Morgunblaðið - 12.01.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986
B 7
Það hafði vantað farkennara í
Grafninginn í fjögur ár en aldrei
eins og þetta haust. Það stóðu fyrir
dyrum próf í sambandi við ný
fræðslulög. Þangað réðst ég fyrir
milligöngu Freysteins Gunnarsson-
ar vinar míns. Árangur nemenda
minna þótti með eindæmum góður,
enginn fékk undir sjö ef ég man
rétt. Fyrir vikið var ég eindregið
hvattur til að fara í kennaraskólann
þar sem ég var við nám f öðrum
bekk einn vetur. Hugur minn var
þó allur í garðyrkjunni og ég hvarf
frá kennaranáminu og til starfa
hjá nýjum garðyrkjustjóra Reykja-
víkur,- Sigurði Sveinssyni, sumarið
1945. Hjá Reykjavíkurborg hef ég
starfað síðan.
Ég hafði, ásamt þremur öðrum,
forgöngu um að stofna stéttarfélag
garðyrkjumanna. Fyrsta samningn-
um náðum við árið 1945. Ég er
svolítið hreykinn af því að ég gerði
það að mínu aðalbaráttumáli þá að
konur fengju sömu laun og karlar
í félagi okkar, en þá voru starfandi
þijár garðyrkjukonur á landinu. Þar
vorum við brautryðjendur í jafn-
réttismálum.
Árið 1955 tók ég við sem garð-
yrkjustjóri Reykjavíkur þegar Sig-
urður Sveinsson lét af störfum."
Tvær siðareglur
„Ég hef haft tvær siðaregiur í
lífinu. Ég hef að ráði móður minnar
sjaldan skammtað mér aftur mat á
diskinn og áfenga drykki hef ég
umgengist með varúð. Af léttu vfni
drekk ég hámark þijú lítil staup,
smakki ég það á annað borð en af
sterku víni í hæsta lagi eitt glas
og þá sjaldan í botn. Ég fór að
reykja í kjölfar nikótíneitrunar. Við
notuðum nikótín til að beijast við
meindýr í gróðri og ég fékk eitrið
eitt sinn í blóðið gegnum sár á
fingri. Lúðvík Nordal læknir, sem
þá var á Selfossi, pfndi mig til að
reykja vindil til að fá mig til að
kasta upp og stóð yfir mér á meðan
og sagði í sífellu: „Púaðu strákur."
Eftir það fór ég að grfpa í vindil
einstöku sinnum en lengst af hef ég
þó tottað pípu síðan."
Hjónaband
„Hvað kvenfólk áhrærir þá er
nóg að segja að ég gifti mig Guð-
leifu Hallgrímsdóttur úr Reykjavík
þann 7. september 1945. Við giftum
okkur saman, ég og Jón bróðir, og
giftinguna bar að svo brátt að
konan mín hafði aðeins tveggja
klukkustunda fyrirvara fyrir at-
höfnina, sem fór fram hjá lögmanni.
Við Guðleif höfum eignast saman
sex syni, fimm þeirra eru á lífi,
sjöunda soninn, Hafstein, eignaðist
ég með annarri konu. Hann er
garðyrkjumaður, svo og Indriði sem
er nú í Noregi við framhaldsnám í
garðyrkju. Hallgrímur Valur hefur
einnig stundað garðyrkjustörf auk
annars. Hinir þrír eru Jón Gunnar
sem er rafvirki, Atli Geir sem hefur
lært hárgreiðslu og Stefán Daði sem
er yngstur, hann er við nám í gler-
augnasmíði í Noregi."
Málverk og sagnfræði
„Áhugamál mín fyrir utan garð-
yrkjuna eru mörg. Ég hef talið
skyldu mína að lesa allt sem út
hefur komið um fslenskan land-
búnað. Ég hef haft mikinn áhuga
á hvers konar listum. Ég stundaði
allar málverkasýningar allt frá ár-
inu 1945 til ársins 1968. Þá var
haldin málverkasýning í tjaldi á lóð
gamla Listamannaskálans og þótti
mérþá nógum.
Ég hef haft mikið samband við
flest alla myndhöggvara á landinu.
Samband mitt við Ásmund Sveins-
son var næstum eins og milli sonar
og föður og í fimm ár var ég öllum
stundum með Einari Jónssyni. Ég
vann við að útbúa lóðina fyrir fram-
an Hnitbjörg og við urðum miklir
félagar og ræddum margt saman,
m.a. um andleg mál, t.d. spíritisma
sem hann aðhylltist en ég ekki.
Sagan hefur verið mér hugstæð.
í sambandi við íslendingasögumar
hef ég sérstaklega lagt mig eftir
að athuga stöðu konunnar. Ég veit
ekki hvort menn hafa almennt gert
sér grein fyrir að okkar saga hefst
með ástarævintýri út í Noregi.
Bardaginn stóð út af Helgu, hinni
fögru systur Ingólfs Amarsonar.
Hennar er alltof lítið getið. Þegar
vel er að gáð gerist fátt án þess
að konur séu þar aflið á bak við,
þó þær hafi yfirleitt vit á að vera
ekki framkvæmdaaðilar.
Draumar og hugboð hafa verið
mikilvægt afl í lífi mfnu. Af slíkum
sökum hef ég oft breytt ákvörðun-
um mfnum og alltaf til hins betra.
Ég tel mig vera ákaflega fljótan
að átta mig á mönnum og alltaf
sérlega mannglöggan. Ég er líka
glúrinn að sjá út fljótlega hvort
mér er mögulegt að vinna með
fólki."
Garðyrkja og ritstörf
„Ég hef verið ánægður ef ég hef
haft svo sem 75 prósent árangur í
mínu starfi. Við höfum lítið rætt
um starf mitt sem garðyrkjustjóri.
Það er í samræmi við það að ég
hef alltaf gætt þess að ræða ekki
störf manna hafi ekki borið til þess
brýna nauðsyn. Mér hefur alltaf
leiðst það sjálfum þegar fólk í
samkvæmum og á mannamótum
hefur sífellt fitjað uppá umræðum
um garðyrkju við mig. Ég vil þó
geta þess að ég hef haft ánægju
af að stuðla að því að græða upp
borgarlandið. í því efni hefur mikið
áunnist og eins hef ég haft mikla
ánægju af starfi mínu í sambandi
við Árbæjarsafn, það hefur verið
skemmtilegt verkefni að fást við.
Ég hef um áratuga skeið fjallað
mikið um garðyrkjumál bæði í ræðu
og riti og ekki legið á áliti mínu í
þeim efnum. Það er sú hlið sem
helst hefur snúið að samferðafólk-
inu. Það er hins vegar margt annað
sem mér hefur legið á hjarta. Oft
hef ég skrifað niður það sem mér
hefur dottið í hug, kannski á ein-
hveija snepla sem ég hef síðan
kastað í eina hrúgu. Þegar ég hef
svo farið að gera skattaskýrsluna
mína og leita að alls kyns gögnum
þá hef ég fundið ýmislegt í hrúg-
unni. Sumu hef ég hent eins og
gengur, sumt geymi ég og svolítið
af þessu kom út í litlu kveri, „Jarð-
armeni", árið 1966. Eitt sinn skrif-
aði ég ævisögu Kristínar Dalsteht
veitingakonu, sú bók kom út fyrir
nokkuð mörgum árum. Ég drep
alltaf niður penna annað slagið og
á nú orðið mikið magn af handrit-
um, bamasögum, sagnaþáttum,
ljóðum og öðru. En tíminn hefur
ekki verið mikill síðustu árin til
þess ama og enn er ég í starfi hjá
borginni þó ég hafi formlega látið
af embætti. Ég vonast þó til að
geta sinnt ýmsu grúski meira en ég
hef gert. Sú náttúra mín helst í
hendur við það að ég er mjög fast-
heldinn að eðlisfari. Hafi ég eignast
hlut á ég erfitt með að farga honum.
Bækur og blöð fer ég aldrei með á
fombókasölu. Ég safna ýmsu, bæði
greinum og öðm, en fæst af þvf
er eftir sjálfan mig, um það hef ég
verið fremur hirðulaus. Hvað efna-
leg gæði snertir þá er ég þar ekki
mjög kröfuharður. Ég á t.d. enn
sömu stólana og húsgögnin sem ég
byijaði búskap með og er fyllilega
ánægður með það.“
Maður sem umbreytir jörð
er listamaður í eðli sínu
„Ég hef aldrei sett fram hug-
mynd fyrir einhvem nema ég hafi
treyst mér til að framkvæma hana
sjálfur. Ég hef að vísu ekki alltaf
verið ánægður með hvernig mínir
undirmenn hafa unnið en það hefur
þó aldrei kastast alvarlega í kekki
milli mín og þeirra, ekki mjög alvar-
lega a.m.k. Ég hef unnið með góðu
fólki, það sem unnið hefur verið í
minni embættistíð í ræktunarstörf-
um í borginni er ekki síður sam-
starfsfólki mínu að þakka en mér
sjálfum. Það kemur heim og saman
við þá grundvallarskoðun mína að
sá maður sem umbreytir jörð hann
er listamaður í eðli sínu."
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir.
VIÐ
GÆTUM
AUGLÝST
8,9%
HÆKKUN
ÁVÖXTUNAR!
En þá værum við að leika okkur að tölum eins og
stundum er gert í auglýsingum.
Réttum tölum, - en
um leið meira en lítið villandi tölum.
Með breyttum vaxtaútreikningi á Kjörbókinni
hækkar lágmarks ársávöxtun úr 36% i 39,2%.
' Ávöxtunartalan sjálf
hækkar þannig vissulega um
8,9%, - ávöxtunin hækkar hinsvegar um 3,2%, og
það er engin smáræðis hækkun.
Þú getur treyst tölunum okkar.
Kjörbók Landsbankans
eróbundin og örugg ávöxtunarleið,
- þóð bók fyrir
bjarta framtíð.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna