Morgunblaðið - 10.01.1986, Blaðsíða 40
HlfKKUR IHBMSKHMU
FÖSTUDAGUR10. JANÚAR1986 VERÐ LAUSASÖLU 40 KR.
Morgunblaðið/Júlíus
Varnarliðsmenn ásamt Magnúsi Einarssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni, og Gylfa Geirssyni, sprengjusér-
fræðingi Landhelgisgæslunnar, með búnaðinn til að gera sprengju óvirka. Á innfelldu myndinni eru
leyfar hólkanna.
Sérþjálfað lið lögreglu
og hermanna kallað til
Þrír sívalningar með tímaverki við Oddfellowhúsið líktust sprengju, en engin hleðsla var í þeim
ÞREMUR sívalningum með tíma-
verki, þannig að líktist sprengju,
var komið fyrir í blómabeði við
hús Oddfellow-reglunnar í Von-
arstræti í gærkvöldi. Varnarliðs-
menn tættu sivalningana í sund-
ur með sérhannaðri vökvabyssu
í nótt og kom þá í ljós, að
sprengjuefni var ekki í sívalning-
unum, eins og menn höfðu óttast.
Lögreglan í Reykjavík hafði
mikinn viðbúnað vegna „sprengj-
unnar“ og auk þess voru varnar-
liðsmenn, sprengjusérfræðingur
Landhelgisgæslunnar og slökkvi-
Iiðið í Reykjavík kvödd á staðinn.
Upp úr hálftvö í nótt skutu
Vamarliðsmenn á sívalningana,
en tilkynning um „sprengjuna"
barst lögreglunni um klukkan tíu
í gærkvöldi.
Tveir piltar tilkynntu lögreglu
um torkennilegan hlut við Odd-
fellow-húsið. Ungur piltur, Ragnar
Þórisson, sá hettuklæddan mann
"** hlaupa frá húsinu út í Kirkjustræti.
„í blómabeði sáum við sívalningana,
sem voru tengdir saman með vírum
og ofan á þeim var klukka, sem
tifaði, og þræðir úr henni tengdir
í sívalningana. Við höfðum okkur
þegar á brott og tilkynntum lög-
reglu," sagði Guðlaugur Guð-
mundsson, 19 ára.
Skömmu áður en Guðlaugur og
Ragnar tilkynntu um fundinn í
Vonarstræti, hafði lögreglu borist
tilkynning um að sprengju hefði
verið komið fyrir i Tjamargötu 14.
Um gabb reyndist að ræða og er
ekki vitað hvort tengsl eru þama á
milli.
Lögregla brást hart við og var
Oddfellow-húsið rýmt. Þar voru
yfir 100 manns og gekk greiðlega
að fá fólk út úr húsinu. Vonarstræti
var lokað, frá Suðurgötu í vestri til
Lækjargötu í austri og að Kirkju-
stræti. Fjölmennt lið lögreglu kom
á staðinn, svo og slökkvilið og
sprengjusérfræðingur Landhelgis-
gæslunnar og upp úr miðnætti
komu vamarliðsmenn með sér-
hannaða byssu til að gera sprengjur
óvirkar. Vökva var skotið á sprengj-
una og hún tætt í sundur. Vökvinn
er til að koma í veg fyrir að neistar
myndist. Hár dynur heyrðist í mið-
bænum þegar skotið úr vökvabyss-
unni reið af.
Lögregla hóf þegar í gærkvöldi
að rannsaka hver hefði verið að I
verki. Um miðnætti var maður
handtekinn, en grunur reyndist ekki
á rökum reistur og var honum
LAUNAGREIÐSLUR til þeirra
starfsmanna Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, sem ráðnir hafa
verið án heimildar á fjárlögum
námu á síðasta ári 8 milljónum
og 18 þúsundum króna. Fé þetta
er tekið af framlagi ríkisins í
lánasjóðinn og endurgreiðslum
námsmanna í sjóðinn, og skerðist
því sjóðurinn sem því nemur.
Jón Pétursson í Veðdeild Lands-
banka íslands segir að það hafi
sleppt skömmu síðar. Rannsóknar-
lögregla ríksins hóf rannsókn máls-
ins í nótt.
viðgengist í nokkur ár að þeir starfs-
menn sjóðsins, sem fyrrverandi
framkvæmdastjóri hefur lausráðið,
fái greidd laun í Veðdeildinni eftir
reikningi, sem þeir framvísa og
undirritaður er af framkvæmdastjór-
anum eða fulltrúa hans. Hafi fyrr-
verandi framkvæmdastjóri litið svo
á, að ákvæði í reglugerð LÍN heimil-
aði þetta.
Jón Pétursson sagði, að á síðasta
ári hafi Veðdeildin að meðaltali
Norðmönn-
um heimiluð
loðnulöndun
hér á landi
ÁKVEÐIÐ hefur verið að lieimila
norsku loðnuskipunum, sem hér
eru að veiðum, löndun í íslenzkum
höfnum, svo fremi sem einhveijar
verksmiðjur vilji kaupa af þeim
loðnuna. Auk þessara heimilda
hafa grænlenzk rækjuskip leyfi
til löndunar hér á landi og Færey-
ingar hafa af og til fengið slík
leyfi, en aðrar þjóðir ekki.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að ákveðið hefði verið
að verða við beiðni Norðmannanna
svo fremi sem verksmiðjumar vildu
kaupa loðnuna af þeim. Hann sæi
ekkert þessu til fýrirstöðu. Menn
vildu ógjaman að íslenzku skipin
sigldu með fiskinn til annarra landa
og því hlyti það að vera okkar
hagur, ef einhveijir vildu landa
héma. Vissulega væri það gott fyrir
íslenzku verksmiðjumar að fá auk-
inn afla til vinnslu.
Halldór sagði ennfremur að
Grænlendingar hefðu heimild til að
landa hér rækju samkvæmt gömlum
samningi, sem framlengdur hefði
verið út þetta ár. Hins vegar hefði
verið óskað eftir viðræðum við
Grænlendinga um sameiginlega nýt-
ingu landanna á hafsvæðinu milli
þeirra, meðal annars í tengslum við
þessar löndunarheimildir. Rækju-
verksmiðjumar á ísafirði hefðu
nokkrum sinnum fengið Ieyfi fyrir
færeysk skip til löndunar á rækju
frá Svalbarðssvæðinu. Enginn
samningur væri gildandi þar um.
Aðeins væri samningur við Græn-
lendinga og hefði til dæmis dönskum
skipum verið neitað um heimild til
löndunar hér.
greitt 18-19 starfsmönnum LÍN laun
með þessum hætti.
Indriði H. Þorláksson, deildar-
stjóri launadeildar fjármálaráðu-
neytisins, sagði að alltaf væri eitt-
hvað um það að fólk væri lausráðið
til afleysinga og ýmissa annarra
starfa hjá ríkinu. En það væri þá
yfirleitt gert í samræmi við fjárveit-
ingar á fjárlögum og forsenda þess
að launadeildin afgreiddi laun í slík-
um tilvikum væri að fyrir lægi heim-
ild frá viðkomandi ráðuneyti. Hann
kvað launadeildina ekki geta fylgst
með þessum málum hjá sjálfstæðum
sjóðum og stofnunum ríkisins, en
taldi að ekki væru mikil brögð að
launagreiðslum af því tagi sem við-
gengist hefur hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna.
Indriði H. Þorláksson sagði enn-
fremur, að það væri ekki í samræmi
við lög að Lánasjóður íslenskra
námsmanna ákvæði sjálfur í hvaða
launaflokka lausráðnum starfs-
mönnum sjóðsins _er raðað, eins og
gert hefur verið. Ákvörðun um kjör
starfsmanna ríkisins og ríkisstofn-
ana væri í höndum fjármálaráðherra
og ekki hefði verið leitað til ráðu-
neytisins um ráðningar þessa fólks
eða aðrar ákvarðanir í sambandi við
þeirra mál.
Handtekínn að ósk Interpol
Grunaður um fjársvik og misferli með demanta í Lúxemborg
FRANSKUR maður með ríkis-
fang í Lúxemborg var hand-
tekinn í ibúðarhúsi í Reykjavik
í gærkvöldi eftir að beiðni barst
frá alþjóðalögreglunni, Inter-
pol.
Maðurinn er grunaður um stór-
felld fjársvik í Lúxemborg. Um-
fangsmikil rannsókn fer þar fram
vegna gjaldþrotamála og er mað-
urinn, sem rak fjárfestingarfyrir-
tæki, grunaður um að hafa svikið
milljónir króna af fólki. Þá er
hann grunaður um misferli í við-
skiptum með demanta.
Lögreglan í Reykjavík hafði
mikinn viðbúnað vegna handtök-
unnar, þvi í telexskeyti frá Inter-
pol, sem barst lögreglunni síð-
degis í gær, var varað við því, að
maðurinn kynni að vera vopnaður.
Víkingasveit lögreglunnar var grá
fyrir jámum þegar handtakan fór
fram, en maðurinn sýndi engan
mótþróa þegar hann var hand-
tekinn og var óvopnaður. Maður-
inn, sem er á fertugsaldri, kom
hingað til lands um jólin undir sínu
rétta nafni og hefur undanfarið
dvalið hjá íslenskri vinkonu sinni.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
er búist við því, að yfírvöld í Lúx-
emborg setji fram kröfu um
framsal.
Fé til námslána
í launagreiðslur
8 milljónir króna greiddar 18-19 starfsmönnum LIN á síðasta ári