Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 20
MQRGUNBLAÐIiLFÖSTUDAGURM. MARZ1986
2&L
Óli sér um stuðið.
Komið, sjóið og sannfœrist.
Sjón er sögu ríkari.
Þórscafé - staður hinna vandlctu.
/A
bffli.SHCflFFI
KYNNING
Á morgun endurtökum viö jazz-kynninguna sem
við vorum meö siðasta laugardag. Vérnharöur
Linnet mun verða í verslun okkar á milli kl. 2
og 4 og kynna það sem er á boðstólum.
10% afsláttur af öllum jazz- og blús-plötum.
Metsölublaó á hverjum degi!
Fjarkennsla
í fyrsta sinn
Sá atburður gerðist I
fyrsta sinn hér á landi á
miðvikudaginn að fram fór
kennslustund þar sem kenn-
ari og nemendur voru á
einum stað, eða í kennslu-
stofu í Háskóla íslands, og
aðrir nemendur á Akureyri,
þó þannig að þeir gætu tal-
ast við og séð hvern annan.
Þetta gerðist með hjálp
tækninnar eða svokallaðs
myndfundasíma (video
teleconferencing). Kennar-
inn var Magnús Bjarnfreðs-
son og kennsluefnið sam-
skipti við fjölmiðla, en við
kennslu sina notaði hann
myndband um þetta efni,
sem Stjórnunarfélasr íslands
lét gera nýlegt
sinnar tegundar
Tilefni þessarar kennslustundar
var að kynna ráðstefnu sem haldin
verður um fjarkennslu dagana 19,-
20. mars næstkomandi. Síðar fór
fram blaðamannafundur þar sem
forsvarsmenn ráðstefnunnar kynntu
efni hennar fyrir blaðamönnum á
Akureyri og var þetta fyrsti blaða-
mannafundurinn, sem haldinn er
með þessum hætti. Einnig skýrðu
verkfræðingar Pósts og síma tækni-
lega hlið þessarar tilraunar.
Myndf undasími
hvað er það?
Fjarkennsla getur farið fram með
ýmsu móti, bréflega, í hljóðvarpi
og sjónvarpi og með hjálp tölva.
Þegar hljóðvarp og sjónvarp eru
notuð við kennslu er um tvennt að
ræða, að útbúa kennsluefni fyrir-
fram og senda út síðar eða senda
beint með hjálp myndfundasíma.
Hvað er myndfundasími, spyija
ef til vill einhveijir? Myndfundasími
er eins og áður segir búnaður, sem
gerir það kleift fyrir tvo eða fleiri
að halda fund eða kennslustund
augliti til auglitis þó að þeir séu
staddir á sitthvorum staðnumjafn-
vel sitthvoru megin á hnettinum.
Gerist þetta með hjálp venjulegs
síma, sjónvarpsupptökuvélar og
skjás, en þessi tæki verða að vera
á hvorum enda þannig að aðilamir
heyri og sjái hvom annan. Það var
gaman að fylgjast með þessari
fyrstu Qarkennslustund. Þama sátu
nemendumir við borð og fyrir fram-
an þá sími og á höfðinu heyma-
og taltæki. Nemendumir, bæði fyrir
Þeir, sem tóku þátt í fjarkennslunni norður á Akureyri sjást hér á
skermi, sem búið var að koma upp i einni kennslustofu HI. Þeir eru
Bemharður Haraldsson skólastjóri Verkmenntaskólans, Bárður
Halldórsson menntaskólakennari, Sigurður Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri og Theodór Júlíusson leikari. Að baki þeirra stendur
Jón Hermannsson. Hann er að taka mynd af þátttakendum sunnau-
lands.
norðan og sunnan, horfðu fyrst á
námsefnið af skerminum en síðan
bað kennarinn þá að gera sínar
athugasemdir við það og gátu þeir
fylgst hvorir með öðrum á skjánum.
Þegar blaðamannafundurinn var
haldinn var settur hijóðnemi á borð
þeirra er ræddust við og gátu þeir
því talast við eins og væru þeir í
sama herbergi.
Tæknin er sífellt að
verða ódýrari
Til em tvær gerðir myndfunda-
síma, annars vegar eins og notaður
var við þessa fyrstu tilraun, þ.e.
þar sem notaður er venjulegur sjón-
varpsbúnaður við myndsendinguna
en hann notar sömu flutningsgetu
og þarf fyrir 1000 símrásir og er
því dýrt að nota slíkan búnað fyrir
lítinn hóp. Hins vegar er hæg
hreyfímynd, sem notar aðeins flutn-
ingsgetu samsvarandi 5-30 símrás-
um og tekur því minna pláss í sím-
kerfínu. Myndin er send í stafrænu
formi(digital), sem byggir aðeins á
tveim tölustöfum, núll og einum og
tekur því minna pláss í símkerfínu
en fullkomin sjónvarpsrás. Það er
einmitt þannig búnaður, sem notað-
Fréttabréf úr Bjarnarfirði:
yegurinn norður í
Arneshrepp opnaður
Bjamarfirði, 8. mars.
í LOK síðustu viku, skeði sá fá-
heyrði atburður hér að opnaður
var vegurinn norður í Arnes-
hrepp. Þetta hefir venjulega ekki
verið gert fyrr en í maí á vorin.
Árferði hér hefír verið með ein-
dæmum gott í vetur og má segja
að elstu menn muni vart siíkt. Það
að nú skuli vera búið að opna
veginn í Norðurfíörð er áður óþekkt.
Að vísu gekk þetta erfiðlega. Brotn-
aði t.d. öxull í hefli á norðurleið,
en slíkt getur skeð við betri aðstæð-
ur. Þá hefír flug sjaldan fallið niður
og áætlunarferðir langferðabfla
ekki heldur. Vöruflutningar hafa
einnig gengið eðlilega í allan vetur
hingað með bifreiðum.
Mikil refarækt er nú að verða í
Bjamarfírði, en refabú eru á þremur
býlum, Klúku, Framnesi og Bald-
urshaga, sem er nýbýli úr Odda.
Fýrr á öldinni var hér í nágrenninu
refarækt með nýstárlegu sniði, er
refímir gengu ftjálsir í Grímsey í
Steingrímsfírði.
Þá er hér í firðinum hið gamal-
gróna Qárbú að Svanshóli, sem var
eitt með fyrstu sauðíjárræktar-
búunum sem starfaði eftir búfjár-
ræktarlögunum frá 1931. Var það
eina slíka búið á Vestfjörðum. Mun
skýrsluhald þar vera jafn gott enn
þann dag í dag. Rúning sauðfjár
er nú í fullum gangi bæði hér í
firðinum og í nágrenninu. Telja
bændur vetrarrúninguna mjög
hagkvæma.
Á Svanshóli hefír Ingimundur
Ingimundarson nýlokið við „að reisa
sér elliheimili", eins og hann kallar
það, en það er býlið Hóll. Hagnýtir
hann m.a. heita vatnið til kyndingar
hússins. Er það leitt í plastlögn í
gólfínu og er fullnægjandi til upp-
hitunar, þótt ekki sé það nema ríf-
lega 40° heitt. Þetta er einnig gert
í öðru húsi, sem er í byggingu hér
í firðingum. Er það nýtt íbúðarhús
á bænum Klúku. Er þar nýlokið
byggingu stórs refahúss og nú er
sem sagt íbúðarhúsið í byggingu.
Þá er verið að ljúka byggingu á
refahúsi að Framnesi. Er verið að