Morgunblaðið - 12.01.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1986
B 29
Þessir hringdu . . .
Lofsverð hjálpsemi
Jenný Guðbrandsdóttir hringdi:
„Ég vil hér með koma á framfæri
þakklæti til starfsfólks Bíla-
þvottastöðvarinnar við Miklagarð.
Þannig var mál með vexti að ég
var að koma úr strætisvagni og
var á leiðinni niður að Miklagarði.
Þá kom svo mikil vindkviða að ég
fauk út af veginum út á hjamið,
datt kylliflöt, og skrámaðist tals-
vert. Þá komu maður og kona
hlaupandi út úr Bflaþvottastöðinni
og hjálpuðu mér á fætur. Máttu
þau ekki heyra annað nefnt en
að þau keyrðu mig á slysavarð-
stofuna og síðan hringdu þau til
aðstandenda minna, en ég er nú
orðin 83 ára gömul. Ég kann þeim
bestu þakkir fyrir sérstakan vel-
vilja og samkennd. Það er alltaf
gaman að rekast á gott fólk, þó
svo að með þessum hætti hafí
verið í þetta sinn.“
Ætti að innheimta
eins og opinber gjöld
Guðrún hringdi: „Ég vil taka
undir orð Guðnýar í Velvakanda
á sl. föstudag, um hversu fárán-
legt það er að ógreidd bamameð-
lög séu vaxtalaus og það er ennþá
fáránlegra að Tryggingastofnun
ríkisins skuli borga þetta fyrir
aumingja mennina. Þeir hugsa þá
sjálfsagt með sér að það sé óþarfí
að borga þetta þar sem Trygg-
ingastofnun borgi það hvort eð
er fyrir þá. En hvar er sjálfsvirð-
ing þessara manna, ef þeir sjá
ekki sóma sinn í því að borga
með sínum eigin bömum?
Ef við borgum ekki okkar gjöíd
hikar hið opinbera ekki við að
gera hjá okkur lögtak, og hvers
vegna gildir ekki það sama um
þessar skuldir? í þessu máli verður
að gera eitthvað róttækt, því
vissulega væri hægt að gera eitt-
hvað gagnlegt fyrir þessa peninga
en styrkja þessa vanskilamenn,
t.d. að láta þessa Qármuni renna
til sjúkrahúsa eða eliiheimila."
eru vangoldii
vaxtalaus?
TRgreiðir
140 miiyónir
fyrirvan-
goldin meðlög
IK t! 'HLu
Er Flugleiðamönnum ekki treystandi?
Til Velvakanda.
Þann 10. des. sl. kom hingað til
lands með annarri þotu Flugleiða
frá Danmörku ung kona með nokk-
urra vikna gamlan son sinn til
dvalar hjá ættingjum yfír jólin.
Þessi unga kona er asma-sjúklingur
og þolir illa áreynslu. Hún var ein
í þessari ferð með hvítvoðung og
þótti því rétt að biðja um aðstoð
henni til handa, ef hægt væri að
fá hana.
Þann 8. des. var haft samband
við skrifstofu Flugleiða hér í
Reykjavík, en þar var vísað á skrif-
stofu þeirra á Keflavíkurflugvelli.
Þar varð fyrir svörum ung konurödd
(fulltrúi) og sagði hún að aðstoð
væri sjálfsögð í slíkum tilfellum.
Þetta væri mjög auðvelt. Send yrði
beiðni um aðstoð til skrifstofu Flug-
leiða á Kastrup. Telex væri alltaf
í gangi. Annað hvort yrði það
starfsmaður Flugleiða eða flugvall-
arins sem yrði til staðar, því mætti
treysta.
Gefið var upp fullt nafn konunn-
ar, flugnúmer og heimkomudagur.
Beðið var um að strax og konan
kæmi inn í fríhöfnina eftir passa-
skoðun biði þar einhver starfsmað-
ur, sem gæti hjálpað henni með
burðarrúmið og stóra handtösku,
því eins og þeir vita sem um Kastr-
upflugvöll hafa farið á leið til ís-
lands, þá er æði löng ganga út að
flugvélinni. Eins var beðið um að
henni væri hjálpað inn í flugvélina
og ætlað gott sæti. (A ferðum mín-
um með ýmsum erl. flugfélögum
hefí ég tekið eftir að farþegum með
ung böm eru ætluð fremstu sætin
í vélunum og þau merkt með sér-
stökum veifum. Þetta hef ég aldrei
séð í íslenskum flugvélum.)
Þegar konan sem um er rætt kom
inn í fríhöfnina var þar enginn til
hjálpar. Hún reyndi að fá „hjóltík"
að láni og einnig reyndi hún að fá
einhvem til að hjálpa sér, en það
var hvergi neina hjálp að fá. Hún
hóf því þessa Iöngu göngu með
burðarrúmið og töskuna áleiðis að
flugvélinni en sóttist ferðin seint.
Samlandar hennar, þessir rausnar-
menn sem gefa til útlanda tugi eða
hundruð milljóna króna til hjálpar
bágstöddum, þeir skunduðu fram •
hjá án þess að veita henni aðst ð
með bamið. Og þó, ung kona, s< m
einnig var farþegi, kom henni til
hjálpar og bar með henni burðar-
rúmið og hafí hún þakkir fyrir góða
aðstoð og hugsun. Sem betur fer
var flugvélin ekki fullbókuð svo
konan fékk gott sæti og allan viður-
gjöming um borð, en ekkert sæti
var frátekið fyrir þau sérstaklega.
Er heim kom beið enginn starfs-
maður Flugleiða eftir konunni til
að hjálpa henni frá borði og í gegn
um fríhöfnina eins og lofað hafði
verið. En sem betur fer þekkti einn
flugmaður vélarinnar konuna og
kom henni til hjálpar og gerði það
vel og drengilega. Þökk sé honum.
Sem sé, allt sem þessi fulltrúi
Flugleiða á Keflavíkurflugvelli lof-
aði, var svikið. Vonandi hafa ekki
margir sömu sögu að segja.
Auður Stefánsdóttir
„Hillingar í sambandi við
NT villtu mönnum sýn“
—segir Kristinn Fúmbogason stjimar-
maAur [ bUAstjóm Timans
Vísa vikunnar
Blaðinu leiðin virtist vís
vasameðurtóma.
Hyllti undir heilagt SÍS
og Helga Pé í ljóma.
Hákur
Saumanámskeið
Námskeiö í fatasaum, fyrir byrjendur og
lengra komna, er aö hefjast.
Upplýsingar og innritun í símum 83069,
46050 og 21421.
Fyrirtæki — stofnanir
Það er dýrt að senda mann út
Viö bjóöum aöstoö okkar viö hvers konar
útréttingar í Danmörku og víöar. T.d.:
1. Aöstoöum íslenska sýningaraöila og
gesti á vörusýningum.
2. Komum á samböndum milli kaupenda
og seljenda á tilteknum vörutegundum.
3. Komum fram sem fulltrúar íslenskra
fyrirtækja gagnvart erlendum viö-
skiptaaöilum, einnig ef íslenska fyrir-
tækiö óskar eftir nafnleynd.
4. Önnumst innheimtur.
5. Aöstoöum viö fasteignakaup og sölu.
6. Útvegum lögfræöilega aöstoö í Dan-
mörku, bæöi viö einkamál og viöskipta-
mál.
7. Önnumst fjármálaráögjöf í Danmörku.
8. Tökum aö okkur ýmis önnur smáverk-
efni.
Öll verkefni og fyrirspurnir eru trúnaðar-
mál og veröa varðveitt sem slík.
Eurokontakt Denmark (Jón H. Holm)
Skindergade 32,2
1159 Kaupmannahöfn K
Sími: 90-45-1-138013
Telex: 16600 fotex dk <
Att: Eurokon cph.
Bladburóarfólk
óskast!
Austurbær
Ingólfsstræti
Barónsstígur
Hverfisgata 63—120
Grettisgata 64—98
Vitastígur 11 —17
Þingholtsstræti
Skerjafjörður
Gnitanes