Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 42

Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 42
3 ? MÖRGÚNBLAÐÍb, FÖSTUDAGtííi 18. APfttLÍ9»6 -----:-?--------------I-!---------:-- „ ég v/iráist \jcra. farina aé missa töia'n.'' áster... ... að fara í kvöld- göngu og ganga af sérspikið. TM Rea. U.S. Pat Off.-all riflhts reserved «1985 Los Angeles Times Syndicale I Bara þakka þér fyrir — Það hreif. HÖGNI HREKKVÍSI , Bf HAMW SECtlK At> pAV SÉ &L*VA0tMVOK /ETTI HAWN AP VlTA pAE>.‘ Ánægjulegt sumarleyfi á ítölsku rivierunni Á síðastliðnu sumri, þegar ferða- skrifstofan Terra hóf að skipuleggja ferðir til ítölsku rivierunnar, fannst okkur kominn tími til að gera þann áhuga okkar að að ferðast til Italíu að veruleika. Að gefnu tilefni viljum við taka fram að við sjáum ekki eftir þessari ferð, þrátt fyrir smávægileg vanda- mál, sem komu upp og geta engan veginn talist óeðlileg þar sem við- skipti við íslendinga voru að hefjast á þessum stað. Um landnám var að ræða. Við skiptum um hótel í nokkra daga til að liðka fyrir, enda vorum við þama á þeim tíma, í ágúst, þegar regnþjáðir Norður- Þjóðveijar flykktust suður að Mið- jarðarhafi til að ná sér í ögn af sumri. Þeir hafa verið fastir við- skiptavinir þama á ströndinni um margra ára skeið. Fyrir vikið kynnt- umst við öðmm bæ sem var vel þess virði. Við þáðum bílaleigubfl frá Terru sem kom sér mjög vel, Hvað varð um tarfinn? var talsvert notaður og afsannaði algjörlega það sem heyrst hafði af munni sumra íslendinga að þeir óttuðust að aka á svo suðlægum slóðum. Það er skoðun okkar að Terru- ferðimar til ítölsku rivierunnar hafi slegið í gegn vegna fjölbreyttra staðhátta sem þama eru. Góðir baðstaðir, ýmist á hótellóð eða stutt frá, og ekki síður nábýlið við hið venjulega mannlíf á þessum stöð- um. Það liðu ekki margir dagar þar til við vomm farin að heilsa fólki sem við mættum á götu daglega og áttum einhver samskipti við. Hvort það var kaupmaðurinn sem við versluðum við, eða konan sem tyllti sér með bömin sín tvö á bekkinn við hliðina á okkur og fór að ræða um heima og heima. Þijú orð á ítölsku á móti einu á ensku og einu á þýsku og afgangurinn handapat sem e.t.v. skildist einna best. Eða listamannshjónin sem áttu litla galleríið sitt við Via Della Liberta. Fimm ára dóttir þeirra sótti leikföngin sín til að leika við son okkar á meðan við stöldmðum við. Það fór vel á með þeim þótt „bravo bambino" væri það eina sem þau gátu sagt sín á milli. Óskir og þarfir fólks em ætíð fjölbreyttar. Hversu ákjósanlegir sem ferðamannastaðir em er óvíst hvort hver og einn af stómm hópi finni nóg við sitt hæfi. Starfsfólk Terru í Pietra Ligure reyndi af fremsta megni að leysa hvem þann vanda sem kom upp. Skoðunarferðir sem Term-fólkið skipulagði vom til fyrirmyndar. Þegar samskipti ferðaskrifstofu og dvalarstaðar festast f sessi verða þau einnig heimilislegri og það er ekki aðeins vandalaust heldur einn- ig mjög þægilegt og ánægjulegt að njóta sumarleyfis á ítölsku rivier- unni. Við eigum þá ósk að fara til Ítalíu og óskum væntanlegum ítal- íufömm ánægjulegs sumarleyfis. Þórður Ingimarsson Um úrklippur í Iesbók Morgunblaðsins 5. apríl síðastliðinn birtist stórskemmtileg grein um háhyminga í japönskum dýragarði. Greinina þýddi Jóhann Siguijónsson. Fjallað er um kú frá íslandsmiðum, meðgöngu hennar og afkvæmi. Einnig er sagt frá annarri kú er tengdist stöllu miklum tryggðaböndum. Þá er í upphafí getið föður kálfsins, en hann kemur ekki við sögu eftir að kýrin er borin né er sagt hvort hann hafi skipt sér af afkvæmi sínu. Komið var að máli við Velvakanda og hann beðinn að koma því á framfæri við Jóhann hvort nánar væri vitað um hlut viðkomandi tarfs í uppeldi kálfsins. Góðan dag gott fólk. Mig vantar upplýsingar sem fyrst, sem ég vona að þið getið veitt mér. Er til íslenskt fyrirtæki sem tekur greinar úr blöðum og tímaritum, flokkar þær niður og selur gestum og gangandi? Mig minnir að ég hafi lesið um slíka stofnun í ein- hveiju blaðanna fyrir nokkru og nú bráðvantar mig að vita hvar svona fyrirtæki starfar og hvort það er yfirleitttil. Með fyrirfram þökk, Árdis Velvakandi tók sig til og fletti upp í símaskránni og fann þar upplýsingaþjónustuna Miðlun, sem sinnir því verkefni er Árdís spyr um. Miðlun er í Tryggvagötu 10, Reykjavík og síminn þar er 91- 10660. Víkverji skrifar Reykjavík kemur að vanda frem- ur illa undan vetri. Sumir borgaranna hafa því miður sem endranær sýnt henni langtum of litla umhyggju. Þar eru ökuþóramir fremstir í flokki og þá eru það vitan- lega grasgeiramir fyrst og fremst sem verða fyrir áreitni þeirra. Þeir leggja á þeim, skrönglast eftir jöðr- unum á þeim ef færðin er eitthvað leiðinleg eins og þeir væm í tor- færakeppni, eiga það jafnvel til að dengja sér beint yfir þá af full- komnu skeytingarleysi um afleið- ingamar; og fremja þá kviðristu á grassverðinum rétt eins og þeir væra að plægja akur. Á Kringlumýrarbrautinni á einn af þessum náungum erindi í Suður- ver, sem stendur eins og vegfarend- um er kunnugt, þama á homi Hamrahlíðar. Ætli hann eigi ekki í mesta lagi þijátíu fjöratíu metra eftir að Hamrahlíð og þar með að innkeyrslunni í þessa fjölsóttu verslanamiðstöð? En er hann sáttur við það? O, ekki aldeilis. Hann sveigir af hraðbrautinni og upp á grasbalann sem er þar til yndis- auka, þrælar sér aflíðandann með brauki og bramli, buslast þessa leiðina og eflaust sigri hrósandi inn á bílastæðið. Ætli hann hafi ekki sparað sér einar tíu sekúndur, kappinn. Og skildi eftir sig markið sitt til minn- ingar um afrekið. Sums staðar hafa verið reistir víggarðar til þess að veija grasflatimar. Ein rammgerð verður fyrir augum manna þegar ekið er inn í Efra-Breiðholt vestanvert. Hún hefur verið lengd til beggja átta einu sinni að minnsta kosti af því vargurinn ók bara fyrir endana á þeirri fyrstu og bjó til ennþá stærra og tilkomumeira svað þar sem áður var gróin grand. Vargur- inn færði út ríki sitt, mætti líka kalla það og sparaði sér um leið þessar dýrmætu tíu sekúndur. Þar sem Hafnarfjarðarvegur liggur í gegnum Kópavog hefur á einum stað líka verið reist eins konar vígvallargirðing eins og þar væri háður skotgrafahemaður eða maður væri að nálgast Berlínar- múrinn. Hún er til vamar gras- geiranum sem deilir akbrautinni milli þeirra ökumanna sem halda í norðurátt og svo hinna sem stefna í þá gagnstæðu. En áður en girðing- in reis gáfu þeir bara í og brenndu beint yfir grasið þessir svölu: Þessir „kallmannlegu" og hörðu og ódeigu sem gátu hvorki látið svona lítilræði verið að þvælast fyrir sér né látið það spyijast um sig að þeir væra svo forkastanlega löghlýðnir að fara að reglum eins og hveijir aðrir smáborgarar. Svo era það- manneskjumar sem hafa valið sér það hlutskipti að vera eins konar færanlegir rasla- haugar, svo sem eins og pylsupjakk- amir sem mundu frekar láta drepa sig en leggjast svo lágt að nota sorpflátin sem bærinn er með á húsveggjum og ljósastauram. í þessum flokki era líka flottgreifam- ir sem era að bíða eftir frúnni í kagganum sínum og nota tækifærið til þess að tæma öskubakkann á gangstéttina. Inni við Glæsibæ rogast tveir þreklegir náungar út úr einni versl- uninni með fangfyllí af vamingi sem á að fara í bílinn þeirra. Gætu sýnst vera flutningamenn einhvers konar eða lagermenn. Einhverra hluta vegna era umbúðimar þeim til ama þegar þeir koma að bílnum. Ekkert mál. Þeir leggja baggana frá sér og taka til við að tæta utan af þeim plastið og pappírinn og hvoru tveggja fleygja þeir út í veðrið, fela það forsjá vindsins. Tveir fullorðnir menn hamast við að haga sér eins og skrælingjar. Og kæra sig kollótta um það — það sýnir svipurinn eða réttara sagt svipbrigðaleysið þó að þetta fram- ferði þeirra veki verðskuldaða fyrir- litningu nærstaddra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.