Morgunblaðið - 14.03.1986, Side 55
MQRQUNBLABIÐ, FÖSTUDAGUR U. MARZ19g6 55;
Stolturaf
strákunum
- sagði Einar
Bollason
„ÞAÐ KOM ekkert annað til
greina en að vinna þennan leik.
Það sást strax á fyrstu mínútum
leiksins að Haukarnir mættu
ákveðnir til leiks. Nú voru lika
allir heilir, Pálmar var góður núna
og svona hefðu úrslitaleikirnir
getað orðið ef hann hefði verið
heill í þeim,“ sagði Einar Bollason
þjálfari Haukanna eftir sigurinn í
bikarkeppninni í gærkvöldi en
þetta var síðasti leikur Einars
með Haukana og því skemmtileg
gjöf frá þeim til hans.
„Ég held að þetta hafi verið
verðskuldaður sigur hjá strákunum
en ég var reglulega hraeddur þegar
Valur fékk sína 5. villu því Njarðvík-
ingar höfðu verið að leita að hon-
um allan tímann en við héldum
honum vel niðri og ég var hræddur
um að þegar hann færi útaf þá
færi dæmið að ganga betur hjá
þeim.
Ég vil bara að lokum segja það
að ég er veruiega stoltur af strák-
unum."
Morgunblaðið/Bjami
• Þeir gátu svo sannarlega fagnaA aö leíkslokum, Haukamir. Frá vinstri: Henning Henningsson, Einar Bollason, þjálfari, sem stjórnadi
Haukum ísíðasta sinn f gærkvöldi, og Ólafur Rafnsson.
Haukar bikarmeistarar
HAUKAR bættu sór upp ófarirnar
gegn UMFN í úrslitakeppninni um
Islandsmeistaratitilinn um helg-
ina og sigruðu í æsispennandi
viðureign sömu liða í úrslitum
bikarkeppni Körfuknattleikssam-
bandsins í gærkvöldi með 93 stig-
um gegn 92. Leíkurinn var eins
og úrslitaleikir gerast beztir, vel
leikinn á miklum hraða allan tím-
ann og spennan magnþrungin í
lokin. Haukar höfðu undirtökin
nær allan leikinn en á lokamfnút-
unum tókst Njarðvfkingum með
miklu harðfylgi og baráttu að
jafna leikinn. í hálfleik var staðan
48-45 fyrir Hauka.
Leikurinn var hnífjafn allan fyrri
hálfleik og tókst hvorugu liði að
komast á auðan sjó. Haukar kom-
ust 4-5 stigum yfir undir lokin, en
Njarðvíkingar minnkuðu óðara
muninn. Haukarnir börðust eins
og Ijón og sýndu meiri ákveöni í
leik sínum en Njarðvíkingar. Virtist
það há þeim síöarnefndu hversu
Morgunblaöið/Bjami
• Það var hart barist f bikarúrslitaleiknum í gærkvöldi. Hver hefur
betur?
Valur Ingimundar átti erfitt upp-
dráttar, en Kristinn Kristins tók
hann mikið til úr umferð.
Njarðvíkingar hófu seinni hálf-
leik með því að minnka muninn í
eitt stig, 48-47, en þá tóku Haukar
leikinn í sínar hendur; léku stórvel
í vörn og sókn og skoruöu 10 stig
á tveimur mínútum. Komust Hauk-
ar 11 stigum yfir, 58-47, og virtist
mótspyrna Njarðvíkinga fara
minnkandi. Eftir tæpra fimm mín-
útna leik urðu Njarðvíkingar fyrir
því áfalli að Valur varð að yfirgefa
völlinn með 5 villur. Mótlætið
stappaði hins vegar stálinu í lið
UMFN, sem hóf mikla baráttu fyrir
því aö vinna upp forskot Hauka.
Bilið tók strax að minnka en var
þó lengi vei ekki minna en 4 stig.
Haukarnir virtust þó vera að koma
sigrinum í höfn er röskar 5 mínútur
voru eftir, höfðu þá breikkað bilið
í 83-72.
Njarðvíkingar misstu þó aldrei
Haukar-UMFN
93:92
vonina og lokamínúturnar urðu
æsispennandi, þökk sé sprækustu
mönnum liðsins, Teiti Örlygssyni,
Ellert Magnússyni og Jóhannesi
Kristbjörnssyni. Á hálfri annarri
mínútu hafði liðið minnkað muninn
í 3 stig, 83-80, og tókst því næst-
um að koma Haukum úr jafnvægi.
Haukar komust aftur í 87-82, en
Teitur og Ellert minnkuðu muninn
í 1 stig, 87-86, með stórgóðum
leik er röskar tvær mínútur eftir.
Allt ætlaði síðan um koll að keyra
er Ellert jafnaði, 89-89, þegar rúm
mínúta var eftir. Ætlaði þakið að
rifna af húsinu, slík var stemmning-
in og spenningurinn í höllinni.
Haukar komust síðan í 93-89
þegar 25 sek. voru eftir, en Jó-
hannes minnkaði muninn í 1 stig
með þriggja stiga körfu er 16 sek.
voru eftir. Njarðvíkingar pressuðu
Haukana síðan stíft og náðu knett-
inum, en Haukum tókst að verjast
og vinna naumlega.
Haukarnir virtust ákveðnari í að
vinna þennan leik og vörðu því
bikarneistaratign sína. Auk Webst-
ers áttu Pálmar, Kristinn og Henn-
ing góðan leik. Teitur, Ellert, Helgi
Rafns og Jóhannes Kristbjörns
voru beztir hjá UMFN.
Stig Hauka: ivar Webster 28, Pálmar Sigurðs
24, Henning Hennings 19, Kristinn Kristins
6, Ólafur Rafns 5, Hálfdán Markúss 5, Eyþór
Árna 4 og Ivar Ásgrims 2.
Stig UMFN Jóhannes Kristbjörns 27, Teitur
Örlygs 18, Helgi Rafns 12, Valur Ingimundar
10, (sak Tómasson 9, Ellert Magnúss 8, Krist-
inn Einars 4, Hreiðar Hreiðars 2 og Ingimar
Jóns2. -ágás
Höfðum tök á að vinna
- sagði Gunnar Þorvarðarson, þjálfari UMFN
„ÞETTA var spennandi og
skemmtilegur leikur, því er ekki
að neita, og við höfðum öll tök á
því að vinna leikinn," sagði Gunn-
ar Þorvarðarson, þjálfari Njarð-
víkinga, eftir að hans menn báru
lægri hlut f viðureigninni við
Hauka í úrslitum bikarkeppninn-
ar.
„Það sem mér er efst í huga
mér núna er dómgæslan og þá
sérstaklega hjá Herði. Hann hefur
dæmt frekar lítið í vetur og þó svo
þetta hafi átt aö vera kveðjuleikur
hjá honum þá finnst mér óþarfi að
láta hann dæma svona þýöingar-
mikinn leik.
Við réöum ekkert við Haukana
þegar dómgæslan snérist öll gegn
okkur og mér fannst dómararnir
eindregið á móti okkur en samt
áttum við að geta unnið þennan
leik.
Ég get samt ekki annað en verið
tiltölulega ánægður með veturinn
hjá okkur Njarðvíkingum og óska
„JÁ, VINUR minn, ég er sko
ánægður með þennan leik. Þetta
var sfðasti leikurinn sem Einar
verður með Haukana og við vor-
um ákveðnir f að gefa honum
bikarinn fyrir gott starf hjá okkur.
Það tókst," sagði (var Webster
eftir sigurinn f gær og var greini-
lega mjög ánægður.
Þetta er sjöundi leikurinn okkar
Haukunum bara til hamingju með
sigurinn hér í kvöld," sagði Gunn-
ar.
við Njarðvíkinga í vetur og fyrir
þennan leik var staðan 3:3, þannig
að við komum út úr þessum vetri
með einn sigur í plús.
Annars er ég mjög ánægður
meö veturinn hjá okkur og þessi
leikur hér í kvöld var góður, vel
leikinn af beggja hálfu, og
skemmtilegur."
Góður leikur
- sagði ívar Webster