Morgunblaðið - 14.03.1986, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 14.03.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1986 wr— VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Rauðhóla-Rannsý frábær sýning M.E. skrifar. Mig langar eingöngu að til að lýsa ánægju minni á gamanfars- anum Rauðhóla-Rannsý. Ég er mikil leikhúsmanneskja og tel mig þar af leiðandi með mjög svo ágæta dómgreind hvað leikhús varðar. Það er sjaldan eða aldrei að leikhúsgestir sýni einhver geðhrif og láti móðan mása. En það gerist á Rauðhóla-Rannsý, hróp hvatningarorð og hlátur, enda bíður þessi sýning bókstaf- lega upp á það. Hún samanstend- ur fyrst og fremst af góðri kímni, spennu og rómantík. Leikaramir, þá sérstaklega Edda Heiðrún Backmann, sýna það og sanna í Rauðhóla-Rannsý að þau geta ekki aðeins leikið heldur einnig sungið, dansað og slegist. Það er einsdæmi að mínu mati. Ég ætla að þakka þessu leikhúsi fyrir ógeymanlega sýningu, gangi ykkur vel. Ungliðasamtök gegn eyðslu og ofstjórn Ágæti Velvakandi. Ég var að lesa grein í blaði sem bar yfirskriftina „Veðsetning fram- tíðar ungs fólks hjá erlendum bankastjórum“, að skuldir þjóðar- innar séu að fara umfram öll eðlileg mörk úr 27% 1981 í 54% 1986 af landsframleiðslu. Það er víst engin ný bóla að við eyðum umfram það sem við öflum. Talað er um ýmsa vankanta á þessu kunningjaþjóð- félagi okkar sem gerir það að verk- um að ungt fólk nýtur ekki ijár- hagslegs sjálfstæðis í framtíðinni, þar sem mestur okkar peningur fer bara í að greiða niður skuldir „góðu“ stjómmálamannanna sem nú eru uppi. Ég er ekki skráður hjá Heimdalli sem mun víst standa að útgáfu fyrmefnds blaðs og ætla mér ekki að skrá mig neinstaðar áður en ég hef aflað mér betri vitneskju um stjómmál. Mér fínnst þetta þó vera gott mál hjá þessu félagi, enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafí ekkert síður en aðrir stjómmálaflokkar skapað þetta ástand. Ég vil koma Það verður ekki hjá því komist að svala forvitni Víkveijans sem skrifaði þann mæta dálk laugardag- inn 22. febrúar síðastliðinn. Þar spyr Víkveiji (og eðlilega svo): „hvers konar fjöldasamtök eru það þeirri tillögu á framfæri að ekki bara þetta eina æskulýðsfélag láti þetta mál til sín taka. Miklu meira mundi vinnast ef ýmis ungliðasam- tök tækju sig saman um baráttu gegn eyðslu og ofstjóm. Nemenda- félögin gætu jafnvel tekið þar þátt. Menntaskólanemi. eiginiega sem kalla sig Litlu bif- hárin?“ Litlu bifhárin em grasrótarsam- tök fyrrverandi reykingamanna sem hætt hafa að reykja á nám- skeiðum Krabbameinsfélagsins í reykbindindi. Samtökin eiga lög- heimili að Skógarhlíð 8, Reykjavík. Allir sem útskrifast af námskeiðum Krabbameinsfélagsins í reykbind- indi, em í raun taldir félagar í samtökunum þó þar sé engin fé- lagaskrá eða stjóm eins og vani er með grasrótarhreyfingar. Hins vegar er tilnefnd „forrót" sem hefur það hlutverk að vera ábyrgur for- svarsaðili hópsins gagnvart Krabbameinsfélaginu. Reynt er að hafa opið hús á miðvikudögum fyrir þá sem þurfa á andlegum styrk að halda. Éðli málsins vegna em virkir meðlimir á hveijum tima fyrst og fremst þeir sem em nýútskrifaðir af námskeiðunum. Starfsemin er því háð nýliðum. Þó starfa fulltrúar frá samtökunum á ýmsum sviðum tóbaksvarna t.d. í RÍS 2000 (sam- tök um reyklaust ísland árið 2000) og sem aðstoðarleiðbeinendur á námskeiðum í reykbindindi. Nafn samtakanna er dregið af hreinsikerfi lungnanna, þ.e. ör- smáum hárlaga fyrirbæmm sem kallast bifhár og bærast eins og komakur í vindi þegar þau sópa óhreinindum burt úr lungunum. Efni í tóbaksreyk lama þessi bifhár með tímanum en þegar fólk hættir að reykja taka þau til starfa að nýju svo framarlega sem engar varan- legar skemmdir hafí myndast, en líkumar á slíkum skemmdum auk- ast með hverri sígarettu sem reykt er. Hana nú og hafíð það og hættið svo að reykja! Ásgeir R. Helgason, fræðslufulltrúi Krabbameinsfélagsins. np*------ ^HEILRÆÐI Hreinsiefni i efri skáp Sú ljóta regla er víðast á heimilum að geyma uppþvottaiegi og önnur hreinsiefni í skápnum undir vaskinum í eldhúsinu. Eins og dæmin sanna eiga böm mjög auðvelt með að ná til þessara efna, þegar þannig er háttað. Það er. slæmur siður að nota neðri skápana undir slík efni. Gerið ráðstafanir strax. Notið frekar efri skápana en best er þó að hafa læstar hrislur. Gerðu þitt heimili hættulaust - bamanna vegna. Litlu bifhárin KR0SSVIÐUR T.d. vatnslímdur og vatnsheldur - úr greni, birki eða furu. SPÓNAPLÖTUR T.d. spónlagðar, plast- húðaðar eða tilbúnar undir málningu. Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket. Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu verði SPARIÐ PENINGA! - Smíðið og sagið sjálf! Plð fáið að sníða niður allt plötuefni hjá okkur í stórri sög - ykkur að kostnaðarlausu. BJORNINN Við erum í Borgartúni 28 UðlKA Halley f heimsókn Nú er þessi fræga halastjarna í nánd og fjöldi könnunarhnatta hafa farið til móts við hana. Af því tilefni er alls konar fróðleikur um Halley. Veðjað á líftæknina í Bandaríkjunum hefur verið varið geysilegum fjármunum til líftæknirannsókna og nú er unnið að lyfjum, sem lofa góðu við krabba- meinslækningar. Með pensil og kjuða jöfnum höndum Spjallað við Gunnar Kristinsson, sem lagt hefur stund á myndlist, músíkterapíu og tón- smíðar fyrir slagverk, en sýnir nú bráðum í Ásmundarsal. Austan um heiði I Séra Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður á Þingvöllum mun skrifa framvegis pistla í Les- bók og birtist sá fyrsti núna. Vönduð og menningarleg helgarlesning AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.