Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR14. MARZ1986,
inga frá rúmlega
10—27 þúsund krónum
HÉR BIRTAST ábyrgðartryggingariðgjöld bifreiða fyrir árið 1986.
Innifalið í uppgefnum iðgjöldum er söluskattur ásamt iðgjaldi fyrir
framrúðutryggingu og slysatryggingu ökumanns og farþega. Trygg-
ingaiðgjöldin eru mismunandi eftir áhættusvæðum, og er iðgjaldið
þvi mismunandi eftir því hvar bifreiðin er skráð. Áhættusvæði I
miðast við t.d. Reykjavík, áhættusvæði 2 miðast við t.d. Árnessýslu
og áhættusvæði 3 miðast við dreifbýli.
Blm. Mbl. leitaði til tveggja tryggingarfélaga, Sjóvátryggingarfé-
lags íslands hf. og Almennra trygginga hf., og reyndust iðgjöld af
ábyrgðartryggingu bifreiða hjá þeim hin sömu. Dæmi um iðgjöldin
1986 eru sem hér segir:
Iðgjaldaflokkur 1A, t.d. Toyota
Corolla og Daihatsu.
Áhættusvæði 1
Iðgjald með 50% bónus kr.
10.488,00. Iðgjald án bónuss kr.
20.003,00.
Áhættusvæði 2
Iðgjald með 50% bónus kr.
8.271,00. Iðgjald án bónuss kr.
15.750,00.
Áhættusvæði 3
Iðgjald með 50% bónus kr.
Bæjarstjóm
Hafnarfjarðar:
Lækka út-
svar í 9,9%
Á bæjarstjómarfundi i Hafn-
arfirði á þriðjudaginn var sam-
þykkt að lækka álagt útsvar um
0,6%, úr 10,5% í 9,9%, sem mun
vera eitt lægsta hlutfall í bæjar-
félagi á landinu að sögn Árna
Grétars Finnssonar forseta bæj-
arstjórnar.
Þá var samþykkt á þessum fundi
að lækka gjaldskrá rafveitu Hafn-
arfjarðar um 10% og gjöld á dag-
vistarheimilum og ieikskólum um
5%.
7.324,00. Iðgjald án bónuss kr.
13.674,00.
Iðgjaldaflokkur IB, t.d. Subaru
ogMazda626.
Ahættusvæði 1
Iðgjald með 50% bónus kr.
13.474,00. Iðgjald án bónuss kr.
25.786,00.
Áhættusvæði 2
Iðgjald með 50% bónus kr.
10.009,00. Iðgjagld án bónuss kr.
18.856,00.
Áhættusvæði 3
Iðgjald með 50% bónus kr.
8.233,00. Iðgjald án bónuss kr.
15.305,00.
Iðgjaldaflokkur 1C, t.d. Volvo
244.
Áhættusvæði 1
Iðgjald með 50% bónus kr.
14.306,00. Iðgjald án bónuss kr.
27.286,00.
Áhættusvæði 2
Iðgjald með 50% bónus kr.
10.836,00. Iðgjald án bónuss kr.
20.348,00.
Áhættusvæði 3
Iðgjald með 50% bónus kr.
9.795,00. Iðgjald án bónuss kr.
18.265,00.
Áhættusvæði 1 miðast við t.d.
Reykjasvíkursvæði. Áhættusvæði 2
miðast við t.d. Ámessýslu. Áhættu-
svæði 3 miðast við t.d. Borgarfjörð,
þ.e. dreifbýli.
Anders Nyborg og Jens Outzen afhenda Vigdfsi Finnbogadóttur
grafísku verkin og fyrir miðju er Kristján Davíðsson.
Hörsholm Rotary-hreyfingin Danmörku:
Afhenda þjóðhöfðingj-
um grafíklistaverk
Á FIMMTUDAG afhentu fulltrúar Hörsholm Rotary hreyfingarinnar
i Danmörku forseta íslands frú Vigdísi Finnbogadóttur fimm grafík-
verk, unnin af listamönnum á Norðurlöndunum, einum frá hverju
Iandi. Grafíkmyndimar em gefnar út í 500 eintökum og era tíl sölu
fyrir félaga Rotaryhreyfingarinnar á Norðurlöndunum, en þeir eru
um 60 þúsund talsins.
Anders Nyborg, formaður hug-
myndahóps Hörsholm Rotary hreyf-
ingarinnar, sagði að bæklingur með
myndum af grafikverkunum yrði
sendur öllum félögum í Rotary-
hreyfingunni í dag, geta menn
ýmist keypt möppu með listaverk-
unum fimm eða einstök verk. Verk-
in eru unnin af Henry Heerup í
Danmörku, Rune Claesson Svíþjóð,
Dag Rödsand Noregi, Ullu Rantan-
en Finnlandi og Kristjáni Davíðs-
syni íslandi, og á myndefnið að
tákna Rotaryhreyfinguna og Norð-
urlöndin. Nyborg gerði ráð fyrir að
ágóði af sölu verkanna yrði um 5
milljónir íslenskar, og rennur hann
óskiptur í sjóð Rotaryhreyfíngar-
innar sem styrkir ungt fólk til náms
víða um heim.
Þeir Jens Outzen forseti Hörs-
holm hreyfingarinnar og Anders
Nyborg hafa að undanfömu fært
þjóðhöfðingjum Norðurlandanna
þessi grafíkverk að gjöf, sl. föstu-
dag sóttu þeir heim Finnlandsfor-
seta, 2. febrúar Ólaf konung í Oslo
og 16. janúar Gustaf konung í Svf-
þjóð. Flugfélagið SAS hefur veitt
þeim fri'farseðla til þessara ferða.
Uorgunblaðið/EmQta
Skipsfélagarair fyrrverandi, Jón og Eyjólfur, rifja upp þá hörmulegu atburði sem urðu er Reykja-
borgin var skotin i kaf en Jón var skipverji á togaranum aUt til ársins 1940. Á myndinni er f.v.
Rafn Sigurðsson, forstjóri Hrafnistu í Reykjavík, Eyjólfur Jónsson og Jón Guðmundsson bóndi á
Reykjum.
Minntust látinna
þegar Reykjaborg
var skotin í kaf
Fyrir 45 árum, hinn 10. mars
1941, var togarinn Reykjaborg
skotinn í kaf af kafbáti. Árásin
á togarann var gerð þegar
hann var á siglingu til Eng-
lands, 140 milur út af Barra-
höfða á Skotlandi kl. 9.25 síð-
degis. Kafbáturinn lónaði
umhverfis togarann meðan
hann var að sökkva og skaut á
skipveija sem létu sjá sig ofan-
þilja þannig að þeim var fyrir-
munað að komast í björgunar-
báta.
Einungis tveir menn komust
af, en 15 voru í áhöfn togarans:
þeir Sigurður Hansson, sem látinn
er fyrir mörgum árum, og Eyjólf-
ur Jónsson, sem nú dvelst á
Hrafnistu í Reykjavfk.
Mánudaginn 10. mars sl. voru
nákvæmlega 45 ár liðin frá því
að Reykjaborg fórst og svo merki-
lega vill til að þá var einnig mánu-
dagur. Af þessu tilefni kom fyrr-
verandi skipsfélagi Eyjólfs á
Reykjaborg, Jón Guðmundsson, í
heimsókn til hans á Hrafnistu og
færði Eyjólfí blóm til minningar
um þá sem féllu fyrir morðingja-
hendi er Reykjaborg var sökkt.
En þessi stutta minningarstund
var í raun og veru um marga
fleiri vini og félaga þeirra Jóns
og Eyjólfs sem týndu lífinu í
hinum voðalega hildarleik sem
þjóðimar háðu á Atlantshafi og
meginlandi Evrópu.
Togarinn Reykjaborg var á sín-
um tíma langstærstur íslensku
togarana, 689 tonn að stærð. Var
hann keyptur frá Frakklandi
snemma áre 1936 og gerður út
af útgerðarfélaginu Mjölni. Fréttir
af hinum hörmulegu endalokum
skipsins bárust seint til íslands
og vissu menn ekki um afdrif
skipshafnarinnar fyrr en tíu dög-
um eftir að Reykjaborg sökk.
Alger radíó-þögn var fyrirskipuð
vegna stríðsins og bárust engar
fregnir af skipum sem héðan
sigldu með físk fyrr en þau komu
til hafnar í Englandi. Þar kemur
Hjónin Kristín Hjaltadóttir og Eyjólfur Jónsson.
að vísu fram í blaðafregnum hinn
16. mars 1941 að togarinn Vörður
hafi fundið mannlausa björgunar-
fleka af Reykjaborg daginn áður,
um 170 mflur norður af St. Kilda,
sem er í Hebrides-eyjaklasanum.
En það var ekki fyrr en 20. mare
að fregnir bárust frá bresku her-
stjóminni hér á landi um að breskt
herekip hefði bjargað tveim mönn-
um af fleka frá Reykjaborg.
Höfðu þeir verið á flekanum á
þriéja sólarhring ásamt þriðja
skipveijanum sem lést af skotsár-
um og vosbúð löngu áður en
herekipið fann flekann.
Þessir atburðir og fleiri áþekkir
frá árinu 1941 er íslensku skipin
urðu fyrir árásum hvert af öðru
em mörgum minnisstæðir enn í
dag. Sum þeirra hurfu án þess
að neitt spyrðist til þeirra framar
en önnur náðu við illan leik til
hafnar með þann hluta áhafnar
sem af komst. All mikið var um
þessa atburði ritað í blöðum á sín-
um tíma. Samtal við Eyjólf Jóns-
son og grein um atburðinn birtist
í M-Samtölum III. bindi eftir
Matthías Johannessen. Þá má
benda á bókina „Skipstjórinn faðir
minn“, sem út kom 1976, en þar
ritar Jón Guðmundsson kafla um
foður sinn, Guðmund Jónsson, og
segir nokkuð frá þessum atburð-
um.