Morgunblaðið - 14.03.1986, Side 22

Morgunblaðið - 14.03.1986, Side 22
22 MQRGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR14, MARZ1986 Konursýna myndverk í Gerðubergi Í GERÐUBERGI stendur yfir sýning á myndverkum í eigu Reykjavíkurborgar eftir konur. Þetta er þriðji og síðasti hluti sýningarinnar „Listakonur“ — verk í eigu Reykjavíkurborgar, en efnt var til þessarar sýning- ar í tilefni af lokum kvennaára- tugar og í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavikurborgar. Að þessu sinni eru á sýningunni 33 verk, málverk, grafík, skúlpt- úrar, vefnaður og ljósmyndir. Listakonumar eru þær Alda Lóa Leifsdóttir, Amgunnur Ýr Gylfadóttir, Ásrún Kristjánsdóttir, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Guðbjörg Ringsted, Guðrún Þorkelsdóttir, Hafdís Ólafsdóttir, Harpa Bjöms- dóttir, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Hulda Hákonardóttir, Jóhanna Þórðardóttir, Jóhanna Kristín Yngvadóttir, Jónína Lára Einars- dóttir, Lára Gunnarsdóttir, Lísa K. Guðjónsdóttir, Lísbet Sveins- dóttir, Nína Gautadóttir, Raghild- ur Stefánsdóttir, Sigrún Ó. Ein- arsdóttir, Sóley Eiríksdóttir, Steinunn Þórarinsdóttir, Svala Sigurleifsdóttir, Telma Bell, Vala Haraldsdóttir, Vilborg Einars- dóttir og Þorbjörg Þórðardóttir. Sýningin er opin frá kl. 13.00—22.00 frá mánudegi til fimmtudags og frá kl. 13.00—18.00 frá föstudegi til sunnudags. Aðgangur er ókeypis. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð á æfingu fyrir söngferð norður i land. Morgunblaíið/EmUla Kór Menntaskólans við Hamra- hlíð í söngferð norður í land KÓR Menntaskólans við Hamrahlið heldur tónleika á Húsavik og á Akureyri um helgina. Það er Tónlistarskól- inn á Húsavik sem sér um undirbúning tónleikanna þar og Menntaskólinn á Akureyri sem býður kórnum þangað til þátttöku á árlegum Listadögum skólans. „Þetta er stór hópur nemenda sem fer þessa ferð ásamt rektor Ömólfi Thorlacius," sagði Þor- gerður Ingólfsdóttir stjómandi kórsins. „Dagskráin er afar fjöl- breytt, allt frá ævagömlum ís- lensku þjóðlögum og tvísöngvum til tónlistar sem samin er á okkar tímum. Nýasta lagið er eftir Atla Heimi Sveinsson, sem hann samdi í tilefni leiksýningar Leikfélags Akureyrar fyrir rúmu ári, „Ég er gull og gersemi". Þá erum við með meiriháttar uppákomu, flytj- um þátt úr s-amerískri messu með píanóundirleik, gítar og kontra- bassa og eru hljóðfæraleikaramir allir úr kómum. Kórverk eftir Mosart er á efnisskránni með strengjakvartett svo að eitthvað sé nefnt." Tónleikamir á Húsavík verða í kirkjunni kl. 17:00 á laugardag. Á Akureyri syngur kórinn við messu í Akureyrarkirkju kl. 14:00 á sunnudag og um kvöldið verða opinberir tónleikar á vegum Lista- daga menntaskólans kl. 20:30. Á mánudag heimsækir kórinn skól- ann, situr í kennslustundum en gefið verður leyfi frá námi eina kennslustund og boðað á „söng- sal“. Þar gefst gestunum tækifæri til að leiða söng heimamanna. Þá verða haldnir skólatónleikar í Gagnfræðaskóla Akureyrar seinnihluta mánudags áður en haldið er heim á leið um kvöldið. Eitthvað virðist Stígur (Þorsteinn Pétursson) eiga vantalað við Jónatan (Þórir Jónsson) um stígvélin. Morgunbiaðið/Bemhard Borgarfj örður: Reykdælir sýna „Hart í bak“ Kleppjárnsreykjum, 12. mars. UNGMENNAFÉLAG Reyk- dæla frumsýnir leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson, i félagsheimilinu Logalandi, föstudaginn 14. mars næstkom- andi. Leikstjóri er Oddur Björnsson. Leikendur eru 12. Hart í bak er án efa þekktasta leikrit Jökuls Jakobssonar. Það er annað leikrit hans fyrir leiksvið og af fullri lengd. Það var frum- sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur haustið 1962 og náði þá þegar meiri vinsældum en dæmi voru til um nýtt íslenskt leikrit. Leikstjórinn, Oddur Björnsson, er þekktur leikritahöfundur. Hann hefur auk þess stjórnað fjölda leiksýninga úti á landi og í Reykjavík, þar á meðal flutningi útvarpsleikrita. Hann var leik- hússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar 1978—80 og leikstýrði þar meðal annars sýningu á Beðið eftir Godot, sem landsþekkt varð. Leikendur í Hart í bak eru: Þórir Jónsson, Steinunn Garðars- dóttir, Gunnar Bjamason, Sigríð- ur Jónsdóttir, Gíslína Jensdóttir, Þorsteinn Pétursson, Þorvaldur Jónsson, Sigurður Kristinsson, Embla Guðmundsdóttir, Magnús Magnússon, Ólafur Guðmundsson og Jón Kristleifsson. Félagar úr UMFR sáu um leikmynd og bún- inga. Bernhard. Ráðstefna um erfðarannsóknir HIN árlega ráðstefna Líffræði- félags íslands verður haldin laugardaginn 15. mars í Odda, hugvísindahúsi Háskóians. Að þessu sinni verða flutt 23 stutt erindi um margvisleg rannsókn- arefni í erfðafræði. Fyrir hádegi verður Qallað um- erfðir og kynbætur plantna og dýra, m.a. um kynblöndun birkisug fya.Il- drapa og um kynbætur laxfiska. Eftir h'ádegi verður fjailað um erfðarannsóknir í- heúbrigðiskerf- inu, t.d. um arfgengar heilablæð- ingar og um argengi brjóstakrabba- meina. Eftir síðdegiskaffi verður stofii- erfðafræði á dagskrá, m.a. stofn- erfðafræði heimskautarefsins, og loks sameindaerfðafræði, þar sem m.a. verður ijallað um gersvéppi og krabbameinsgen. Ráðstefnan er öllum opin og hefst klr9.00, en henni lýkur um kl.-18.16. Breytingar á fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar: Útsvar lækkar um 125 milljónir króna BORGARRÁÐ hefur samþykkt breytingar á fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar með hliðsjón af ráðstöfunum í ríkisfjármálum, verðlags- og lánsfjármálum i tengslum við gerð kjarasamninga aðila vinnu- markaðarins. Er þar meðal annars gert ráð fyrir lækkun tekna vegna útsvars um 125 milijónir króna. Borgarráð hefur ennfremur fyrir sitt leyti samþykkt kjarasamning við verkalýðsfélög innan ASÍ. Breytingar á fjárhagsáætlun borgarsjóðs eru sem hér segir: Fyrri upphæð: Ný upphæð: Breyting: Rekstrartekjur: 00-100 Útsvar 1).. 1.950.000.000- 1.825.000.000- 125.000.000 + 00-406 Vaxta- dagvistargjalda frá 1. mars, eða 4,17% lækkun á ca. 110 m. kr. 8) Framlag til Sjúkrasamlags. Breyttar verðlagsforsendur. Reykjavíkurborg greiðir 20,8% af rekstrarkostnaði SR. 9) Vaxtagjöld. Væntanleg þriðj- ungslækkun vaxtagjalda, úr 104 í 67 m.kr. 10) Götur og holræsi. Breyttar verðlagsforsendur. 510.840.000 lækki um 38 m. tekjur 2). . 25.000.000- 17.000.000- 8.000.000 + 00-600 Framlag úr Jöfnunar- sjóði 3).. 295.000.000- 275.000.000- 20.000.000 + 00-900 Dráttar- vextir 4).. 182.000.000- 142.000.000- 40.000.000 + Lækkun tekna alls ........................ 193.000.000 + kr., eðaum 7,4%. 11) Beinn framkvæmdakostnaður. Breyttar verðlagsforsendur. 514 m.kr. lækki um 30 m. kr., eða um 5,8%. 12) Auknar tekjufærðar eftirstöðv- ar. Breytt útsvarsálagning kall- ar á lækkun þessa reikningslið- Rekstrargjöld: ||, 01 til 15 Orkukaup 5), lækkun .......................... 18.000.000 - 01 til 15 Vörurogþjónusta6), lækkun .................... 40.000.000- 07-310 til 445 Dagvistunarstofnanir 7), hækkun ........ 5.000.000 + 07-692 Framlagtil Sjúkrasaml. Reykjavíkur 8), lækkun ... 20.000.000 - 01-001 Vaxtagjöld 9), lækkun ............................. 37.000.000- 10 til 14 Götur og holræsi 10), lækkun ................. 38.000.000- Millisamlagning ................................ 148.000.000- Eignabreytingagjöld: 21-1121 til 914 Beinn framkvæmdakostn. 11), lækkun .... 24.000.000- m. 20-051 Auknar tekjufærðar eftirstöðvar útsvars 12), lækkun ......................................... 21.000.000- Lækkun gjalda alls .......................... 193.000.000- 1) Útsvar. 10,2% útsvar í stað um, sbr. athugasemdir með frv. 10 g% til laga um það efni. 2) Vaxtatekjur. Þriðjungslækkun 4) Dráttarvextir. Lækkun dráttar- vaxla vaxta úr 3,75 í 2,75% frá 1. 3) Framlag úr Jöfnunarsjóði. mars. Lækkun framlags ríkissjóðs til 5) Orkukaup. Rafmagn. 20% Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga af lækkun á rafmagnsverði frá 1. söluskattstekjurn úr 805 í 770 mars. Hiti. 7% lækkun á heitft in.kr., og lækkun á hluta Jöfn- vatnifrá 1. mars. unarsjóðs af ^aðflutningsgjöld- «) Vörur og þjónusta. 8% -af^a. um, Lsamræmi við 2. gr. laga 500 m. kr. , um 7ráðstafanir í rikis§ármál: 7) Dagvistarstoftianir. 5%1*kkún: Fjárhagsáætlun Hitaveitu Reykjavíkur: Verð samkvæmt gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur lækki um 7% frá 1. mars 1986. Þar sem hér er um meiri lækk- un að ræða en svarar til verð- breytinga, er hitaveitustjóra falið að gera tillögu um niður- skurð á eignabreytingaliðum sem því nemur. Fjárhagsáætlun Rafmagns- veitu Reykjavíkur: Taxtar Rafmagnsveitu Reykja- víkur lækki um 10% frá 1. mars 1986 með hliðsjón af breyttum verðlagsforsendum og 10% lækkun á heildsöluverði Landsvirkjunar frá sama tíma: Gjaldaliðir Rafmagnsveitu Reykjavíkur breytist í samræmi við framangreindar forsendur. Verð á rafmagni til notenda á orkuveitusvæði Rafmagnsveitu Reykjavíkur lækkar úm 20,2% •frá 1. mars 1986, þar sém verðjöfnunargjald hefiir yerið ■felltniður frá sama tíma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.