Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ 1986
5
Smygl í Stapafelli:
Sögðu kjötið
vera eign
skipsins
SMYGLVARNINGUR fannst um
borð í flutningaskipinu Stapafelli
aðfaranótt þriðjudagsins síðastlið-
ins, er skipið kom til Reykjavíkur
frá Danmörku. Var það um 270
kíló af kjöti og hafa sjö skipveijar
játað aðild að smyglinu.
Við tollskoðun um borð í skipinu
fundust 50 kíló af nautamörbráð,
100 kíló af kjúklingum, 66 kíló af
skinku, 25 kíló af fleski, 17 kíló
af kalkún og 12 kfló af hamborgar-
hrygg. Reynt var að blekkja toll-
verði með því að gefa þetta upp sem
eign skipsins en þeir sáu ástæðu
til að vefengja þær skýringar og
tókst að sanna að kjötið væri
smyglað.
Dimitris Sgouros
Helgartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar:
16ára
einleikari
NÆSTU helgartónleikar Sin-
fóníuhijómsveitar íslands verða
haldnir i Háskólabíói á morgun,
laugardaginn 15. mars, kl. 17.00.
Einleikari er 16 ára gamall grísk-
ur píanisti sem vakið hefur
heimsathygli og hefur verið kall-
aður undrabarn, Dimitris Sgour-
os.
Stjómandinn er einnig grískur
og er vel kunnur hér á landi —
Karolos Trikolidis. Á efnisskránni
eru eingöngu rússnesk verk: Ball-
ett-tónlist eftir Sjostakovits og
Katsjaturian og Píanókonsert nr. 1
og 1812 hátíðarforleikur eftir Tjai-
kovsky.
Minningarathöf n
um Palme á
Lækjartorgi
MINNINGARATHÖFN um Olof
Palme verður haldin á Lælgar-
torgi föstudaginn 14. mars kl.
17.15.
Alþýðuflokkurinn, Samband
ungra jafnaðarmanna og Sænsk-
íslenska félagið standa sameigin-
lega að athöfninni. Flautukvartett
mun leika í stundarfjórðung fyrir
athöfnina, en sfðan verða þijár
stuttar minningarræður haldnar.
Að lokum verður Palme minnst með
einnar mínútu þögn.
Beint sjónvarp
frá útför Palme
Boð til
heiðurs
verðlauna-
höfum
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra og frú höfðu boð
inni í Kaupmannahöfn fyrir tónlist-
arverðlaunahafa Norðurlandaráðs
á meðan á Norðurlandaráðsþingi
stóð. Á myndinni em frá vinstri:
Sverrir Hermannsson, kona hans
Gréta Kristjánsdóttir, Ragnheiður
Ámadóttir, Hafliði Hallgrímsson,
Erling Blöndal Bengtsson og kona
hans Merete Bengtsson.
BOÐ
á IBM PC kynningu
IBM býður til námsstefnu 18.—20. mars nk. Kynnt verður notkun IBM PC einmennings-
tölvunnar. Daglega verða haldnir 3 fyrirlestrar sem hefjast allir kl. 14:30. Að loknu kaffi-
hléi er sýning eða kynning á verkefnum en dagskránni lýkur kl. 17. Væntanlegir þátttak-
endur eru beðnir að skrá sig í síma 68 73 73.
PC í LITLUM FYRIRTÆKJUM
18. MARS
PC FYRIR RITSMIÐI
PC VIÐ RANNSÓKNIR OG
GAGNAVINNSLU
Kristján Óli Hjaltason,
frkv.stj., Iðnbúð 2, Garðabæ.
PC í STÓRUM FYRIRTÆKJUM
Björn Vignir Sigurpálsson,
blaðamaður á Morgunblaðinu.
19. MARS
PC í SKÓLUM
Dr. Þorsteinn Hannesson og
Björgvin S. Jónsson,efnafræðingur,
fslenska járnblendifélaginu.
PC FYRIR VERKFRÆÐINGA
OG TÆKNIFRÆÐINGA
Kjartan Ólafsson, forstöðumaður
skipulagssviðs hjá Skeljungi.
PC í FRAMLEIÐSLU-
FYRIRTÆKJUM
Anna Kristjánsdóttir,
lektor við KHÍ.
20. MARS
PC í BÖNKUM
Ólafur Bj amason,
verkfræðingur, VST.
PC HJÁ BÆJARFÉUÖGUM
ÚTFÖR Olofs Palme fyrrum
forsætisráðherra Svíþjóðar verð-
ur sjónvarpað um gervihnött
beint frá Stokkhólmi á morgun,
laugardag. Hefst útsendingin kl.
12.45 oglýkurkl. 16.15.
Fyrst verður kveðjuathöfn í ráð-
húsinu í Stokkhólmi, því næst verð-
ur fylgst með líkfylgd Palme um
götur borgarinnar og loks sýnt frá
greftmn hans í Adolf Frederik-
kirkjugarði.
Þulur verður Stefán Jóhann Stef-
ánsson.
Gunnar Ingimundarson,
viðskiptafræðingur, FÍI.
Magnús Pálsson, forstöðumaður
markaðssviðs hjá Iðnaðarbankanum.
Bjarni Þór Einarsson, bæjar-
tæknifræðingur á Húsavík.
ÍSLENSK ÞEKKING-ALÞJÓÐLEG TÆKNI
Skaftahlíð 24 ■ 105 Reykjavík • Simi 27700
ARGUS/SlA