Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 44

Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 44
í MORGÖNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGURIÖ. ÁPRÍL1986 144 Minning: Valgerður Erlends■ dóttir, Hafnarfirði Fædd 17. sept 1894 Dáin 8. apríl 1986 í dag er Valgerður Erlendsdóttir til moldar borin í Hafnarfirði. Hún var fædd 17. sept. 1894 að Amar- stöðum í Flóa og var því á nítugasta og öðru aldursári, er hún andaðist 18. aprfl sl. Foreldrar hennar voru hjónin Gróa Bjamadóttir og Erlendur Jónsson, sem þá bjuggu á Amar- stöðum. Valgerður var elst af flórum bömum þeirra hjóna. Hin vom Sigríður, húsmóðir í Hafnarfirði, sem nú er ein systkinanna eftir á lífi, Bjami, trésmíðameistari í Hafn- arfírði og Guðmundur, vélstjóri, sem einnig var búsettur í Hafnar- firði. Þegar Valgerður var á bams- aldri, fluttu foreldrar hennar til Hafnarfjarðar og bjuggu þar síðan. Valgerður giftist 10. október 1914 Jóel Ingvarssyni skósmíða- meistara í Hafnarfirði. Bjuggu þau allan sinn búskap við Strandgötuna í Hafnarfirði og vom oft kennd við f Arahús. Þau hjónin eignuðust átta böm. Þijú fyrstu bömin misstu þau ný- fædd og fjórða bamið, Herdísi misstu þau ellefu ára gamla. Fjögur bamanna náðu fullorðins aldri og em öll á lífi. Þau em Ingibjörg, húsmóðir í Reykjavík, gift undirrit- uðum. Geir, kaupmaður í Hafnar- firði, kvæntur Lóu Bjamadóttur, Friðrik, prentsmiðjueigandi í Hafn- arfírði, kvæntur Valdísi Guðjóns- dóttur, og Gróa, húsmóðir í Garðabæ, gift Jóni P. Jónssyni forstjóra. Auk sinna eigin bama ólu þau Valgerður og Jóel upp tvö fóstur- böm þau Kristínu Guðmundsdóttur, húsmóður í Hafnarfirði, gifta Bjama Þórðarsyni, tryggingafræð- ingi, og Erlend Guðmundsson, flug- stjóra, búsettan í Garðabæ, kvænt- an Kristínu Gunnlaugsdóttur. Vom þau böm Guðmundar, bróður Val- gerðar, en hann missti konu sína frá bömunum komungum. Valgerður missti mann sinn 9. júní 1975. Nokkra síðar fluttist hún að Hrafnistu í Hafnarfírði og dvaldi þar til dauðadags. Með Valgerði er fallin frá mikil merkiskona. Hún lifði langa ævi og skilaði miklu og góðu ævistarfi. Hún veitti forstöðu stóm alþýðu- heimili þar sem ekki vom alltaf óþrjótandi allsnægtir fyrir hendi. A þeim ámm var oft þröngt í búi á alþýðuheimilum. En hjónin vom samhent og lögðu oft hart að sér tii að sjá bamahópnum farborða. En Guðs blessun hvfldi yfir heimil- inu í Arahúsi. Mjölskjóðan varð aldrei tóm og viðsmjörið í krúsinni þraut ekki frekar en hjá ekkjunni í Sarepta forðum. Á heimilinu ríkti einstök gest- risni. Þar vom opnar dyr fyrir vini og vandamenn, bæði nágranna og lengra aðkomna. Heimilið í Arahúsi var mikið menningarheimili. Þar vom oft rædd alvarleg mál, þar ríkti einnig sönn gleði og þar var oft sungið dátt. Þau hjónin Valgerður og Jóel vom samhent í því sem öðra. Jóel var formaður KFUM í Hafn- arfirði nær frá upphafi til dauða- dags. Það merka starf var mjög samtengt heimilinu í Arahúsi. Þar var séra Friðrik heimilismaður í hinum fjölmörgu ferðum sínum til fundarhalda í Hafnarfirði og þar var féiagsfólk hvaðanæva að au- fúsugestir. Valgerður tók einnig mikinn þátt í félagsstarfí. í æsku kynntist hún starfi KFUK og tengdist því ævi- langt. Var hún lengi í stjóm þess félags. Hún söng í áratugi, ásamt manni sínum, í söngkór kirkjunnar, fyrst í Garðakirkju og síðan í Hafn- arfjarðarkirkju. Hún tók þátt í starfí kvenfélagsins Hringsins og sjálfstæðiskvennafélagsins Vor- boðans um langt skeið. Þrátt fyrir margvísleg félagsstörf utan heimilisins, bám þau hjónin ríka umhyggju fyrir velferð bama sinna og sálarheill. Bömin vom þeirra dýrmætasta eign. Hjónin þekktu sjálf hvers virði lifandi trú er. Allt frá æsku höfðu þau þekkt mátt bænarinnar og hvflt í trúnni á frelsarann Jesúm Krist. Áður en Jóel dó, bað hann um að þetta vers eftir Hallgrím Péturs- son yrði sungið við útför sína: Hafðu, Jesú mig í minni, mæðu og dauðans hrelling stytt, böm mín hjá þér forsjón finni, frá þeim öllum vanda hritt, láttu standa á lífsbók þinni líka þeirra nafn sem mitt Það verður einnig sungið við út- för Valgerðar í dag. Þannig báðu þau hjónin bæði fyrir bömum sínum. Þau vom umvafin fyrirbænum elskandi for- eldra. Þau vom bænaböm og bless- un fyrirbænarinnar hefur fylgt þeim fram á þennan dag og mun fylgja þeim, bömum þeirra og bamaböm- um um ókomin ár. Valgerður var mikil glæsikona á velli, beinvaxin og tíguleg allt til hins siðasta. Hún átti fagra elli og var alltaf kærkominn gestur á heimili bama sinna og vina. Hún prýddi ávallt hvem þann hóp sem hún fyllti. Síðasta árið, sem hún lifði, var heilsan loks með öllu þrotin. Síðustu mánuðina lá hún rúmföst og þráði hvfldina. Þá naut hún dásamlegrar um- hyggju bama sinna og ekki síður starfsfólksins á hjúkmnardeildinni á annarri hæð á Hrafnistu. Fyrir þá umhyggju er nú þakkað. Nú er Valgerður kvödd með trega og söknuði og við blessum minning- una um góða og göfuga konu. Astráður Sigursteindórsson Valgerður Erlendsdóttir, tengda- móðir mín, er látin á 92. aldursári. Hún naut ágætrar heilsu þar til um páska í fyrra, að hún varð fyrir nokkra áfalli, og nú um síðustu áramót bilaði heiisan alvarlega. Valgerður fæddist 17. september 1894 að Amarstöðum í Flóa. Hún fiutti til Hafnarfjarðar á árinu 1907 með foreldmm sínum, Erlendi Jóns- syni og Gróu Bjamadóttur, og systkinunum Sigríði, Bjama og Guðmundi, en Sigríður er nú ein á lífi af systkinunum. Valgerður bjó í Hafnarfirði upp frá því. Hún giftist Jóel Fr. Ingvars- syni, skósmíðameistara og með- hjálpara, 10. október 1914 og var- aði hjónaband þeirra í rúm 60 ár eða þar til Jóel lést 9. júní 1975. Hjónaband þeirra var gifturíkt þótt stundum mætti þeim andstreymi, og sú gagnkvæma ástúð og virðing, sem þau auðsýndu hvort öðm, gæti orðið mörgum til eftirbreytni. Þau eignuðust átta böm en þijú elstu bömin létust í eða skömmu eftir fæðingu. Yngstu dótturina, Herdísí, misstu þau úr bamaveiki á árinu 1941 og var hún þá 10 ára gömul. Bömin fjögur, sem lifa móður sína, em Ingibjörg, Geir, Friðrik og Gróa. Síðla árs 1944 lést eiginkona Guðmundar, bróður Valgerðar, frá tveimur ungum bömum þeirra, Kristínu og Erlendi. Valgerður var þá komin yfir fimmtugt en engu að síður afréðu þau Jóel að bjóða Guðmundi að dvelja hjá sér ásamt bömunum. Hann var þá og æ síðan vélstjóri hjá Skipaútgerð ríkisins og því oft langdvölum að heiman. Kom því uppeldi bamanna að langmestu leyti í hlut Valgerðar og Jóels og fórst þeim það hið besta úr hendi. Varð mikið ástríki milli bamanna og fósturforeldranna og nefndu bömin Valgerði mömmu en Jóel afa. Mun það hafa raglað ýmsa í ríminu. Heimili þeirra Jóels stóð við Strandgötuna í Hafnarfírði eða rétt- ara sagt í Arahúsi. Var þar iðulega gestkvæmt og ekki að undra því ávallt ríkti á heimilinu ró og friður og frá húsbændunum geislaði hlýja og velvild, þannig að fólki leið vel í návist þeirra. Þau höfðu mjög já- kvæð áhrif á samferðamenn sína og hygg ég, að meginástæða þess hafi verið sú að þau lifðu í sátt við sig sjálf og við frelsara sinn. Trúin á hann skipaði stórt rúm í hjörtum þeirra og hafði mikil áhrif á breytni þeirra og lífsviðhorf. Valgerður var mjög létt í skapi og hafði næmt skopskyn. Hún átti auðvelt með að henda gaman að sjálfri sér og tók sig ekki alltaf hátíðlega. Hún glataði þó aldrei meðfæddum virðuleika sínum og hún hafði mikið vald á tilfínningum sínum, sem hún flíkaði lítt. Valgerð- ur var hrein og bein í framkomu og samskiptum við aðra og fór ekki í manngreinarálit. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og fór ekki dult með ef eftir var leitað. í orðræðum var festa í máli hennar og sjaldan hækkaði hún róminn til áherslu endaóþarfi. Valgerður dvaldi síðustu 9 árin á Hrafnistu í Hafnarfirði og lagaði hún sig fljótlega að breyttum að- stæðum. Komu þá vel fram hæfí- leikar hennar til að umgangast aðra og jákvætt hugarfar. Ekki var það ætlun hennar að setjast í helgan stein í þeim skiiningi þótt komin væri á elliheimili. Hún fór í sumar- orlof m.a. að Bifröst og í Hvera- gerði og sumarið 1979 hélt hún til Júgóslavíu með Sigríði systur sinni ásamt fríðum hópi skylduliðs. Ekki var þar unnt að merkja að þar fæm konur á níræðisaldri, t.a.m. þegar farið var í eins konar kláfi upp bratta fjallshlíð. Tengsl við böm og barnaböm héldust óbreytt eða styrktust jafn- vel, því bæði heimsóttu þau hana mikið og einnig var hún tíður gestur á heimilum þeirra. í fjölskylduboð- um var hún ávallt eins konar heið- ursgestur, og það var.öllu tómlegra í síðasta jólafagnaði fjölskyldunnar en áður, þar sem hún gat ekki verið með. Má ætla að starfsfólki Hrafn- istu hafi sumu þótt nóg um „útstá- elsið" á Valgerði, því iðulega kom hún ekki heim fyrr en komið var fram yfír miðnætti og búið var að læsa húsinu. Þegar á allt er litið hafði Valgerður í fullu tré við Elli kerlingu þar til á síðasta ári og hún lifði lífinu lifandi. Megi fleimm auðnast að njóta slíks. Síðustu mánuðirnir vom henni erfiðir, en í þeim veikindum naut hún frábærrar ummönnunar starfsfólks á sjúkra- deild Hrafnistu. Að leiðarlokum á ég einvörðungu bjartar minningar um Valgerði og samskiptin við hana og fyrir þær er égþakklátur. Bjarni Þórðarson t Eiginmaður minn, JÓHANNES HLEIÐAR SNORRASON, Klapparstíg 1, Njarðvík, andaðist í Borgarspítalanum miðvikudaginn 16. apríl. Fyrir hönd aðstandenda Helga Egilsdóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Narfakoti, Njarðvík, verður jarðsungin frá Innri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 19. apríl kl. 13.30. Hrafn Sveinbjörnsson, Óli Hrafnsson, Marfn Jónsdóttir, Ágúst Hrafnsson, Kristfn Hauksdóttir, Margrót Hrafnsdóttir, Frímann Grfmsson, Sveinbjörg Hrafnsdóttir, Árni Jens Einarsson, Kristín Hrafnsdóttir, Birna Hrafnsdóttir og barnabörn. t MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Mýrarkoti, Grfmsnesi, Ártúni 13, Selfossi, lést sunnudaginn 13. apríl sl. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 19. apríl kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda. Kristjana Sigmundsdóttir. t Útför eiginkonu minnar og móður okkar, ÁSU EMMU MAGNÚSDÓTTUR, lllugagötu 71, Vestmannaeyjum, sem lést 13. apríl veröur frá Landakirkju Vestmannaeyjum laugar- daginn 19. apríl kl. 16.00. Guðmundur Loftsson og börn. t Ástkær kona mín, móðir og dóttir, elskuleg dóttir, systir og barna- barn, AUÐUR ERLA ALBERTSDÓTTIR, ofl ERLA BJÖRK PÁLMARSDÓTTIR, sem létust af slysförum laugardaginn 5. apríl sl., verða jarösungn- arfrá ísafjarðarkirkju laugardaginn 19. apríl kl. 2 e.h. Þeim sem vildu minnast þeirra er vinsamlegast bent á Flugbjörg- unarsveitina í Reykjavík. Pálmar Smári Gunnarsson, Kristfn S. Baldursdóttir, Albert Ingibjartsson, Kristfn S. Bjarnadóttir, Anna Sveinsdóttir. t Systir okkar, ELÍN SKAFTADÓTTIR, Sörlaskjóli 56, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. apríl kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna, Þórhildur Skaftadóttir, Elísabet Skaftadóttir. t Alúðarþakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNÍNU EYÞÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR Guðríður Þórhallsdóttir, Guðmundur Þórhallsson, Björk Guöjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, THEODÓRS GÍSLASONAR fyrrum hafnsögumanns í Reykjavfk. Gfsli Theodórsson, Friðrik Theodórsson, Edda Völva Eiríksdóttir, Guðbjörg Theodórsdóttir, Sigurliði Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.