Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1986 31 Agústa Gísladóttir verkstjóri Edvard Júlíusson forsljóri Gísli Þorláksson skipstjóri Guðbjörg Eyjólfsdóttir bankagjaldkeri Guðmundur Kristjáns- Jóhannes Karlsson son framkvæmdastjóri vélstjóri Grindavík: Prófkjör hjá Sjálfstæðis- flokknum Kristinn Benediktsson Ólafur Guðbjartsson verkstjóri skrifstofumaður Ragnar Ragnarsson verkamaður Stefán Tómasson rafeindavirki PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Grindavík vegna bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna í vor fer fram um næstu helgi. Kosið verður í Kvenfélagshúsinu við Vikurbraut 21 Grindavík laugar- dag 15. mars kl. 13.00 til 20.00 og sunnudaginn 16. mars kl. 10.00 til 20.00. Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa allir stuðn- ingsmenn flokksins í Grindavík, sem náð hafa 18 ára aldri i komandi bæjarstjóraarkosning- um. Númera skal frambjóðendur í þeirri röð sem menn kjósa, minnst fjóra, annars telst seðill- inn ógildur. Frambjóðendur í prófkjörinu eru tíu, þau Ágústa Gísladóttir verk- stjóri, Edvard Júlíusson forstjóri, Gísli Þorláksson skipstjóri, Guð- björg Eyjólfsdóttir bankagjaldkeri, Guðmundur Kristjánsson fram- kvæmdastjóri, Jóhannes Karlsson vélstjóri, Kristinn Benediktsson verkstjóri, Ólafur Guðbjartsson skrifstofumaður, Ragnar Ragnars- son verkamaður og Stefán Tómas- son rafeindavirki. í núverandi bæjarstjórn Grinda- víkur eiga Sjálfstæðismenn þijá fulltrúa og mynduðu meirihluta ásamt framsóknarmönnum eftir síðustu kosningar. Einn bæjarfull- trúi flokksins Olína Ragnarsdóttir gefúr ekki kost á sér til áfram- haldandi setu í bæjarstjóm á næsta kjörtímabili. (Fréttatilkynning.) Reykjavíkurborg sel- ur íbúðir fyrir aldraða Þjónustumiðstöð á sömu lóð FYRSTU íbúðir fyrir aldraða við Hjallasel í Reykjavík eru nú til- búnar til afhendingar. Fram- kvæmdanefnd vegna bygginga stofnana í þágu aldraðra bauð fréttamönnum að líta á íbúðira- ar, en þær eru 18 talsins, 69 fermetrar hver og er áætlað að Reykjavíkurborg hafi fengið þær allar til afhendingar um mánað- armót apríl—maí. fbúðirnar verða til sölu fyrir aldraða Reyk- vikinga og er u msóknarfrestu r um íbúðimar til 20. mars. íbúðimar em í parhúsum við Hjallasel 19—53. Þeim er skilað fullbúnum, baðherbergi með sturtu, gólfdúkur eða teppi á gólfum, og staðlaðar innréttingar. Sameign og lóð verður fullfrágengin. lbúar parhúsanna njóta starfsemi þjón- ustumiðstöðvar sem er í þriggja hæða húsi á sömu lóð. Upphitaðir göngustígar tengja parhúsin við þjónustumiðstöðina, en þar fer m.a. fram félags- og tómstundastarf, en auk þess gefst íbúum parhúsanna kostur á að kaupa margs konar þjónustu í miðstöðinni, mat, þvott, hárgreiðslu, fótasnyrtingu, böðun, líkamsþjálfun og afnot af kerlaug. Bmnaviðvömnarkerfi er í hverri íbúð parhúsanna, en auk þess er sjúkrakallkerfi í hverrri íbúð með togrofum, kalltæki í öllum her- bergjum og tengist það stjómstöð í vaktherbergi þjónustumiðstöðvar. Umsækjendur verða að hafa búið minnst þrjú ár í Reykjavfk og vera orðnir 63 ára. fbúðimar em seldar á þijár milljónir tvö hundmð tutt- ugu og þijú þúsund, og er heimilt að leggja upp í kaupverð íbúðir sem umsækjendur eiga í Reykjavík. Morgunblaðið/Júlíus Frá vinstri: Hróbjartur Hróbjartsson arkitekt húsanna og Hólmf riður Árnadóttir, Jóna Gróa Sigurðardóttir og Hilmar Guðlaugsson úr framkvæmdanefndinni. Heildsöluútsalan Laugavegi 25 VEFNAÐ- ARVÖRUR — Gluggatjaldaefni — bómullarefni — ullarefni — khaki — popplín — handklæði — ogfleira Opiö til hádegis laugardag Afmælissamkeppni 1986 »Ál«g notkun þess í framtíðinni44 Árið 1886 kom fyrst fram vísir að áliðnaði. í tilefni þessa afmælis efna Samband svissneska áliðnaðarins (VSAI) og tíma- ritið Svissneska álhringsjáin (SAR) til samkeppni meðal þeirra sem kunna að hafa nýjar hugmyndir fram að færa í notkunartækni áls. 1. Viðfangsefni Hægt er að senda inn tillögur sem miðast við nýjar vörur, hönnun, lausn á tilteknum vandamálum og aðferðir sem snerta notkun- arsvið áls, svo sem umbúðir, vöruflutninga, byggingariðnað, raftækniiðnað, vélsmíði o.s.frv. 2. Þátttaka Öllum er heimil þátttaka í samkeppninni. Þátttökueyðublöð ásamt nánari upplýs- ingum fást hjá ÍSAL. Verðlaun í samkeppninni Sérstök dómnefnd velur fjórar bestu tillögurn- ar, sem hljóta eftirtalin verðlaun: 1. Verðlaun u.þ.b. kr. 132.000 (Sfr. 6.000) 2. Verðlaun u.þ.b. kr. 88.000 (Sfr. 4.000) 3. Verðlaun u.þ.b. kr. 44.000 (Sfr. 2.000) 4. Verðlaun u.þ.b. kr. 22.000 (Sfr. 1.000) Skilafrestur 3. 4. Tillögum skal skilað í síðasta lagi mánudaginn 31. marz 1986 (dagsetning póststimpils) til ritstjórnar SAR með eftirfarandi heimilisfangi Ritstjórn Schweizer Aluminium-Rundschau Postfach 978 CH-8034 Ziirich. Símanúmer 00411 /472410. 1886-1986 ÁL f HUNDRAÐ ÁF:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.