Morgunblaðið - 23.03.1986, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUflNUDAGUR 23. MARZ 1986
IÞROTTIR UNGLINGA
Islandsmótið íhandknattleik:
Úrslit nálgast
NU UM þessa helgi, 21.—23. mars, faest endanlega úr því skorið
hvaða lið koma til með að leika í úrslitakeppnum yngri flokka íslands-
mótsins í handknattleik. Úrslit liggja þegar fyrir í nokkrum riðlum
mótsins og hefur unglingafþróttasíðan fregnað af nokkrum þessara
úrslita. í 6. flokki karla hafa ÍA og UMFA tryggt sór þátttökurótt í
úrslitakeppninni. Fram, Grótta, Valur og Selfoss munu ásamt 4 öðrum
liðum berjast um íslandsmeistaratitilinn í 4. flokki pilta. í 3. flokki
stúlkna hafa borist lokaniðurstöður úr ölium riðlum nema A-riðli sem
fresta varð vegna þess að Vestmannaeyjaliðin komust ekki til keppni
um sfðustu helgi. Þau lið sem þegar hafa tryggt sór þátttökurótt f
úrslKunum eru Vfkingur, FH, Haukar, ÍBK, ÍR og UMFN. Stjarnan,
HK, Haukar, UBK, ÍR og Selfoss hafa tryggt sór sœti í úrslitunum í
3. flokki pilta.
Urslitakeppnirnar munu fara
fram 1. og 2. helgina eftir páska
og að öllum líkindum munu þær
allar fara fram í Reykjavík í tilefni
200 ára afmælis borgarinnar.
Mikill darraðardans
í 3. flokki kvenna D-riðli höfðu
þrjú lið möguleika á að hreppa
annað þeirra tveggja efstu sæta
sem veita rétt til þáttöku í úrslita-
keppninni þegar seinasta umferðin
í riðlakeppninni var hálfnuð. Þessi
lið eru Grótta sem eru núverandi
íslandsmeistarar i þessum flokki,
ÍR og Njarðvík.
Það var því oft mikill darraðar-
dans í íþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi þegar þessi seinasta umferð
fór fram því hvert stig gat ráðið
úrslitum.
Gróttustelpurnar, sem flestar
eru á yngra árinu í flokknum, stóð-
ust ekki þessa spennu og í leiknum
við Grindavík náðu þær aldrei að
sýna sannfærandi leik þannig að
Grindvíkingarnir sem voru frískar
og fullar leikgleði höfðu alltaf
undirtökin í leiknum. Þessum leik
lauk með sigri Grindvíkinganna 5
mörk gegn 3.
Þegar þessi úrslit lágu fyrir
brutust út mikil fagnaðarlæti hjá
ÍR-ingum og Njarðvíkingum því
þau þýddu að úrslitakeppnissætin
tvö voru þeirra.
ÍR-stúlkurnar vildu samt sanna
að þær væru þess fullkomlega
verðar að taka þátt í úrslitunum
og í leiknum gegn Reyni, sem var
spilaður eftir að Ijóst var að (R-
stúlkurnar voru öruggar í úrslit,
börðust þær grimmilega.
í þeim leik spiluðu þær mjog
sterka vörn en voru þó fullgrófar
á stundum. Að baki þessari vörn
var Unnur markmaður í gifurlegu
„stuði" og varði oft ótrúlega. í allt
varði hún 12 skot í leiknum þar
af 2 vítaskot.
Haukar efstir
í A-riðli 3. flokks pilta urðu
Haukar efstir en það lið er skipað
mjög skemmtilegum og jöfnum
handknattleikspiltum. Fyrir síðustu
umferð riðilsins höföu Haukamir
svo gott sem tryggt sér úrslitasæti
og voru þeir oft á tíðum kærulausir
í þessari síðustu umferð. Þeir spil-
uðu sóknarleikinn mjög skemmti-
lega en voru latir og áhugalausir
ivarnarieiknum.
Þetta var mjög áberandi í leik
þeirra gegn Njarðvíkingum þó svo
að þeir sigruðu í þeim leik 22—18.
Það eru Breiðabliksstrákamir
sem fara með Haukunum í úrslita-
keppnina úr þessum riðli en þeir
strákar eiga mjög misjafna leiki
geta unnið hvern sem er en líka
tapað fyrir hverjum sem er.
Morgunblaðið/VIP
• Hjálpl Lárus Halldórsson UBK og Svavar Gfslason Njarðvik fóma
höndum og horfa óttaslegnir á handboftann sam nálgast á ógnar-
hraða.
Olafur Þórðarson:
Hefur
gengið
upp og
ofan
MARKMAÐUR Hauka f 3. flokki
pilta heitir Ólafur Þórðarson og
eru þau ófá skotin sem hann
hefur varið f vetur. Ólafur er hóg-
vær og geðþekkur iþróttamaður
og skyldi engan undra þó hann
ætti eftir að ná langt.
Ekki vildi pilturinn sá spá mikið
um möguleika liðs síns í úrslita-
keppni Islandsmótsins: „Það kem-
ur í Ijós. Kr, Stjarnan og Selfoss
eru öll mjög sterk lið,“ var það
eina sem hann hafði um það mál
að segja, greinilega meðvitaður
um að fæst orð bera minnsta
ábyrgð.
„Við höfum verið kærulausir í
þessari síðustu umferð og tapað
bæði fyrir UBK og FH, en annars
er þessi riðill frekar auðveldur. Það
ætti þó ekki að koma að sök í úr-
slitunum því þjálfarinn okkar hefur
passað vel uppá að fá æfingaleiki
við sterkari liö þannig að við
kæmum sem best undirbúnir í úr-
slitin."
Ólafur sagði að þessir æfinga-
leikir hefur gengiö upp og ofan,
t.d. hefði gengið mjög illa á móti
Stjömunni.
Að loknu þessu spjalli var Ólafi
þakkað fyrir og óskað góðs gengis
t úrslitakeppninni.
RAGNHEIÐUR Jóhannesdóttir,
fyríiiiðl 3. floks ÍR f handbolta,
var tekin tali eftir að Ijóst var að
hún og stöllur hennar höfðu
unnið sér rétt til að leika f úrslita-
keppni íslandsmótsins f hand-
knattleik.
Ragnheiður var að sjálfsögðu
kát og hress svo og hinar ÍR-stúlk-
urnar sem vöppuðu í kringum
okkur og gættu þess að fyrirliði
þeirra segði nú satt og rétt frá.
„Það hefur verið mikill stígandi
í þessu hjá okkur og við höfum
smátt og smátt fikraö okkur upp
stigatöfluna í riðlinum. Það er ekki
síst að þakka þeirri frábæru þjálfun
sem við höfum fengið í vetur að
við erum á toppnum núna þegar
mest ó reynir. Eftir 1. umferðina
vorum við í 4. sæti í riðlinum, í 2.
sæti eftir 2. umferð og núna höfum
við tryggt okkur sæti í úrslitunum,"
sagði Rangheiður um gengi liðs
síns í vetur.
ÍR-stelpurnar- kváðust vera
bjartsýnar um gott gengi í úrslita-
keppninni og töldu að Týr úr Vest-
mannaeyjum yrði þaö lið sem
kæmi til með að reynast þeim
erfiðast í þeirri keppni, „en það
er svo frábær liðsandi hjá okkur
að þetta veröur ekkert mál“, bætti
Ragnheiður við sposk á svip.
Stöðug stígandi
- segir Ragnheiður Jóhannesdóttir fyrirliði 3. fl. ÍR
• Ólafur Þórðarson markvörður
handknattleiksliðs Hauka f 3.
flokld hefur varið mörg skotin á
þvf íslandsmóti sem nú er að
Ijúka. Uð hans er komið f úrslrt
en Ólafur var fámáll þegar hann
var spurður um möguleika Hauk-
anna f þeirri keppni. Vildi greini-
lega láta verkin tala frekar en
eitthvað annað.
Eldhressar ÍR-stúlkur. Fremri röð frá vinstri: Kristfn B. Aðalsteinsdóttir, Ragnheiður G. Jóhannesdóttir,
Unnur H. Jóhannsdóttir, Magnea Sverrisdóttir, Elfsabet L. Þórðardóttir. Aftari röð frá vinstri: Sólveig
Hólm, Drífa Tryggvadóttir, Unda B. Jónsdóttir, Erla Magnúsdóttir, Matthías Matthfasson, þjálfari, Svava
Sigurðardóttir, Þorbjörg Margeirsdóttir, Anna K. Sveinsdóttir. Á myndina vantar Þorstein Guðmundsson,
þjálfara.