Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 10

Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 10
110 3 MORGUNBLAÐIÐ1.FÖSTÖÐAGUR'l»:;AT>RÍLÍ986 Alþjóðlegt sjóstanga- veiðimót haldið í maí Pétur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstof- unnar Vikingaferða, sem gengst fyrir komu breskra stangveiðimanna hingað til Morgunbladid/hmar þ alur Hér sjást nokkrir keppendanna í úrslitum ensks sjóstangaveiðimóts sem haldið var i Keflavík í fyrra- haust. Mynd um keppni þessa var nýlega sýnd i breska sjónvarpinu og þykir mjög góð landkynning. Keflavík: — von á yfir 200 stangveiðimönnum í sumar Iands í sumar. Keflavík. DAGANA 18. til 25. maí fer fram i Keflavík fyrsta alþjóðlega sjó- stangaveiðimótið sem haldið er við Island, og ber það heitið „The first Keflavík international beach/boat fishing festival“ og er ætlunin að gera það að árleg- um viðburði. Ferðaskrifstofan Víkingaferðir i Keflavik stendur fyrir þessu móti i tilefni af komu fyrsta hópsins af breskum sjó- stangveiðimönnum sem ætla að renna fyrir fisk á Suðumesjum í sumar. „Mótið er ætlað bæði íslending- um og útlendingum og er öllum opið,“ sagði Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Víkingaferða. „Það stendur í fjóra daga, tvo daga verður veitt á sjóstöng af bátum og tvo daga verður strandveiði. Það koma tveir hópar Breta til landsins þessa daga, 40 til 50 manns hvor hópur. Hér dvelja þeir í viku við 685009 685988 Furugrund Kóp. ja herb. íb. I á 2. hæð. Suöursvalir. Laus í ágúst. Furugerði. Endaíb. á 1. hæ*. Sérþvottah. Suðursvalir. Ákv. sala. Hverfisgata. ja herb. íb. á 3. I hæö. Væg útborgun. Hlíðarhverfi. 55 fm hæö. 4 I svefnherb. Ágætar innróttingar. Bílsk. Seljahverfi. Glæsil. einbýlish. v/Strýtusel ca. 240 fm. Vandaöar innr. Arinn. Tvöf. bflsk. Lóö fullfrág. Heiðarás. ús á tveimur hseðum. I Eignin er ekki fullb. 55 fm séríb. ó jarð- hæð. Til afh. strax. Skipti á fasteign í Mosfellssveit æskileg. f KjöreignVt Ármúla 21. veiðar á Suðumesjum og fara einnig í einhveijar skoðunarferðir. Makar verða einnig með flestum veiði- mönnunum og munum við fara með konumar um Suðumes, til Reykja- víkur, Gullfoss og Geysis og svo framvegis. Við seljum ferðir hingað í sumar og geri ég ráð fyrir að vera með svona tuttugu manna hóp. Það sem gerir þetta mögulegt er að nú loksins emm við að fá hótel hér í Keflavík og það stendur til að taka það fyrsta af þremur sem eru í byggingu, í notkun áður en fyrsti hópurinn kemur, þannig að gestimir munu dveljast þar að hluta til og einnig í verbúðum í Röst hf. og svo í heimahúsum," sagði Pétur. Flugleiðir og Víkingaferðir standa í sameiningu að þessum ferðum ásamt ferðaskrifstofunni Twickers World í Bretlandi. Hefur aðsóknin í sjóstangaveiðina verið góð og ekki síst að þakka því að í fyrrasumar fór einmitt fram úrslita- keppnin í sjóstangveiðimóti í Kefla- vík og var meðal annars gerður sjónvarpsþáttur um mótið og var hann blandaður landkynningu og myndum af Hólmfríði Karlsdóttur og Jóni Páli. Þáttur þessi var sýndur 7. apríl síðastliðinn í sjónvarpi á Englandi og vakti athygli. Vonaðist Pétur til að þetta verkaði sem góð auglýsing á áframhaldandi aðsókn til Suðumesjanna. En það em seld- ar ferðir í fleira en stangveiði á Suðumesjum. Einnig hefur verið boðið upp á fuglaskoðunarferðir, en á Suðumesjum er eitthvert fjöl- skrúðugasta fuglalíf á einum stað í Evrópu, en ekki hefur selst jafn vel í þær ferðir. Sagði Pétur að það væri bara byijunin að vera með þetta í Bretlandi, ef aðsóknin myndi aukast á komandi summm gerði hann ráð fyrir að færa út kvíamar. Aðspurður nánar út í mótið í maí, sagði Pétur, að maður að nafni Peter Baker, en hann var einn af þeim sem sá um þessa úrslitakeppni hér í fyrra, muni koma til landsins viku fyrir keppnina og kenna ís- lendingum köst og fleira sem til- heyrir strandveiði. „Það er von ________Brids__________ Arnór Ragnarsson Bridsdeild Skagfirðinga Ágæt þátttaka og stöðug er í eins kvölds tvímenningskeppni hjá Skagfirðingum á þriðjudögum í Drangey v/Síðumúla 35, enda keppnin opin öllum sem vilja. Úrslit sl. þriðjudag urðu þessi: N/S: Amar Ingólfsson — Magnús Eymundsson 263 Karólína Sveinsdóttir — Hildur Helgadóttir 232 Bjöm Hermannsson — Láms Hermannsson 231 Matthías Þorvaldsson — Júlíus Siguijónsson 230 A/V: Helga Sveinsdóttir — Ragnar Hjálmarsson 277 Jörundur Þórðarson — Sveinn Þorvaldsson 248 Karl Gunnarsson — Pétur Júlíusson 240 Bemódus Kristinsson — Bjami G.P. Hjarðar 233 Og það eru eins kvölds tvímenn- ingskeppnir sem em á dagskrá fram eftir apríl. Á laugardaginn kemur (19. apríl) mun félagið taka á móti 10 sveitum frá Skagafirði. Verður spiluð sveitakeppni um daginn og slagnum fram haldið á Sögu um kvöldið. Bridsfélag Akraness Nú stendur yfir Akranesmót í sveitakeppni með þátttöku 12 sveita. Þegar aðeins 2 umferðir em eftir er staða efstu sveita þannig: Alfreð Viktorsson 196 Ingi SteinarGunnlaugsson 188 Hörður Pálsson 172 Halldór Hallgrímsson 137 Hermann Tómasson 135 Sæviðarsund 4ra herb. glæsileg íbúð á 1. hæð í fjórbýlishúsi. Suður- svalir. Góður garður. Nálægt þjónustumiðstöð. Laus strax. Verð 3,3 millj. Hestamenn — félög Til sölu ca 200 ha jörð í næsta nágrenni Reykjavíkur. Ágætt íbúðarhús með öllum nútíma þægindum. Stórt „hesthús" meö hlöðu. Tilvalið fyrir hestamannafélög í nágrenni Reykjavíkur eða fyrir nokkra hestamenn að sameinast um kaup. Tilboð óskast. Fasteignaþjónustan Austurstræti 17, s. 26600 Þorsteinn Steingrímsson lögg. fasteignasali. 26600 okkar að sem flestir íslendingar taki þátt í mótinu, þó að ekki væri nema til þess að koma á skemmti- legum keppnisanda," sagði Pétur. „Við héma hjá Víkingaferðum komum til með að bóka þátttakend- ur og veitum allar þær upplýsingar sem fólk þarfnast." Pétur sagðist eiga von á í það minnsta 2—300 Englendingum í sumar. Þátttökukostnaði fyrir þessa ferðamenn er haldið í lágmarki til að öðlast betri auglýsingu og kostar vikuferð aðeins um 320 pund með öllu. Fyrir sjóveiðina hafa þeir tvo átta metra hraðbáta og svo aðgang að nokkmm bátum, frá 10 og upp í 30 tonn, þegar á þarf að halda. Veitt er annaðhvort í Garðsjó eða úti af Stafnesi, en það fer allt eftir veðri og er þá lagt upp frá Kefla- vík eða Sandgerði. Nýlega var komið á vinabæjasambandi á milli Keflavíkur og Brighton, en margir þessara veiðimanna koma einmitt þaðan og frá sveitunum þar í kring. Er það þáttur í þeirri viðleitni að byggja upp ferðamannaiðnað á Suðumesjunum. Einnig hefur Jó- hann Sigurðsson, forstöðumaður Flugleiða í London, verið mjög ötull við að auglýsa þessar ferðir. „Það er von okkar að með þess- um nýju hótelum hér í Keflavík, megi fyrst fara að byggja upp ferðamannaiðnað á Suðumesjun- um,“ sagði Pétur. „Hér höfum við upp á tvo góða veitingastaði að bjóða og margt við að vera. Hér er góður golfvöllur, Bláa lónið og svo mætti áfram telja. Ég tel að við hér getum vel keppt við Reykja- víkursvæðið. Hér er gott að dvelj- ast, rólegt og margt að skoða, og menn geta hvenær sem er skotist í verslunar- eða skemmtiferð til höfuðborgarinnar. Við getum alveg verið óhræddir í þessum bransa. Það hefur þegar sýnt sig að það er mjög vinsælt að fara með erlenda ferðamenn í Reykjanesferð með viðkomu í Bláa lóninu og er það von okkar að baðaðstöðu verði komið þar á sem allra fyrst, enda núverandi ástand mjög slæmt við jafn vinsælan stað,“ sagði Pétur Jóhannsson að lokum. — efi Bridssamband Vesturlands Undanúrslitum í bikarkeppni sveita á Vesturlandi er nú lokið. Leikar fóm þannig að sveit Guð- mundar Siguijónssonar, Akranesi, vann sveit Ellerts Gunníaugssonar, Stykkishólmi, og sveit Inga Stein- ars Gunnlaugssonar, Akranesi, vann sveit Þorsteins Péturssonar, Boijrarfírði. Urslitaleikurinn á milli sveita Guðmundar og Inga Steinars verður spilaður 25..apríl nk. Keppt er um veglegan farandbikar sem Sjóvá hefur gefíð auk verðlauna fyrir 1. og 2. sætið. Bridsfélag Suðumesja Nú er aðeins einni umferð ólokið í aðalsveitakeppni félagsins sem staðið hefír undanfama mánudaga. Keppnin er mjög jöfn og spennandi eins og sjá má af stöðunni: Nesgarður 168 Hjálmtýr Baldursson 166 Sigurður Steindórsson 165 Maron Bjömsson 128 Svo skemmtilega vill til að þessar sveitir spila innbyrðis í síðustu umferðinni. Sveit Nesgarðs spilar gegn Maron og Hjálmtýr og Sigurð- ur spila saman. Ánnan mánudag hefst svo þriggja kvöldatvímenningur. Spilað er í Grófínni kl. 20 á mánudögum. Bridsfélag Breiðholts Nú stendur yfír keppni í Board- a-match-sveitakeppni með þátttöku 10 sveita. Að loknum þremur um- ferðum er staðan þessi: Sveit Stig Helga Skúlasonar 36 Antons R. Gunnarssonar 36 Baldurs Bjartmarssonar 36 Karls Gunnarssonar 35 Þórarins Ámasonar 33 Keppnin heldur áfram næsta þriðjudagkl. 19.30 stundvíslega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.