Morgunblaðið - 14.03.1986, Síða 23

Morgunblaðið - 14.03.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ 1986 Viðar Eggertsson og Kristín Anna Þórarinsdóttir. Af Ellu lítilmagna Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir EGG-Ieikhúsið sýnir í Kjallara- leikhúsinu: Ellu eftir Herbert Achtem- busch Þýðing: Þorgeir Þorgeirsson Leikmynd: Guðjón Ketilsson Búningar: Guðrún Erla Geirs- dóttir Leikstjóri: Michael Scott Ella er sagan um lítilmagnann í þjóðfélaginu. Lltilmagnann sem hlýtur að bíða ósigur, að minnsta kosti í þeim hefðbundna skilningi sem í það er lagt um hver plumi sig og hver ekki. Uppvöxturinn og aðstæðumar ráða vissulega nokkru um hver framvinda lífs Ellu verður, en fyrst og fremst er það þó veilan í henni sjálfri að viðbættu skilnings og miskunnar- leysi umhverfisins á sjúkleikan- um. Þýðandi segir í leikskrá: „Um leiktexta Achtembusch hefur ein- hver spekingur sagt: Þessi verk höfða alveg sérstaklega til áhorf- enda sem vilja reyna að gleyma sjálfum sér andartak í leit að sjálf- um sér. Nokkuð mikið til í því, að minnsta kosti tekst þetta í flutn- ingi Eggleikhússins á verkinu. Fyrst og fremst vegna þess að leikstjórinn Michael Scott hefur innsæi og hugmyndaflug til að bera og tekst að leiða leikarana á þá braut og ná fram mjög sterk- um áhrifum. Og ekki síður vegna þess að leikið er þrátt fyrir allan harmleikinn, upp á ákveðna kími- tilfinningu og snöfurleika. Sem verður til að dýpka harmsögu Ellu. Viðar Eggertsson hefur unnið leiksigur með flutningi sínum í Ellu. Framsögnin er ótrúlega blæbrigðarík og hreyfíngar og fas og persónusköpunin almennt, allt er unnið af listrænni yfirvegun. Eg lejrfi mér að fullyrða að Viðar sýni einnig á sér fleiri hliðar sem leikari en áður og hefur vald yfír þeim öllum. Vissulega eftir- minnilegur leikur. Kristín Anna Þórarinsdóttir illúderar í bytjun og samleikur þeirra Viðars er oft til fyrirmyndar. Ekki var mér þó alveg ljóst hvers vegna leikaramir voru á stundum eins konar spegill hvors annars, en stundum ekki. Leikmynd Guðjóns Ketilssonar var fjölbreytileg og frískleg, frum- lega útfærð. Búningar Gerlu í samræmi við textann og anda hans. Þýðing Þorgeirs Þorgeirs- sonar var ákaflega vel gerð og vönduð, en kannski ekki áreynslu- laust, góð. Þessi sýning á erindi til fólks, hún er vel unnin af öllum sem að henni standa. Svo að til sóma er. Þessi umsögn er skrifuð eftir aðra sýningu. Slysavarnafélag íslands: Hjálpar fólki að losa sig við hættu leg efni og lyf Á LAUGARDAG hyggst Slysa- varnafélag íslands gangast fyrir herferð til að fylgja eftir dreif- ingu bókarinnar „Slys af völdum efna í heimahúsum, viðbrögð við þeim og varnir". Hvetur félagið fólk til að losa sig við efni og lyf sem ekki eru lengur notuð. Áð sögn Haralds Henryssonar, for- seta SVFÍ, býður félagið aðstoð við að losa fólk við þessi efni. „Þetta verður nánar auglýst," sagði Haraldur. „Björgunarsveita- og slysavamafólk verður á ákveðn- um stöðum til þess að taka á móti efnunum." Hvers vegna leggur Slysavama- félagið svona mikla áherslu á vamir gegn eiturefnum og lyfjum? „Við höfum þær upplýsingar frá landlækni, að slys af völdum slíkra efna séu alltof tíð, t.d. séu þau 11% slysa á bömum í heimahúsum. Þess vegna fómm við í útgáfu þessarar bókar og dreifíngu til allra heimila á landinu. En bókin kemur náttúm- lega ekki að tilætluðum notum ef hún er látin rykfalla, heldur verður fólk að kynna sér efni hennar og þær leiðbeiningar sem í henni er að fínna. í framhaldi af dreifíngu bókarinnar viljum við svo hvelja fólk til að losa sig við ýmiss konar hættuleg efni og lyf sem ekki er verið að nota en hafa safnast fyrir á heimilum í tímans rás. Fyrir- byggjandi aðgerðir em afar mikil- vægur þáttur í öllum slysavömum og gætu komið í veg fyrir að fólk þyrfti að grípa til bókarinnar. Það væri að sjálfsögðu langbest," sagði Haraldur Henrysson. „Með fyrirbyggjandi aðgerðum er hægt að spara mjög mikið; mannslíf, sorg, þjáningar og fé, þannig að fjárframlög til slíkrar starfsemi skila sér margfaldlega." Hvemig er þessi starfsemi fjár- mögnuð? „Fyrst og fremst með happ- drættinu okkar, sala á miðum er í fullum gangi núna. Almenningur hefur alltaf sýnt starfsemi Slysa- Haraldur Henrysson, forseti Slysavamaf élags íslands. vamafélagsins mikinn skilning og við höfum enga ástæðu til að ætla annað en svo verði áfram. Happ- drættið er helsta tekjulind félagsins og stendur að miklu leyti undir rekstri björgunar- og hjálparsveita um allt land, auk rekstrar skip- brotsmanna og fjallaskýla okkar sem em 70—80. Fjárframlög ríkis- ins til SVFÍ á þessu ári eru um 4 V2 milljón króna og það hrekkur skammt þannig að við verðum fyrst og fremst að treysta á framlög frá almenningi. Ég vil að lokum Ieggja áherslu á það að mikilvægi fyrirbyggjandi starfsemi verður aldrei ofmetið og með sameiginlegu átaki heilbrigðis- yfírvalda, heilbrigðisstétta og ftjálsra félagasamtaka eins og okkar er hægt að vinna ómetanlegt starf," sagði Haraldur Henrysson, forseti Slysavamafélags íslands, að lokum. Frá kl. 8—10 öll smábrauð með Frá kl. 17—18 öll brauð með 50% afslætti 50% afslætti NÝSMURÐAR SAMLOKUR, RÚNSTYKKI, LANGLOKUR OG HEITAR SAMLOKUR. Bakaríið Kringlan Dalshrauni 13, sími 53744.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.