Morgunblaðið - 06.04.1986, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986
33
Afmæliskveðja:
Eyjólfur Magnús-
son í Múla
Þann 16. feb. 1986 átti gamall
og traustur vinur minn, Eyjólfur
Magnússon, níræðisafmæli. í því
tilefni var honum haldið samsæti á
Hótel Loftleiðum og var þar margt
valinkunnra manna saman komið
til að hylla öldunginn.
Ég ætlaði fyrir löngu að vera
búinn að minnast þessara tímamóta
í lífi hans, með lítilli blaðagrein, en
sökum mikilla anna hefi ég ekki
komið því fyrr í verk. Það má segja
að betra sé seint en aldrei.
Eyjólf Magnússon man ég fyrst
árið 1924, þá þau kona hans Ingi-
björg Hákonardóttir fluttu að Múla
í Gufudalshreppi. Bæði voru þau
af þekktum breiðfirskum ættum,
hún frá Reykhólum, af ætt Bjama
Þórðarsonar, sem var talinn mikill
búhöldur og gerði hann garð fræg-
an, en Eyjólfur af hinni alkunnu
Svefneyjarætt. Langafi Eyjólfs var
Eyjólfur Einarsson, víkingur í lund,
kallaður Eyjajarl, þjóðsagnaper-
sóna þegar í lifanda lífí.
Þegar Eyjólfur Magnússon var
að alast upp í Svefneyjum voru
Breiðafjarðareyjar í byggð og
rausnarbúskapur á þeim flestum
eins og bestur var á landinu. Vand-
ist Ejrjólfur snemma sjómennsku
og lærði ágæta vel að stjóma fleytu
á kröppum sjóum Breiðaijarðar. Á
unglingsámm hans skartaði fjörð-
urinn hvítum seglum þar sem fóru
sjósóknarar og fólk í öðmm ferðum.
„Nú sjást ekki lengur seglin hvít
sjóndeildarhringinn tjalda."
Það fór töluvert mikið fyrir komu
ungu hjónana að Múla. Mér, krakk-
anum, fannst mikið tii um að sjá
trausta fleytu hjónanna sigla inn
fjörðinn og taka land í Múla í Kolla-
fírði. Sá bær er með fallegri býlum
í Austur-Barðastrandarsýslu.
Bærinn stendur á bungumynd-
uðu túni, í breiðu og grösugu dals-
mynni, skammt frá árósnum. Til
beggja handa dalsins gnæfa við
himin tíguleg fjöll eins og risar á
verði, í þeim búa helgar vættir.
Þegar ungu hjónin fluttu að Múla
var jörðin í eyði og hafði svo verið
í nokkur ár. Túnið stórt á gamla
vfsu, en komið í órækt, stór og
gamall torfbær og peningshúsin vítt
og breitt um túnið, hvert með sínu
nafni, en allt í niðumíðslu. Það
fyrsta sem þau urðu að gera var
að gera við bæðinn svo hægt væri
að flytja inn. Það vom undur og
býsn hvað það tókst vel að gera
við bæinn. Gamli bærinn fékk nýtt
líf og sína fyrri reisn. Sama árið
vom ný fjárhús byggð úr steini, þau
tóku um 120 fjár. Það vom fyrstu
húsin sem byggð vom í sveitinni úr
steini og standa þau enn. Þótti þetta
í sveitinni mikið framtak. Og svo
liðu árin og búið var vel í Múla og
fallega.
Búið afurðagott, enda átti Eyj-
ólfur fallegar skepnur og kunni að
fara vel með þær. Sérstaklega man
ég hestana hans Eyjólfs, bæði drátt-
arklára og reiðhesta. Hann hirti þá
af alúð og kemmdi þeim og breiddi
yfír þá hæmr, þegar heim var komið
úr köldum og erfíðum ferðum og
hrossin hrakin og sveitt. Já, alúð,
snyrtimennska og myndarskapur
var aðalsmerki Eyjólfs bónda
Magnússonar og konu hans, Ingi-
bjargar Hákonardóttur í Múla.
En fyrstu kynni mín af hjónunum
í Múla vom veturinn áður en ég
fermdist. Eyjólfur var þá formaður
skólanefndar. Nokkmm af okkur
krökkunum var komið fyrir í Múla
og sóttum við skóla á næsta bæ,
að Eyri, en þar bjó kennarinn. Ég
kveið mikið fyrir því að fara að
Múla. Þar var fínt heimili að sagt
var og ég man, hvað lágt var á
mér risið, þegar ég rölti heim í
hlaðið í Múla, þetta haust. En í
Múla var mér tekið einstaklega
vel. Ekki síst af húsmóðurinni, ég
held og ég veit að hún skildi þennan
peyja, þessu hef ég aldrei gleymt
og þær em einhveijar þær bestu
minningar sem ég á. Eftir nokkra
daga vom öll leiðindi horfín og góð
kynni hófust með mér og bömum
þeirra hjóna, sem öll vom á
bernskuskeiði.
Eins og áður er sagt átti kennar-
inn heima að Eyri. Hann kenndi í
tveimur hreppum þennan vetur, til
skiptis. Húsmóðirin Ingibjörg í Múla
bauð mér að vera einn til tvo mán-
uði hjá sér um miðjan veturinn og
það var fallega boðið og ég lastaði
það ekki að vera hjá henni. Hún
hjálpaði okkur einatt við lestur og
nám, undir hennar handleiðslu náði
ég miklum árangri. Henni var eink-
ar vel lagið að kenna, var mjög
hneigð fyrir það, og ég hefí sagt
það við vini mína, sem ég hef síðar
kynnst á lífsleiðinni, þegar Ingi-
bjargar húsfreyju í Múla hefur verið
minnst, að hún hafí verið kennari
og æskulýðsleiðtogi af guðs náð.
Hún hefði þurft að hafa unglinga-
skóla sem tók við af bamaskóla,
þá hefði hún getað notið sín, það
hefði þurft að skapa henni þau
skilyrði.
Þau hjón i Múla höfðu síðar á
búskaparárum sínum smá skemmt-
anir heima í Múla. Þessi gleðskapur
var ákaflega vel þeginn og vel sótt-
ur. Húsbóndinn spilaði á harmoniku
en hún kenndi okkur unglingunum
að dansa, og að þeirri kunnáttu ef
ég má orða það svo, bjuggum við
lengi eða kannski alltaf.
Árið 1945 bmgðu Eyjólfur og
Ingibjörg búi og fluttust á brott.
En þá vom miklir umbrotatímar,
unga fólkið hélt suður og foreldr-
arnir sátu eftir, uns þeir fóm líka.
Þannig fór fyrir fólkinu í Múla.
Þessu svipaði til Vesturfaranna á
sínum tíma. Við vomm nokkur, sem
stóðum eftir, töldum okkur hafa
einhveiju hlutverki að gegna eða
döguðum uppi. Við söknuðum sveit-
unga okkar en héldum þá stundum
hafa blindast af bláma fjarlægðar-
innar, eða eins og gömlu mennimir
orðuðu það, fjarlægðin gerir fjöllin
blá og mennina mikla. Við fögnuð-
um mörgum burtflognum sveitung-
um okkar, þegar þeir komu í heim-
sókn síðar meir, akandi á sæmileg-
um vegum þar sem áður var veg-
laust eða gamlar hestagötur.
Margt hafði líka gerst á öðrum
sviðum, í umbótamálum, sérstak-
lega á sviði ræktunar. Búið að slétta
gömlu túnin, og ný lönd tekin til
ræktunar, jafnvel í stórum stíl, enda
runnin upp vélaöld eða tækniöld.
En á stundum of geyst farið, menn
kunnu sér ekki hóf með stórvirkum
vélum og ekki vandað sem skyldi.
Þetta byggðarlag er nú að mikl-
um hluta komið í eyði, þó er enn
búið í Múla, ung hjón og myndarleg-
ur systkinahópur, sem vonandi
standa af sér stormana og umbrot-
in.
Ég hef farið hér fljótt yfír sögu
vina minna, Eyjólfs Magnússonar
og Ingibjargar Hákonardóttur. Hún
er horfín, en hann stendur enn
fallegur og em níræður. Ég óska
fólki hans brautargengis og megi
æðra ljós lýsa Eyjólfí á ævikvöldi.
Jóhannes Arason
Vissir þú að nú hefur Goða-vörunum verið gefið nýtt og spennandi bragð -
og ekki bara það:
Á undanfömum mánuðum hefur verið unnið að róttækum breytingum á framleiðsluvömm Goða undir
kjörorðinu „breyttir tímar - betra bragð“, enda var tilgangurinn sá að koma til móts við nútímakröfur
neytenda um gæði og bragð.
Nýjar vórutegundir
nýjar og spennandi vörutegundir hafa litið dagsins
ljós, svo sem sérrí-skinka, graflamb og raftaskinku-
paté
hafin er framleiðsla á fitusnauðu áleggi, m.a. hangi-
áleggi með minna en 5% fituinnihaid.
Meiri gæði
* nákvæmari flokkun hráefnis tryggir að frávik frá
innihaldslýsingu einstakra vörutegunda séu í lágmarki
* nýjar og vandaðar pakkningar varðveita bragðið alla
leið á matborðið
Betra bragð
* valinkunnir sælkerar hafa gefið einstökum vöruteg-
undum nýtt og spennandi bragð með notkun ferskra
kryddjurta
s&sssssíSSSsssssssssssss
_■_■_■■■_
. : i ' í
Og nýja bragðið - það svíkur engan!
i
<
5