Morgunblaðið - 14.03.1986, Page 1

Morgunblaðið - 14.03.1986, Page 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ1913 60. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR14. MARZ1986 Prentsmiðja Morgunblaðains „Úrslitin til góðs fyrir alla þjóðina“ — segir Felipe Gonzales, forsætisráðherra Spánar Madrid/Briissel, 13. raars. AP. AÐILDARRÍKI Atlantshafsbandalagsins fögnuðu í dag að spænskir kjósendur skyldu samþykkja að vera áfram í varnarbandalaginu í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Felipe Gonzales, forsætisráðherra, sagði að ákvörðun kjósenda væri til góðs fyrir alla Spánveija og loksins hefði þeirri einangrunarstefnu, sem fylgt hefði Spánveijum eins og rauður þráður eftir spjöldum sögunnar, verið hnekkt. Hægrimenn, sem hvöttu kjósend- ur til að greiða ekki atkvæði, og hægri og vinstri öfgamenn, sem vildu að aðild að NATO yrði hafnað, kváðust hafa unnið siðferðilegan sigur í atkvæðagreiðslunni. Lokaniðurstaða atkvæðagreiðsl- unnar var sú að 52,5 prósent greiddu atkvæði með aðildinni, 39,8 prósent greiddu atkvæði gegn henni. Ekki er útlit fyrir að þáttur Spán- vetja í starfi NATO aukist, þótt þeir hafi greitt atkvæði með aðild að bandaiaginu. Her Spánveija hefur aldrei tekið þátt í starfi NATO og kjamorkuvopn eru bönnuð á spænskri grundu. í atkvæðagreiðsl- unni voru þessi tvo atriði sett sem skilyrði fyrir áframhaldandi aðild Finnland: Mesta vinnu- deila í 30 ár Helsinki, 13. mars. AP. aðNATO. Carrington lávarður, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði í dag að það hefði verið pólitískt áfall, ef Spánveijar hefðu hafnað aðild að bandalaginu. Hans Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vest- ur-Þýskalands, sagði að þetta væri merkur dagur fyrir NATO og at- kvæðagreiðslan hefði borið traustri dómgreind Spánveija vitni. í samtali við Morgunblaðið sagð- ist Matthías Mathiesen, utanríkis- ráðherra, sem nú er heiðursforseti Atlantshafsráðsins, fagna stuðningi spönsku þjóðarinnar við áfram- haldandi aðild að Atlantshafs- bandalaginu. Hann væri mikið ánægjuefni og uppörvun fyrir bandalagið í ómetanlegu starfí þess til varðveislu friðar, frelsis og lýð- rasðis. Matthías Á. Mathiesen sím- sendi Fransisco Femandéz Or- donez, utanríkisráðherra Spánar, ámaðaróskir í tilefni af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Sjá einnig „Almenn ánægja á Spáni . . .“ á bls. 25 og forystugrein á miðopnu: „Ahrif úrslitanna á Spáni“. AP/Símamynd Alfonso Guerra, aðstoðarforsætisráðherra Spánar, faðmar að sér stuðningsmann sósíalista, sem er frá sér numinn af fögnuði, skömmu eftir að útslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar voru kunngerð. Eins og flestum er kunnugt var meirihluti spænskra kjósenda fylgjandi aðild að NATO. UM 250 þúsund finnskir launþegar í iðnaði, flutningum og raforku- framleiðslu fóru í verkfall á hádegi í dag. Þetta er mesta vinnudeila Fyrsta handtakan vegna morðsins á Palme: Svíi grunaður um aðild að morðinu Stokkhólmi, 13. mars. AP. LÖGREGLAN í Stokkhólmi til- kynnti í dag að fyrsti maðurinn i Finnlandi i þijátiu ár. Áhrifa verkfallsins gætir þegar í stál- og byggingariðnaði, pappírs-, gler-, matarefna- og fataiðnaði. Innanlandsflug liggur niðri vegna þess að sumar slökkviliðs- og björg- unarsveitir fóm í verkfall, en tals- maður finnsku flugumferðarstjóm- arinnar sagði að verkfallið myndi engin áhrif hafa á flug til og frá Finnlandi. Verkfallið braust út eftir að slitn- aði upp úr samningaviðræðum milli Sambands stéttarfélaga, sem telur um eina miljón félaga, og atvinnu- rekenda, þrátt fyrir lokatilraunir til að láta enda ná saman. Stéttarfélögin fara fram á launa- hækkanir til næstu tveggja ára, að vinnuvikan verði 35 klukkustundir í stað 40 fyrir 1990 og vilja að vinnutími verði „sveigjanlegri" en nú er. Boðað var til verkfallsins fyrir tveimur vikum. Starfsemi lagðist niður í nokkr- um kjamorkuverum og annars konar raforkuvemm þegar starfs- menn gengu út. í öðmm orkuvemm verður starfsemi haldið áfram með nauðsynlegum starfskrafti meðan unnt er. Þar sem Finnar kaupa raforku af Sovétmönnum og mikil orka er framleidd í vatnsorkuvemm, jafn- framt því sem raforkuneysla er lítil á meðan verksmiðjur em lokaðar, er ekki búist við alvarlegum orku- skorti. Framleiðsla á brauði, kjöti, gos- drykkjum og bjór liggur niðri. Talið er að birgðir af flestum þessum vörutegundum séu það miklar að þær endist tvær til þijár vikur. hefði verið handtekinn vegna morðsins á Olof Palme, forsætis- ráðherra Svía. Lögfræðingar mannsins segja að hann sé and- kommúnisti og hafi flekklausa sakaskrá. Lögreglan sagði að rannsókn málsins miðaði áfram og búast mætti við frekari handtökum. Maðurinn hefur ekki verið ákærður °g segja lögfræðingar hans að hann verði látinn laus. Henning Sjöström er lögfræðing- ur hjá lögmannsstofunni, sem fer með mál hins handtekna. Hann segir að maðurinn komi frá trú- ræknu heimili, hann sé ekki á saka- skrá en hafi lært að handleika vopn þegar hann var einkavörður fyrir fimm árum. Sjöström sagði að maðurinn væri um 35 ára og hann væri frá Stokk- hólmi. Maðurinn hefði verið í grennd við morðstaðinn, þegar morðið var framið. Sjöström taldi líklegt að maðurinn hefði verið handtekinn vegna þess að fram- burður hans um það hvar hann hefði verið niðurkominn morðnótt- ina stangaðist á og vegna þess að lögreglan hefði fundið í íbúð hans blöð, sem maðurinn hefði skrifað á pólitískar skoðanir sínar. Vopn var ekki að finna í íbúðinni. Sjöström sagði að ýmsir, sem hefðu verið nærri þegar morðið var framið, hefðu bent lögreglunni á manninn. Maðurinn hefði síður en svo verið skoðanabróðir Palme í stjómmálum, en svo væri um fleiri Svía. Aftur á móti væri maðurinn hatrammur andstæðingur komm- únisma, þótt hann væri ekki í öfga- samtökum til hægri. Lögfræðingar mannsins sögðu að liðið gætu margar vikur þar til hann yrði ákærður, þótt yfirvöld fengju leyfí til að halda honum í gæsluvarðhaldi. Um fjörutíu manns hafa verið teknir til yfirheyrslu vegna morðs- ins, en enginn þeirra handtekinn. Yfirvöld geta haldið manni f fimm daga. Eftir það þarf dómari að dæma hann í gæsluvarðhald og er yfirvöldum þá veittur frestur til að bera fram ákæru. Undir venjuleg- um kringumstæðum er sá frestur til tveggja vikna, en í máli sem morðinu á Palme er líklegt að hann verði lengri. Sjöström segir að maðurinn neiti allri aðild að morðinu. Sex klukkustundum áður en maðurinn var handtekinn hélt Ingv- ar Carlsson, forsætisráðherra, stefnuræðu ríkisstjómar sinnar. Sjá einnig: „Stefnuræða Carlssons . . .“ábls. 24. Soyuz T-15 skotið áloft TVEIMUR sovéskum geimförum var skotið á loft í dag og höfðu þeir meðferðis geimrannsóknar- stofu, sem ber heitið „Friður". Þetta er fyrsta mannaða geim- ferðin frá því að geimfeijan Chall- enger sprakk í loft upp 28. janúar. Geimskotið var sýnt í beinni sjón- varpsútsendingu í Sovétríkjunum og er það í fyrsta sinn, sem slíkt er gert, þegar aðeins Sovétmenn eiga í hlut. Myndin sýnir geim- farana Vladimir Solovev (á hægri hönd) og Leonid Kizim á blaða- mannafundi í geimbúningum sín- um áður en þeim var skotið á loft f geimfarinu Soyuz T-15. AP/Símamynd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.