Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 18

Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 18
MORGEÍNBLAÐIÐ; FÓSTUDAGUR1&: APRtL 1986f 18 Ver ðlagsstofnun og MFA halda nám- skeið um verðlagsmál VERÐLAGSSTOFNUN og Menn- ingar- og fræðslusamband al- þýðu gangast þessar vikumar fyrir námskeiðahaldi um verð- lagsmál, verðgæslu og verðkann- anir. Námskeiðin em haldin víðs vegar um landið í samvinnu við stéttarfélög og neytendafélög. V-Barðastrandarsýsla: Bændur eru hræddir við svæðabúmarkið ALLFLESTIR bændur í V-Barðastrandarsýslu mættu til fundar á Patreksfirði 7. apríl síðastliðinn. Tilefni fundarins var hið svokallaða svæðisbú- mark, sem taka á upp vegna framleiðslu i landbúnaði. Bjarai Guðmundsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra, og Guð- mundur Stefánsson, hagfræðing- ur Búnaðarfélags íslands, mættu á fund þennan. Allharðar umræður urðu um skerðinguna sem fylgir svæðis- búmarkinu og kom fram að menn óttast að hún komi verr niður á bændum hér en á öðrum svæðum. Hér eru aðeins lítil bú, sem ekki þyldu þá 14% skerðingu er búmark- ið gerir ráð fyrir. Þetta myndi leiða til enn meiri flótta héðan úr sveitum og stendur byggð hér þó höllum fæti. Fundurinn ályktaði að skora á ráðherra að skerðing búa myndi miðuð við 440 ærgildi. Þetta er samhljóða samþykkt þeirri, sem bændur í Húnavatnssýslum stóðu að á nýafstöðnum fúndi. —SÖL Fyrsta námskeiðið var haldið á Eskifírði síðastliðinn laugardag. Að sögn Jóhannesar Gunnarssonar út- gáfustjóra Verðlagsstofnunar var þáttaka í námskeiðinu góð. A það mættu 20 manns frá sjö þéttbýlis- stöðum á Austurlandi. Um helgina verða haldin 4 nám- skeið. Laugardaginn 19. apríl verða haldin námskeið í Borgamesi, á ísafírði og Sauðárkróki, og sunnu- daginn 20. apríl verður námskeið á Selfossi. Þá er áformað að halda námskeið á Akureyri, í Keflavík og Grundarfírði laugardaginn 26. aprfl. Jóhannes sagði að á námskeiðun- um væri skýrt fyrír fólki hveijir fara með verðlagsmál, farið yfir starfsemi Verðlagsstofnunar, meðal annars hvemig verðgæslan væri framkvæmd eftir að vömverð hefur veríð gefíð fijálst. Þá væri einnig kynnt framkvæmd verðkannana. Ögri seldi í Bremerhaven SKUTTOGARINN Ögri RE seldi 219,4 tonn af ísfíski í Bremerhaven á fimmtudagsmorgun. Fengust tæpar 8,5 milljónir fyrir aflann, eða 38,72 krónur að meðaltali fyrir hvert kfló. Uppistaðan í afla Ögra varkarfí. BlÖnduÓS Og SÓlarlag í aprílblíðunní. Morgunblaðið/J6n Sigurðsson Húnavaka að hefjast Austur-Húnavatnssýsla: Dagskrá fjölbreytt að vanda Blönduósi. HÍJNAVAKA, hin árlega menn- ingarvaka Ungmennasam- bands Austur-Húnavatnssýslu, hefst laugardaginn 19. apríl með unglingadansleik í félags- heimilinu á Blönduósi. Þetta er í 38. sinn sem Húnavaka er haldin og er dagskrá hennar fjölbreytt að vanda. Að þessu sinni verða dansleikir á Húnavöku fjórir og sjá hljóm- sveitir á Norðurlandi vestra um allan undirleik á þeim. Hitt leik- húsið kemur með Rauðhóla Rannsý og Revíuleikhúsið sýnir Skottuleik. Auk þess verður Leik- félag Blönduóss með Vígsluvott- orðjð til sýninga á vökunni. Á sumardaginn fyrsta verður skátamessa í Blönduóskirkju og mun Sigfús Jónsson æskulýðs- fulltrúi þjóðkirkjunnar prédika. Skátar ætla að ganga í skrúð- göngu til kirkju. Seinna um dag- inn verður Gmnnskólinn á Blönduósi með sumarskemmtun sína og að henni lokinni verður bamaball á vegum USAH. Karlakór Bólstaðarhlíðar- hrepps og Samkórinn Björk verða með söngdagskrá á Húnavöku og verður efnisval fjölbreytt. Hús- bændavaka verður á sínum stað í Húnavökudagskrá. Kristín Ól- afsdóttir mun spjalla við sam- komugesti. Kristinn Sigmundsson syngur við undirleik Sigurðar Daníelssonar. Edda Björgvins- dóttir og Júlíus Bijánsson skemmta og nokkur ungmennafé- lög í A-Hún. verða með skemmti- dagskrá. Kynnir á Húsbændavöku að þessu sinni verður Sigmar Jónsson. Margar góðar kvikmyndir verða sýndar á Húnavöku og geta flestir fundið þar eitthvað við sitt hæfí. I tengslum við Húnavöku verða listsýningar á Hótel Blöndu- ósi, Bjami Jónsson listmálarí og Astrid Erlingsson pijónahönnuður verða með sýningar á verkum sín- um. í félagsheimilinu verður á vegum Sambands austur- húnvetnskra kvenna glerlistar- sýning frá Gleri í Bergvík. Allar þessar sýningar em sölusýningar. Starfsfólk Hótels Blönduóss verður í Húnavökuskapi og ætlar að gera Húnavökugestum hátt undir höfði. Húnavöku lýkur með lokadansleik laugardaginn 26. apríl, þar sem Geirmundur Valtýs- son og hljómsveit hans leikur fyrir dansi. — JónSig. Frá fundi sjálfstæðismanna á Akureyri um stefnumörkun fyrir kosningamar 31. maí. Morgunbiaðíð/Skapti Sjálfstæðismenn á Akureyri: Fundir um stefnumörk- un fyrir kosningar atvinnu- og orkumál, síðan um mál og á þriðjudaginn var rætt skipulags-, umhverfís- og ferða- um skóla-og menningarmál. Skæð flensa hefur hijáð Yopnfirðinga Vopnafirði. NOKKUÐ skæð inflúensa hefur Akureyri. Sjálfstæðismenn á Akur- eyri hafa að undanfömu fundað um stefnumörkun flokksins fyrir bæjarstjómar- kosningamar i vor. Síðasti fundurinn var í gærkvöldi i húsakynnum flokksins i Kaupangi og er hann um íþrótta-, æskulýðs- og félags- mál. Þrír fundir hafa þegar verið haldnir. Þeir eru í framhaldi af bæjarmálaráðstefnu sem haldin var í nóvember síðastliðnum. Auk frambjóðenda hafa sótt fundina fulltrúar þeirra málaflokka sem verið hafa til umræðu hveiju sinni. Á fyrsta fundinum var rætt um hijáð Vopnfirðinga nú um nokk- urt skeið, misjafnlega slæm, en í þó nokkrum tilfellum hefur þurft að flytja sjúklinga i sjúkra- flugi í sjúkrahús á Akureyri með um og yfir 40 stiga hita. Þetta útbreidd veikindi setja óneitanlega nokkum svip á mannlff-" ið á ekki stærri stað en Vopnaijörð- ur er og meðal annars þurfti að fresta fyrirhugaðri árshátíð grunn- skólans um óákveðinn tíma. Einnig leit út fyrir að yrði að fresta ferm- ingum um páskana en það slapp og var fermt á skírdag. Að sögn héraðslæknisins er flensan nú mjög 'í réftunl g g Dalvík: 58 tóku þátt í firma- keppni hestamanna Dalvik. Laugardaginn 5. apríl sl. var gott veður á Dalvík, glampandi sólskin og hiti. Mikil sólbráð var og snjór lét mikið á sjá, en um páskana kyngdi niður töluverð- um snjó og gerði illfært hér i bæ. Á þessum degi hélt hestamanna- félagið Hringur sitt fyrsta hestamót á árinu — fírmakeppni. 58 aðilar, fyrirtæki, félög og bændur, létu skrá sig til keppninnar og er þetta mesta þátttaka i slíkri keppni hjá félaginu til þessa. Keppt var í tveim flokkum, flokki fullorðinna, þar sem 42 kepptu og í unglingaflokki, þar sem keppendur voru 16. Úrslit voru sem hér segir: 1. Valur, knapi Stefán Friðgeirs- son, hann keppti fyrir Dalalæðu hf. 2. Tvistur, knapi Einar Hjörleifs- son. 3. Krummi, knapi Þórarinn Gunnarsson. Úrslit í unglingaflokki: 1. Helmingur, knapi Hólmfríður Stefánsdóttir en hún keppti fyrir Skíða- og reiðhjólaþjónustuna. 2. Yrpa, knapi Þórir Guðmunds- son. 3. Asi, knapi Hólmfríður Stef- ánsdóttir. Það er mikil gróska í hesta- mennsku og hrossarækt á Dalvík og í Svarfaðardal. Á þessum vetri hefur mikið verið um útreiðar og í sveitinni hafa verið starfræktar tvær tamningastöðvar í Syðra- Garðshomi og á Þverá í Skíðadal. Þar hafa tveir ungir menn þreytt sína frumraun á sviði tamninga, þeir Einar H. Stefánsson og Þór Ingvason. Formaður hestamanna- félagsins Hrings er Þorsteinn H. Stefánsson. Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.