Morgunblaðið - 14.03.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR.14. MA-RZ1986
25
Gorbachecv:
Engar kjamorku-
vopnatilraunir
- nema Bandaríkjamenn verði fyrri til
Moskvu, 13. mars. AP.
SOVÉTMENN hafa ákveðið að
framlengja einhliða frest á
kjarnorkuvopnatilraunum og
byrja ekki á þeim aftur nema
Bandaríkjamenn geri slíka tii-
raun. Kom þetta í dag fram í
yfirlýsingu frá Gorbachev, Sov-
étleiðtoga, en upphaflega var
ákveðið, að fresturinn rynni út
31. marsnk.
f bréfi til leiðtoga sex ríkja segist
Gorbachev fús til að leyfa banda-
rískum eftirlitsmönnum að fylgjast
með því, að við bannið við tilraunum
sé staðið. í desember sl. sagði í
flokksmálgagninu, Prövdu, að Sov-
étmenn væru reiðubúnir að leyfa
slíkt eftirlit að vissu marki en það
var þó ekki skýrt nánar.
Bandaríkjamenn hafa hingað til
hafnað tillögum Sovétmanna um
eftirlit. Segja þeir, að það verði að
vera stöðugt og gagnkvæmt en
ekki bara þegar grunur vaknar um
að annar hvor aðilinn hafi brotið
eitthvert samkomulag.
Hækkandi olíuverð
í Bandaríkjunum
Mikhaii Gorbachev, leiðtogi Sov-
étríkjanna.
Ríkin sex, sem Gorbachev skrif-
aði, eru Argentína, Indland, Mex-
íkó, Tanzanía, Svíþjóð og Grikk-
land.
New York, 13. marz. AP.
VERÐ á bandariskri olíu hækk-
aði í dag og komst yfir 14 doilara
tunnan. Hefur olíuverðið þannig
verið að hækka þijá daga i röð
og er nú orðið hærra en það
hefur nokkru sinni verið undan-
farnar tvær vikur.
Sérfræðingar telja, að þetta stafí
af ört minnkandi birgðum af olíu
til húshitunar og af bensíni en einn-
Væntanlegar efnahagsráðstafanir í Danmörku:
Eiga að færa ríkinu
50 milljarða í tekjur
Kaupmannahöfn, 13. mars. AP.
DANSKA rikisstjórnin er að undirbúa nýjar neyðarráðstafanir i
efnahagsmálum, sem lagðar verða fram í danska þinginu á morgun,
að sögn opinberra embættismanna. Kom þetta fram í dönskum fjöl-
miðlum í dag. Eru ráðstafanirnar til þess ætlaðar að rétta við við-
skiptahalla og minnka einkaneyslu og er gert ráð fyrir að þær færi
danska ríkinu 10 milljarða danskra króna í tekjur á þessu ári eða
tæpa 50 milljarða íslenskra króna.
Ríkisstjómarflokkarnir neituðu
að láta nokkuð uppi um væntanleg-
ar ráðstafnir meðan þær væru
ennþá á umræðustigi. Ráðstafan-
imar hafa fengið gælunafnið páska-
eggið og að sögn felst meðal annars
í þeim að skattar á orku verða
hækkaðir. Það á að gefa í tekjur 7
milljarða danskra króna, en til við-
bótar er gert ráð fyrir hækkun
virðisaukaskatts um 1%, upp í 23%.
Þá er einnig búist við að skattar á
áfengi, tóbaki og heimilistækjum
verði hækkaðir.
Ríkisstjóm Paul Sehluter í Dan-
mörku, er minnihlutastjóm fjögurra
flokka og þarf stuðning einhvers
hinna flokkanna á þingi til þess að
fá ráðstafanirnar samþykktar.
Einkum er talið að ríkisstjómin líti
vonaraugum til Róttæka fíjálslynd-
isflokksins, sem er lítill miðflokkur,
en hann hefur venjulega fylgt ríkis-
stjóminni að málum hvað efna-
hagstillögur áhrærir. Ræddu ríkis-
stjómarflokkamir við talsmenn
flokksins í gær og héldu þær við-
ræður áfram í dag, en óljóst er um
hvort flokkurinn fellst á þessar nýju
ráðstafanir.
Veður
víða um heim
Akureyri Lœgst 8 Hœst skýjað
Amsterdam 1 5 skýjað
Aþena 9 13 skýjað
Barcelona 14 alskýjað
Berltn 0 B skýjað
Bríissel 0 10 skýjað
Chicago 0 3 skýjað
Dublln 6 10 rígning
Feneyjar 7 alskýjað
Frankfurt 3 6 skýjað
Genf 0 3 skýjað
Helsinki *2 +1 skýjað
Hong Kong 18 22 skýjað
Jerúsaiem 9 19 skýjað
Kaupmannah. 0 1 skýjað
Las Palmas 20 skýjað
Lissabon 6 15 rigning
London 1 7 skýjað
Los Angeles 12 19 skýjað
Lúxemborg 2 mistur
Malaga 14 léttskýjað
Mallorca 16 skýjað
Miami 22 26 skýjað
Montreal +8 0 heiðsklrt
Moskva +2 0 skýjað
NewYork 2 9 rigning
Osló +2 1 skýjað
París 3 9 skýjað
Peking 2 12 skýjað
Reykjavlk 8 skýjað
RfódeJaneiro 21 38 heiðsklrt
Rómaborg 9 17 skýjað
Stokkhólmur 0 2 skýjað
Sydney 14 24 heiðskirt
Tókýó 3 15 heiðskírt
Vínarborg 2 7 skýjað
Þórshöfn 6 súld
Almenn ánægja á
Spáni með úrslitin
Burgos, 13. marz. Frá Heigu Jónsdóttur
fréttarítara Morgunblaðsins.
ÚRSLIT þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar um aðildina að NATO
komu Spánveijum á óvart og
ríkir almenn ánægja með niður-
stöðurnar. Fjölmargar skoð-
anakannanir síðustu vikurnar
fyrir kosningadaginn gáfu all-
ar til kynna að meirihluti Spán-
veija ætlaði að segja nei; 51%
ætlaði að greiða atkvæði gegn
aðild, 45% hugðust styðja
áframhaldandi aðild og 4%
ætluðu að skila auðu. Búist var
við 70% kjörsókn. Úrslitin urðu
hins vegar á annan veg, 53%
voru með aðild, 39% á móti og
kjörsóknin 60%.
Víst er að fjölmargir stuðnings-
menn Sósíalistaflokksins, sem
voru óákveðnir síðustu dagana
fyrir kosningadaginn, ákváðu að
lokum að hlíta ráðum ríkisstjórn-
arinnar. Einnig er talið ljóst að
ýmsum fylgismönnum flokksins,
sem í byijun hafi ætlað að greiða
atkvæði gegn aðild, hafí snúizt
hugur og þeir komist að þeirri
niðurstöðu að með því að greiða
atkvæði með aðild myndu þeir
styrkja flokk sinn og stjórnar-
stefnu hans.
Felipe Gonzalez, forsætisráð-
herra, og aðrir ráðherrar höfðu
ákaft lagt að mönnum að styðja
aðildina að NATO á íjölmörgum
fundum, sem flokkurinn stóð fyrir
vegna þjóðaratkvæðisins. Flokk--
urinn hélt um 7.700 fundi og
AP/Símamynd
Felipe Gonzales, forsætisráðherra Spánar, ávarpar spænsku þjóð-
ina í sjónvarpi eftir að úrslit þjóðaratkvæðisins voru kunn.
samkomur um allan Spán síðustu
vikumar. Ráðherramir lögðu
jafnan ríka áherzlu á það að ef
Spánn segði sig úr NATO myndi
landið einangrast aftur frá Ev-
rópu á ýmsum sviðum, t.d. í efna-
hags- og viðskiptamálum, og ríki
Vestur-Evrópu myndu bera minna
traust til Spánvetja á eftir. Sós-
íalistaflokkurinn bað Spánveija
að ijúfa ekki þau mikilvægu
tengsl við Vestur- og Norður-
Evrópu og Norður-Ameríku, sem
bundizt hefðu sl. áratug.
Sósíalistar em að vonum mjög
ánægðir með niðurstöður kosn-
inganna. Forystumenn flokksins
áttu ekki von á þeim mikla mun,
sem var á með- og mótatkvæðum.
Gonzalez sagði þegar ljóst var
hvert stefndi að sigurvegari í þjóð-
aratkvæðinu væri öll spænska
þjóðin, en ekki neinn ákveðinn
hópur. Hann bauð öllum stjóm-
málasamtökum landsins að sam-
einast um utanríkisstefnu Spánar.
Úrslitin sagði hann jákvæð fyrir
lýðræðið á Spáni og friðarstefnu
landsmanna.
Forystumenn hópa, flokka og
samtaka þeirra, sem voru andvígir
aðild að NATO, þ.e.a.s. Kommún-
istaflokkur Spánar, verkalýðs-
félög, listamenn, rithöfundar,
skáld, söngvarar, leikarar og hóp-
ar friðarsinna sögðu, að stjóminni
hefði tekizt að hræða fjölmarga
kjósendur, sem vom óákveðnir,
til að kjósa áframhaldandi aðild
að NATO. Siðferðilegur sigur
NATO-andstæðinga væri hins
vegar augljós. Það væri sigur
þeirra að 8 milljónir Spánveija
skyldu lýsa sig andvíga aðild að
NATO og stjómin yrði að taka
tillit til þessa hóps er hún mótaði
stefnu sína.
Forystumenn stærsta stjómar-
andstöðuflokksins, AP, sögðust
ánægðir með að fylgismenn
flokksins skyldu hafa hlýtt kalli
og setið heima. Hægrimenn væru
á móti stjómarstefnu Sósíalista-
flokksins. AP væri fylgjandi aðild
að NATO en kosningamar hefðu
verið óþarfar. Sósíalistaflokkur-
inn hefði dregið Spánveija á
asnaeymm með því að efna til
þessara kosninga. Skynsamleg-
asta stefnan hefði því verið að
sitja heima og mótmæla þannig
stefnu og ákvörðunum Sósíalista-
flokksins. Það að 40% kjósenda
skyldu sitja heima væri stórsigur
fyrir hægrimenn.
Spænskir kaupsýslumenn tóku
úrslitunum með miklum fögnuði
því sett var nýtt met í morgun í
kauphallarviðskiptum í fjórum
stærstu kauphöllum Spánar, í
Madríd, Barcelona, Valencia og
Bilbao. Eftirspum eftir hlutabréf-
um hefur ekki verið jafn mikil í
12 ár og var mikill hamagangur
og æsingur í kauphöllunum.
ig til orðróms um, að olíuframleið-
endur kunni að gera samkomulag
sín í milli um minni framleiðslu í
því skyni að koma meira jafnvægi
á olíuverðið.
Hráolía frá Texas (West Texas
Intermediate) hækkaði í dag upp í
14,01 dollara tunnan í sölusamning-
um, sem miðast við afhendingu í
apríl. Fyrir einni viku komst verðið
niður í 11,49 doliara tunnan. Verðið
var hins vegar 31,70 dollarar hver
tunna í nóvember sl.
Hvar þarftu
að dæla?
Hverju þarftu
að dæla?
Fjölbreyttar, öflug-
ar dælur til flestra
verka.
Réttu dælurnar frá
= HEÐINN =
VELAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJONUSTA-LAGER
ESAB
RAFSUÐU
TÆKI,VÍR
0G FYLGI
HLUTIR
FORYSTA ESAB ER
TRYGGING FYRIR
GÆÐUM OG ÞJÓNUSTU
= HEÐINN =
VÉLAVERSUJN, SI'MI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA- LAGER
ESAB