Morgunblaðið - 14.03.1986, Qupperneq 2
MOflGUNBLAÐID, F.ÖSTUUAGUft MARZ1986,,,
2
Fjögnr félog
fella samninga
AÐ MINNSTA kosti fjögnr aðildarfélög Alþýðusambands íslands
hafa fellt nýgerða samninga við atvinnurekendur. Það eru Bakara-
sveinafélag Islands, Félag starfsfólks í veitingahusum, Verslunar-
mannafélag Suðurnesja og Mjólkurfræðingafélag Islands. Langflest
önnur stéttarfélög hafa samþykkt samningana en eins og oft áður
hafa einstaka félög, sem að verulegu leyti eru óvirk, ekki tekið þá
fyrir og óvíst hvort þau gera það.
Meginástæða þess að samning-
arnir voru felldir hjá Félagi starfs-
fólks í veitingahúsum með miklum
meirihluta mun vera sú, að á fund-
inum voru um 50 manns (af hátt í
1000 félögum), flest fólk á lægstu
töxtunum. Viðræður samninga-
nefndar félagsins og veitingamanna
verða teknar upp aftur á næstu
dögum.
Bakarasveinar felldu samninginn
með 23 atkvæðum gegn þremur en
í félaginu eru liðlega 100 bakarar.
Hermann Amviðarson, formaður
Bakarasveinafélagsins, sagði að
meginástæðan fyrir óánægju fé-
lagsmanna sé sú, að bakarar hafi
í nokkur ár gert kröfu til að fá
greitt álag fyrir þá vinnu, sem þeir
skila að loknum átta stunda vinnu-
degi. „Við byijum flestir klukkan
fjögur á morgnana og erum þá á
næturvinnukaupi til sjö. A hádegi
erum við búnir að vinna átta tíma
en núgildandi samningar heimila
bakarameisturum að láta okkur
vinna fulla átta tíma eftir sjö á
dagvinnukaupi. Þetta teljum við
óréttlátt og munum því krefjast
réttar okkar í kjölfar þessarar af-
greiðslu," sagði Hermann.
Meðal félaga, sem samþykktu
samningana naumlega, voru Versl-
unarmannafélag Hafnarfjarðar
(með 11 atkvæðum gegn 10, þrír
sátu hjá) og Félag starfsfólks í
húsgagnaiðnaði. Þar greiddu 13
atkvæði með, tíu voru á móti og
aðrir tíu sátu hjá. Félagsmenn eru
um 300. í ályktun, sem samþykkt
var á fundinum, er lýst vonbrigðum
með hve litlum kaupmáttarauka
samningamir gera ráð fyrir og
mótmælt harðlega „allri tilhneig-
ingu til aukinnar miðstýringar, sem
auðkennir síðustu kjarasamninga.
Fundurinn ítrekar sjálfstæði sitt í
samningamálum og minnir á, að
hvorki sérsamband né Alþýðusam-
band Islands hafði samningsumboð
frá félaginu í samningum þessum
og muni ekki fá í komandi samn-
ingsgerðum nema tryggt sé, að fé-
lagið geti fjallað um sín sérmál við
atvinnurekendur án þess að talað
sé um það sem stéttarsvik í hreyf-
ingunni,“ eins og segir þar orðrétt.
Álverið í Straumsvík:
Félögin leita eftir
verkfallsheimild
„HUGMYNDIN er að afla verk-
fallsheimildar til að leggja frek-
ari áherslu á kröfur okkar um
að skriður komist á samningavið-
ræður okkar og Álfélagsins. Það
verður svo væntanlega ljóst á
allra næstu dögum hvort ástæða
Legg allt kapp
á að greiða úr
málum þeirra
segir Albert Guðmundsson
um vanda ullariðnaðarins
„ÉG hef miklar áhyggjur af
þessu og Iegg allt kapp á að
greiða úr málum þeirra," sagði
Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra um erfiðleika ullariðn-
aðarins.
Albert sagðist hafa fengið því
framgengt í ríkisstjóminni að út-
flutningsiðnaðurinn fengi endur-
greiddan gengismun eins og sjávar-
vöruútflutningurinn. Þá sagðist
hann hafa átt fund með stjómend-
um Iðnþróunarsjóðs og Iðnlánasjóðs
í gær og ætluðu þeir að gefa svör
eftir helgina, meðal annars um
möguleika á skuldbreytingu og
lengingu lána, í samræmi við tillög-
ur iðnrekenda.
verður til að nýta þær heimildir,"
sagði Sigurður T. Sigurðsson,
varaf ormaður V erkamannaf é-
lagsins Hlífar í Hafnarfirði, um
stöðu samningaviðræðna verka-
lýðsfélaganna tíu, sem semja
sameiginlega við stjóm álversins
í Straumsvík. Samninganefndin
hefur ákveðið að óska eftir heim-
ild til verkfallsboðunar í álverinu
og mun t.d. Hlíf halda fundi þar
með sínu fólki í dag.
Sigurður kvaðst ekki vilja gera
of mikið úr ákvörðun félaganna um
að leita eftir heimild til vinnustöðv-
unar - „þetta er frekar áherslu-
punktur hjá okkur á þessu stigi,
hvað sem síðar kann að verða,"
sagði hann og benti á, að íjölmörg
aðildarfélög Alþýðusambands ís-
lands hefðu verið að leita eftir
verkfallsheimildum þegar samning-
ar hefðu tekist milli ASI og samtaka
atvinnurekenda. „Því er hins vegar
ekki að leyna," sagði hann, „að
okkur hefur ekki þótt ganga nóg í
viðræðunum, sem nú hafa staðið
síðan fyrir áramót.“
Varaformaður Hlífar, sem er
stærsta félagið í álverinu, sagðist
ekki telja ólíklegt að samningar
ASÍ og vinnuveitenda yrðu hafðir
að leiðarljósi við gerð nýrra samn-
inga í Straumsvík en þar fyrir utan
væru ýmis sérmál, sem félögin
syðra teldu þurfa leiðréttingu á.
, ^ t
* y • -
Hólmfríður Karlsdóttur á Boston Seafood Show ásamt þeirn Friðriki Pálssyni forstjóra SH og
Magnúsi Gústafssyni forstjóra Coldwater.
Hólmfríöur stendur í
ströngu í Bandaríkjunum
HÓLMFRÍÐUR Karlsdóttir,
Ungfrú heimur, er um þessar
mundir í Bandaríkjunum.
Starfsmenn Hvíta hússins lýstu
áhuga Ronalds Reagans Banda-
ríkjaforseta á að hitta Hólm-
fríði. Ekki gat þó orðið af
fundum fegurðardrottningar-
innar og forsetans að sinni
vegna anna forsetans þann
tima, sem hún hafði aflögu I
ferðinni vestra. Mun forsetinn
eða starfsmenn Hvita hússins
hafa óskað eftir þvi að fá vitn-
eskju um hvenær Hólmfríður
kæmi aftur til Bandarikjanna,
svo að forsetinn gæti hitt hana.
í gær var Hólmfríður Karls-
dóttir meðal gesta á sjávarútveg-
skynningu í Boston, sem nefnist
Boston Seafood Show, og vakti
þar óskipta athygli, að sögn Jóns
Ásgeirs Sigurðssonar, fréttaritara
Morgunblaðsins í Bandaríkjunum.
Einnig voru þar Friðrik Pálsson,
forstjóri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, og Magnús Gúst-
afsson, forstjóri Colwater Seafood
Corp. í Bandaríkjunum, en það
er sölufyrirtæki SH. Þar var sýnd
ný afurð fyrirtækisins, fískur og
ostur í pastadeigi, sem hlotið
hefur nafnið Sea Shells.
Eins og af þessu má sjá hefur
Hólmfríður Karlsdóttir haft í æði
mörg hom að líta í þessari Banda-
ríkjaferð. Næturklúbbseigandinn
Peter Stringfellow, sem er eigandi
tveggja næturklúbba í London,
m.a. Hyppodrome, opnaði í fyrra-
kvöld nýjan skemmtistað í New
York undir nafninu Stringfellow’s
og var Hólmfríður heiðursgestur
við hátíðlega opnun staðarins. Þá
kom hún fram í morgunþættinum
Today í NBC-stöðinni og stór
mynd var af henni í blaðinu Dailý
News. Þá var fyrirhugað að hún
færi í myndatöku hjá blaðinu Star,
sem gefíð er út í 4 milljónum
eintaka.
Á laugardag verður Hólmfríður
Karlsdóttir heiðursgestur á mikl-
um dansleik, sem haldinn er á
vegum American Beauty Associ-
ation og er til styrktar baráttunni
gegn alsheimers-sjúkdómnum.
Gestgjafí á þessum dansleik, sem
sagður er með fínni böllum þar
vestra, er Jasmín Aga Khan prins-
essa, dóttir leikkonunnar Ritu
Hayworth, en hún er haldin áður-
nefndum sjúkdómi.
Hólmfríður Karlsdóttir skálar í kampavíni við Peter Stringfellow,
eiganda næturklúbbsins Stringfellow’s í New York.
Félagsdómur:
Boöað verkfall rafeinda-
virkja dæmt ólögmætt
FÉLAGSDÓMUR dæmdi í gær
boðað verkfall 122 rafeinda-
virkja hjá Pósti og síma og Ríkis-
útvarpinu ólögmætt. Tveir dóm-
arar skiluðu séráliti þar sem þeir
töldu verkfall hluta rafeinda-
virkjanna lögmætt.
Rafeindavirlqamir sögðu sig úr
aðildarfélögum BSRB á síðasta ári
og gengu í Sveinafélag rafeinda-
virkja, sem er eitt aðildarfélaga
ASI. Þeir sögðu síðan upp ráðning-
Fráleit röksemd að vísa
til hækkunar Pósts og síma
— segir viðskiptaráðherra um svör bankanna
„ÞAÐ er fráleit röksemd sem
maður hefur heyrt hjá sumum
bankanna að þeir telji sig þurfa
að hækka þjónustugjöldin vegna
hækkunar á gjaldskrá Pósts og
síma. Póstburðargjöld hér á
landi eru þau lægstu í Evrópu
og hafa aðeins hækkað um rúm
50% á síðustu 30 mánuðum. Og
símgjöld hafa lækkað verulega á
sama tímabili," sagði Matthías
Bjamason viðskiptaráðherra í
samtali við Morgunblaðið.
Matthías fór fram á að nýleg
hækkun bankanna á þjónustugjöld-
um um 15—40% yrði endurskoðuð
með það í huga að lækka gjöldin
aftur, en bankamir hafa haldið
því fram að hefð sé á því að hækka
gjöldin samhliða hækkun gjaldskrár
Pósts og síma, og það hafí verið
gert í þetta sinn.
Matthíasi hafa borist svör allra
bankanna og sparisjóða við beiðni
Hann sagði á miðvikudag að
það tæki nokkum tíma að fara í
gegnum gjaldskrá bankanna og
meta þörfína á hækkun, og yrði það
gert á næstu dögum. „Ég hef ekki
lagaiegt vald til að skipa bönkunum
að lækka gjöldin aftur, en ég mun
vinna að að því að reyna að ná
einhverju samkomulagi v:ð þá,“
sagði Matthías Bjamason.
arkjörum sínum hjá ríkinu og kröfð-
ust þess að kaup og kjör fæm eftir
samningum stéttarfélagsins. Á
þetta var ekki fallist af hálfu ríkis-
valdsins og boðuði félagið verkfall
fyrir hönd þessara félagsmanna
sinna frá og með 2. janúar síðast-
liðnum. Ríkið taldi verkfallið ekki
lögmætt og áður en til þess kom
urðu aðilar ásáttir um að leggja
ágreiningsmálið fyrir félagsdóm og
fresta verkfalli.
Meirihluti félagsdóms, Ólafur
Stefán Sigurðsson dómforseti,
Gunnlaugur Briem og Þorsteinn
Geirsson, dæmdi verkfallið ólög-
mætt eins og áður segir, þar sem
þeir töldu rafeindavirkjana vera
eftir sem áður opinbera starfsmenn
með þeim réttindum og skyldum
sem því fylgir. Minnihlutinn, Bjöm
Helgason og Jón Þorsteinsson, taldi
hins vegar að verkfail 79 rafeinda-
virkja af þeim 122 sem um ræðir
hafí verið lögmætt, þar sem þeir
hefðu með lögmætum hætti sagt
stöðum sínum upp.