Morgunblaðið - 23.03.1986, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1986
5
Mikil aðsókn á Fats Domino:
Röddin alveg eins
og í gamla daga
— segir Björgvin Halldórsson, sem
sá Domino í London fyrir skömmu
„ÞAÐ var stórkostleg upp-
lifun að sjá gamla manninn
þarna, í fínu formi og geisl-
andi af lífsgleði,“ sagði
Björgvin Halldórsson, sem
ásamt Olafi Laufdal, var
viðstaddur tónleika með
Fats Domino í Royal Albert
Hall í London fyrir nokkr-
um dögum. Fats verður
með sex tónleika í Broad-
way um miðjan apríl og að
sögn Björgvins hefur að-
sókn á tónleikana verið
með ólíkindum, og uppselt
á þijá þá fyrstu á föstudag,
daginn eftir að fyrsta
auglýsing um forsölu að-
göngumiða var birt.
„Við fórum út til að ganga
frá samningum, því það hefur
verið talsvert mál að koma þessu
heim og saman. Þama er um
að ræða eitt stærsta nafn í allri
rokksögunni og hann er með 15
manna hljómsveit sem þarf að
koma hingað til lands frá New
Orleans," sagði Björgvin.
„Við sáum tvo tónleika með
honum og maður á varla orð
yfir þetta. Það er eins og karlinn
hafí ekkert elst og röddin er
alveg eins og í gamla daga.
Hljómsveitin er líka mjög góð
og ég er viss um að þetta á eftir
að fara vel í landann," sagði
Björgvin ennfremur. „Lögin
komu þama í löngum bunum,
öll frægustu lögin hans. Og bara
að sjá taktana í honum var
kapítuli út af fyrir sig, það geisl-
aði af honum brosið og svo var
„Það er eins og karlinn hafi
ekkert elst,“ segir Björgvin
Halldórsson um Fats Domino,
en þessi nýlega mynd af rokk-
stjörnunni var á dagskránni
frá Royal Albert Hall.
hann með demants- og gull-
hringi á hveijum fíngri. Hann
var alveg sérstakur og koma
hans hingað verður áreiðanlega
einhver stærsti viðburður í sögu
skemmtiiðnaðarins á Islandi."
Ráðinn forstjóri
Iðntæknistofnunar
IÐNAÐARRÁÐHERRA, Albert
Guðmundsson, hefur skipað Pál
Kr. Pálsson forstjóra Iðntækni-
_
Askorun
tekið
eftir Guðmund Magnússon
Andri Isaksson, prófessor í
uppeldisfræði við Háskóla ís-
lands, beinir til min áskorun hér
í blaðinu í gær. Hann óskar eftir
ýtarlegum rökstuðningi fyrir
hinni afdráttarlausu gagnrýni
minni á uppeldis- og kennslu-
fræði, en hún var sett fram
vegna frumvarps menntamála-
ráðherra um lögverndun kenn-
arastarfsins.
Þessi áskorun er réttmæt og
sjálfsagt að verða við henni. Ég hef
óskað eftir því við ritstjóra Morgun-
blaðsins, að ég fái að gera grein
fyrir gagnrýni minni í nokkrum
greinum hér í blaðinu eins fljótt og
auðið er.
Höfundur er blaðamaður á Morg-
unblaðinu.
stofnunar íslands frá og með
1. júní nk. til fjögurra ára.
Samkvæmt ósk dr. Ingjalds
Hannibalssonar hefur ráðherra
veitt honum lausn frá forstjóra-
starfi frá sama tíma en Ingjaldur
verður forstjóri Álafoss hf.
Páll Kr. Pálsson er hagverk-
fræðingur að mennt frá Tæknihá-
skóla Berlínar. Að undanförnu
hefur hann starfað sem deildar-
stjóri tæknideildar Félags íslenskra
iðnrekenda. Páll er 32 ára og
kvæntur Helgu E. Þórðardóttur.
Páll Kr. Pálsson
kemur nu \otem \ írge9ustu
ereína^Z\reruauðv\taftBv>s,
i rokkmu \_ee.
UtleWchardogiemy. fthann
Sa9theíUTSro^*n.
har'9ertP'Seft\rþessum\ó9úm.
Hvermanekk ^Ja|aya, A/n t
Blueberry^' iyWalking, let
TI,3,cASffindSW.»SirÍ
The Four Winas Hegvenf
J°sephlrt/SsRed
When TheSf ntet ,-M
SailslntheSunse -
Ready,Kans unme
Wann>a,kT°“
o.fl.o-fI-
Æ^^811”'77600'-