Morgunblaðið - 14.03.1986, Page 18
JÍÖRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ1986
TT
MATVÖRUDEILD
Vöruhús Vesturlands
Borgarnesi sími 93-7200
PASKAR
ERU KOMNIR
í Vöruhús Vesturlands
Það er kannski óþarfi að taka það fram en við höfum á
boðstólum allan mat til hátíðarinnar: Úrvals svínakjöt, nauta-
kjöt, nýtt og létt reykt lambakjöt, rauðvínslegið lambalæri og
fuglakjöt, kalkúna, gæsir endur og kjúklinga. Og páskaegg.
En við hugsum ekki bara um hátíðarmatinn, við gerum
einnig vel við gesti og gangandi. Ferðamenn fá hjá okkur allt
nesti, s. s. heitar og kaldar samlokur og við eigum ávallt
nýgrillaða kjúklinga.
Og þótt menn lifi ekki á brauði einu saman bendum við á
Brauðhomið okkar, fullt af nýbökuðum brauðum og kökum frá
Brauðgerð KB.
Opið virka daga frá 9-18
laugardaga frá 9-12.
SVIPMYNDIR UR BORGINNI / ólafurormsson
Mánudagnr'
Þeir eru til sem þykja mánu-
dagar leiðinlegir en svo eru aðrir
sem aldrei eru ánægðari með til-
veruna en einmitt á mánudögum
og eru þá tilbúnir í stórfram-
kvæmdir eða meiriháttar umsvif.
Hafa hvílst vel yfír helgina, borð-
að góðan mat og slappað af í
faðmi fjöiskyldunnar eða með
vinum og ættingjum.
Það var tveggja til þriggja stiga
hiti í borginni mánudaginn 3.
mars síðastliðinn á miðri góu,
sólskin, still veður og ekki annað
að sjá að þeir sem fóru um Rauð-
arárétíginn rétt fyrir klukkan 10
um morguninn væru sæmilega
ánægðir með tilveruna. ólafur
H. Olafsson, einn af leiðtogum
Taflfélags Reykjavíkur og við-
skiptafræðingur að atvinnu, kom
út úr fjölbýlishúsi við Rauðarár-
stíg þar sem hann býr uppáklædd-
ur og glaðlegur á svipinn. Hefur
líklega verið nýbúinn að leysa
flókið skákdæmi með morgun-
kaffínu og tilbúinn að takast á
við viðskiptalífið ekki síður en
málefni skákhreyfíngarinnar,
enda nýir og bjartari tímar fram-
undan eftir kjarasamningana á
milli aðila vinnumarkaðarins sem
marka tímamót og verðbólgan
vonandi ekki lengur að hijá við-
skiptalffíð, þjóðlífíð og tiltölulega
örugg sigling í náinni framtíð á
þjóðarskútunni, svo framarlega
sem ekkert óvænt kemur upp á.
Kannski að nýgerðir lq'ara-
samningar og spá efnahagssér-
fræðinga um fjögur prósent aukn-
ingu þjóðartekna á þessu ári auk
verulegrar minnkunar verðbólgu
hafi virkað hvetjandi á athafna-
manninn og fombókasalann
Braga Kristjónsson sem stendur
í stórræðum þessa dagana. Ég
ætlaði að heilsa upp á hann mánu-
daginn 3. mars og langaði til að
heyra góðar fréttir af bóksölunni
og mannlifínu almennt og kom
þá að lokuðum dyrum í höfuð-
stöðvunum að Hverfisgötu 52, þar
sem fombókaverslunin Bókavarð-
an er til húsa. Á útidyrahurð var
hvítur miði sem á stóð. „Markað-
urinn er í fullum gangi að Hverfís-
götu 46.“
Ég man að ég hugsaði sem svo
þama á tröppunum fyrir framan
fombókaverslunina að Hverfís-
götu 52.
— Jæja, ætli hann Bragi sé
búinn að opna ávaxta- eða græn-
metismarkað. Kannski að hann
sé búinn að gefast upp á bóksöl-
unni. Ég ákvað að kanna málið,
komast að hinu sanna. Þegar ég
kom að húsinu númer fjörtíu og
sex við Hverfísgötu þar sem bjór-
líki var áður þambað af mikilli
list, var örtröð þar fyrir utan og
fombókasalinn og athafnamaður-
inn veifaði hendi um leið og ég
gekk innfyrir, í sal sem minnir
einna helst á húsakynni stórmark-
aðar. Sem betur fer er Bragi ekki
farinn að versla með ávexti eða
grænmeti. Langborð í salnum eru
yfirfull af bókum og bæklingum
margs konar og gamlar skruddur
afar sjaldgæfar innan um aðrar
gersemar og þama voru kunnir
agóu
safnara og bókaáhugamenn
komnir á staðinn, Bragi hafði
verið að opna um morguninn og
þeir handfjötluðu gripina eins og
helga hluti. Hjalti, innanbúðar-
maður hjá Braga og kunnur
áhugamaður um vöxt og viðgang
íslenskrar bókaútgáfu, stóð ekki
langt frá þar sem viðskiptin fóm
fram og ég sá það á svipnum að
nú var hátíð. Þama var Oddur
Ólafsson, ritstjómarfulltrúi á
Tímanum, í skósíðum ljósgráum
regnfrakka og kunni deili á mörg-
um sjaldgæfum bókum og bækl-
ingum, dustaði rykið af einstaka
bók eða bæklingi, athugaði út-
gáfustað og ár og leit helst ekki
við neinu nema því sem var frá
þriðja, §órða eða fímmta áratugn-
um. Fombókasalinn sjálfur bein-
línis geislaði. Hann lék við hvum
sinn fingur og reitti af sér brand-
ara sem er svo sem ekkert nýtt
þegar vel liggur á honum. Allt í
einu var kominn stór sendiferða-
bíll að húsakynnum bókamarkaðs
Bókavörðunnar og Bragi stjómaði
á staðnum eins og herforingi. Gaf
liði sínu skipanir, hvarf síðan
skyndilega af staðnum upp (
sendiferðabílinn að mér sýndist.
Það voru þama nokkur borð sem
vantaði á bækur og ekki fannst
mér ólíklegt að Bragi væri að
sækja meira af bókum, fylla upp
í skörðin og þá dugar ekkert
minna en sendiferðabíll af stærstu
gerð. Eða þá að færa enn frekar
út kvíamar, efla starfsemina og
koma á fót enn einum markaðnum
og þá ef til vill neðar við Hverfís-
MorgunblaÆð/Emilfa
Frá vinstri: Elisabet Cochran hönnuður, Björg Einarsdóttir höfundur bókarinar „Úr ævi og starfi is-
lenskra kvenna", María Haraldsdóttir og María Agústsdóttir.
Bókrún hf
Annað bindi „Úr ævi og starfi
íslenskra kvenna“ komið út
HJÁ FORLAGINU Bókrún hf.
er komin út bókin „Úr ævi og
starfi íslenskra kvenna". Bókin
er önnur í röð þriggja binda
safnrits og er efnislega byggð á
samnefndum útvarpserindum
sem höfundurinn, Björg Einars-
dóttir, flutti i rikisútvarpinu
vikulega i tvo vetur. Með erind-
unum vildi höfundur vekja at-
hygli á sögu kvenna sem að
mestu leyti er óskráð.
í öðru bindi af „Úr ævi og starfi
íslenskra kvenna" em 17 frásögu-
þættir þar sem sagt er frá 24
konum, sú elsta fædd 1812 og látin
1882 en hin yngsta fædd 1896 og
lifði til ársins 1981. Greint er frá
konum sem gerðust brautryðjendur
á ýmsum sviðum, t.d. í blaða-
mennsku, rithöfundar og fræði-
mennsku, höfðu forgöngu í nýjum
iðngreinum, gmndvölluðu tónlistar-
kennslu, risu öndverðar gegn sölu
fossa til útlendinga, skipuðu sess
húsfreyju á Qölmennum skólaheim-
ilum, gerðust alþingismenn eða
héldu nafni íslands á loft með öðr-
um þjóðum.
Fimm konur stofnuðu útgáfufé-
lagið Bókrún hf. Þær vinna alla
forlagsvinnu sjálfar og skipuleggja
einnig dreifíngu bókarinnar. Val-
gerður Kristjónsdóttir yfírfór hand-
ritið ásamt Sigríði Erlendsdóttur
sagnfræðingi. Flestar ljósmynd-
anna tók Jóhannes Long, setning
fór fram í Leturval, prentun í Grafík
og Bókfell annaðist band. EKsabet
Coehran hannaði bók og bókarkápu.
(Úr fréttatílkynningu.)
4