Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 5
'MORGUNBLAÐIÐ; PÖS-Í-UDAGIÍRIS. AERlLÍ98'6
5
Söng-varamir Pálmi, Helga og Eiríkur með hjálparhellu sinni á
myndbandinu, Svandísi Þorvaldsdóttur.
ICY um Evrópu — á
kynningarmyndbandi
UNDIRBUNINGUR fyrir söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Ev-
rópu er haldin verður í Bergen 3. maí er á lokastigi. Plata með
laginu, „Gleðibankinn", hefur verið gefin út, kynningarmynd-
bandinu sem unnið var fyrir íslenska sjónvarpið hefur verið
dreift til allra þátttökulandanna 20, þar sem það verður sýnt á
næstunni og ákveðið hefur verið að Dóra Einarsdóttir muni
hanna búningana sem ICY-söngflokkurinn íslenski klæðist i
lokakeppnmm.
íslenskir sjónvarpsáhorfendur
munu fá að sjá íslenska mynd-
bandið, sem fengið hefur góða
dóma, næstkomandi sunnudag,
þegar fyrsti þátturinn af fjórum
þar sem öll lögin verða kynnt,
birtist á skjánum. Hinir þættimir
þrír verða síðan sýndir 22. 25. og
27. apríl. Á blaðamannafundi sem
haldinn var í gær sagði Egill
Eðvarðsson hjá Hugmynd er
framleiddi myndbandið í sam-
vinnu við Saga Film hf. fyrir ís-
lenska sjónvarpið, að þegar fyrir-
tækið hefði ákveðið að taka þetta
verkefni að sér í byijun janúar,
hefðu allir verið sammála um að
leggja mikla áherslu á að gera
þetta myndband sem best úr
garði. Því væri ætlað að vera
skemmtilegt og vel gert tónlistar-
myndband og einnig að vera góð
landkynning, þótt ekki væri mikið
um landslagsmyndir. Fyrirséð
hefði verið að kostnaður yrði tölu-
verður. Því hefði verið leitað til
nokkurra fyrirtækja og hefðu
Búnaðarbankinn, Eimskipafélag-
ið, Ferðamálaráð, Landsbankinn,
Osta- og smjörsalan, Samvinnu-
bankinn, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins séð ástæðu til að
„leggja inn“ í Gleðibankann, ef
svo mætti að orði komast. Kostn-
aður við gerð myndbandsins hefði
verið rétt undir áætluninni sem
hefði verið um 1,2 milljónir króna.
Upptökur fóru fram við Svarts-
engi, í upptökusal Aðstöðu og
lokavinnsla í Molinare Studio í
London þar sem framin voru
tæknileg „undur", sem ekki var
hægt að koma við hér heima.
Snorri Þórisson tók myndina, en
hann og Egill Eðvarðsson sömdu
handrit og önnuðust klippingar.
Leikmyndir gerði Bjöm Bjöms-
son, búninga Dóra Einarsdóttir,
förðun annaðist Ragna Fossberg,
Sóley Jóhannsdóttir aðstoðaði við
dansa, en þar koma við sögu auk
söngvaranna 22 ungir dansarar.
Svandís Þorvaldsdóttir, 8 ára
gömul Reykjavíkurmær hefur
einnig stóru hlutverki að gegna á
myndbandinu. Er ekki að efa að
ljóðlínumar „Tíminn líður hratt á
gervihnattaöld" mun hljóma víða
á næstunni og reynast sannmæli,
lokakeppnin- verður mnnin upp
fyrr en varir.
Hús og lóð Ham-
ars hf. til sölu
HÚSEIGNIR og lóðir Hamars hf.
í Borgartúni 26 í Reykjavík eru
til sölu.
Þessar eignir em: Fimm skemm-
ur, samtals 2.290 fermetrar, skrif-
stofubygging á tveimur hæðum,
samtals 780 fm og byggingarréttur
fyrir þriðju hæðina fylgir. Auk
þessa byggingarréttur að 2.000 fm
skrifstofubyggingu og byggingar-
réttur að 3.000 fm byggingu. Eign-
unum fylgir 15.000 fm lóð.
Eignimar seljast í einu lagi eða
hlutum og samkvæmt upplýsingum
Eignamiðlunar, sem hefur eignimar
til sölu, er miðað við, að þær kosti
70 til 80 milljónir króna, ef keyptar
em í einu lagi.
Eftirfarandi upplýsingar fékk
Morgunblaðið frá Þórði Gröndal,
stjómarformanni, og Skúla Jóns-
syni,_ framkvæmdastjóra:
„Á síðasta hausti keypti Hamar
hf. hlut Vélsmiðjunnar Héðins hf.
í Stálsmiðjunni hf., en þessi fyrir-
tæki hafa átt Stálsmiðjuna sameig-
inlega frá stofnun hennar. í kjölfar
þessara kaupa var ákveðið að
sameina smiðjurekstur beggja fyrir-
tækjanna í húsakynnum Stálsmiðj-
unnar. Við þetta næst margvísleg
hagræðing í rekstri og húseignir
Stálsmiðjunnar nýtast betur.
Þar sem aðalstarfsemi smiðjunn-
ar lýtur að skipaviðgerðum var talið
augljóst hagræði að flutningi að
vesturhöfninni, þar sem allar skipa-
viðgerðir í Reykjavík fara fram.
Náin samvinna hefur lengi verið
milli Slippfélagsins í Reykjavík hf.
og Stálsmiðjunnar hf. og kemur
þessi breyting væntanlega til með
að styrkja þá samvinnu enn frekar,
enda liggja lóðir fyrirtækjanna
saman.
Hamar hf. á verulegar eignir í
Borgartúni 26. Þar er um að ræða
mjög stóra lóð auk verkstæðis-
bygginga. Eftir sameininguna nýt-
ast þessar eignir ekki nema að mjög
litlu leyti fyrir rekstur Hamars.
Því hefur verið ákveðið að losa
þann hluta eignanna sem ekki er
þörf fyrir, og hefur Eignamiðlun-
inni, Þingholtsstræti 3, verið falið
að selja allar eignimar í Borgartúni
26.“
Ríkismat sjávarafurða:
Aðeins lakasta fiskinum
landað í Vestmannaeyjum?
— Betri f iskurinn f luttur utan í gámum
í ljós í Keflvík, Hellissandi, Ólafsvík
og Grundarfirði.
Þá er í fréttabréfinu rætt um þá
SAMKVÆMT matsnótum Ríkis-
mats sjávarafurða er fiskur, sem
kemur til mats í Vestmannaeyj-
um mun lakari en fiskur, sem
metinn er í Þorlákshöfn. Enn-
fremur kemur þar fram mun
meiri afii í Þorlákshöfn en Eyj-
um. Þetta er talið eiga rætur sín-
ar að rekja til mikils gámaút-
flutnings frá Eyjum og sé bezti
fiskurinn fluttur út með þeim
hætti en lakari fiskinum landað
til vinnslu heima, en gámaf iskur-
inn kemur ekki í matið. Því eru
aflatölur samkvæmt því villandi
hvað heildina varðar.
Í íjórða fréttabréfí Ríkismatsins
er að vanda fjallað um gæði landaðs
afla úr netum. Þar kemur fram
mikill munur á gæðum eftir því hve
lengi netin liggja ódregin í sjó. Mjög
verulegur munur er á gæðum físks,
sem dregin er eftir eina nótt annars
vegar og tvær til þtjár hins vegar.
Kemur þetta glögglega í ljós, þegar
helgarfrí eru, en eftir þau fer mun
lægra hlutfall físksins í fyrsta flokk
en aðra daga er dregið er daglega.
í síðustu viku kom þetta glögglega
o
INNLENT
tilhneigingu sjómanna að henda
lakasta fískinum í sjóinn í stað þess,
að koma með hann að landi. Versti
fískurinn, tveggja og þriggja nátta,
er nánast verðlaus eftir að skreiðar-
verkun lagðist niður. Því er þeirri
spumingu varpað fram á hvaða hátt
megi tryggja að allur fiskur komi
að landi, en verðlaus fiskur skerði
ekki aflakvótann. Ennfremur er
spurt hvort réttlætanlegt sé að láta
net liggja lengur ódregin í sjó en
einn sólarhring, sé vegna veðurs
hægt að koma í veg fyrir það.
Einars Ágústs-
sonar minnst í
Kaupmannahöfn
— fjölmargir komu í íslenska sendiráðið
og rituðu nöfn sín í sérstaka bók
FJÖLDI manns Iagði leið sina i
sendiráð íslands í Kaupmanna-
höfn í gær til að minnast Einars
Ágústssonar sendiherra sem lést
i Kaupmannahöfn aðfaranótt
iaugardagsins 12. apríl.
Sérstök bók liggur frammi í
sendiráðinu og vottaði fólkið minn-
ingu hins látna virðingu sína með
því að rita nöfn sín í bókina. Bókin
liggur einnig frammi í sendiráðinu
í dag.
Minningarathöfn um Einar
Ágústsson fór fram í Kaupmanna-
höfn á miðvikudaginn. Viðstaddir
vom meðal annarra sendiherrar
hinna Norðurlandanna, utanríkis-
ráðherra Danmerkur sem var full-
trúi dönsku ríkisstjómarinnar og
fulltrúi erlendra sendiherra í Kaup-
mannahöfn.
Útför Einars Ágústssonar sendi-
herra verður gerð frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 22. apríl.
S em
• MeðaklœðiWBmfa p m.890 -
m
KRISTJÁn SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870