Morgunblaðið - 10.01.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1986
39
United vill kaupa
Terry Gibson
Frá Bob Hennessy, fróttamanni Morgunblaðsins Englandi.
MANCHESTER UNITED hefur nú
mikinn áhuga á að fá hinn lág-
vaxna framherja Terry Gibson frá
Coventry til MSs viS sig. Fram-
kvæmdastjóri United, Ron Atkin-
son, bauS í gær Coventry aS
greiSa fyrir hann 500.000 pund
en hann hafSi áSur boSiS lægri
upphæS í piltinn en Coventry
neitaS aS ræSa hana.
Terry Gibson er 23 ára og mjög
lunkinn við að skora mörk. Það eru
þrjú ár síðan hann var keyptur til
Coventry fyrir aðeins 70.000 pund.
Gibson skoraði 20 mörk í deildinni
í fyrra og einnig árið þar á undan
en í ár hefur hann gert 14 mörk
sem er alls ekki svo lítið þegar
haft er í huga hvar í deildinni liðið
er.
Sem fyrr segir hefur Atkinson
boðið hálfa milljón punda í Gibson
og forráðamenn Coventry eru nú
að hugsa málið. Blöð hér í Englandi
veltu því fyrir sér í gær hvers vegna
Atkinson vildi kaupa Gibson og
komust að þeirri niðurstöðu að
Mark Hughes væri á förum frá
félaginu. Vitað er að Barcelona á
Spáni hefur áhuga á að kaupa
hann og líklegt er talið að af þeim
kaupum verði. Hughes á þá að
fylla skarð Steve Arcibald en félag-
ið hefur ekki áhuga á að framlengja
samning hans.
Þess má geta hér í lokin að
Terry Gibson er minnsti framlínu-
maðurlnn í fyrstu deildinni ensku.
Hann mun ekki leika tvo næstu
leiki með Coventry þar sem hann
var á dögunum dæmdur í bann -
hefur fengið sex gul spjöld á þessu
keppnistímabili.
Á undanförnum árum hefur
verið leikið í Englandi í svokallaðri
fjögurra liða keppni. í ár eiga
Manchester City og Chelsea að
leika til úrslita í þessari keppni og
var á dögunum ákveðið að leikur-
inn skyldi leikinn á Wembley laug-
ardaginn 1. mars. Þetta var ákveð-
ið til þess að reyna að lyfta þessari
keppni aðeins upp en nú kom babb
í bátinn því City getur ekki leikið
þennan dag.
Laugardaginn 1. mars eiga
Oxford og City að leika í 1. deildinni
samkvæmt mótaskrá og forráða-
menn Oxford tóku ekki í mál að
leikurinn í þessari keppni yrði lát-
inn sitja fyrir leik í deildinni þannig
að leikur City og Chelsea verður
væntanlega leikinn miðvikudaginn
19. mars.
Forráöamenn City og Chelsea
eru æfareiðir yfir þessu því þeir
voru byrjaði að selja miða og áttu
von á um 60.000 áhorfendum en
telja að sú taia muni lækka um
20.000 ef leikið verður í miðri viku.
Dire Straits
hjálpa Swansea
Frá Bob Honnessy, fróttamanni Morgunblaösins Englandi.
ÞAÐ ERU greinilega margir sem
vilja reyna að bjarga knattspyrnu-
liðinu Swansea frá því að vera
dæmt gjaldþrota og vera gert
upp. í gær tilkynntu meðlimir
stórhljómsveitarinnar Dire
Straits aö þeir ætluðu að leggja
sitt af mörkum til að hið forn-
fræga félag yrði ekki lagt niður.
Einn meðlima hljómsveitarinn-
ar, trommuleikarinn Terry Will-
iams, er frá Swansea í Englandi
og hann er mikill knattspyrnu-
áhugamaður og vart þarf að taka
það fram aö hans uppáhalds lið
er auðvitað Swansea. Hann og
félagar hans í hljómsveitinni hafa
nú ákveðið að láta bræða heljar-
mikinn silfurskjöld sem þeir fengu
er plata þeirra, Brothers in Arms,
hafði verið seld í milljón eintökum.
Síðan ætla þeir að selja silfrið sem
skjöldurinn er gerður úr og fyrir
það reikna þeir með að fá tals-
verða peningaupphæð og hún á
að renna til félagisns.
Samkvæmt blaðafréttum í dag
ætti sú upphæö sem fyrir skjöldinn
góða fæst aö duga langt með að
koma Swansea yfir erfiðasta hjall-
ann en það er á mánudaginn sem
forráðamenn félagsins verða að
• Magnús Oddsson formaður ÍA afhendir Ragnheiði Runólfsdóttur
bikarinn.
gera skil á skuldum sínum ef ekki
á illa að fara. Terry Wiliams vildi
ekki mikið tjá sig um málið í gær
en sagði aðeins: „Swansea er mitt
lið og ég vil gera allt sem ég get
til að fá að sjá þá leika aftur."
•Alfreð Gfslason lék vel með liði sinu á miðvikudaginn og skoraði
sjö mörk. Hér er hann f landsleik gegn Vestur-Þjóðverjum.
Stórleikur Alfreðs
dugði til jafnteflis
Atli gerði sex mörk gegn Hofweier
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fróttamanni Morgunblaðsins Vestur-Þýskalandi.
LEIK efstu liðanna í handknattleik
hér í Þýskalandi, Essen og Gross-
waldstadt á miðvikudagskvöidið
lauk með jafntefli, 16:16, eftir að
Alfreð Gfslason og félagar hans
í Essen höfðu haft tvö mörk,
16:14, yfir er skammt var til leiks-
loka. Alfreð átti enn einn stórleik-
inn með liði sfnu og skoraði hann
alls sjö mörk, en það dugði ekki
til sigurs gegn Grosswaldstadt.
Staðan í leikhléi í leik þessum
var 6:8 fyrir Grosswaldstadt en
leikurinn var allan tímann mjög
jafn. Varnir beggja liða voru sterk-
Gústaf
með KS
GÚSTAF Björnsson hefur verið
ráðinn þjálfari knattspyrnuliðs KS
á Siglufirði fyrir næsta sumar.
Hann mun þjálfa meistaraflokk
fétagsins og líklega leika með
liðinu.
Gústaf þjálfaði lið ÍR síðastliðin
tvö ár og undir hans stjórn komst
liðiö upp í 3. deild í haust. Einnig
hefur hann þjálfað Tindastól á
Sauðárkróki og þá var hann einn
aðalmarkaskorari liðsins.
Ragnheiður Runólfsdóttir
íþróttamaður Akraness
Akranesl, 9. janúar.
RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir
sundkona á Akranesi hefur verið
valin fþróttamaður Akraness
1985. Ragnheiður sem er f
fremstu röð sundfólks hér á landi
náði mjög góðum árangri á árinu
1985 og setti m.a. 15 íslandsmet.
Alls hefur hún sett 50 íslandsmet
á sínum ferli auk fjölmargra
annarra glæsilegra afreka.
Það er stjórn íþróttabandalags
Akraness sem velur íþróttamann
Akraness ár hvert og var valið
kunngert á fundi stjórnarinnar 30.
desember sl. Að öllu jöfnu er valið
tilkynnt á ársþingi ÍA en þar sem
sýnt þótti að Ragnhelður yrði er-
lendis við keppni og æfingar á
þeim tíma var afhendingunni flýtt.
Á sl. ári var Bjarni Sigurðsson
knattspyrnumaður valinn íþrótta-
maður Ákraness.
Ragnheiður mun nú næstu daga
fara til Frakklands og taka þar þátt
í Golden Cup en á því móti í fyrra
stóð hún sig frábærlega vel. Síðan
mun hún halda til Kanada og
stunda þar æfingar og keppni.
JG
ar og markvarslan góð eins og sést
reyndar á markatölunni. Fljótlega
í síðari hálfleik náðu heimamenn,
Essen, forystu í leiknum og þegar
rétt rúmar tvær mínútur voru til
leiksloka höfðu þeir tveggja marka
forystu, 16:14, og fengu dæmt
vítakast. Hinn bráðskemmtilegi
hornamaður Fraatz tók kastið en
honum tókst ekki að skora og á
þeim tíma sem eftir var tókst leik-
mönnum Grosswaldstadt að jafna
metin.
Það voru fleiri íslendingar í
sviðsljosinu hér í handknattleikn-
um á miðvikudaginn. Atli Hilmars-
son og félagar hans hjá Gunsburg
léku við Hofweier á heimavelli
þeirra síðarnefndu og var það
vægast sagt nokkuð furðulegur
leikur. Heimamenn komust í 4:0
og síðan í 10:3 en staðan í leikhléi
var 10:4. Ekki efnilegt það.
Atli átti síðan mjög góðan leik
í síðari hálfleik og átti ekki minnst-
an þátt í því að Ghsburg tókst að
minnka muninn í 14:13. Þeir höfðu
England:
United
áfram í
bikarnum
MANCHESTER United vann í gær
Rochdale i 2. umferð bikarkeppn-
innar ensku. Leikmönnum United
tókst að skora eitt mark f hvorum
hálfleik og unnu því með tveimur
mörkum gegn engu.
Frank Stapleton skoraði fyrra
mark leiksins snemma í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari skoraði Mark
Hughes og var síðan bókaður
skömmu síðar. Þess má geta að
þetta var 100. bikarsigur United
frá því um stríð.
United leikur við Sunderland í
þriðju umferð bikarsins.
boltann en misstu hann og í stað
þess að jafna metin skoruðu
heimamenn og eftir það var sigur
þeirra aldrei í hættu. Lokatölur
urðu 19:17 og Atli skoraði sex af
mörkum Gunsburg.
í keppninni um þriöja sætið I
deildinni léku Kiel og Schwabing.
Schwabing, sem lék á heimavelli,
sigraði eftir æsispennandi viður-
eign með 25 mörkum ^egn 23.
Páll Ólafsson og félagar hans í
Dankersen töpuðu naumlega á
heimavelli gegn Gummersbach
22:23 í skemmtilegum leik. önnur
úrslit urðu:
Berlin-Lemgo 19:17
Dússeldorf - Göppingen 30:23
Handewitt - Dortmund 11:16
UMFN
og ÍBK
f kvöld
EINN leikur verður f úrvalsdeild-
inni f körfuknattleiknum f kvöld.
Njarðvíkingar fá nágranna sína úr
Keflavík f heimsókn og hefst leik-
ur þeirra klukkan 20.
Blaklið Þróttar mun fara norður
til Akureyrar og leika þar við KA.
Leikur þeirra hefst klukkan 21 í
kvöld.
Stjörnu-
hlaup FH
STJÖRNUHLAUP FH verður hald-
ið laugardaginn 11. janúar og
hefst við Lækjarskóla f Hafnar-
firði kl. 14.00.
Keppt verður í karla- og kvenna-
flokki, drengja, pilta og telpna-
flokki. Karlarnir hlaupa 10 km og
konurnar 3 km. Allir fá viðurkenn-
ingu að loknu hlaupi.