Morgunblaðið - 14.03.1986, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ1986
29
í sjónvarpsviðtali 2. mai-s sagði Francois Mitterrand, að hægri menn ættu ekki að ferðast um landið
og setja forseta Frakklands kosti.
Stjórnarferill sósíalista:
Fortíðin er þeim
þung í skauti
STÆRSTA eyðan í flatneskjulegri og litlausri kosningabaráttunni
fyrir þingkosningarnar i Frakklandi sunnudaginn 16. mars kemur
í Ijós þegar farið er í saumana á afrekaskrá Sósíalistíiflokksins þau
fimm ár, sem liðin eru síðan hann komst til valda. Ýmsum nægir
að þeir skyldu komast til valda undir slagorðum vinstri-stefnu og
sitja í stjórn ásamt kommúnistum .til 1984 til þess að útiloka þá.
Aðrir segja að helstu mistök sósíaiista hafi verið fólgin í frumlegri
stefnu þeirra þess efnis að Frakkar gætu hafið sig upp úr forarvilp-
unni af eigin rammleik og hún hafi verið fyrirfram dauðadómur
yfir allra þeirra aðgerðum. En hvað hafa sósíalistarnir í raun gert
:landi
etinn yrði að starfa með ríkis-
etta hefur ekki reynt i Frakk-
jómarskrá fimmta lýðveldisins
ns Economist vegna kosninganna.
Sigri hægri menn naumlega
kann Mitterrand að velja þann
kost að fela Laurent Fabius að
starfa áfram sem forsætisráð-
herra.
það til þess, að þeir eru flokks-
bræður. Chirac þarf ekki að haga
sér á sama hátt, enda ekki í sama
flokki og forsetinn.
Chirac var síðast forsætisráð-
herra fyrir 10 árum. Hann sagði
af sér í fussi og lýsti yfir því, að
Giscard d’Estaing, forseti, legði
hömlur á sig. Chirac hóf síðan að
endurskipuleggja hreyfingu gaull-
ista, sem hann tók í arf frá
Pompidou, forseta, sem var læri-
meistari hans í stjómmálum. Bjó
Chirac til flokkinn RPR og er óum-
deildur leiðtogi hans. Vinsældir
Chiracs hafa aidrei verið jafn miklar
og flokksins. Hann er enn að reyna
að afsanna þá gagnrýni, að hann
sé of harðskeyttur og ákafur.
RPR leggur megináherslu á þrótt
æskunnar og kraftmikla þjóðmála-
stjóm. Á veggspjöldum um land
allt má sjá Chirac ganga á skyr-
tunni og með flaksandi slifsi á móts
við ffamtíðina í hópi helstu stuðn-
ingsmanna. Hann hefur hafnað öllu
samstarfi við öfgaflokkinn Front
National. Hann er talsmaður frjáls-
hyggju í efnahagsmálum. í þeirri
stefnu felst mikil breyting frá ríkis-
forsjárstefnunni, sem hann boðaði
fyrir 10 áram. Hann þarf á allri
sinni aðlögunarhæfni að halda og
jaftiframt eðlislægri hörku sinni, ef
hann á að halda sínu gagnvart
snjöllum forseta.
Atkvæði í prósentum greidd í
almpnnnm frnnRlaim knsninnum %
„Th« Intamatlonal Almanac of
Elactoral Hlatory*4.
um. Þeir hafa engin afdráttarlaus
svör um hvemig eigi að bregðast
við atvinnuleysinu, sem þó er í
brennidepli í kosningabaráttu
þeirra. Einnig hefur lagst af að
böm fylgi fordæmi foreldra sinna
og gangi í Kommúnistaflokkinn
eins og eitt sinn var lenska. Allt
útlit er fyrir að framfaraflokkur
Frakka hafi skotið rótum í fortíð-
inni.
í valdastóli?
Þar kennir kynlegra kvista. Eftir
fimm ára sósíalistastjóm þá er
Frakkland að ýmsu leyti betra dæmi
um kapftalisma en áður. Lítið hefur
verið um verkföll í iðnaði vegna
hins mikia atvinnuleysis. Verðbólg-
an hefur hjaðnað mikið vegna þess
að sósíalistarnir gerðu það sem
íhaldið þorði ekki: Afnámu vísitölu-
tryggingu launa.
Kynlegir kvistir
á meiði mótsagna
Vinstri menn hafa hjálpað til við
að vekja upp í svefndrakknum og
rykföllnum sölum kauphallarinnar
í París og breyta henni í miðstöð
fjárfestinga og hagnaðar. Stjóm-
endur þeirra iðnfyrirtækja, sem
Mitterrand hefur þjóðnýtt, hafa
haft frjálsari hendur til að stjóma
þeim og fækka starfsfólki, heldur
en þeir hefðu haft í einkarekstri.
Sá hálfi tugur stórra iðnfyrirtækja,
sem hér um ræðir, skilaði undan-
tekningarlaust hagnaði.
Fleiri mótsagnir koma í ljós: Sós-
íalistamir, sem eitt sinn vora á móti
kjamorkuvopnum, hafa varið kjam-
orkuher Frakka af svipuðu harð-
fylgi og de Gaulle forðum. Stjómin
sýndi Ronald Reagan, Bandarfkja-
forseta, dyggan stuðning þegar
hann þurfti hvað mest á honum að
halda í baráttu sinni fyrir að stað-
setja meðaldrægar eldflaugar í
Evrópu. Francois Mitterrand er
reyndar fullur efasemda um ágæti
geimvamaáætlunar Reagans.
Kommúnistar skutu ýmsum vina-
þjóðum Frakka skelk í bringu þegar
þeir komust til valda ásamt sósíal-
istum 1981, en fyrir kænskubragða
Mitterrands sakir hafa þeir nú verið
vængstýfðir og völd þeirra skroppið
saman í hreina óvera. Eftir að
kommúnistum var bolað úr stjóm-
inni teljast þeir vart lengur til
stærstu flokka Frakklands.
Ekki er beint hægt að segja að
sósíalistar hafi umbreytt Frakk-
landi, þrátt fyrir fyrirheit sín um
endurbætur og breytingar. „Breyt-
ingin á þjóðfélaginu", vinsælt slag-
orð Sósíalista fyrir 1981, var látin
niður falla, sem markmið stjómar-
innar. Slíkar hugmyndir era og
verða fallbyssufóður í kosningabar-
áttu.
Jaf naðarmanna-
stimpillinn
Það getur verið erfitt að strika
yfir fortíðina. Sósíalistar hafa löng-
um forðast jafnaðarmannastimpil-
inn. Það breyttist ekki þegar Laur-
ent Fabius, ungur tæknikrati, tók
við forsætisráðherraembætti af
Pierre Mauroy, dyggum flokks-
manni af gamla skólanum, 1984.
En nú kalla sósíalistar sig jafnaðar-
menn með ánægju og minna um
margt á vestur-þýska Jafnaðar-
mannaflokkinn (SPD) f slagnum
fyrir kosningamar 16. mars.
En fyrir þá, sem hafa meiri
áhuga á árangri en skilgreiningum,
hafa sósíalistamir misst nokkrar
fjaðrir úr hatti sínum vegna at-
vinnuleysisins. Að hluta til er vandi
þeirra sprottinn af loforðum gefn-
um fyrir kosningamar 1981. Margir
kjósendur tóku loforð sósíalista um
að draga úr atvinnuleysi grafalvar-
lega. Upp frá því hefur atvinnuleysi
aftur á móti vaxið um rúman þriðj-
ung og era nú 2,3 miljónir Frakka
atvinnulausar. Það má með rétti
halda fram að þetta atvinnuleysi
sé undir meðaltali í Vestur-Evrópu,
en þau rök afla ekki margra at-
kvæða. Burtséð frá atvinnuleysi þá
er efnahagsstefna sósíalista aftur á
móti í rétta átt.
Dregið úr
stjórnaraf skiptum
Sósíalistastjómin hefur gert
ýmsar breytingar til frambúðar,
sem hún er stolt af. Fremur en að
styrkja tak stjómarinnar, hafa sós-
íalistar dregið úr afskiptum hennar
af daglegu lífi Frakka.
Öldum saman hefur miðstöð
valds í Frakklandi verið í París.
Sósíalistar hafa gert ráðstafanir til
að færa valdið út á landsbyggðina.
Héraðsstjóramir, sem hafa setið
alvaldir í hverri landshlutadeild frá
tímum Napóleons, hafa nú misst
völd sín til að taka ákvarðanir í
héraði. Efnahagsmál og útgjöld era
komin í hendur nefnda í hverri deild
og verður kosið um þær. 16. mars
verður einnig kosið til helstu sveit-
arstjóma í Frakklandi og þeim veitt
völd, sem löngum hafa verið í
höndum ríkisstjómarinnar.
Ríkið hefur misst einokunarrétt-
indi til sjónvarps- og útvarpsrekstr-
ar í stjómartíð Mitterrands. Öldur
hljóðvakans, sem hingað til hafa
verið peð mismunandi þaulsetinna
ríkisstjóma, hafa verið opnaðar
einkarekstri. Og í kjölfar útvarps-
stöðva í einkaeigu sigla óháðar sjón-
varpsstöðvar. Reyndar hefur Mitt-
errand veitt vinveittum auðjöffum
forgang til að reka slíka Qölmiðla
og þar með dregið slagkraftinn úr
þeirri fullyrðingu sinni að stjómin
aðhyllist ekki afskipti.
Réttindi á kostnað
atvinnuleysis?
Nokkrar aðgerðir stjómarinnar
til að bæta lífskjör Frakka hafa nú
verið lögleiddar. Eftirlaunaaldur
hefur verið lækkaður niður í sextíu
ár, vinnuvikan stytt niður í 39
klukkustundir og fimmtu vikunni
bætt við launuð leyfi. Þetta kallar
Mitterrand óvefengjanleg réttindi.
En hægri menn halda fram að með
því að hækka launakostnað kyndi
slíkar aðgerðir undir atvinnuleysi.
Sóslíalistar hafa tvöfaldað fjár-
veitingar ríkisins til menningarmála
í valdatíð hins vinnuglaða menning-
armálaráðherra, Jacks Lang. Her-
ferð hans í menningarmálum tekur
yfir allt frá dansi til teiknimynda-
saga. Líkast til hefur hún ekki
hleypt nýju lífi í listsköpun Frakka
sem slík. En Frakkar hafa getað
svallað í linnulausum listviðburðum
og París er nú aftur orðin keppi
nautur New York í menningarmál-
um.
Ef til vill er dirfskufyllsta breyt-
ingin, sem sósíalistamir hafa komið
á afnám dauðarefsingar þvert á
vilja almennings. Nýlegar skoðana-
kannanir sýna að Frakkar era enn
hlynntir fallöxinni. Robert Badinter,
sem nýverið var gerður að forseta
stjómlagadómstóls Frakklands,
breytti einnig í dómsmálaráðherra-
tíð sinni löggjöf Napóleons með
því að minnka vald dómara og auka
réttindi verjenda.
Einvaldurinn
í Elysée höll
En vinstri menn hafa ekki hróflað
við yfirgnæfandi völdum forsetans.
Mitterrand hefur verið jafn einráður
leiðtogi í Elysée höll, aðsetri Frakk-
landsforseta, og forverar hans af
hægri vængnum. Og það á líkast
til eftir að hjálpa honum þegar og
ef til átaka kemur milli sósíalísks
forseta við þing á valdi hægri
vængsins.
Tónverk-
um stolið
HLJÓMSVEITIN Sonus Futurae
saknar tónverka, sem er afrakst-
ur af vinnu liðsmanna hljómsveit- -
arinnar síðastliðin tvö ár. Tón-
verkin voru samin á tölvuhljóð-
færi og geymd á tölvudiskum,
svokölluðum „diskettum", sem
hurfu þegar brotist var inn í
Valhúsaskóla fyrir nokkru.
Því sem stolið var í Valhúsaskólá
var skilað fljótlega eftir innbrotið
nema umræddum tölvudiskum. Að
sögn liðsmanna hljómsveitarinnar
kemur sér afar illa fyrir hljómsveit-
ina að tapa tónverkunum, enda
liggur að baki þeim tveggja ára
vinna. Sögðu þeir, að enginn gæti
haft not af innihaldi tölvudiskanna
nema þeir sjálfir og báðu því við-
komandi að endursenda verkin.
Siglufjörður:
Prófkjör
hjá Sjálfstæð-
isflokknum
DAGANA 4. og 5. apríl næst-
komandi fer fram prófkjör
Sjálfstæðisflokksins á Siglu-
firði fyrir bæjar- og sveíta1
sljórnarkosningarnar í vor.
Frambjóðendur era: Anna Hert-
vík kaupkona, Axel Axelsson skrif-
stofumaður, Birgir Steindórsson
kaupmaður, Bjöm Jónasson spari-
sjóðstjóri, Georg Ragnarsson vél-
smiður, Guðmundur Skarphéðins-
son framkvæmdastjóri, Haukur
Jónsson skipstjóri, Hreiðar Jó-
hannsson skrifstofumaður, Ingi-
björg Halldórsdóttir læknaritari,
Ingvar Hreinsson skrifstofumaðyr,
Kristín Halldórsdóttir húsfrú, Ómar
Hauksson framkvæmdastjóri, Rafn
Sveinsson flugvallarstjóri, Rósa
Rafnsdóttir húsfrú, Steingrímur
Kristinsson. forstjóri og Valbjöm
Steingrímsson jámsmiður.
Fréttaritari.
Guðrún Helga Sederholm
Elías og örninnr
Saga eftir Guðrúnu
Helgu Sederholm
INNLEND dagskrárdeild
Sjónvarps auglýsti nýlega
eftir hugmyndum að hand-
riti að stuttri sjónvarpsmynd
fyrir börn tólf ára og yngri.
Um tuttugu umsóknir bár-
ust. Fyrir valinu varð sagan
Elías og örninn eftir Guð-
rúnu Helgu Sederholm
kennara.
I fréttatilkynningu frá Sjón-
varpinu segir að Innlend dag-
skrárdeild muni láta vinna kvik-
myndahandrit eftir sögunni. Kvik-
myndun þessa handrits verður síð-
an væntanlega boðin út. Elías og
öminn verður hluti af samnorræn-
um myndaflokki sem sýndur verít-
ur næsta vetur.