Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 36
36
ajfö'-jœKv.
*
fclk í
fréttum
M
Anne Bancroft og Mel Brooks
Hrafnhildur Valgarðsdóttir
Lilian
prinsessa
í góðum höndum
Ymislegt er á þá lagt er tengdir
eru kóngafjölskyldum. Þeir þurfa
víða að mæta, sýna sig og sjá aðra.
Lilian prinsessa, er eftir langa mæðu
fékk að giftast sínum heittelskaða,
Bertil Svíaprins, er engin undantekn-
ing. Eftir að hún var formlega orðin
meðlimur konungsfjölskyldunnar, fékk
hún sín verkefni. Þessi vingjamlegu
dýr er umvefja hana á myndinni, eiga
að sýna hversu vel Gautaborg tekur á
móti þeim ferðamönnum er þangað
koma. Við skulum vona að ekki sé
stokkið fyrirvaralaust á þreytta og
e.t.v. annars hugar ferðalanga er
leggja leið sína til þessarar ágætu
borgar.
Ég hef alltaf haft
löngun til að skrifa
Rætt við Hrafnhildi Valgarðsdóttur sem nýlega gaf
út fyrstu bók sína
Hrafnhildur Valgarðsdóttir
fæddist í Reykjavík árið 1948 en
býr nú með fjórum börnum,
eiginmanni og ketti á Álftanesi.
Nýlega kom út eftir hana bama-
bók, Kóngar í riki sínu, sem Mál
og menning gaf út og er hún
fyrsta bók höfundarins. „Ég hef
alltaf haft löngun til að skrifa,
eiginiega allt frá þvi ég man eftir
mér, og hef líka alltaf verið að
gripa í það öðra hvoru,“ sagði
Hrafnhildur í samtali við bim.
Mbl. „Fyrir 18 árum birtist fjrst
saga eftir mig í Lesbók Morgun-
blaðsins og siðan hafa margar
sögur sem ég hef skrifað birst
bæði þar og i ýmsum tímaritum.
Ég hef aldrei getað gefið mér
eins mikinn tíma til að skrifa og ég
hefði kosið, en nú ætla ég að láta
drauminn rætast, a.m.k. að ein-
hvetju leyti. Ég hef að undanförnu
starfað sem kennari við Álftanes-
skóla og þar áður við Seljaskóla en
hef í hyggju að hætta kennsluni í
vor. Þannig geri ég ráð fyrir að
hafa ss. 4 - 5 klst. á dag til að
sinna ritstörfum.
Ég held að þetta komi til með
að gefast vel og þessi tími ætti að
nægja til þess að koma ýmsu í verk.
Ég tók mér fri frá kennslunni si.
haust og alveg fram á jól og sinnti
þá ritstörfum eingöngu í öllum frí-
stundum, og það gekk mjög vel.
- Hvemig gekk þér að nýta tím-
ann þegar þú hafðir hann?
Það gekk ágætlega. Ég hafði 3
til 4 klst. á dag og vann alltaf allan
þann tíma, og reyndar oft fram
eftir kvöldi þegar ég var kominn í
gang með skriftimar".
- Hvaða verkefni ætlar þú að
taka fyrir?
Ég ætla að bytja á því að skrifa
fyrir böm og unglinga. Ég hef
fengist töivert við að skrifa leikrit
undanfarin ár og á meðal annars í
handriti eitt bamaleikrit og 3 leikrit
fyrir fullorðna. Mér hefur alltaf óað
við skáldsögunni því hún er svo
tímafrekt form.
- Þú átt þá tölvert af handritum
i skrifborðsskúffunni?
Já, ég á að vísu fullt af efni, en
fæst af því er nógu gott eins og
það er og mikið af því hálfunnið.
Mest af þessu er auðvitað unnið á
hlaupum og hvað leikritin varðar
skortir mann eflaust kunnáttu til
að ganga frá þeim eins og vera
ber. Mér finnst það vanta að rit-
höfundar geti komist á fyrirlestra
eða námskeið um leikritagerð t.d.
eða vinnu fyrir sjónvarp. Maður
stendur svo mikið einn í þessu og
það skapar visst óöryggi.
Það em Iíka óneitanlega oft
nokkuð kaldar kveðjur sem ungir
rithöfundar fá við fyrstu verkum
sínum og ég hef orðið fyrir því að
fá leikrit endursend án nokkurra
skýringa. En frá þessu em auðvitað
undantekingar.
Fyrir löngu skrifaði ég bamaleik-
rit sem ég lagði inn hjá íjóðleik-
húsinu. Nokkuð löngu síðar kallaði
þáverandi þjóðleikhússtjóri, Sveinn
Einarsson, mig á sinn fund. Hann
gaf sér tíma til að lesa í gegnum
leikritið með mér og benda á veiku
hliðamar á því. Þetta var mér mjög
mikils virði, ekki aðeins ábendingar
hans, heldur fékk ég líka þá tilfinn-
ingu að það sem ég var að skrifa
væri einhvers virði," sagði Hrafn-
hildur.
Bókin Kóngar í
ríki sinu er
prýdd myndum
eftir Brian
Pilkington
Debbie Reynolds set-
ur sig i stellingar og
segist vera að auglýsa
nviu bókina sína er
B°b Hope bauð dóttur sinni með í f£llar um hverni? á
þettaskipti að halda sér í góðu
formi.
Söngkonan Cher sérkennilega klædd,
að vanda.
St]örnur á ferð
*
— þegar Oskarsverðlaunin voru afhent
Uthlutun Óskarsverðlaunanna og
afhending þeirra verkja alltaf
vemlega athygli. Menn velta því fyrir
sér í margar vikur hveijir muni hljóta
verðlaunin og þegar að því kemur að
tilkynnt er um verðlaunahafana geta
milljónir manna fylgst með því í beinni
sjónvarpsútsendingu. íslenska sjónvarp-
ið sýndi þennan þátt frá verðlaunaaf-
hendingunni, að vísu
nokkm eftir að atburðurinn
átti sér stað og er ekki að
efa að margir hafa horft á
hann. Ekki þykir þó jafn
eftirsóknarvert og áður að
vera þama viðstaddur og er
sagt að þær stórstjömur er
ekki eigi von á verðlaunum,
eða eigi að afhenda þau, kjósi
fremur að horfa á útsending-
una í sjónvarpi í góðra vina
hópi,
Töluverður hópur manna
safnast alltaf saman fyrir
utan húsið, þar sem athöfnin
fer ffarn, í þeirri von að sjá
sín eftirlætisgoð streyma að.
Ljósmyndarar þyrpast líka á
staðinn og sjáum við hér
hluta af afrakstri eins þeirra.
Meryl Streep ásamt eiginmanni sinum