fékk hana til að koma inn f forstof- una þar sem hann stökk á hana, tók hana hálstaki aftan frá og tók fyrir munn hennar. í vinstri ermi var falinn hnffur sem stúlkan sá þegar hann tók fyrir munn hennar. Þannig dró hann hana upp á 2. hæð, inn f fbúð sina og læsti. Þar sleppti hann henni en varnaði út- göngu. í sömu andrá kom kona út úr herbergi í íbúðinni og sleppti maðurinn þá stúlkunni út. Lóg- reglan var látin vita um atburðinn og viðurkenndi maðurinn við yfir- heyrslur að hafa ætlað að ræna stúlkuna. Rétt undir lok talningarinnar. Kristján Thorlacius, formaður BSRB, fylgist spenntur með yfir öxl Ólafs Guðmunds- sonar, einns þriggja manna í kjörstjórn. Fyrir miðju situr Hörður Zophaníasson, formaður kjörstjórnar, við hlið hans er Valgerður Eirfksdóttir, fulltrúi kennara, og yst til hægri er Sigurveig Sigurðardóttir f kjörstjórn. Teljararnir fremst á myndinni eru Arnkeli Guðmundsson (Lv.) og Eysteinn Einarsson. Endurtekin atkvæðagreiðsla KÍ um aðild að BSRB: Kennarar samþykktu úr- sögn með miklum mun Takmörkuð leyfi til athugunar INNAN Seðlabanka fslands hef- ur verið til athugunar að gefa út reglugerð, sem veiti „takmark- aðar“ heimildir til kaupa á fbúð- arhúsum á Spáni. Yfirmönnum bankans hefur verið falið af stjórnvöldum að vinna slíka reglugerð en ekki er Ijóst hvern- ig og f hverju slík takmörkun á að vera fólgin. Korustumenn Sól- arscturs, sem er félag áhuga- manna um íbúðabyggð aldraðra f sólarlöndum, ganga á fundi yfirmanna gjaldeyriseftirlits Seðlabankans til frekari við- ræðna um mál þetta í vikunni. Sveinn Sveinsson, lögfræð- ingur Seðlabankans, sagði í viðtali við blaðamann Morgun- blaðsins, að mál þetta væri í athugun. Það væri rétt, að verið væri að reyna að útbúa reglu- gerð sem veitti „takmarkaðar" heimildir, en menn væru ekki búnir að átta sig á þvf, hvernig sú takmörkum ætti að vera. Morgunblaðinu er kunnugt um, að meðal annars hafi verið rætt um takmörkun í þvf formi, að félagasamtök geti ein verið skráð eigendur slíkra húsa, þannig að félög hefðu forkaups- rétt í svipuðu formi og er til dæmis hjá Verkamannabústöð- : rum. Félögin hefðu þá til dæmis forkaupsrétt í ákveðinn tfma á húseign félagsmanns. Enn- fremur hafa verið uppi hug- myndir um takmörkun gjald- eyrisyfirfærslna, t.d. ákveðnar upphæðir í ákveðinn árafjölda til hvers ibúðarkaupanda. Sjá: Nema íslendingar sumarbú- Istaðalönd á Spáni? á bls. 22 og 23. Morgunblaðið/Árni Sæborg Sigrún Ágústsdóttir kennari og Svanhildur Halldórsdóttir félagsmálafulltrúi BSRB innsigla úrslitin á tilheyrandi hátt. Til vinstri eru Valgeir Gestsson og Svanhilur Kaaber. KENNARAR í Kennarasambandi íslands sögðu sig úr Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja í endur- tekinni allsherjaratkvæðagreislu um úrsögnina, sem fram fór í sfðustu viku. Atkvæði voru talin í gærmorg- un. Alls voru 1.919 (72,4%) með- mæltir úrsögn úr BSRB, en 675 (25,5%) vildu áframhaldandi aðild. Auðir seðlar voru 52, en 3 ógildir. Á kjörskrá eru 3.207, en alls kusu 2.648, sem er 82,6% kjörsókn. Í kosningunni í maí sl. var kosninga- þátttaka 75%; 1.572 greiddu at- kvæði með úrsögn, en 719 voru á móti. Auðir seðlar voru þá 151, en einn ógildur. Sem kunnugt er voru áhöld um hvernig túlka skyldi niðurstöð- ur maí-kosninganna. % greiddra atkvæða þurfti til að úrsögnin tæki gildi og skipti sköpum hvort auðir seðlar teldust til greiddra atkvæða eða ekki. KÍ leit svo á að þeir skyldu ekki taldir með og þvf hefði félagið sagt sig úr heildar- samtökunum. BSRB leit öðruvfsi á málið, og á þingi bandalagsins i haust var úrskurðað formlega að auðir seðlar teldust greidd atkvæði og þvf væri Kí enn í BSRB. Lðgun- um var jafnframt breytt á þinginu. Tekið var skýrt fram að félagi teldist hafa tekið þátt f atkvæða- greiðslu ef hann skilaði kjörseðli. Jafnframt var bætt við uppsagn- arákvæðið þeirri setningu að úr- sögn teldist samþykkt ef a.m.k. helmingur félagsmanna væri henni samþykkur. Aukafulltrúa- þing KÍ ákvað sfðan á fundi sínum 9. nóvember að endurtaka at- kvæðagreiðsluna og féllst BSRB á það. Valgeir Gestsson, formaður Kí, fagnaði útslitum atvæðagreiðsl- unnar, en sagði þó að þau hefðu ekki komið sér á óvart. „Það er auðvitað engin leið að spá ná- kvæmlega fyrir um úrslit í at- kvæðagreiðslu af þessu tagi, en ég átti þó frekar von á þessari niður- ísafjörður: Refurinn er eini sólar- geislinn í skammdeginu ffufirdi, 13. desember. TIL ísafjarðar eru komnir 50 refir af ýmsum tegundum, og eru sumar þeirra alveg nýjar hér á landi. Einn refurinn er af tegund sem nefnd er sólargeisli og er hann sjálfsagt kær- kominn hjá Isfirðingum, því hér sést ekki til sólar fyrr en seint í janúar. Sólargeislinn kostar eigendur búsins um 60 þúsund krónur, hingað kom- inn. Eigendur refanna eru Ágúst Gíslason og FIosi Kristjánsson. Ágúst sagði að auk sólargeislans hefðu þeir fengið 4 gullrefi, 2 heim- skautamarmara (Arctic-marble), 2 hvítrefi (pólar-refi), 37 silfurrefi, 2 skuggarefi og 3 blárefi. Fjórar fyrsttöldu tegundirnar hafa ekki áður verið fluttar til landsins. Ágúst sagði að tilgangurinn væri að framleiða ýmis litaafbrigði skinna sem seldust á hærra verði en hin hefðbundnu blárefaskinn. - Úlfar. Sólargeislinn berst á móti þegar Ágúst Gíslason ætlar að stilla honum upp. stöðu," sagði Valgeir. Hann sagðist ánægður með hversu afgerandi úrslitin voru, og aukin kjörsókn ym 5% sýndi að kennurum væri þetta mikið hagsmunamál. En hvað er framundan hjá KÍ ? „Það eru kjaramalin fyrst og fremst. Við höfum staðið i harðri baráttu um þau undanfarið og munum halda því starfi áfram. Síðan er stórmál að fá samnings- rétt viðurkenndan og það verður eitt af okkar fyrstu verkefnum. Við stóðum í nokkrum viðræðum við fjármálaráðherra um það mál í sumar, en eðlilega var ekki hægt að halda því áfram fyrr en úrslit þessarar atkvæðagreiðslu lágu fyrir," sagði Valgeir Gestsson. Kristján Thorlacius formaður BSRB sagðist hafa átt von á því að úrslit atkvæðagreiðslunnar hefðu orðið naumari. „Ég tel að það hafi verið sjálfsagður hlutur að láta atkvæðagreiðsluna fara fram aftur til að fá fram lögleg úrslit, en þvi er ekki að neita að ég harma þessa ákvörðun kennara. Ég tel að úrsögn KÍ veiki bæði kennarasamtökin og BSRB og raunar launþegasamtökin í heild," sagði Kristján Thorlacius. Moiyunblaðid/Úlfar Ásúataaon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.